Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 8
HANDKNATTLEIKUR 8 B ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gestunum úr Eyjum gekk allt íhaginn til að byrja með og skora fyrstu þrjú mörkin en Vík- ingsstúlkur sýndu mikla þolinmæði og héldu áfram að leita að leiðinni að marki ÍBV. Það gekk loks og með mikilli baráttu tókst þeim að jafna 7:7 á 16. mínútu en þá datt botninn úr leik þeirra því Eyja- stúlkur spýttu í lófana og náðu aft- ur þriggja marka forystu en Vík- ingsstúlkum tókst að saxa á forskotið niður í eitt mark. Sem fyrr segir gekk allt á afturfótunum hjá Víkingsstúlkum eftir hlé og á með þær skoruðu eitt mark gerðu gestirnir níu. Eftirleikurinn var auðveldur. „Það hafði ekkert að segja að ÍBV væri ósigrað lið heldur vorum við okkar verstu óvinir,“ sagði Andrés Gunnlaugsson þjálfari Vík- inga eftir leikinn. „Við höfðum greinilega ekki trú á okkur sjálfum í seinni hálfleik, skutum átta eða níu sinnum framhjá auk þess að glata boltanum ellefu sinnum og þar liggur munurinn á liðunum. Við náum samt að halda þeim í tuttugu og þremur mörkum og það eru ekki mörg lið sem hafa gert það en við verðum að ljúka okkar færum með marki. Sóknarleikurinn er okkar höfuðverkur, við skorum ekki yfir tuttugu mörk í mörgum leikjum en það er ögrandi verkefni að gera eitthvað í því.“ Helga Torfadóttir markvörður var lang- best Víkinga en Gerður Beta Jó- hannsdóttir og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir áttu góða spretti. Hjá ÍBV var Alla Gorkorian at- kvæðamest og skoraði 12 mörk áð- ur en hún fékk rautt spjald fyrir brot níu mínútum fyrir leikslok. Anna Yakova skoraði 6 mörk en saman skoruðu þær 11 af 12 mörk- um liðsins fyrir hlé. Sylvia Strass stjórnaði leik liðsins með prýði. „Við vinnum fyrst og fremst á góðri vörn með Vigdísi Sigurðar- dóttur í markinu fyrir aftan hana,“ sagði Unnur Sigmarsdóttir þjálfari ÍBV, eftir leikinn. „Við byrjuðum að spila okkar handknattleik eftir hlé. Það var einhver taugatitringur í okkur fyrir hlé og getur verið vegna þess að okkur hefur gengið illa með Víkinga hingað til en um leið og vörn okkar gekk saman kom sóknarleikurinn. Seinni hálf- leikurinn er yfirleitt betri hjá okk- ur,“ bætti Unnur við og getur vel við gengi liðsins unað. „Við erum í það minnsta komnar með þessi stig og þau verða ekki tekin af okkur.“ Gróttusigur í slökum leik Leikmenn Gróttu/KR máttu hafasig alla við að innbyrða sigur á norðanstúlkum í KA/Þór á sunnu- dag þegar liðin mættust á Seltjarn- arnesi. Leikmenn KA/Þórs komu mjög ákveðnar til leiks og virtust staðráðnar í að hala inn tvö stig sem þær misstu naum- lega af gegn Val á föstudagskvöld er þær töpuðu með einu marki. Þær höfðu yfirhöndina lengst af fyrri hálfleik en hefðu að ósekju mátt nýta betur tækifærin til hraðaupphlaups sem þeim buðust í löngum bunum á kafla í hálfleikn- um. Þegar um 7 mínútur voru til leikhlés bættu heimastúlkur leik sinn, skoruðu úr fjórum síðustu sóknunum og náðu að jafna 10:10. Síðari hálfleikur var allur í eigu Gróttu/KR, varnarleikur þeirra batnaði til mikilla muna, þær keyrðu upp hraða í sóknarleiknum og það var nokkuð sem KA/Þór réði einfaldlega ekki við. „Við vorum alls ekki tilbúnar í þennan leik en það er nokkuð sem hefur einkennt okkur það sem af er vetri,“ sagði Eva B. Hlöðvers- dóttir fyrirliði Gróttu/KR, í leiks- lok. Aðspurð um hvort nokkur ástæða hefði verið til að vanmeta mótherjana í þessum leik kvað hún svo ekki vera. „Við höfum tapað fyrir þeim í þremur síðustu leikjum okkar, í Reykjavíkurmótinu, Ak- ureyri Open og núna síðast í bik- arnum, svo það átti ekki að vera vanmat til staðar hjá okkur. Vörnin er það sem skiptir máli hjá okkur og hún kom ekki fyrr en í seinni hálfleik,“ sagði Eva Björk og við- urkenndi að þær sem misstu af sunnudagsmessunni í morgun hafi sannarlega fengið að heyra predik- un dagsins hjá Aðalsteini Eyjólfs- syni þjálfara, í leikhléinu. „Þetta er allt á réttu róli hjá okkur miðað við að okkur var spáð 7. sæti deildarinnar og allt umfram það er plús fyrir okkur. Við erum með ungt og upprennandi lið sem við byggjum á og þær eru að sanna sig,“ sagði Eva Björk Hlöðvers- dóttir sem átti mjög góðan leik í liði Gróttu/KR ásamt Rögnu Karen Sigurðardóttur. Hjá KA/Þór léku Sigurlaug Hjartardóttir markvörð- ur og Inga Dís Sigurðardóttir best og var undarlegt að sjá þegar Sig- urlaugu var skipt útaf um miðjan síðari hálfleikinn þegar á móti blés hjá norðanstúlkum. Átján úrslitamínútur Fyrstu mínúturnar í leik Vals ogStjörnunnar voru úrslitavaldar í leik liðanna þegar þau mættust að Hlíðarenda á sunnudagskvöld. Á þeim tíma skoruðu gestirnir úr Garða- bænum 7 mörk en Val tókst aðeins einu sinni að koma boltanum framhjá Jelenu Jovano- vic í marki Stjörnunnar. „Auðvitað töpuðum við þessum leik á fyrstu 18 mínútunum, það er alveg ljóst,“ sagði Guðríður Guðjónsdóttir þjálf- ari Vals, í lok leiksins sem lauk með fjögurra marka sigri Stjörn- unnar, 19:23. „En ég verð að hrósa liðinu fyrir það að hafa komist inn í leikinn aft- ur. Sóknarleikurinn okkar í byrjun var mjög slakur, við fundum ekki leið framhjá Jelenu í markinu og á köflum fannst mér þær hreinlega miða á hana. Eftir að annað markið kom þá var eins og það losnaði um einhverja spennu, sjálfstraustið kom, okkur fór að ganga betur og eftir það höfðum við í fullu tré við þær,“ sagði Guðríður. Þessi skelfilega byrjun Vals- stúlkna setti óneitanlega svip á leikinn langt fram í síðari hálfleik en það verður ekki af Stjörnustúlk- um tekið að varnarvinna þeirra á þessum kafla var til fyrirmyndar og í framhaldinu náði Jelena Jov- anovic að verja þau skot sem röt- uðu á markið. Á þessum tíma gerðu Valsstúlkur sig einnig sekar um alltof mörg tæknileg mistök þar sem boltinn var dæmdur af þeim og þær náðu ekki að ljúka sóknum sínum með skoti. Af fyrstu 17 sóknum sínum í leiknum skor- uðu þær eitt mark, luku 8 sóknum með skoti en boltinn var dæmdur af þeim eða þær töpuðu honum út- af 8 sinnum. Slík framganga kann aldrei góðri lukku að stýra og því fengu Valsstúlkur að kynnast. Stjörnuliðið virðist vera mjög gegnheilt lið, allar stöður í byrj- unarliði eru vel mannaðar og á bekknum sitja margir leikmenn sem búa yfir mikilli reynslu. Á stundum fannst mér Stjörnuliðið geta gert næstum það sem það vildi, þegar það vildi. Það er einn helsti kostur þessa liðs að það byggist ekki aðeins á tveimur, þremur leikmönnum sem eiga að ljúka sóknunum, sex fyrstu mörkin voru t.d. skoruð af sex leikmönnum og markaskorun skiptist nokkuð jafnt innan liðsins. Stjarnan situr nú í öðru sæti deildarinnar og bíð- ur þess að topplið ÍBV misstígi sig í vetur, Garðbæingar virðast til- búnir til að veita þeim verðuga keppni um Íslandstitilinn. Það er hlutverk Drífu Skúladótt- ur að draga vagninn fyrir Valsliðið í sókninni á meðan Hafrún Krist- jánsdóttir hefur það hlutverk að binda vörnina saman. Það var fyrst og fremst fyrir tilstilli Drífu að Valsliðið hrökk í gang undir lok fyrri hálfleiks auk þess sem mark- vörðurinn Berglind Hansdóttir varði á köflum frábærlega. Tvö víti forgörðum á lokamínútunum Haukar úr Hafnarfirði tóku ámóti nágrönnum sínum í FH á sunnudagskvöldið og lauk leikn- um lauk með sigri Hauka 26:24 eftir spennandi leik þar sem FH-ingar mis- notuðu tvö vítaköst á lokamínútunum. Leikurinn var nokkuð jafn í upp- hafi en Haukar þó yfirleitt skrefinu á undan og framan af spiluðu þeir mjög góða vörn en FH hélt í við gestina framan af fyrri hálfleik. Harpa Vífilsdóttir byrjaði leikinn vel og skoraði 3 mörk fyrir gestina á fyrstu mínútunum en það sem eftir lifði leiks tókst henni aðeins að skora af vítalínunni. Haukar náðu að loka á sóknarleik FH og tókst að ná fimm marka forystu fyrir leikhlé. Haukar byrjuðu seinni hálfleik- inn á svipuðum nótum og þeir luku hinum fyrri, náðu mest sex marka forystu, og allt stefndi í öruggan sigur. Gestirnir neituðu hins vegar að gefast upp og með mikilli bar- áttu tókst þeim hægt og bítandi að minnka muninn. Dröfn Sæmunds- dóttir átti skínandi leik á þessum kafla og virtist geta skorað af vild. Í seinni hálfleik átti hún sex af átta mörkum FH-inga sem voru skoruð utan af velli. Undir lok leiksins fengu FH-ingar gullin tækifæri til þess að jafna leikinn þegar þeir Níundi sigur Eyjastúlkna Morgunblaðið/Þorkell Ebba Særún Brynjarsdóttir, Stjörnunni, er komin framhjá Eygló Jónsdóttur, leikmanni Vals, og skorar eitt af þremur mörkum sínum. Stefán Stefánsson skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Benedikt Rafn Rafnsson skrifar EYJASTÚLKUR slá hvergi af og Víkingum tókst ekki að rjúfa sig- urgöngu þeirra þegar liðin mættust í Víkinni á sunnudag- inn. Víkingsstúlkum tókst þó að halda forystu ÍBV við eitt mark í hálfleik en síðan hrundi leikur Víkinga með einu marki í 19 mínútur og gestirnir unnu 23:16 – sinn níunda leik í röð. Þjóðverjar án fyrirliða síns á HM ÞJÓÐVERHAR verða án fyrirliða síns, Frank von Behren, á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer í Portúgal í janúar. Behren varð fyrir því óláni að slíta krossbönd í hné í leik með Minden á móti Essen í þýsku úrvalsdeildinni um helgina og verður hann frá æfingum og keppni næsta hálfa árið í það minnsta. Íslendingar eru sem kunnugt er í riðli með Þjóð- verjum á HM en þýska liðið ætlar sér stóra hluti eftir gott gengi á Evrópumeistaramótinu síðastliðinn vetur þar sem þeir hlutu silfrið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.