Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 4
KNATTSPYRNA
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐNI Bergsson lék ekki með
Bolton sem tapaði fyrir Birming-
ham, 3:1, í ensku úrvalsdeildinni.
Guðni er meiddur á kálfa og verður
frá í nokkrar vikur.
LÁRUS Orri Sigurðsson sat sem
fastast á bekknum hjá WBA sem
beið lægri hlut fyrir Manchester
City á heimavelli, 2:1.
HEIÐAR Helguson var atkvæða-
mikill í framlínu Watford sem gerði
1:1 jafntefli við Wolves. Heiðar var í
þrígang nálægt því að skora en
markvörður Úlfanna sá við honum í
öll skiptin. Ívar Ingimarsson var
ekki í leikmannahópi Wolves.
HERMANN Hreiðarsson lék allan
tímann í vörn Ipswich sem tapaði
enn einum leiknum, nú fyrir Crystal
Palace, 2:1. Hermann var hársbeidd
frá því að jafna undir lokin en skalli
hans fór í stöngina. Ipswich hefur
gengið allt í mót er í 5. neðsta sæti,
tveimur stigum á undan Stoke.
HELGI V. Daníelsson var ekki í
leikmannahópi Peterbrough sem
steinlá í Cardiff fyrir heimamönn-
um, 3:0. Peterbroguh lék manni
færri nánast allan leikinn því eftir
aðeins 15 sekúndna leik var varnar-
manni liðsins vikið af velli fyrir brot.
ARNAR Gunnlaugsson var ekki
með Dundee Utd. sem komst úr
botnsæti skosku deildarinnar með
því að leggja Kilmarnock, 2:1.
GIANFRANCO Zola var um
helgina útnefndur knattspyrnumað-
ur október mánaðar í ensku úrvals-
deildinni en hann leikur sem kunn-
ugt er með Chelsea. Þetta er í annað
sinn sem Zola fær þessa útnefningu
eftir að hann byrjaði að leika með
Chelsea árið 1996, en byrjað var að
veita þessi verðlaun á keppnistíma-
bilinu 1994–1995.
GERARD Houllier var á laugar-
dag útnefndur knattspyrnustjóri
október mánaðar. Hann stýrði Liv-
erpool á topp ensku úrvalsdeildar-
innar en liðið er sem stendur með 4
stiga forskot á næsta lið. Frakkinn
fékk einnig sömu útnefningu í nóv-
ember og mars á sl. leiktíð.
DAVID Seaman, markvörður
enska landsliðsins og Arsenal í úr-
valsdeildinni, hefur sagt að hann
hyggist ekki hætta að leika með
enska landsliðinu, það verði ekki fyrr
en Sven Göran Eriksson ákveði að
velja hann ekki í liðið.
HINN 39 ára gamli Seaman hefur
verið undir miklum þrýstingi að und-
anförnu þar sem hann hefur fengið á
sig klaufaleg mörk og segja margir
að hans tími sem landsliðsmarkvörð-
ur sé liðinn. Í leik enska landsliðsins
á dögunum fékk Seaman á sig mark
beint úr hornspyrnu, en leiknum
lyktaði með jafntefli, 2:2.
EMMANUEL Petit, leikmaður
Chelsea, hefur líkast til leikið sinn
síðasta landsleik með franska lands-
liðinu en þjálfari liðsins, Jacques
Santini, segir að Petit sé hreinlega of
gamall fyrir landsliðið.
PETIT var lykilmaður liðsins sem
varð heimsmeistari árið 2000 og
Evrópumeistari 1998. „Ég er ekki
smeykur við að gera breytingar og
eftir afleitt gengi liðsins á HM í sum-
ar er tími margra leikmanna liðsins á
enda,“ sagði Santini við franska fjöl-
miðla. Petit tók ummælum þjálfar-
ans með stóískri ró og sagðist ekki
ætla að erfa það við Santini ef hann
yrði ekki valinn í landsliðið á ný.
BOLTON lék sinn sjöunda leik í
röð án þess að sigra en Bolton tapaði
fyrir Birmingham, 3:1, og vermir
botnsætið í ensku úrvalsdeildinni.
Nígeríumaðurinn Jay Jay Okocha
skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bolton
sem lék manni færri í 23 mín. eftir að
Ricardo Gardner var vikið af velli.
JOHN Hartson skoraði fjögur af
sjö mörkum skosku meistaranna í
Celtic sem rúlluðu Aberdeen upp og
sigruðu, 7:0. Liðsmenn Aberdeen
virtust vart vaknaðir til lífins en mik-
il flensa hefur herjað á leikmanna-
hóp félagsins síðustu dagana.
FÓLK SKONDIÐ atvik átti sér stað á OldTrafford þegar heimamenn í Man-
chester United lögðu Southampton í
ensku úrvalsdeildinni, 2:1. Diego
Forlan, Úrúgvæinn sem þar til um
síðustu helgi var orðinn aðhláturs-
efni margra þar sem honum gekk
ekki að skora, tryggði United-
mönnum sigurinn með stór-
glæsilegu marki sex mínútum fyrir
leikslok. Líkt og í leiknum á móti
Aston Villa fyrir tíu dögum, þegar
hann braut ísinn og skoraði sitt
fyrsta úrvalsdeildarmark í 34 leikj-
um, fagnaði hann markinu með því
að rífa sig úr treyjunni en í þetta
sinn tókst honum ekki að komast
aftur í treyjuna. Það liðu nokkrar
mínútur þar til Forlan komst aftur í
búninginn að nýju en áður en liðs-
stjóra United tókst að klæða leik-
manninn í treyjuna tók hann þátt í
leiknum ber að ofan með treyjuna í
hendinni. Uriah Rennie, dómari
leiksins, tók ekki eftir Forlan fyrr en
leikmaðurinn var kominn vel aftur á
sinn eigin vallarhelming í baráttu
við leikmenn Southampton. Rennie
hljóp til „striplingsins“ og skipaði
honum að klæða sig í keppnistreyj-
una utan vallar. Rennie virtist hafa
jafngaman af klaufaskap Forlans og
áhorfendur á Old Trafford og ákvað
að refsa Úrúgvæanum ekki.
Forlan
komst ekki
í treyjuna
Reuters
Diego Forlan fagnar marki.
MICHAEL Owen, framherji Liver-
pool, er heldur betur búinn að finna
markaskóna en eftir markaþurrð
framan af tímabilinu hefur Owen
skorað 11 mörk í síðustu 11 leikjum
sem hann hefur byrjað inni á í.
„Líkamlega er Michael orðinn
miklu sterkari en áður, hann vinn-
ur geysilega mikið og hleypur af
sér varnarmennina út og suður.
Það stefnir í frábært tímabil hjá
Michael,“ sagði Houllier en David
James, fyrrvernadi samherji
Owens hjá Liverpool, kom í veg
fyrir að Owen skoraði þrennu því í
tvígang varði hann skot hans úr
góðum færum.
Owen, sem verður 23 ára gamall
hinn 14. desember, státar af frá-
bærum árangri frá því hann hóf að
leika með Liverpool árið 1996.
Hann hefur skorað samtals 122
mörk fyrir félagið í 222 leikjum og
ekki er árangur hans með landslið-
inu síðri – 19 mörk í 44 leikjum.
Fékk rautt
spjald eftir
15 sek.
VARNARMAÐUR enska 2. deildar
liðsins Peterborough, Simon Rea,
lék aðeins í 15 sekúndur með liði
sínu á laugardag gegn Cardiff en
Rea var fékk að líta rauða spjaldið
þar sem hann braut illa af sér í
fyrstu sókn Cardiff sem vann leik-
inn sannfærandi, 3:0. Samt sem áð-
ur er þetta ekki nýtt met hjá met
Rea. Það á markvörðurinn Kevin
Pressman sem þá lék með Sheffield
Wednesday, en honum var vísað af
velli eftir aðeins 13 sekúndur í leik
gegn Wolves 14. ágúst árið 2000,
sem jafnframt var fyrsti leikur
keppnistímabilsins.
11–11 hjá
Owen
Michael Owen sá um afgreiðaWest Ham en þessi frábæri
leikmaður skoraði bæði mörk sinna
manna framhjá fyrrverandi liðs-
manni Liverpool, David James.
„Ég var rosalega ánægður að sjá
hvernig mínir menn komu til baka
eftir ósigurinn á móti Valencia. Leik-
mennirnir brugðust hárrétt við þeim
vonbrigðum. Þeir komu ákaflega
grimmir til leiks og ætluðu sér ekk-
ert annað en sigur. Við spiluðum á
köflum skínandi góða knattspyrnu
og aðeins David James varð til að
sigur okkar varð ekki stærri. Þó svo
að Owen hafi reynst okkur dýmætur
var sigurinn liðsheildarinnar og
ánægjulegt að við skyldum halda
marki okkar hreinu,“ sagði Gerard
Houllier, stjóri Liverpool, eftir leik-
inn.
Arsenal á sigurbraut á ný
Arsenal þurfti sjálfsmark frá
Frakkanum Steve Marlet til að kom-
ast á sigurbraut á ný en fyrir leikinn
höfðu meistararnir tapað fjórum
leikjum í röð, þar af tveimur í deild-
inni. Fulham vildi fá vítaspyrnu í síð-
ari hálfleik þegar Sol Campbell braut
að því er virtist á Luis Boa Morte en
Jeff Winter, dómari, sá ekkert at-
hugavert og lét leikinn halda áfram.
„Það var mikil pressa á liðinu í
dag. Bæði þar sem við vorum búnir
að tapa fjórum leikjum í röð og eins
að ósigur hefði þýtt að við værum sjö
stigum á eftir Liverpool. Við þurftum
að hafa fyrir sigrinum en við áttum
hann skilinn þó svo að Fulham-liðið
veitti okkur harða keppni. Við óðum í
færum en markvörður Fulham var
okkur afar erfiður og ég held að að
fjórum sinnum hafi hann varið einn á
móti einum. Mestu máli skiptir að
stigin þrjú komust í höfn og þó svo að
Liverpool-liðið líti vel út í dag er mik-
ið eftir af mótinu,“ sagði Arsene
Wenger, stjóri Arsenal.
Ferguson: Ekki afskrifa okkur
Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, sagði eftir sigur sinna manna
á Southampton að helstu keppinaut-
ar liðsins um meistaratitilinn, Liver-
pool og Arsenal, skildu ekki afskrifa
sína menn í þeirri baráttu. United
marði 2:1 sigur þar sem Philip
Neville skoraði sitt fyrsta mark á
leiktíðinni í sínum 200. leik og sjö
mínútum fyrir leikslok tryggði Digeo
Forlan „rauðu djöflunum“ öll stigin
með glæsilegu marki.
„Það er aldrei hægt að afskrifa
okkur. Við erum alltaf líklegir til að
skora og gefumst aldrei upp eins og
við sýndum í þessum leik. Þetta var
ákaflega þýðingarmikill sigur og ég
er glaður fyrir hönd Forlans. Hann
hitti boltann ákaflega vel en lengi vel
hélt hann að hann færi yfir markið,“
sagði Alex Ferguson.
Gordon Strachan, stjóri South-
ampton og liðsmaður United á árum
áður, kenndi sér um að hans menn
fóru ekki með stig frá Old Trafford.
„Ég hefði átt að styrkja miðsvæðið
þegar líða fór á seinni hálfleikinn í
stað þess að gera breytingar á
fremstu víglínu. Ég hélt samt að við
hefðum náð að stöðva sóknarþung-
ann þegar þetta frábæra mark
Forlans kom. Ég er samt ánægður
með frammistöðu liðsins og það er
ekki oft sem maður gengur ánægður
að velli á Old Trafford,“ sagði
Strachan, en Southampton hefur
ekki tekist að vinna United á Old
Trafford í síðustu 17 leikjum.
Cudicini bjargaði Chelsea
Carlo Cudicini, markvörður
Chelsea, átti frábæran leik á milli
stanganna þegar Lundúnaliðin Tott-
enham og Chelsea gerðu markalaust
jafntefli á White Hart Lane. Cudicini
varði í tvígang á ævintýranlega hátt,
fyrst glæsilega aukaspyrnu Jamie
Redknapps og síðan skot Teddy
Sheringhams.
„Ég held að þetta hafi verið mjög
góður leikur af beggja hálfu og mér
fannst við hefðum átt að taka öll stig-
in. Munurinn á liðunum var kannski
Cudicini og það var hann sem kom í
veg fyrir að við færum með öll stig-
in,“ sagði Glenn Hoddle, stjóri Tott-
enham sem hefur ekki unnið nema
einn leik í síðustu 29 rimmum lið-
anna.
Eiður Smári Guðjohnsen kom inn
á fyrir Jimmy Floyd Hasselbaink
undir lok fyrri hálfleiks en Hollend-
ingurinn varð fyrir meiðslum í nára.
Eiður átti ágæta spretti við hlið Gi-
anfranco Zola í framlínunni.
Fyrsti sigurinn á
Elland Road í 51 ár
Undrabarnið Wayne Rooney, sem
á dögunum ritaði nafn sitt rækilega
með stóru letri þegar hann skoraði
sigurmark á móti Arsenal, lék sama
leikinn þegar Everton vann lang-
þráðan sigur á Leeds á Elland Road
en þar vann Everton síðast árið 1951.
Rooney kom inn á sem varamaður á
74. mínútu og sex mínútum síðar var
hann búinn að skora framhjá Paul
Robinson sem reyndist eina mark
leiksins. Með sigrinum er Everton
komið upp í sjötta sæti en Leeds,
sem ekki hefur unnið í síðustu sex
leikjum sínum, er í 13. sæti.
Reuters
Michael Owen skorar fyrra mark sitt gegn West Ham með því að vippa knettinum yfir markvörðinn David James.
Sjö í röð hjá Liverpool
SJÖ sigurleikir í röð og aðeins einn ósigur í síðustu 29 leikjum í
ensku úrvalsdeildinni hefur gert það að verkum að Liverpool trónir
á toppi deildarinnar, fjórum stigum á undan Englandsmeisturum
Arsenal, og er líklegt til afreka á leiktíðinni. Risarnir þrír, Liverpool,
Arsenal, og Man. United, eru í efstu sætunum og má mikið vera að
slagurinn um titilinn kemur ekki til með að standa á milli þessara
liða í vor. Meistararnir komust á sigurbraut á ný með því að sigra
Fulham, 1:0 og United marði 2:1 sigur á Southampton.