Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA
4 B ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KATRÍN Jónsdóttir skoraði mark
norsku meistaranna Kolbotn þeg-
ar þeir gerðu jafntefli við fráfar-
andi meistara, Trondheims-Örn, á
útivelli í lokaumferð norsku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu
kvenna á laugardaginn. Leik-
urinn endaði 1:1 en Kolbotn
tryggði sér meistaratitilinn í síð-
ustu umferð.
Katrín skoraði markið með
skalla eftir fyrirgjöf frá hægri
eftir 12 mínútna leik. Þetta var
væntanlega kveðjuleikur hennar
því eins og fram hefur komið
hyggst hún leggja skóna á hilluna
og einbeita sér að læknanáminu
sem hún stundar í Noregi.
Kolbotn vann 15 af 18 leikjum
sínum í deildinni í ár og hlaut 46
stig. Asker hafnaði í öðru sæti
með 41 stig og Trondheims-Örn í
því þriðja með 38 stig. Katrín lék
alla 18 deildaleiki Kolbotn í ár og
skoraði í þeim 8 mörk. Þetta var
fimmta heila tímabil hennar með
liðinu og hún hefur aðeins misst
af fjórum deildaleikjum þess frá
því hún hóf að leika með því
haustið 1997.
Katrín
kvaddi
með
marki
Heiðar skoraði markið á 42.mínútu með skalla af stuttu
færi. „Þetta var frábært mark.
Nokkrar góðar sendingar úti á
vellinum, fyrirgjöf frá hægri, og
Heiðar gerði allt rétt. Sannkallað
„miðherjamark“ og þetta er að
komast í vana hjá honum,“ sagði
Ray Lewington, knattspyrnustjóri
Watford.
Heiðar var mjög ógnandi í sókn-
arleik Watford, lék frábærlega að
sögn ýmissa enskra fjölmiðla, og
var óheppinn að skora ekki fleiri
mörk. Watford er komið í 5. sætið
eftir gott gengi að undanförnu og
til alls líklegt í toppbaráttu deild-
arinnnar.
Versti skellurinn hjá Stoke
Stjóralaust lið Stoke tapaði sín-
um þriðja leik á einni viku og
fékk sinn versta skell til þessa í 1.
deildinni, 4:0 í Rotherham. Brynj-
ar Björn Gunnarsson og Bjarni
Guðjónsson léku allan leikinn
með Stoke og Brynjar var næst
því að skora, átti hörkuskalla sem
markvörður Rotherham varði
glæsilega. Pétur Marteinsson var
ekki í leikmannahópi Stoke en lið-
ið er nú dottið niður í 20. og
fimmta neðsta sæti deildarinnar.
Hermann Hreiðarsson lék allan
leikinn í vörn Ipswich sem tapaði
enn, nú 0:1 fyrir Gillingham á
heimavelli. Ipswich er í 17. sæti
deildarinnar.
Ívar Ingimarsson kom inn á
sem varamaður á lokamínútunum
þegar lið hans, Wolves, vann
Grimsby, 4:1, og fór með því upp í
11. sæti.
Morgunblaðið/Einar Falur
Heiðar Helguson skorar mark sitt gegn Litháen með skalla.
Sigurmark
Heiðars í
100. leiknum
HEIÐAR Helguson hefur heldur betur látið til sín taka í sóknarleik
Watford síðustu vikurnar. Heiðar missti af fyrstu níu leikjum liðsins
í ensku 1. deildinni í haust vegna meiðsla en á laugardag skoraði
hann sitt fjórða mark í sex leikjum – sigurmarkið gegn Sheffield
Wednesday, 1:0. Að auki skoraði Heiðar fyrir Ísland gegn Litháen á
dögunum þannig að Dalvíkingurinn er svo sannarlega á skotskón-
um þessa dagana. Ekki spillti fyrir að leikurinn á laugardag var
hans 100. í treyju Watford, frá því hann gekk til liðs við félagið í árs-
byrjun 2000.
■ Úrslit/B10
Staðan/B10
TRYGGVI Guðmundsson hlýtur
silfurskóinn í norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Eyjamaðurinn
skoraði tvö mörk í síðasta leikn-
um á sunnudag þegar Stabæk
burstaði Moss á útivelli, 7:2, og
gerði þar með samtals 15 mörk í
deildinni. Tveimur minna en Har-
ald Brattbakk hjá Rosenborg, sem
einnig skoraði tvívegis í loka-
umferðinni og varð þar með
markakóngur deildarinnar.
Tryggvi hefur nú skorað 57
mörk á fimm árum sínum í norsku
úrvalsdeildinni, eða 11,4 mörk að
meðaltali á ári. Hann hefur áður
gert 15 mörk á tímabili en það
gerði hann með Tromsö árið 2000.
Tryggvi lék allan leikinn á
sunnudaginn og lagði upp eitt
mark til viðbótar. Hann lék á
vinstri kantinum, ekki í framlín-
unni eins og lengst af í sumar, en
hann spilaði í sinni gömlu stöðu á
kantinum í síðustu fimm umferð-
unum og gerði þá þrjú mörk.
Fyrra markið skoraði hann úr
vítaspyrnu en Gaute Larsen, þjálf-
ari Stabæk, sagði fyrir leik að
Tryggvi myndi taka vítaspyrn-
urnar að þessu sinni þar sem
hann væri í keppni um marka-
kóngstitilinn.
Marel Baldvinsson lék einnig
með Stabæk gegn Moss en fór af
velli á 63. mínútu.
Tryggvi fær silfurskóinn
ÍSLENDINGALIÐIÐ Molde
tryggði sér silfurverðlaunin og jafn-
framt sæti í forkeppni meistara-
deildar Evrópu næsta sumar. Molde
gerði reyndar aðeins jafntefli, 3:3,
gegn Sogndal á heimavelli en það var
nóg. Bjarni Þorsteinsson skoraði eitt
af mörkum Molde, kom liði sínu í 2:1,
og skoraði þar með fyrsta mark sitt í
úrvalsdeildinni.
Bjarni lék allan leikinn með Molde
og sömuleiðis Ólafur Stígsson, en
Andri Sigþórsson kom inn á og lék
síðustu 6 mínúturnar.
Lyn, með Helga Sigurðsson og Jó-
hann B. Guðmundsson innanborðs
allan tímann, átti möguleika á silfr-
inu ef Molde biði lægri hlut, en tap-
aði, 0:1, fyrir Viking á heimavelli.
Þriðja sætið er eftir sem áður lang-
besti árangur Lyn í norsku knatt-
spyrnunni um langt árabil. Hannes
Þ. Sigurðsson lék ekki með Viking
sem hafnaði í fjórða sæti.
Molde
náði öðru
sætinu
TEITUR Þórðarson, þjálfari
Brann, var ekki niðurdreginn
þrátt fyrir skell sinna manna, 4:0,
gegn meisturum Rosenborg í loka-
umferð norsku úrvalsdeildarinnar
í knattspyrnu á sunnudaginn.
Keppinautar Brann í fallslagnum,
Moss, steinlágu á meðan á heima-
velli fyrir Stabæk, 7:2, og þar með
hélt Brann 12. og þriðja neðsta
sætinu í deildinni. Moss og Start
féllu en Brann leikur aukaleiki við
Sandefjord, þriðja efsta lið 1.
deildar, um sæti í úrvalsdeildinni.
Lið Tromsö og Aalesund urðu í
toppsætum 1. deildar og leika í úr-
valsdeildinni á næsta ári.
„Sandefjord verður ekki auð-
veldur andstæðingur en við eigum
að sigra og halda okkur í deildinni.
Munurinn á deildunum á að vera
okkur í hag. En við þurfum eftir
sem áður að sýna okkar besta leik
og halda fullri einbeitingu. Í dag
fengum við aðstoð frá Stabæk en
gegn Sandefjord þurfum við að
treysta á okkur sjálfa,“ sagði Teit-
ur við Nettavisen og bætti því við
að það væri ekkert hneyksli að
tapa fyrir Rosenborg. „Við ætl-
uðum að hirða öll stigin í Þránd-
heimi en meistararnir voru alltof
sterkir fyrir okkur,“ sagði Teitur.
Árni Gautur Arason lék ekki í
marki Rosenborg að þessu sinni,
varamarkvörðurinn Espen John-
sen fékk að spreyta sig. Ármann
Smári Björnsson lék með Brann
en var skipt út af á 65. mínútu.
Start kvaddi deildina með tapi
heima gegn Bodö/Glimt, 0:3. Liðið
fékk því aðeins 4 stig í síðari um-
ferðinni, undir stjórn Guðjóns
Þórðarsonar, en liðið var neðst
með 7 stig þegar hann tók við.
Guðni Rúnar Helgason lék allan
leikinn með Start en hann var með
liðinu í síðustu 8 leikjunum, á leigu
frá Val.
Teitur og
félagar
sluppu
að sinni
HELGI Valur Daníelsson lék síð-
ustu 25 mínúturnar með Peterbor-
ough sem tapaði á heimavelli, 1:3,
fyrir Bristol City í ensku 2. deildinni
í knattspyrnu á laugardaginn. Lið
hans er nú í þriðja neðsta sæti deild-
arinnar.
ARNAR Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Dundee United sem
gerði jafntefli við Partick Thistle á
heimavelli í skosku úrvalsdeildinni á
laugardaginn, 1:1. Arnar hefur
fengið fá tækifæri hjá liðinu og nú er
knattspyrnustjórinn, sem óskaði
eftir að fá hann til liðs við Dundee
Utd., hættur, þannig að útlitið er
ekki bjart hjá Arnari.
JÓHANNES Karl Guðjónsson var
á varamannabekk Real Betis sem
gerði jafntefli, 1:1, við botnlið
Huelva á útivelli í spænsku knatt-
spyrnunni. Hann kom ekki við sögu í
leiknum.
LEIKMENN Real Betis voru að-
eins átta síðustu 12 mínútur leiksins
en þá var búið að reka þrjá þeirra af
velli. Þeim tókst samt að halda
fengnum hlut gegn heimaliðinu.
STEFÁN Gíslason var í fyrsta
skipti í byrjunarliði Grazer AK á
tímabilinu þegar það gerði jafntefli,
1:1, við Salzburg á útivelli í aust-
urrísku úrvalsdeildinni á laugardag-
inn. Stefán lék allan leikinn.
HELGI Kolviðsson lék einnig all-
an tímann með Kärnten en lið hans
fékk skell gegn Ried, 3:0, og féll nið-
ur í sjötta sætið í Austurríki.
ÞÓRÐUR Guðjónsson og félagar í
Bochum gátu ekki leikið við Kais-
erslautern í þýsku 1. deildinni á
sunnudag. Leiknum var aflýst 90
mínútum áður en hann átti að hefj-
ast vegna yfirvofandi óveðurs.
ÞÓRÐUR átti að koma inn í byrj-
unarliðið á ný, en hann var varamað-
ur í næsta leik á undan, í fyrsta sinn
á tímabilinu. Peter Neururer, þjálf-
ari Bochum, sagði að það væri ekk-
ert vandamál að taka Þórð inn á ný,
ekki myndi liðið veikjast við það því
hann hefði staðið sig frábærlega í
fyrstu leikjum tímabilsins.
AUÐUN Helgason hefur verið til
reynslu hjá danska félaginu AaB að
undanförnu. Honum var þó ekki
boðinn samningur að svo komnu, en
þjálfari liðsins, Poul Erik Andr-
easen, þekkir Auðun frá því hann
þjálfaði Viking í Noregi, er Auðun
lék með liðinu. Auðun er laus allra
mála hjá Lokeren í Belgíu.
ROBERTO Baggio hélt upp á sinn
400. leik í ítölsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu á sunnudaginn, með því að
jafna fyrir Brescia gegn Como, 1:1.
Markið gerði hann úr vítaspyrnu
fjórum mínútum fyrir leikslok.
INTER náði þriggja stiga forystu
á Ítalíu með því að sigra Bologna,
2:0, í toppslag helgarinnar. Christ-
ian Vieri innsiglaði sigurinn með
marki á lokamínútu leiksins.
CHIEVO stöðvaði sigurgöngu AC
Milan með 3:2-sigri og litla liðið virð-
ist ætla að fylgja eftir óvæntum ár-
angri á síðasta ári þegar það lék í
deildinni í fyrsta sinn.
MARCELO Salas tryggði Juvent-
us sigur á Udinese, 1:0, og lið hans
er í námunda við toppinn.
REAL Sociedad er komið með
þriggja stiga forystu í spænsku
knattspyrnunni eftir 2:1-sigur á
Racing Santander í fyrrakvöld. De
Pedro skoraði sigurmarkið úr víta-
spyrnu á lokamínútunni.
PABLO Aimar skoraði þrjú mörk
í fyrri hálfleik fyrir Valencia sem
vann stórsigur á Athletic Bilbao,
5:1, á heimavelli. Meistarar Val-
encia eru í öðru sæti deildarinnar,
með betri markatölu en Celta Vigo.
PATRICK Kluivert skoraði einn-
ig þrennu þegar Barcelona sýndi
loksins tennurnar og vann Alavés,
6:1.
ZINEDINE Zidane skoraði mark
Real Madrid sem varð að sætta sig
við jafntefli á heimavelli, 1:1, gegn
Villarreal.
FÓLK