Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 22.10.2002, Qupperneq 7
Júlíus nýtti árið í fyrra vel til aðkoma sínum áherslum að og því vita leikmenn að hverju þeir ganga í ár. „Nú eru leik- mennirnir einu ári eldri þrátt fyrir að vera enn ungir. Styrkur okkur ligg- ur helst í mikilli breidd og einnig því að leikmennirnir eru flestir ÍR- ingar að upplagi. Það skiptir máli að þetta eru allt strákar sem hafa alist upp saman og hafa unnið titla í yngri flokkum og þekkja þá tilfinn- ingu en eiga bara eftir að afreka það í meistaraflokki,“ sagði Júlíus. Umgjörðin í kringum ÍR hefur auk- ist mjög síðastliðin tvö ár og telur Júlíus það hafa áhrif á árangurinn. „Sá hópur sem er að vinna í kring- um liðið er mjög sterkur. Hann vinnur mjög óeigingjarnt starf enda er þetta frekar lítið félag,“ sagði Júlíus sem er Valsari að upplagi en lék auk þess með P.S.G., Bidasoa, Valencia og Gummersbach sem at- vinnumaður. Ef þú berð saman ÍR og Val, í hverju liggur helst munurinn? „Hefðin er til staðar hjá Val. Ár- angurinn byggist samt fyrst og fremst á því hvaða vinnu maður leggur í þetta, hvaða mannskap maður hefur og fólkið sem vinnur í kringum liðið ásamt auðvitað að- stöðunni. Eini munurinn sem ég sé er kannski sá að við eigum ekki okkar eigið íþróttahús. Íþróttahús- ið í Austurbergi er okkar heimavöll- ur og þrátt fyrir að starfsfólkið þar vilji allt fyrir okkur gera á Reykja- víkurborg húsið. Þar af leiðandi höfum við til dæmis ekki haft neina aðstöðu til lyftinga og höfum þurft að betla okkur aðstöðu hér og þar.“ Er ÍR að verða eitt af stóru félög- unum í handboltanum? „Ef áfram er haldið vel á spöðunum og hópn- um haldið vel saman þá er hægt að ná í titla. Við erum náttúrlega í þessu til að ná í titla, hvort sem það gerist á þessu ári eða næstu tveim- ur. Við stefnum á að lenda í einu af fjórum efstu sætunum í deildinni í vetur og ég er klár á því að það býr mikið í þessu liði.“ Hvernig finnur þú þig sem þjálf- ari hjá ÍR? „Ágætlega, og ég hef mjög gaman af þessu. Það er alltaf gaman að koma á æfingar og nálg- ast einstaklingana, en það þarf að gera á mismunandi hátt. Ég er í þeirri stöðu að vera einnig að spila en er með mjög góðan aðstoðar- mann, Finnboga Grétar Sigur- björnsson sem hefur staðið sig virkilega vel. Árangurinn skapast ekki bara af leikmönnum, eða bara þjálfara, heldur er það heildin sem mestu máli skiptir.“ Nú hefur þú reynslu af því að spila í fjórum löndum. Hefur þú ekki fullt að kenna þessum strákum? „Ég vona það, en það er einmitt ástæðan fyrir því að ég er að þjálfa. Ég vissi að ef ég færi ekki að þjálfa strax, myndi ég líklega aldrei gera það. Ég hef lært heilmikið sjálfur og getað kennt þeim sitthvað líka, en hvort það skilar sér verður bara að koma í ljós.“ Er mikil áhersla lögð á framtíð- ina hjá ÍR? „Já, en við viljum samt afreka eitthvað í ár því við höfum ekkert afrekað fram að þessu. Í fyrra vorum við í öðru til þriðja sæti nánast allt tímabilið en enduðum í því sjötta þar sem deildin var mjög jöfn. Deildin stefnir í að vera aftur svona jöfn og eitt stig getur skipt sköpum hvort maður sé þremur sætum ofar eða neðar og ég held að það sé mikilvægt að hugsa um það einmitt núna, en ekki þegar lengra er liðið á mótið. Við höfum verið að vinna með þessi atriði einmitt útfrá okkar reynslu frá því í fyrra. Einnig er sú vinna sem við lögðum á okkur í sumar að skila sér. Við fórum út til Þýskalands í haust og strákarnir lögðu mikið á sig til að safna fyrir þeirri ferð og það skilar sér líka. Æfingar eldsnemma á morgnana og meira puð er vinna sem ekki allir eru tilbúnir að leggja á sig. Við æfð- um á tímabili tvisvar á dag til að vera fyrr tilbúnir fyrir æfingaferð- ina. Ég er svo heppinn að hafa mannskap sem er tilbúinn að leggja slíkt á sig og það tel ég mjög gott. Þetta er fórnfúst starf hvort sem þú ert þjálfari, starfsmaður, leikmaður eða sjúkraþjálfari. Þessi atriði eru öll að smella saman hjá ÍR. Helst þyrftum að fá fleiri áhorfendur á leiki í Austurbergi. Sá kjarni sem mætir hefur staðið sig mjög vel en hann mætti vera stærri.“ us Jónasson, spilandi þjálfari ÍR-inga, að koma liði sínu í meistarabaráttu? Morgunblaðið/Þorkell ÍR-inga, hvetur menn sína til dáða í leik gegn FH í Kaplakrika. JÚLÍUS JÓNASSON, þjálfari og leikmaður handknattleiksliðs ÍR, hefur náð góðum árangri með liðið frá því hann tók við þjálfun þess fyrir rúmu ári. Allt stefnir í að liðið blandi sér í baráttu hinna bestu á Íslandi í vetur og lítur út fyrir að Júlíus taki virkan þátt í að gera þetta litla Breiðholtslið að stórveldi innan handboltans hér á landi. Íris B. Eysteinsdóttir skrifar Styrkur okk- ar liggur í mikilli breidd HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 B 7 ÍR-ingar hafa oft átt skemmtileg handknattleikslið, en herslumuninn hefur vantað til að þeir hafa náð að vinna sér titla – komast alla leið. Fyrir og um 1960 lék Gunnlaugur Hjálmarsson, 46 landsleikir, aðal- hlutverkið hjá ÍR-ingum, sem veittu þá KR og FH harða keppni. Aðrir kunnir leikmenn í liðinu voru þá landsliðsmennirnir Hermann Sam- úelsson (7 landsleikir), Matthías Ás- geirsson (1), Pétur Sigurðsson (3) og Erlingur Lúðvíksson. ÍR-liðið fyrir og uppúr 1970 var einnig skemmtilegt og með liðinu léku margir mjög hæfileikaríkir leikmenn, eins og Vilhjálmur Sig- urgeirsson, Ásgeir Elíasson (2 landsleikir), Ágúst Svavarsson (33), Brynjólfur Markússon (3), Þórarinn Tyrfingsson og Ólafur Tómasson. Fyrir og upp úr 1990 var ÍR-liðið mjög efnilegt, en náði þó aldrei að springa út. Með liðinu léku Hrafn Margeirsson, Frosti Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson, Róbert Rafn Rafnsson, Magnús Ólafsson, Jóhann Ásgeirsson, Ólafur Gylfason, Finn- ur Jóhannesson og gamli hershöfð- inginn Guðmundur Þórðarson. Margir efnilegir leikmenn hafa leikið með ÍR-liðinu á síðustu árum, eins og Ragnar Óskarsson, sem leikur nú í Frakklandi, Ólafur Sig- urjónsson, Ingimundur Ingimund- arson og Einar Friðgeir Hólmgeirs- son, sem allir hafa klæðst lands- liðsbúningnum. Nú er spurningin – nær Júlíus Jónasson að byggja upp ÍR-lið, sem mun hampa titlum á næstu árum? Herslu- muninn hefur vant- að hjá ÍR H hóf leikinn af miklum krafti og skor- aði 3 fyrstu mörkin. Fannar Þor- rnsson kom Breiðhyltingum fljótt í gang með því að skora tvö fyrstu mörk ÍR sem náði fljótt að jafna. ÍR voru heldur sterkari aðilinn eftir það, án þess þó að ná að setja u langt bil á milli sín og keppinauta na. FH varð fyrir töluverðu áfalli á 22. útu er markvörður þeirra, Magnús Sig- ndsson, fékk að líta rauða spjaldið eftir hafa hlaupið harkalega á Sturlu Ásgeirs- er hann þeysti fram í hraðaupphlaup. as Stefánsson fyllti skarð FH en náði ekki á strik í fyrri hálfleik. Aðeins 6 mín- m síðar fengu ÍR-ingar álíka áfall er fyr- i þeirra, Bjarni Fritzson fékk einnig að rauða spjaldið fyrir brot í vörninni. Lið- oru í framhaldi af því jöfn á flestum töl- fram að hálfleiknum. ÍR byrjaði betur í ri hálfleik, allt þar til FH-ingar skoruðu mörk í röð og náðu fáséðri yfirhendi í num. Mikil spenna komst í leikinn sem ð aftur hnífjafn. Þegar líða tók á seinni a leiksins sigu ÍR-ingar þó framúr og ggðu sér nokkuð sanngjarnan sigur. óknarleikur beggja liða var í fyrirrúmi í num og komu mörkin í öllum regnbog- litum. ÍR-vörnin tók þó tarnir þar sem ast vonlaust var að finna glufur á henni. Alls 9 menn skoruðu mörk ÍR-inga og má segja að þeir hafi unnið leikinn á mikilli breidd. Þegar markahæsti maður þeirra í leiknum, Einar Hólm- geirsson, var til að mynda tekinn úr umferð tóku aðrir leikmenn við af honum án vandræða. „Þótt við höfum ekki spilað neitt sérlega vel í dag þá náðum við samt í sigur og ég er mjög ánægður með það ásamt því að vera bara ánægð- ur með vikuna í heild,“ sagði Júlíus Jónasson spilandi þjálfari ÍR eftir leikinn, en ásamt því að vinna á laugardag komst liðið í 8-liða úrslit bikar- keppninnar í liðinni viku. „Við notuðum flesta okkar leikmenn og dreifði það álaginu. Við vorum nokkuð yfirveg- aðir þótt það hafi vantað herslumuninn að ná 3-4 marka forystu en í heild- ina er ég virkilega ánægður með að ná í tvö stig hér í Kaplakrika.“ ÍR-ingar fögnuðu í Kaplakrika NGAR komu sér í fimmta sætið í 1. deildarkeppninni í handknattleik með að leggja FH að velli á laugardag 27:24 í hörkuleik í Kaplakrika. ÍR er þá ð jafn mörg stig og Haukar og Þór sem eru í þriðja og fjórða sæti, aðeins mur stigum á eftir toppliði Vals. FH-ingar duttu niður um eitt sæti, eða í ð áttunda. B. einsdóttir ar Júlíus Jónasson fylgist hugsi með sínum mönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.