Morgunblaðið - 22.10.2002, Page 12
Það ríkir mikil spenna á meðalþeirra sem sótt hafa um að
vera gestgjafar í úrslitum Evrópu-
keppni karlalands-
liða í knattspyrnu
sem fram fer árið
2008. EM verður
næst í Portúgal árið
2004 en um næstu keppni þar á eft-
ir er hart barist, en knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA, tekur
ákvörðun um hver hreppir hnossið
á fundi sínum 12. desember nk.
Austurríki og Sviss sækja sameig-
inlega um keppnina, líkt og Skotar
og Írar, Króatar og Bosníumenn,
Grikkir og Tyrkir. Rússar standa
einir að sinni umsókn eins og Ung-
verjar, en Norðurlandaþjóðirnar
eru með sameiginlega umsókn, þar
sem Finnar, Norðmenn, Danir og
Svíar vilja sjálfa leikina en Íslend-
ingar og Færeyingar fengju ýmsa
fundi sem lúta að undirbúningi
keppninnar. Austurríkismenn og
Svisslendingar róa nú öllum árum
að fanga athygli heimsins vegna
umsóknar sinnar og hefur undir-
búningur þeirra staðið yfir allt frá
árinu 2001. Að mati undirbúnings-
nefndar Austurríkis og Sviss eru
gríðarlega miklir hagsmunir í húfi
enda er gert ráð fyrir að 1,2 milljón
áhorfenda mæti á leikina hvar sem
hún verði haldin og að auki verður
hægt að ná beinum útsendingum
frá leikjum keppninnar í yfir 200
löndum.
Talsmenn undirbúningsnefndar
Sviss og Austurríkis segja að þeir
geti ekki gert mikið betur í und-
irbúningsvinnu sinni en nú þegar er
hafin endurnýjun á knattspyrnu-
völlum í báðum löndum. Friedrich
Stichler, forseti knattspyrnusam-
bands Austurríkis, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að úrslita-
keppni EM yrði gríðarleg lyftistöng
fyrir starf sambandsins. „Við telj-
um okkur standa vel að vígi og höf-
um að ég held ekki getað gert mikið
meira í undirbúningi okkar fyrir
umsóknina. Mikið á eftir að ganga á
á næstu vikum þegar baráttan um
EM árið 2008 hefst fyrir alvöru,“
sagði Stichler.
Sjö umsækjendur bítast hart um EM 2008
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar frá Vín
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
knattspyrnu pilta, skipað leikmönn-
um undir 19 ára, tapaði fyrir Júgó-
slövum, 3:1, í fyrsta leik sínum í und-
ankeppni EM sem fram fer í
Slóveníu. Júgóslavar komust í 3:0 en
Magnús Már Þorvarðarson minnk-
aði muninn fyrir Íslendinga á loka-
mínútunni. Þrír leikmenn fengu að
líta rauða spjaldið, tveir Júgóslavar
og Jóhann Helgason.
ERNIE Els frá S-Afríku bar sigur
úr býtum á heimsmeitaramótinu í
holukeppni í golfi þegar hann sigraði
Spánverjann Sergio Garcia í úrslita-
leik. Þetta var fjórði heimsmeistara-
titill Els í holukeppninni en Garcia
var að taka þátt í á HM í fyrsta sinn.
HELGI Sigurðsson og Jóhann B.
Guðmundsson léku báðir með Lyn í
norsku deildinni í gærkvöldi þegar
liðið gerði 1:1 jafntefli á útivelli á
móti Odd Grenland. Með stiginu hef-
ur Lyn tryggt sér verðlaunapening í
deildinni því Viking, sem er í fjórða
sæti getur ekki náð þeim að stigum.
Spurningin er aðeins hvort pening-
urinn verður silfraður eða bronslit-
ur.
PETER Enckelman, markvörður
Aston Villa, var rekinn af velli í leik
liðsins við Southampton í gærkvöldi.
Hann braut á sóknarmanni gestanna
og dæmd var vítaspyrna og Enck-
elman vísað af velli á 46. mínútu
leiksins. James Beattie skoraði úr
spyrnunni.
GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, vonast til að lið sitt
verði fyrsta enska liðið til að leggja
Spartak að velli í Evrópuleik í
Moskvu, eins og Liverpool varð
fyrsta enska liðið til að fagna sigri á
Dynamo í Kiev fyrir ári í Evrópu-
keppninni. Houllier er bjartsýnn á
sigur í Moskvu.
FRANCESCO Toldo, markvörður
Inter, var heldur betur í sviðsljósinu
í stórleik Inter og Juventus í ítölsku
1. deildinni í knattspyrnu um
helgina. Þegar markahrókurinn
Alessandro Del Piero skoraði fyrir
Juventus úr vítaspyrnu á 89. mínútu
virtust leikmönnum Inter allar
bjargir bannaðar en þegar þrjár
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma skokkaði Toldo
fram og jafnaði metin eftir horn-
spyrnu með föstu skoti sem kollegi
hans í marki Juventus réði ekki við.
FIMM Tindastólmenn skoruðu öll
stig þeirra gegn Keflavík í gær-
kvöldi en hjá Keflavík komust átta
leikmenn á blað.
STÓRSKYTTURNAR Falur
Harðarson og Magnús Gunnarsson
voru ekki í leikmannahópi Keflvík-
inga í gærkvöldi. Að sögn Keflvík-
inga var ekki pláss fyrir þá í hópnum
í þetta sinn, sem sýnir mannval
Keflavíkurliðsins.
AXEL Kárason, Sauðkrækingur-
inn ungi, lét til sín taka gegn Kefla-
vík í gærkvöldi. Hann tók 17 fráköst,
sem er níu meira en hjá Damon S.
Johnson, sem tók flest fráköst Kefl-
víkinga.
FÓLK
Árni Gautur hefur þar með orðiðmeistari með liðinu öll árin
sem hann hefur leikið með því – 5
sinnum.
Rosenborg, sem í
kvöld sækir Ajax
heim í Meistara-
deildinni, gerði jafn-
tefli við Sogndal á laugardaginn en
þar sem Molde tókst ekki að ná stig-
um á móti Stabæk verður meistara-
titillinn um kyrrt í Þrándheimi en
Rosenborg hefur fjögurra stiga for-
skot á Molde þegar einni umferð er
ólokið.
Árni Gautur og samherjar hans í
liðinu voru kaffærðir af fjölmiðla-
mönnum, sem voru á æfingasvæði
Rosenborg, stax þegar úrslitin í leik
Molde og Stabæk lágu ljós fyrir en
leikmenn liðsins tóku sigrinum með
yfirvegun enda vanir því að standa í
þessum sporum.
„Við höfum engan tíma til að
fagna strax enda leikur við Ajax á
þriðjudaginn (í kvöld) í Meistara-
deildinni. Hún var sérstök tilfinn-
ingin að vita það að við værum orðn-
ir meistarar. Í fyrra var brjáluð
gleði þegar við tryggðum okkur tit-
ilinn með sigri í síðasta leik en núna
brostu menn í kampinn sitjandi fyr-
ir framan sjónvarpið,“ sagði Árni
Gautur. Árni sagði að leikur Rosen-
borg og Sogndal hefði verið mjög
furðulegur og aðstæður erfiðar eftir
snjókomu. „Sogndal skoraði bæði
mörk sín úr vægast sagt vafasömum
vítaspyrnum, það síðara 10 mínút-
um fyrir leikslok. Eftir það héldum
við boltanum út leiktímann enda
gerði Sogndal enga tilraun til að ná
boltanum. Þeir voru ánægðir með
jafnteflið og dómarinn ákvað að
flauta leikinn af áður en leiktíminn
var allur.“
Það gekk upp og ofan hjá ykkur
framan af mótinu.
„Liðinu hefur oftast gengið frekar
illa í upphafi móts en komið svo
sterkt til leiks þegar á mótið hefur
liðið. Ég get alveg sagt þér að ég var
búinn að afskrifa titilinn þegar við
vorum orðnir 10 stigum á eftir Lyn
en átta sigurleikir í röð gerðu það að
verkum að við komumst í toppbar-
áttuna auk þess sem Lyn gaf veru-
lega eftir.“
Stendur einhver af þessum fimm
titlum upp úr hjá þér?
„Eins og mótið spilaðist í fyrra þá
held ég að sá titill standi upp úr. Við
áttum mjög erfiðan útileik á móti
Brann sem við þurftum að vinna og
við gerðum það með stæl, 6:2. Þjálf-
arinn okkar, Nils Arne Eggen,
hættir með liðið eftir tímabilið og
við leikmennirnir vildum svo sann-
arlega kveðja hann með gulli. Hann
á það svo sannarlega skilið.“
Þarf að koma eitthvað
spennandi upp ef ég á að fara
Nú átt þú eitt ár eftir af samningi
þínum. Er ekki kominn tími til að
róa á önnur mið eftir þennan far-
sæla feril hjá Rosenborg?
„Það er búið að vera geysilega
gaman og lærdómsríkt fyrir mig að
vera í þessu sigursæla liði. Hér er
mikill metnaður og menn verða
aldrei saddir á því að vinna. Ég veit
ekkert hvað gerist eftir tímabilið hjá
mér. Það hefur ekkert verið rætt
um framhaldið og líklega verður það
ekki gert fyrr en tímabilið er búið.
Ég er í sjálfu sér ekkert mikið að
hugsa um þessi mál. Ég hef það
mjög fínt í hér í Þrándheimi og það
þyrfti að koma eitthvað mjög spenn-
andi upp ef ég ætti að fara frá Ros-
enborg. Auðvitað skoða ég það ef
eitthvert tilboð kemur en ég fer ekki
hvert sem er á meðan ég er mjög
sáttur við lífið og tilveruna hjá Ros-
enborg. Ég er heppinn að vera í liði
sem vinnur titil ár eftir ár og leikur í
Meistaradeildinni ár hvert. Það er
varla hægt að biðja um meira. “
Ykkur hefur ekki gengið sem best
í Meistaradeildinni og leikurinn á
móti Ajax er upp á líf eða dauða,
ekki satt?
„Það er alveg ljóst að við verðum
að fá stig og það helst þrjú. Eins og
staðan er í riðlinum verður erfitt að
að ná einu af tveimur efstu sætunum
en þriðja sætið veitir þátttökurétt í
UEFA-bikarnum svo það er til mik-
ils að vinna. Við höfum ekki unnið
útileik í Meistaradeildinni í tvö ár en
vonandi verður breyting á því. Við
höfum búið okkur undir gríðarlega
erfiðan leik og ég fær örugglega nóg
að gera í markinu.“
Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu,
meistari með Rosenborg fimmta árið í röð
Morgunblaðið/Golli
Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður fagnaði meistaratitli í Noregi fyrir framan sjónvarpið með félögum sínum.
Enginn tími
til að fagna
„ÞAÐ var auðvitað svolítið sér-
stakt að verða meistari og ekki
að spila. Við sátum inni í klúbb-
húsinu, nýbúnir á æfingu og
vorum að funda fyrir leikinn við
Ajax í Meistaradeildinni, en
fljótlega var ákveðið að slíta
fundinum og fylgjast með leik
Stabæk og Molde í sjónvarpinu
þegar við fréttum að Stabæk var
yfir. Miðað við í fyrra var tilfinn-
ingin svolítið skrýtin en ég verð
að senda góðar kveðjur til
Tryggva og Marels. Þeir stóðu
sig vel og Tryggvi skoraði gott
mark,“ sagði landsliðs-
markvörðurinn Árni Gautur Ara-
son, markvörður Rosenborg, í
samtali við Morgunblaðið
skömmu eftir að lið hans hafði
tryggt sér meistaratitilinn 11.
árið í röð.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar