Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 1

Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 1
2002  ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÓLAFUR STEFÁNSSON BESTUR Í EVRÓPU / B12 BÍLDSHÖFÐI 510 8020 SMÁRALIND 510 8030 SELFOSS 480 7000 WWW.INTERSPORT.IS Jónas og Anton með silfur JÓNAS Valgeirsson og Anton Þórólfsson unnu báðir silfurverðlaun á Norðurlandamóti drengja í fimleikum sem fram fór í fimleikahúsi Bjarkar í Hafnarfirði um helgina. Jónas vann silfurverð- launin fyrir gólfæfingar sínar sem hann hlaut 8,35 í einkunn fyrir en Daninn Helge Vammen vann, fékk 0,15 hærri einkun en Jónas. Anton kom sterkur til leiks á tvíslá og fékk 7,60 í einkun sem nægði hon- um til þess að vinna silfr- ið, var 0,8 á undan Vam- men sem varð í þriðja sæti en 0,7 á eftir Jachim Olsen, Noregi, er stóð uppi sem sigurvegari. Antoni gekk best Ís- lendinganna í fjölþraut mótsins. Hann varð í 7. sæti en Jónas varð í í 10. sæti í fjölþraut, Gunnar Sigurðsson, hreppti 14. sætið, Róbert Krist- mannsson varð í 16. sæti, Teitur Páll Reynisson hlaut 25. sætið og Gísli Ottósson varð í þrítugasta sæti. Í liðakeppninni rak íslenska sveitin lestina af fimm sveitum. Morgunblaðið/KristinnÓlafur Víðir Ólafsson og samherjar hans hjá HK skelltu Vals- mönnum í 1. deildarkeppninni í handknattleik. Hér er Ólafur Víðir að brjótast fram hjá Ragnari Ægissyni, Val. Nánar um leiki helgarinnar á B6, B7, B10 og B11. Íslensku landsliðsmönnuum í hand-knattleik gekk misvel að komst til Borlänge í Svíþjóð þar sem heims- bikarkeppnin hefst í dag. Flestir léku með sínum félagslið- um um helgina og komu til Stokkhólms um hádegi í gær og þaðan var haldið til keppnisstaðarins og komu piltarn- ir á hótelið rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Veður setti strik í reiknininn hjá landsliðinu, aldrei þessu vant ekki veðrið á Íslandi heldur veðrið í mið Evrópu og því þurfti að fella niður mikið af flugi og það kom niður á áætlun í gær. Íslensku leikmennirnir voru flestir komnir til Arlanda-flug- vallar í Stokkhólmi um hádegi en ákveðið var að bíða eftir þeim sem voru heldur á eftir áætlun og síðast- ur kom Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður frá Ítalíu, lenti um klukkan 15 og þá var lagt af stað til Borlänge en þangað er tæplega þriggja klukkustunda akstur. Gústaf Bjarnason lenti verst í töf- unum því hann lenti ekki fyrr en um klukkan 17 og varð að taka lestina frá Arlanda til Borlänge. Patrekur Jóhannesson og Guðjón Valur Sigurðsson, leikmenn Essen í Þýskalandi, komu manna fyrstir til Arlanda en töskurnar þeirra komust ekki til skila þrátt fyrir að leitað væri að þeim á flugvellinum í einar þrjár klukkustundir, en þær voru ekki komnar í leitinra seint í gærkvöldi. Landsliðspiltarnir eru tilbúnir í slaginn, allir heilir og hungraðir í að gera vel þó svo að mikið álag hafi verið á þeim flestum um helgina. Þeir einu í hópnum sem kenna sér einhvers meins eru þjálfararnir Guð- mundur Þ. Guðmundsson og Einar Þorvarðarson, en þeir finna báðir fyrir verk í baki en aðrir í farar- stjórninni telja „veikindi“ þeirra fyrst og fremst stafa af því að það þarf að bera mikið af töskum. Veður hamlaði för landsliðshópsins Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Svíþjóð STJÓRN enska knattspyrnuliðsins, Stoke City, sem leikur í 1. deild þar í landi hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins átt í viðræðum við Stuart Pearce um að hann verði knattspyrnustjóri liðsins í stað Steve Cotterill sem hvarf á braut til Sunderland á dögunum. Pearce er einn þekktasti varnar- maður ensku knattspyrnunnar og lék í fjölmörg ár með enska lands- liðinu sem vinstri bakvörður, alls 78 leiki, en hann hóf feril sinn í efstu deild á Englandi með Coventry 1983. Pearce lék lengst af með Nott. Forest, en hann var einnig á mála hjá Newcastle, West Ham og nú síðast varð hann meistari í 1. deild með liði Man. City, þá rétt rúmlega fertugur. Stoke mætir Watford annað kvöld, en ekki er víst að Pearce verði þá þegar við stjórnvölinn hjá liðinu. Stuart Pearce orðaður við Stoke City

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.