Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 2

Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK  VIGGÓ Sigurðsson þjálfari karlaliðs Hauka í handknattleik og Birkir Ívar Guðmundsson, mark- vörður, hafa verið úrskurðaðir í eins leiks bann af aganefnd HSÍ.  HJÁLMAR Jónsson kom inn á á 30. mínútu í liði Gautaborg sem tapaði fyrir Kalmar í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Gauta- borg hafnaði í þriðja neðsta sæti og þarf að leika aukaleiki við Västra Frölunda um laust sæti í deildinni.  GUÐMUNDUR Viðar Mete lék ekki með Malmö sem tapaði fyrir Halmstad, 1:0. Malmö hafnaði í öðru sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Djurgården.  ATLI Sveinn Þórarinsson lék síðustu 12 mínúturnar fyrir Ör- gryte sem tapaði fyrir Örebro, 3:2. Einar Brekkan kom inná á 77. mínútu fyrir Örebro. Örgryte lenti í þriðja sæti en Örebro í því sjö- unda.  HELGI Kolviðsson lék allan tím- ann fyrir Kärnten sem tapaði, 1:0, fyrir Salzburg í austurrísku úr- valsdeildinni. Stefán Gíslason var ekki í liði Grazer sem vann, 2:0 sigur á Rapid.  JÓHANNES Harðarson var í leikmannahópi Groningen sem tapaði á heimavelli fyrir Feyen- oord, 2:0, í hollensku 1. deildinni. Jóhannes kom ekkert við sögu en Groningen er aðeins með eitt stig eftir níu leikjum og situr á botn- inum.  JÓHANNES Karl Guðjónsson sat á bekknum hjá Real Betis eins og í undanförnum leikjum en fékk ekert að spreyta sig þegar lið hans sigraði Málaga, 3:0.  ARNAR Þór Viðarsson og Arn- ar Grétarsson léku báðir með Lokeren sem gerði 1:1 jafntefli við Moeskroen í belgísku 1. deildinni. Rúnar Kristinsson lék hins vegar ekki en hann er staddur á Íslandi af persónulegum ástæðum. Leikið var við afar erfiðar aðstæður en völlurinn var nánast á floti sem gerði leikmönnum mjög erfitt fyr- ir. Lokeren getur þakkað mark- verði sínum fyrir stigið því hann varði vítaspyrnu undir lok leiksins.  GUÐLAUG Jónsdóttir skoraði eina mark FV Kaupmannahöfn sem tapaði fyrir Fortuna Hjörr- ing, 5:1, í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. FV er í fimmta sæti.  PIERRE Littbarski, sem varð heimsmeistari með Þjóðverjum á HM í knattspyrnu árið 1990, var á sunnudag vikið úr starfi þýska 2. deildarliðsins Duisburg. Liðinu hefur gengið illa undir hans stjórn Littbarski sem tók við þjálfun liðs- ins í fyrra. ARGENTÍNSKI framherjinn Gabriel Bat- istuta segir í viðtali við Corriere dello Sport að hann hafi ákveðið að yfirgefa ítalska liðið Roma eftir keppnistímabilið. Batistuta, sem er 33 ára gamall, segir ennfremur að honum þyki enska knatt- spyrnan áhugaverð, þar sé sóknarleik- urinn í fyrirrúmi. „Hér á Ítalíu ræður leikskipulagið mestu, menn eru í ákveðnum hlutverkum og fara ekki út fyrir það. Ég vil kynnast enskri menningu, læra nýtt tungumál,“ segir Batistuta. Manchester United hefur lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir en aldur kappans á eftir að draga úr áhuga margra liða. Bat- istuta hefur leikið með Fior- entina og Roma og skoraði 181 mark í efstu deild. Gabriel Batistuta vill til Englands ÍSLANDSMEISTARINN í borðtennis Guðmundur E. Stephensen vann til gullverðlauna í meistaraflokki karla á Norges Cup sem fram fór í Ósló um helgina en hann lagði Kínverjann Zui Qinglei í úrslitaleiknum, 11:8, 7:11, 11:9, 9:11, 11:7 og 11:8. Guðmundur vann einnig til gullverðlauna í flokki leikmanna sem eru 21 árs og yngri, en Guðmundur vann þar Kínverjann Chang Miao í úrslitaleiknum, 3:0. Í tvíliðaleik lék Guðmundur með Norðmanninum Joakim Sörensen en þeir töpuðu í úrslitaleik mótsins. Mótið er stærsta opna mótið sem haldið er ár hvert í Noregi en kepp- endur eru frá Noregi, Íslandi, Dan- mörku, Kína og Svíþjóð. Tvöfalt hjá Guðmundi í Ósló Guðmundur Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis. Það er kannski vel við hæfi aðEyjamenn skyldu ráða Magn- ús til starfans enda er fiskur og allt sem við honum kem- ur Magnúsi í blóð borið enda er hann fæddur og uppalinn í Ólafsvík, sjávar- plássi á Snæfellsnesi, sem mikið til byggir afkomu sína á sjávarútvegi eins og Vestmannaeyjar. Get kannski gefið Eyjamönn- um ráð í fiskvinnslunni „Það er ekki verra að fara í sjáv- arpláss að þjálfa og hver veit nema ég geti gefið mönnum í fiskvinnsl- unni í Eyjum einhver góð ráð eins og leikmönnunum,“ segir Magnús glottandi við tönn, en fyrirtækið hans í Hafnarfirði hefur dafnað vel. „Þetta fiskvinnslufyrirtæki okkar er orðið sjö ára gamalt sem ég, faðir minn og bróðir, Arnar, stofnuðum. Við byrjuðum þrír en síðan hefur það stækkað jafnt og þétt og í dag þegar best lætur starfa hjá okkur í kringum 25–30 manns. Við fram- leiðum alls konar aukaafurðir í fiski og kaupum hráefnið ýmist af öðrum vinnslum eða af frystitogurunum. Framleiðslan er tvíþætt. Annars vegar framleiðum meðal annars aukaafurðir í saltfiski eins og gellur, kinnar, klumpa, fés og saltfiskbita og seljum þetta til Spánar og Portú- gals og hins vegar þurrkum við hausa, bein og afskurð og seljum á Nígeríumarkað. Ég er búinn að vinna við fisk stóran hluta ævi minnar og það má segja að fiskur og fótbolti skipi stærstan þátt í lífi mínu ásamt fjölskyldunni,“ segir Magnús. Magnús stýrir öllu sem við kemur skrifstofunni, það er bókhald, launamál, starfsmannamál og er með fjármálin á sinni könnu. Eins og áður segir sleit Magnús barnskónum á Ólafsvík og lék knattspyrnu eins og flestir aðrir í plássinu. „Ég lék með Víkingi Ólafsvík í yngri flokkunum en þegar ég kom upp í 2. flokk fluttist ég til Reykja- víkur og gekk til liðs við KR. Ég lék með 2. flokki KR í eitt ár og varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Þetta var geysisterkur flokkur og á þeim tíma léku meðal annarra: Rún- ar Kristinsson, Heimir Guðjónsson, Hilmar Björnsson, Þorsteinn Hall- dórsson og fleiri góðir leikmenn. Ég fékk að spreyta mig með meistara- flokki þetta ár og ég náði að spila þrjá leiki með aðalliðinu.“ Magnús sneri aftur heim til Ólafsvíkur og lék með meistara- flokki Víkings í tvö ár en leiðin lá svo aftur á mölina. Hann gekk í rað- ir ÍR og lék með liðinu eitt tímabil, varð meðal annars markakóngur liðsins. „Á þessum tíma var ég byrjaður að snúa mér að þjálfun. Ég tók við þjálfun 2. flokks KR og reyndi að komast að með meistaraflokkum sem gekk ekki og það varð úr að ég skipti yfir í Stjörnuna. Þar lék ég með öðrum Ólsara, Þorgrími Þrá- inssyni, og tveimur Eyjamönnum, Sigurlási Þorleifssyni og Leifi Geir Hafsteinssyni og síðara árið fórum við upp í úrvalsdeildina,“ segir Magnús. Magnús ákvað að svara kalli fé- laga sinna á Ólafsvík sem vildu fá hann til að taka við þjálfun meist- araflokks Víkings ásamt því að leika með liðinu. Magnús þjálfaði Víking í eitt ár en hélt aftur til Reykjavíkur. Besti skóli sem ég hef fengið „Ég gerðist aðstoðarþjálfari Lúk- asar Kostic hjá KR og var með hon- um í eitt og hálft ár eða þar til hon- um var sagt upp. Ég lærði feikilega mikið af Kostic og að starfa með honum er besti skóli sem ég hef fengið hvað þjálfun varðar.“ Eftir að Lúkasi var sagt upp tók Magnús að sér að þjálfa 2. flokk fé- lagsins og var síðan einnig ráðinn til að þjálfa U-17 ára landsliðið sem hann er enn með í dag en fimm ár eru liðin síðan KSÍ réð hann til starfans. Auk þess að stýra U-17 ára liðinu er Magnús aðstoðarmað- ur Ólafs Þórðarsonar með U-21 ára liðið.“ Varst þú lengi að ákveða þig þeg- ar þú fékkst tilboð um að þjálfa ÍBV og kom þér boðið á óvart? „Í sjálfu sér kom mér það ekki á óvart að Eyjamenn töluðu við mig. Ég hef verið í umræðunni hjá ein- hverjum liðum og það hefur alltaf blundað í mér að fara í úrvalsdeild- arþjálfun á einhverjum tímapunkti. Strax og Eyjamenn töluðu við mig byrjaði ég að kanna mitt umhverfi og hvort möguleiki væri á að ég gæti tekið starfið að mér. Ég ráð- færði mig við nokkra menn og fljót- lega eftir að ég að fann að það var allt jákvætt í kringum mig og fjöl- skyldan tilbúin að taka þetta skref með mér þá var ég ekki lengi að ákveða mig.“ Þjálfarastarfið áhættusamt Er einhver beygur í þér að fara til Eyja. Þú veist að pressan er þar mikil og ekki síst frá spekingunum á Hólnum fræga? Ólafsvíkingurinn Magnús Gylfason nýráðinn þjálf Fótbolti og fiskur Magnús Gylfason, 35 ára gamall Ólafsvík- ingur, var á dögunum ráðinn þjálfari karla- liðs ÍBV í knattspyrnu. Hver er þessi Magnús? kunna einhverjir að spyrja sjálfa sig en þeir sem vel þekkja til knattspyrn- unnar hér á landi vita sjálfsagt að þrátt fyr- ir ungan aldur er Magnús reyndur þjálfari þó svo að hann þreyti frumraun sína í úr- valsdeildinni næsta sumar. Guðmundur Hilmarsson tók hús á Magnúsi á vinnustað hans, Svalþúfunni, fiskvinnslufyrirtæki í Hafnarfirði sem hann rekur með föður sín- um Gylfa Magnússyni, og fékk hann til að segja aðeins frá sjálfum sér og hvaða aug- um hann lítur knattspyrnuna. Magnús Gylfason Fæddur: 20. júlí 1967. Starf: Framvæmdastjóri. Menntun: Iðnrekstrarfræð- ingur frá Tækniskóla Íslands. Maki: Halldóra Sjöfn Ró- bertsdóttir, hársnyrtir og einn af eigendum hársnyrti- stofunnar Scala. Börn: Dagný Dís Magn- úsdóttir, 14 ára. Þjálfaraferill:  Þjálfari yngri flokka Vík- ings Ólafsvík.  Stýrði knattspyrnuskóla KR.  Þjálfari meistaraflokks Víkings Ólafsvík.  Aðstoðarþjálfari meist- araflokks KR.  Þjálfari 2. flokks KR.  Þjálfari U 17 ára landsliðs pilta sem hann gegnir nú ásamt því að vera aðstoð- arþjálfari U 21 árs landsliðs- ins. Þjálfaramenntun: Hefur lokið 1., 2., 3. og 4. þjálfarastigi KSÍ ásamt því að kynna sér þjálfun víða um heim, meðal annars hjá Liver- pool og Manchester United. Gabriel Batistuta Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.