Morgunblaðið - 05.11.2002, Síða 8
HANDKNATTLEIKUR
8 B ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samvinnu við GlaxoSmithKline,
býður til opins málþings um íþróttir og astma. Málþingið verður haldið
fimmtudaginn 7. nóvember á Grand Hótel og hefst kl. 20:00. Mál-
þingið er hugsað fyrir íþróttafólk, þjálfara, íþróttakennara, foreldra og
aðra sem áhuga hafa. Á málþinginu verður einnig kynntur nýr
fræðslubæklingur, Íþróttir og astmi, sem kemur út sama dag.
Dagskrá:
• 20:00 Setning málþings - Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ.
• 20:10 Áreynsluastmi og íþróttir - Björn Magnússon,
sérfræðingur í lungnasjúkdómum.
• 20:30 Astmi hjá börnum - Sigurveig Þ. Sigurðardóttir,
sérfræðingur í ónæmis- og ofnæmissjúkdómum barna.
• 20:50 Íþróttir og astmi - Sjónarhorn íþróttamannsins.
Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson, fyrirliði KA í knattspyrnu.
• 21:00 Umræður.
• 21:30 Málþingslok.
Fundarstjóri:
Kristján Erlendsson, læknir og formaður Heilbrigðisráðs ÍSÍ.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ
í s. 514 4000, netfang: kjr@isisport.is
ASTMI OG ÍÞRÓTTIR
FÓLK
SNORRI Steinn Guðjónsson stóð
sig eins og hetja í ferðinni. Hann var
aldrei í hópnum í riðlakeppninni, kom
aðeins inn á í leiknum á móti Svíum
og fékk svo gott sem heilan leik á
móti Egyptum. Hann lærir samt mik-
ið af svona ferð, en það fylgir því líka
ábyrgð að vera yngstur í hópnum.
SÁ yngsti þarf að sjá um alla skap-
aða hluti, hann þarf að koma boltun-
um, sem voru um tuttugu talsins, á
æfingar og í leiki og aftur heim á hót-
el og svo ber honum að aðstoða mikið
við að halda á töskum landsliðsins,
búningnum og öðru sem fylgir. Þegar
hann gekk út úr Scandinavium-höll-
inni á laugardaginn var hann að venju
með boltapokann og spurður hvort
hann yrði ekki ánægður þegar
keppnin yrði búin sagði hann: „Ég
verð ánægðastur þegar einhver yngri
en ég verður valinn í liðið.“
UMGJÖRÐ leikjanna í Scandinavi-
um í Gautaborg var skemmtileg. Lið-
in voru í undirgangi rétt fyrir leikinn
og síðan var hver og einn leikmaður
kynntur til sögunnar og hljóp hann
þá inn á gólfið. Mikið var klappað fyr-
ir ákveðnum leikmönnum en aldrei
þó eins og þegar Bengt Johansson,
landsliðsþjálfari Svía, var kynntur til
sögunnar. Greinilega vinsæll meðal
handboltaáhugamanna í Svíþjóð.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson lék
ekki tvo síðustu leikina, marðist illa á
hæl í síðasta leiknum í riðlinum og
eru þetta fyrstu tveir leikirnir sem
hann missir af síðan Guðmundur
Guðmundsson tók við landsliðinu.
KYNNIRINN í höllinni spurði rétt
fyrir leik Íslands og Svíþjóðar á laug-
ardeginum hvort það væru ekki allir
á bandi Svía. Síðan hvort það væru
einhverjir sem ætluðu að styðja Ís-
lendinga og það heyrðist eitt og eitt
já héðan og þaðan úr höllinni og tveir
íslenskir fánar sáust. En þegar hann
spurði hvort einhverjir ætluðu að
styðja Svía lifnaði heldur betur yfir
áhorfendum sem voru ríflega 5.000.
ÓLAFUR Stefánsson var valinn
maður leiksins þegar Íslendingar
töpuðu fyrir Svíum. Hjá Svíum var
Magnus Wislander valinn bestur, en
Ólafur hafði betur þegar valið var á
milli þeirra tveggja.
Ef við tökum alla leikina þá sjáumvið að við erum yfir á móti
Egyptum og við erum yfir á móti
Svíum og mjög ná-
lægt þeim lengi leiks
og það sama má
segja um leikinn við
Þjóðverja. Við náum
hins vegar ekki að spila út allan leik-
inn og liðin sigla fram úr okkur á
lokakaflanum. Við verðum að skoða
þetta nánar áður en ég kem með ein-
hver svör við þessu. En það er ljóst
að við gerum allt of mikið af tækni-
mistökum í öllum leikjunum, öllum,
og ég vil fækka þeim mistökum.
Það er margt jákvætt hjá okkur.
Vörnin er allt í lagi og ljóst að við
getum haldið áfram að þróa hana og
nota og þegar markvarslan fylgir
með þá erum við hættulegir í hröð-
um upphlaupum. Sóknarleikurinn
var á köflum mjög góður en það þarf
að koma meiri stöðugleika í hann og
fækka mistökunum, mistökum í
sendingum og þá bæði í hraðaupp-
hlaupum og inn í lítið op þannig að
mótherjinn nái ekki boltanum og
hraðaupphlaupi. Eins vil ég fara
betur yfir stöðumat okkar, það er til
dæmis óþarfi að skjóta eftir tíu sek-
úndna sókn þegar við erum með
boltann og hálf mínúta til leikhlés.
Eins þurfum við að læra að þó við
séum tveimur til þremur mörkum
undir þá er hægt að vinna sig hægt
og sígandi inn í leikinn á ný með
skynsemi. Menn þurfa að sýna
æðruleysi,“ sagði Guðmundur.
Er staðreyndin ekki í raun sú að
allir lykilmenn verða að ná góðum
leik og allt verður að ganga upp til
að standa bestu liðum heims á
sporði?
„Í svona móti reynir rosalega á
breidd og við verðum að fjölga þeim
leikmönnum sem geta spilað á móti
þeim bestu. Ég held að sagan sýni
okkur að ætlum við að ná hámarks-
árangri þá eru mjög margir þættir
sem þurfa að vera í lagi og við
megum ekki við miklum forföllum,
þá lendum við fljótlega í vanda.
Þetta er staðreynd sem við þurfum
að sjá og gera okkur grein fyrir. Það
eitt að vera hér á meðal átta bestu
er ákveðinn heiður og viðurkenning.
Við viljum vera á meðal þeirra
bestu og opinbert markmið hefur
verið að vera þar og vera með á stór-
mótunum, en við þurfum að hafa
rosalega mikið fyrir því. Því miður
er orðið mjög þröngt um landsliðið
hvað varðar leiki, þeir eru ekki eins
margir og var áður, nú eru þetta oft-
ast stórmót og lítið um tækifæri til
að slípa lið saman fyrir slík mót. Ég
held samt að staðan hjá okkur sé
þannig að við eigum að geta staðið
okkur vel á HM ef við nýtum tíma
okkar vel.“
Til að fjölga leikmönnum sem
geta leikið á meðal þeirra bestu,
þarf þá ekki að leyfa fleirum að
spila?
„Það sem háir okkur, ég tala nú
ekki um í svona sterku móti sem er
leikið jafnþétt og raun ber vitni, er
að við þurfum að hafa fleiri leik-
menn sem standast þær kröfur sem
eru gerðar í svona keppni. Við erum
að reyna að fjölga þeim með því að
gefa þeim tækifæri eins og í dag á
móti Egyptum.
Þetta tekur allt sinn tíma og leik-
menn í heimsklassa eru ekki búnir
til á einum degi,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari
Nálægt þeim
bestu en ekki
nógu nálægt
„ÞAÐ er alveg ljóst að við höfum ærið verk að vinna en um leið höf-
um við séð að við erum nálægt bestu þjóðum heims þó svo að
þessu sinni séum við ekki nógu nálægt þeim til að leggja þær að
velli. Miðað við þá leikmenn sem við höfum hér í þessu móti og þá
breidd sem við höfum þá spilum við ekki nægilega vel til að vinna
einhverja leiki,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálf-
ari þegar hann leit yfir mótið í heild að því loknu.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Svíþjóð
Morgunblaðið/Gísli Hjaltason
Gústaf Bjarnason skorar eitt af tíu mörkum sínum gegn Egypt-
um – án þess að Sharaf markvörður komi vörnum við.
FÓLK
=
%#
27#
0
88"
8
0 =$
?$#
@
@
<."
."
&
6
+ *$:!
DANIR eru mjög ánægðir með
landslið sitt, sem er skipað ungum
leikmönnum – leikgleðin og baráttan
ræður ríkjum hjá leikmönnunum,
eins og Danir voru þekktir fyrir á ár-
um áður. Þeir segja að framtíðin sé
björt og Danir eiga eftir að taka við
hlutverki Svía, að eiga sterkasta
landslið Norðurlandanna.
GUNNAR Petterson, landsliðs-
þjálfari Norðmanna, var ánægður
með sitt lið, sem fagnaði sigri á sex
þjóða móti í Portúgal um helgina.
Norðmenn lögðu heimamenn í und-
anúrslitum 25:23 og Pólverja í úr-
slitaleik, 25:22.
ÍSLENDINGALIÐIÐ Haslum sem
leikur í norsku 1. deildinni í hand-
knattleik tapaði um helgina sínum
fyrsta leik í vetur. Haslum lék tvo
leiki í deildinni um helgina. Liðið
tapaði fyrst fyrir Alta, 20:18. Heimir
Örn Arnarsson skoraði 4 mörk fyrir
Haslum og Theodór Valsson 1.
Haslum vann svo stórsigur á Bodö,
36:19. Heimir skoraði 8 mörk og
Theodór 1. Haslum er efst í deild-
inni, hefur tveggja stiga forskot á
Haugaland.