Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 7
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 B 7
Herrakvöld
Vals
Verður haldið föstudaginn 1. nóvember n.k.
í félagsheimilinu að Hlíðarenda.
Þetta verður einhver
glæsilegasta skemmtun ársins
þar sem Valsmenn mæta ásamt gestum sínum og gleðjast í góðum félagsskap.
Glæsilegur kvöldverður framreiddur af úrvals fagmönnum að hætti Valsmanna.
Veislustjóri: Friðrik Sóphusson
Ræðumaður: Geir H Haarde
Skemmtikraftur:
Jóhannes Kristjánsson ásamt fleiri góðum gestum
sem syngja og fara með gaman mál.
Húsið opnar kl.19:00 og borðhald hefst kl. 20:15
P.S. Nauðsynlegur undirbúningur:
Kaupa miða og rifja upp lagið
„Valsmenn léttir í lund“
Miðaverð aðeins kr: 3.900.-
Forsala hefst í Valsheimilinu
þriðjudaginn 29. október kl. 14:00
„takmarkað magn miða“
Gestirnir úr Safamýrinni réðuferðinni allt fram í miðjan síð-
ari hálfleik og einu sinni náðu ÍR-
ingar að jafna – 1:1, í
byrjun leiks. Sókn-
arleikur Fram var
mun betur skipu-
lagður og Sebastian
Alexandersson markvörður þeirra
varði mjög vel á meðan ÍR-ingar
höfðu ekkert nema baráttuna en
tókst þó að missa ekki Framara of
langt frá sér. Draga fór til tíðinda í
stöðunni 22:17 fyrir Fram og 11 mín-
útur til leiksloka. Þá fóru 8 sóknir
Fram í súginn enda einbeitingin ekki
alveg í lagi en ÍR-ingar skoruðu 5
mörk í röð og jöfnuðu, 22:22. Hófst
þá mikill darraðardans, Fram var
alltaf fyrri til að skora en tuttugu
sekúndum fyrir leikslok misstu þeir
boltann og Fannar skoraði sigur-
mark ÍR.
„Við vorum alveg á hælunum og
trúðum einhvern veginn ekki miðað
við hvað við vorum lélegir að við
myndum sigra í lokin,“ sagði Ingi-
mundur, sem átti góðan leik og var
með baráttuna í lagi. „Við náðum
okkur engan veginn á strik fyrri
partinn en vorum sprækari eftir hlé
og vörnin small saman í lokin. Við
unnum þetta á liðsheildinni og
heppnin var með okkur.“
Hreiðar Guðmundsson var ágætur
á milli stanganna. Lítið fór fyrir stór-
skyttunni Einari Hólmgeirssyni
framan af en hann kom til í lokin.
Heimir Ríkarðsson var að vonum
dapur yfir endasprettinum og tap-
inu. „Það var sorglegt að vinna ekki
leikinn og ég hefði líka verið ósáttur
við jafntefli því við vorum miklu betri
en þeir fyrstu 45 mínúturnar. En ÍR-
ingarnir voru grimmir, hættu aldrei
og við gáfum færi á okkur með óyf-
irveguðum sóknarleik síðustu fimm-
tán mínúturnar þegar við hættum að
spila þá línu sem við höfðum gert all-
an leikinn. Menn misstu einbeit-
inguna og fóru út í að vera of æstir
þegar þeir tóku skot úr færum, sem
við viljum ekki að þeir skjóti úr. Það
gerði gæfumuninn,“ sagði Heimir.
Sebastian markvörður stóð sig best
hjá Fram en Hjálmar Vilhjálmsson
og Valdimar F. Þórsson voru einnig
góðir.
Stelmokas fór á
kostum hjá KA
KA-menn lögðu FH-inga 28:27þegar liðin áttust við í Kapla-
krika á sunnudaginn. Leikurinn var
jafn og spennandi og
jafnt á mörgum töl-
um, eða 19 talsins.
Munurinn varð
mestur þrjú mörk,
þegar langt var liðið á síðari hálfleik
og þann mun náðu heimamenn ekki
að vinna upp.
Fyrir leikinn var KA einu stigi
fyrir ofan FH og Hafnfirðingar áttu
því möguleika á að komast upp fyrir
Akureyrarliðið. Bæði lið léku flata
vörn og var vel tekið á því báðum
megin á vellinum og FH náði tveggja
marka forystu um miðjan hálfleik-
inn, 8:6, og aftur 10:8 en gestirnir
snéru dæminu við og komust í 12:11.
Andrius Stelmokas, línumaður
KA, fór á kostum, skoraði grimmt og
krækti í nokkur vítaköst að auki.
Varnarmönnum FH gekk illa að
stöðva hann og oftast fór hann inn á
milli Magnúsar Sigurðssonar og
Heiðars Arnarsonar. Hjá heima-
mönnum fór Logi Geirsson mikinn,
en hann var að koma til liðs við liðið á
nýjan leik eftir meiðsli og stóðs sig
mjög vel. Eftir hlé hélst sama spenn-
an, gestirnir fyrri til og það var sama
hvað KA-menn voru reknir oft af
velli, það dugði heimamönnum ekki.
Þegar átta mínútur voru til loka
leiksins var staðan 23:23 en KA gerði
næstu þrjú mörk, 23:26, og það var
meira en FH náði að brúa.
FH-ingar eru með ágætis lið og
eiga að geta náð langt í deildinni. En
til þess þarf liðið að vera markviss-
ara í sókn. Á sunnudaginn sótti liðið
löngum allt of nærri varnarlínu KA
þannig að úr varð hálfgert hnoð á
köflum. Logi var sterkur, Magnús
einnig og þeir Sigurgeir Ægisson og
Björgvin Rúnarsson áttu einnig
ágætan leik auk Magnúsar Sig-
mundssonar í markinu.
Hjá KA var Stelmokas bestur,
Ingólfur Axelsson kom gríðarlega
fjörugur inn seint í leiknum, var ógn-
andi, óragur og það geyslaði af hon-
um ánægjan og það kom sér vel fyrir
gestina. Petrovicius varði einnig vel
og Arnar Sæþórsson tók vel á því í
vörninni.
Stjarnan sterkari í Ásgarði
Stjarnan vann Víking, 28:23 í Ás-garði. Heimamenn léku án stór-
skyttunar Vilhjálms Halldórssonar
sem er að taka út
þriggja leikja leik-
bann eftir að hafa lit-
ið rauða spjaldið
þrisvar sinnum í
deildinni í vetur. Þrátt fyrir að helsta
sóknarvopn heimamanna vantaði
áttu þeir ekki í erfiðleikum með að
raða inn mörkunum á Víkinga í fyrri
hálfleik. Gestirnir áttu þó einnig
mjög auðvelt með markaskorun
lengst af í fyrri hálfleik en varnir lið-
ana voru mjög slakar framan af.
Jafnræði var með liðunum allt þar til
um tíu mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik en þá skellti Guðmundur K.
Geirsson í lás í marki heimamanna
og Stjarnan náði ágætis forskoti og
þegar flautað var til hálfleiks leiddu
heimamenn með fimm mörkum, 16-
11. Í síðari hálfleik mættu Víkingar
öflugir til leiks og skoruðu fyrstu tvö
mörkin en Garðbæingar náðu fljótt
aftur undirtökunum og náðu þægi-
legu forskoti. Víkingar gáfust þó
aldrei upp og náðu að minnka munin
í tvö mörk, 23-21, þegar um 15 mín-
útur voru til leiksloka. Lengra kom-
ust gestirnir þó ekki og að lokum
sigruðu heimamenn með fimm
marka mun sem verður að teljast
sanngjarnt. Stjarnan spilaði vel á
köflum og virtist sigur liðsins aldrei
vera í hættu eftir að liðið náði undir-
tökunum í fyrri hálfleik. Bestur í liði
heimamanna var Guðmundur K.
Geirsson en einnig átti David Kelia
frábæran fyrri hálfleik og skoraði þá
átta mörk úr jafnmörgum tilraunum
en í síðari hálfleik náði hann ekki að
setja mark sitt á leikinn. Víkingar
sýndu ágætis baráttu en þá vantaði
herslumuninn að komast almenni-
lega inn í leikinn í síðari hálfleik og
veita heimamönnum alvöru keppni
um stigin tvö. Sigurður Sigurðsson
var bestur gestanna, varði oft vel, og
einnig átti Hafsteinn Hafsteinsson
ágætis leik.
Öruggt hjá Gróttu/KR
Selfyssingar höfðu ekki erindisem erfiði þegar þeir sóttu
Gróttu/KR heim á sunnudaginn því
með afleitri byrjun
misstu þeir heima-
menn fram úr sér og
urðu að sætta sig við
stærsta tapið í vetur,
36:17. Dainis Rusko, Magnús A.
Magnússon og Davíð Ólafsson voru
atkvæðamiklir hjá Gróttu/KR auk
þess að Hlynur Morthens varði oft
vel.
Hjá Selfoss varði Jóhann Ingi
Guðmundsson oft mjög vel. Ramon-
as Mikalonis fékk lítið svigrúm og
undir lokin gerði Hannes Jón Jóns-
son nokkur mörk upp á eigin spýtur.
16 ára piltur, Atli Kristinsson, var
líflegur.
Einu sinni yfir
og það dugði
SVONA sigurleikir og þegar maður vinnur með toppleik eru sætastir
en þessir eru aðeins sætari,“ sagði Ingimundur Ingimundarsson úr
ÍR þegar hann fagnaði 25:24 sigri á Fram í Breiðholtinu á laug-
ardaginn. Fannar Þorbjörnsson skoraði sigurmark ÍR tveimur sek-
úndum fyrir leikslok og var það í fyrsta og eina sinn sem ÍR komst
yfir í leiknum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
Atli
Sævarsson
skrifar
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
víti sem Aigars Lazdins skoraði úr. Jón
Karl Björnsson minnkaði muninn í
25:24 þegar ein mínúta var til leiksloka
en sú sókn átti eftir að draga dilk á sér.
Viggó grýtti stól í vegg eftir
yfirsjón dómara og ritara
Úr blaðamannastúkunni sást vel þeg-
ar Páll Gíslason læddist af velli eftir
mistök í skiptingu hjá Þór og því ljóst
að Þórsarar höfðu verið 8 inni á vell-
inum. Hvorki dómararnir né starfs-
menn á ritaraborði tóku eftir þessu.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var
hins vegar með augun hjá sér og benti
réttilega á þetta brot á reglum leiksins.
Eftir nokkra rekistefnu varð niðurstað-
an sú að aðhafast ekkert í málinu og
mótmælti Viggó þessu harkalega rang-
læti með því að grýta stól í vegg og
hlaut hann fyrir rauða spjaldið og
Haukar misstu mann út af. Þórsurum
tókst ekki að skora úr næstu sókn og
Haukar fengu 18 sekúndur til að jafna
en Hörður Flóki varði síðasta skotið frá
Aroni.
Þórsarar lönduðu þessum sigri á
seiglunni og lánið var líka með þeim í
lokin. Páll Gíslason átti stórleik og
skoraði 11 mörk. Hornamennirnir Gor-
an Gusic og Þorvaldur Sigurðsson léku
einnig ágætlega og Hörður Flóki varði
á mikilvægum augnablikum í seinni
hálfleik. Birkir Ívar Guðmundsson var
bestur Haukamanna, Aron og Ásgeir
Örn Hallgrímsson stóðu fyrir sínu og
Andri Stefan gerði laglega hluti.
Í seinni hálfleik bar svo við að dóm-
ararnir fóru að vísa leikmönnum af velli
á færibandi eftir tiltölulega friðsaman
seinni hálfleik. Haukarnir fóru verr út
úr þessu í byrjun og Þórsarar gengu á
lagið. Þeir jöfnuðu leikinn og komust í
18:16 eftir 9 mínútna leik. Síðan kom af-
leitur kafli hjá þeim. Haukar skoruðu
tvö mörk manni færri og síðan tvö til
viðbótar en þá voru þeir reyndar tveim-
ur fleiri á vellinum á tímabili; slíkar
voru sviptingarnar. Staðan var 18:20
eftir ríflega 13 mínútna leik og var
Hörður Sigþórsson, hinn efnilegi varn-
ar- og línumaður Þórs, kominn út af
með þrjár brottvísanir. Þá þriðju fékk
hann þegar Þór var í sókn og ekki allir
sem skildu þann dóm.
Ekki reyndist þetta vera vendipunkt-
urinn í leiknum því heimamönnum
tókst að breyta stöðunni úr 19:21 í
22:21. Síðan var hart barist. Í stöðunni
23:23 varði Hörður Flóki glæsilega frá
Aroni Kristjánssyni sem var kominn
einn í gegn. Goran Gusic kom Þór yfir
og skömmu síðar fiskaði Páll Gíslason
helgarupp-
ra hjá Þór
m gegn KA á föstudagskvöldið eftir
m í spennandi leik í Íþróttahöllinni á
urnar voru æsilegar, leikmenn fuku
arík mistök áttu sér stað, þung orð
loft. Þegar upp var staðið var sigur
eir halda öðru sætinu og eru komnir
uppskera eftir helgina. Mínir menn
u á tímabili í vandræðum með vörn
agði Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Morgunblaðið/Kristinn.