Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 6
HANDKNATTLEIKUR
6 B ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Heldur fór þessi leikur þyngslalegaaf stað og greinilegt að þreyta sat
í leikmönnum beggja liða eftir átaka-
leiki sl. föstudagskvöld.
Þór komst í 3:2 en þá
skoruðu Haukar þrjú
mörk í röð og staðan 3:5
eftir níu mínútur. Þórs-
arar léku flata vörn og fengu skyttur
gestanna talsverðan vinnufrið en Hauk-
ar voru hins vegar með 3-2-1 vörn og
voru fljótir að líma sig á skyttur Þórs
áður en þær náðu tilætluðu flugi. Þann-
ig var Aron Kristjánsson mjög öflugur
á móti Árna Sigtryggssyni sem skoraði
ekki fyrr en á 26. mín. og gerði raunar
aðeins 2 mörk í leiknum, sem er lítið á
þeim bæ.
Leikurinn jafnaðist á ný en aftur
tóku Haukar kipp og náðu þriggja
marka forskoti. Þórsurum tókst reynd-
ar að minnka það niður í eitt mark fyrir
leikhlé, 12–13, og má telja það vel að
verki staðið í ljósi þess að Birkir Ívar
varði vel í marki Hauka en sáralítil
markvarsla var hjá heimamönnum.
Góð h
sker
ÞÓRSURUM tókst að fylgja sigrinum
með því að merja sigur gegn Haukum
Akureyri á sunnudaginn. Lokamínút
út af, dauðafæri nýttust ekki, afdrifa
voru látin falla og húsgögn tókust á l
Þórs staðreynd, 25:24, þannig að þe
með 14 stig. „Já, þetta er mjög góð u
voru þreyttir eftir KA-leikinn og voru
Hauka en þetta hafðist að lokum,“ sa
þjálfari Þórs.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Þegar Geir var spurður út í hinnlanga vetur handknattleiks-
manna, þar sem segja má að Ís-
landsmótinu sé skipt
upp í tvö mót –
deildarkeppni, sem
væri undankeppni
úrslitakeppninnar
og stæði yfir í sex og hálfan mánuð.
Eftir það hæfist úrslitakeppnin,
sem allt snerist um og sagði Geir að
hann væri ekki sammála þeirri skil-
greiningu. „Íslandsmótið gengur út
á það að vinna deildarkeppnina og
mér persónulega finnst það mjög
sterkt að vinna hana. Það þýðir að
þú ert búinn að standa þig vel í allan
vetur og það er ákveðin vinna.
Hvort sem það eru leikmenn eða
þjálfari sem eiga í hlut. Ég get því
ekki litið á deildarkeppnina sem ein-
hverja undankeppni.“
En núna sáum við það í fyrra að
liðið, KA, sem hafnar í fimmta sæti í
deildarkeppninni, stendur uppi sem
Íslandsmeistari og verður minnst
fyrir það.
„Já, þegar deildarkeppninni lýk-
ur, byrjar bara eitthvað annað mót.“
Hvort mótið er þá Íslandsmót –
er það deildarkeppnin eða úrslita-
keppnin?
„Samkvæmt reglum HSÍ er það
úrslitakeppnin en ég persónulega,
sem handboltamaður og þjálfari, lít
svo á að deildarkeppnin sé mjög
mikilvæg. Ég get ekki gert að því
þótt fólk út í bæ, blaðamenn og
áhorfendur, telji þetta ekki vera
eitthvað eins mikilvægt. Að vera
efstur eftir tuttugu og sex leiki hlýt-
ur að vera ákveðið afrek. Eftir úr-
slitakeppnina spyr enginn að því
hvað gerðist í liði andstæðinganna.
Kannski meiddist einhver mikil-
vægur leikmaður eða eitthvað ann-
að kom upp á hjá liðinu sem hafnaði
í efsta sæti deildarkeppninnar, það
getur alltaf gerst. Úrslitakeppnin
tekur bara fjórar vikur en deildar-
keppnin sex mánuði. Ég lít því á það
sem stórt mót og mér finnst það
synd ef það er gert of mikið úr því
að þetta sé ekki merkilegt mót.“
Engu að síður er aðalbaráttan í
úrslitakeppninni, ekki satt?
„Já, en mér fannst til dæmis vera
fín barátta í þessum leik hér í kvöld.
Það er ágætis handbolti í gangi og
fólk getur komið og séð fullt af góð-
um leikjum. Ég veit ekki betur en
það hafi verið þrír hörkuleikir í
deildinni í dag, KA vinnur FH með
einu marki í Hafnarfirði og Þór
lagði Haukana fyrir norðan með
einu marki, hér vinnst leikurinn
með tveimur mörkum.“
En er þá ekki gott fyrir þig sem
þjálfara mjög ungs liðs í deildinni að
fá alla þessa leiki sem undirbúning
fyrir sjálfa úrslitakeppnina?
„Jú, það þurfa allir að ganga í
gegnum það að vera ungir og fá sína
eldskírn og þeir gera það margir,
þótt sumir séu komnir með meiri
reynslu en aðrir. Við erum búnir að
vera á toppnum í nokkurn tíma og
strákarnir eru að tapa sínum fyrsta
leik og auðvitað setur það pressu á
þá. Þetta gengur út á það að kunna
að höndla pressu. Það er ekkert
betra að vera alltaf númer tvö og
þrjú og ætla svo að klára pressuna
þegar í úrslitakeppnina er komið.“
Valsmenn hafa fagnað ófáum Ís-
landsmeistaratitlum á síðustu árum
– síðast urðu Valsmenn meistarar
fyrir fjórum árum. Eru meistara-
efni í þessu liði sem þú ert með í
höndunum í dag. Heldur þú að það
búi sigurvegarar í þessum strákum?
„Já, ég hef fulla trú á þessum
drengjum og því sem þeir eru búnir
að gera hingað til hef ég fulla trú á
að þeir geti gert áfram. Það er ekki
nóg með að þetta sé fyrsta tapið
okkar í deildinni heldur er þetta
fyrsta tapið okkar á undirbúnings-
tímabilinu líka. Það sýnir viljann og
metnaðinn í þessum drengjum að
þeir leggja sig alla fram í æfinga-
leikjum eins og öðrum leikjum. Og
ég hef fulla trú á að þeir geri það
áfram, annars værum við ekki í
þessu. Nú reynir á þessa drengi, við
fáum Þór í heimsókn í næstu um-
ferð, sem er aðeins stigi á eftir okk-
ur. Það verður toppleikur og mér
þætti það ansi ósanngjarnt ef því
verður haldið fram að það sé
ómerkilegur leikur af því að hann er
ekki í úrslitakeppninni. Í mínum
huga er deildarmeistaratitillinn
mikill titill, niðurstaðan í deildar-
keppninni gefur ýmis réttindi. Nið-
urstaðan þar ákvarðar heimaleikja-
réttinn, sigur í deildarkeppninni
gefur ekki aðeins titil heldur líka
Evrópusæti. Því miður er búið að
skapa þessa ímynd að þetta skipti
ekki máli.
Ég hef miklu meiri áhyggjur af
því hvað er að gerast í neðri hluta
deildarinnar. Hugsaðu þér, það eru
sex til átta lið sem þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að falla um
deild. Það er meira vandamál fyrir
HSÍ heldur en hvort deildarkeppnin
sé ekki nógu mikilvæg,“ sagði Geir
Sveinsson.
Vilji og metnaður
hjá strákunum
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Geir Sveinsson hefur verið að gera góða hluti með ungt lið Vals á Hlíðarenda
Það var ljóst í upphafi leiks aðbæði lið ætluðu sér stóra hluti í
Digranesi á sunnudag. HK-ingar
mættu með sama
baráttuhugarfar og
þeir sýndu í Hauka-
húsinu á föstudag og
Valsmenn voru stað-
ráðnir í að vinna enn einn sigur sinn í
deildinni á þessari leiktíð. Nokkuð
var um pústra í fyrri hálfleik þar sem
menn fengu högg í andlitið hvað eftir
annað. En þrátt fyrir þessa miklu
baráttu náðu leikmenn að sýna fínan
handknattleik og skoruðu mörg
glæsileg mörk. HK leiddi nær allan
fyrri hálfleikinn en Valsmenn áttu
góðan sprett undir lok hálfleiksins
og var jafnt þegar flautað var til leik-
hlés, 11:11.
HK byrjaði seinni hálfleikinn af
miklum krafti og þegar 10 mínútur
voru liðnar af hálfleiknum höfðu þeir
náð 4 marka forskoti sem Valsmenn
náðu ekki að vinna upp þrátt fyrir
góðan og einbeittan vilja. Þar fór
fremstur fyrirliði þeirra, Snorri
Steinn Guðjónsson, sem var óspar að
hvetja félaga sína áfram og fara fyrir
þeim í vörn og sókn. En enginn má
við margnum og kom þar bæði til að
Arnar Freyr Reynisson í marki HK
var þeim óþægur ljár í þúfu sem og
að HK náði ágætlega að leysa sókn-
arleikinn eftir að Jaliesky Garcia var
tekinn úr umferð.
„Það var alveg ljóst að einhvern
tíma kæmi að því að við töpuðum
leik, við förum ekki taplausir í gegn-
um mótið. En við spiluðum ekki
nægilega vel og uppskárum sam-
kvæmt því,“ sagði Geir Sveinsson,
þjálfari Vals, í leikslok. Valsliðið hef-
ur oft leikið betur en það gerði í
þessum leik, sérstaklega varnarlega.
Snorri Steinn dró vagninn eins og
áður er talið en auk hans átti Roland
Eradze markvörður góðan leik. Þá
lék Bjarki Sigurðsson ágætlega, sér-
staklega í fyrri hálfleiknum en hann
náði sér ekki á strik í þeim síðari.
Alexander Arnarson, fyrirliði HK,
var eðlilega mjög kátur í lok leiks.
„Þetta er frábært, við höfðum ekki
náð nema einu stigi út úr síðustu
tveimur leikjum og vorum staðráðn-
ir í að taka bæði stigin í kvöld,“ sagði
Alexander.
Það vakti athygli að varnarjaxl-
arnir í liði HK, Alexander, Jón Bersi
Ellingsen og félagar, sem oft hafa
fengið talsverða hvíld í skammar-
króknum í leikjum sem þessum, sátu
aðeins af sér sex mínútur gegn Val.
Hverja telur Alexander skýringuna
á því? „Ætli við séum ekki orðnir
svona miklir refir í þessu. Maður
spilar eins fast og maður getur og
stundum aðeins fastar. Ef ekki eru
gerðar athugasemdir við það þá bæt-
ir maður aðeins í og reynir að halda
sig við þá línu sem dómararnir gefa.
Við erum ekki lengur meðal „litlu lið-
anna“ í deildinni. Við höfum sýnt það
á undanförnum árum að það fer ekk-
ert lið héðan með bæði stigin bar-
áttulaust. Það er mjög gott að vinna
Val og þetta er eitt af því sem við
höfum verið að stefna leynt og ljóst
að, að vera með í baráttunni. Við er-
um með hóp manna sem hafa leikið
saman í nokkur ár, Garcia er á sínu
þriðja tímabili svo hann þekkir okk-
ur mjög vel. Markvarslan er líka að
koma og þeir bakka hvor annan
mjög vel upp, þegar annar klikkar þá
kemur hinn sterkur inn, sem er rosa-
lega öflugt. Við erum líka að fá inn
unga stráka sem eru mjög sterkir og
það eru nokkrir verulega efnilegir á
bekknum. Framtíðin er því björt hér
hjá okkur,“ sagði Alexander Arnar-
son fyrirliði HK sem lék mjög vel
ásamt þeim Arnari Frey Reynissyni
markverði og hinum unga og bráð-
efnilega Ólafi Víði Ólafssyni.
HK-ingar
náðu að
leggja Val
HK gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals að velli í Digranesi á
sunnudagskvöld, 25:23, og þar með biðu Valsmenn sinn fyrsta
ósigur á tímabilinu. Mikil barátta var í leiknum allan tímann en þeg-
ar upp er staðið verður sigur HK að teljast sanngjarn. Liðið er á mik-
illi siglingu þessa dagana eins og það gaf svo sterklega til kynna í
jafnteflisleiknum gegn Haukum fyrr í vikunni. Valur situr engu að
síður enn í efsta sæti 1. deildar karla með 15 stig að loknum 9 um-
ferðum en Þór kemur á hæla þeirra með 14 stig og mætast þessi lið
að Hlíðarenda í 10. umferð mótsins sem fram fer 8. nóvember.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
GEIR Sveinsson, þjálfari Valsmanna, var ekki á þeim buxunum að
leggja árar í bát, þó að strákarnir hans hefðu mátt þola fyrsta tapið
á Íslandsmótinu – töpuðu fyrir HK í Digranesi. Hann var spurður
hvort það hafi verið erfitt að halda strákunum á tánum eftir langa
sigurlotu? „Það er auðvitað ákveðin kúnst og ég viðurkenni það al-
veg að það er ekki gott að vinna svona stórt eins og við gerðum í
síðasta leik (gegn Stjörnunni) þótt ég líti ekki svo á að maður eigi að
hafa áhyggjur af því . Það sem aðalatriðið snýst um er að halda
mannskapnum á tánum,“ sagði Geir.