Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 3
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 B 3 ATHYGLI hefur vakið tæknivæð- ing sú sem orðin er hjá íslenska landsliðinu í handknattleik. Guð- mundur landsliðsþjálfari nýtir sér tölvutæknina til hins ýtrasta. „Ég hef starfað við tölvur frá 1983 og á því tiltölulega auðvelt með að nýta mér tæknina og sé nokkuð hvað hægt er að gera til að nýta sér þetta sem best. Við keyptum stóran hugbún- aðarpakka til að skrá allt mögu- legt og síðan tókum við smáhluta út úr þessu og notum það til að setja upp leikkerfi og annað sem ég sendi leikmönnum á diski og þeir geta skoðað og lært þar. Með þessu er allt komið á einn stað, þetta er allt á diski en ekki á tíu mismunandi spólum. Nú er ég að vinna efni um önn- ur lið og þetta virkar þannig að ég get kallað upp eitthvert lið, til dæmis sænska liðið, og kallað upp þau leikkerfi sem þeir nota og strákarnir geta skoðað þau, bæði sem tölvumynd og eins sem lifandi mynd.“ Guðmundur leggur áherslu á að þetta sé aðeins leið til að reyna að undirbúa sig enn betur fyrir hvert verkefni. „Ég lít þannig á málið að fjölmargir þættir ráði því hvernig við stönd- um okkur. Þetta er einn þátt- urinn, að rannsaka leik okkar og annarra liða og reyna að nýta sér það. Maður er að reyna að bæta sig aðeins á hverju sviði fyrir sig og auðvitað veit maður ekki hverju það skilar, en ef það skilar einhverju smá og síðan bætum við okkur eitthvað smá líka á öðr- um sviðum þá getur það haft úr- slitaáhrif. Við þurfum að hafa mikið fyrir því að ná árangri og þetta er lið- ur í því að reyna að bæta okkur og eins og handboltinn er orðinn getur örlítil bæting gert gæfu- muninn,“ segir Guðmundur. Þú hefur lengi verið í hand- boltanum og undir leiðsögn fjöl- margra þjálfara. Nýtist það þér? „Já, já, það er alveg á hreinu. Ég byrjaði mjög snemma að skrifa niður hjá mér æfingar. Þá teiknaði maður þetta bara upp. Síðan hefur maður sótt mörg námskeið og þannig viðað að sér efni og valið úr æfingar. Maður er alltaf að leita en það er hins vegar ákveðinn kjarni af æfing- um sem er klassískur og góður og verður alltaf notaður. Maður verður að passa sig á því að reyna ekki að finna alltaf upp hjólið í þessu sambandi. Auðvitað reynir maður þó alltaf að bæta við og koma með eina og eina nýja æfingu. Ég keypti mér til dæmis einu sinni bók í Þýskalandi sem var með 2.000 æfingum og ég held ég hafi getað notað eina,“ segir landsliðsþjálfarinn. ÞEGAR Guðmundur var landsliðs- maður í handknattleik tók hann jafnan með sér tæki og tól til að hnýta flugur í landsliðsferðum. Þá sagði Guðmundur að það væri ágætt að dreifa huganum með því að gera einhverjar flugur. „Nú er enginn tími til að hnýta flugur, ekki nokkur og því tek ég græjurnar ekki með. Það er bara handbolti sem kemst að hjá mér í svona ferð – ekkert annað. Ég hugsa um þetta dag og nótt. Ég fer stundum í gönguferðir en hugurinn er samt við handbolta. En þegar við vorum á EM í Svíþjóð þá fór ég ekki út af hótelinu, nema í leiki, í nokkra daga. Maður vissi ekki einu sinni hvernig veður var. Svona er þetta, altént eins og ég vinn þetta. Það er svo mikið að hugsa um. Hvernig er best að leika og á hvað á að leggja áherslu? Þetta þarfnast 100% einbeitingar allan sólarhringinn,“ segir Guðmundur. En þetta var ekki svona þegar þú varst leikmaður? „Nei, og ég held að leikmenn liggi alls ekki svona mikið yfir hlut- unum og í raun held ég þeir hefðu ekki gott af því að ná aldrei að hvíla hugann.“ Engar flugur á ferð allt í senn en hvort það er í raun hægt er spurning. Við lékum síðast saman fyrir fimm mánuðum og fáum eina æf- ingu fyrir fyrsta leikinn þannig að það er ákveðin eftirvænting að fá að vita hvar við stöndum. Eftir þetta mót sjáum við hvar við stöndum, hvað við þurfum að bæta og hvað er í lagi hjá okkur. Ég tel mjög mikilvægt að allir leikmenn taki þátt í því sem við er- um að gera og að allir séu sáttir við það. Þess vegna setjum við okkur markmið í sameiningu og menn fá tækifæri til að tjá sig á þeim fundi og það er mjög gott og eftir fundinn eru allir sáttir. Svona er áætlunin hjá okkur og hún er klár og allir eru sáttir og ekkert vesen.“ Ekki einfalt að velja landsliðið Það eru ekki alltaf allir sáttir með val á landsliði. Er ekki erfitt að ákveða hverja á að velja hverju sinni? „Jú, það er það. Það sem ég legg upp með er að vera samkvæmur sjálfum mér. Ég geri ákveðnar kröf- ur og ef maður sem ég hef verið með í liðinu er ekki að standa sig vel með liði sínu og fengið lítið að spila þá vel ég hann ekki. Leikmaður getur ver- ið slakur í dag þótt hann hafi verið frábær fyrir hálfu ári. Hins vegar getur verið maður sem ég er viss um að sé okkur mikilvægur á HM og ég myndi samt velja hann þótt hann sé kannski ekki alveg upp á sitt besta þessa dagana. Þetta fer dálítið eftir einstaklingum og hvaða stöðu og hlutverki þeir koma til með að gegna. Svo er eitt annað sem gerir þetta ef til vill dálítið flóknara en ella. Ég þarf að horfa á heildina, ekki ein- hver ákveðin nöfn. Hverjir geta leikið vörnina og hverjir ná best saman þar og í sókninni. Í nútíma- handknattleik er afskaplega erfitt að skipta mörgum leikmönnum útaf á milli sóknar og varnar eins og áður var. Tökum bara smátilbúið dæmi: Ég er með tvo örvhenta leikmenn í huga í stöðuna hægra megin. Annar er betri í sókn en hinn er betri varn- armaður. Hvorn á ég að velja, betri varnarmanninn eða þann sem er betri í sókn? Svarið við þessu er ekkert einfalt og það fer meðal ann- ars eftir hvaða aðra menn maður velur í hópinn. Það liggur mikil vinna og hugsun á bak við það að velja hópinn. Svo fer nokkur vinna í að fylgjast með hvernig menn eru að standa sig og hvort þeir eru heil- ir.“ Eru menn ekki alltaf heilir og til- búnir í slaginn þegar þú spyrð þá að því? „Jú, sjálfsagt væri það, en ég geri lítið af því að spyrja strákana sjálfa að því. Ef ég er ekki viss þá tala ég við þjálfara þeirra og þá fær maður yfirleitt heiðarleg og rétt svör,“ seg- ir Guðmundur brosandi. Hann segir að þegar upp sé staðið sé það heildin – liðsheildin – sem skipti mestu máli. „Það skiptir öllu máli að liðið sem slíkt geti unnið saman og náð árangri. Ég vel það lið sem ég held að sé sterkast hverju sinni og ég er sammála því sem margir segja að sterkasta liðið þarf ekki endilega að vera skipað sterk- ustu einstaklingunum. Það er miklu meira í svona íþrótt en það sem menn skila inni á vell- inum. Það skiptir máli hvernig anda menn koma með inn í hópinn. Þetta er nefnilega heilmikið félagslegt dæmi líka, ekki bara frammistaðan á vellinum. Það eru mjög margir þættir sem maður þarf að huga að. Hvernig er þessi leikmaður undir miklu álagi? Er hann bara góður í leikjum sem skipta engu máli? Hvernig er hann þegar komið er í heimsmeistarakeppni og allt er und- ir? Þetta hefur allt áhrif á frammi- stöðu leikmanna. Þetta mót er til- valið til að finna út hvernig menn koma út við mikið álag því það verð- ur mikið álag á leikmenn, leikið þétt og allt mjög erfiðir leikir,“ segir Guðmundur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari sést hér stjórna sínum mönnum ásamt Einari Þorvarðarsyni í leik í Evrópukeppni landsliða í Svíþjóð fyrr á árinu. ’ Ég þarf að horfa á heildina, ekki ein- hver ákveðin nöfn. Hverjir geta leikið vörnina og hverjir ná best saman þar og í sókninni. ‘ ’ Rússar eru meðhávaxið lið, vörnin er öflug og þeir keyra mikið á hraðaupp- hlaupum og eru síðan vel skipulagðir í sókninni. ‘ Tölvuvætt landslið Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.