Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 12

Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 12
 TRYGGVI Guðmundsson hafnaði í 2.-3. sæti í einkunnagjöf norska blaðsins Asker og Bærums Bud- stikke, sem fjallar sérstaklega um leiki Stabæk í norsku knattspyrn- unni. Tryggvi fékk 5,13 í meðalein- kunn hjá blaðinu. Marel Baldvins- son varð í 12. sæti af leikmönnum liðsins, fékk 4,43 að meðaltali fyrir frammistöðu sína.  RÓBERT Skarphéðinsson, knatt- spyrnumaður úr KA, er genginn til liðs við 2. deildarlið Völsungs. Ró- bert, sem er 28 ára og lék 10 leiki með KA í úrvalsdeildinni í sumar, er frá Húsavík og lék með Völsungi fyrir nokkrum árum.  GUNNAR Guðmundsson, þjálfari og leikmaður knattspyrnuliðs Leift- urs/Dalvíkur í sumar, er genginn til liðs við 1. deildarlið Stjörnunnar. Gunnar, sem lék með Garðabæjar- liðinu í úrvalsdeildinni árið 2000, hætti þjálfuninni nyrðra þar sem hann er tekinn við starfi íþróttafull- trúa Kópavogs.  CHRISTIAN Vieri og Alvaro Rec- oba tryggðu Inter sigurinn á Coma í ítölsku 1. deildinni í knattspyrnu og þar með heldur Mílanóliðið þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar.  AC Milan, hitt Mílanóliðið, er í öðru sæti, eftir 2:0 sigur á Reggina þar sem Filippo Inzaghi skoraði 100. mark sitt í ítölsku 1. deildinni þegar hann náði frákasti eftir að markverði Reggina tókst að verja vítaspyrnu frá Brasilíumanninum Rivaldo. Sá brasilíski lét ekki deigan síga og skoraði annað mark sinna manna.  ALESSANDRO Del Piero bjarg- aði meisturum Juventus en mark framherjans knáa stundarfjórðungi fyrir leikslok tryggði Juventus sigur á Modena en Del Piero kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálf- leiks.  ROMA komst í hann krappan á móti Perugia á heimavelli sínum. Þegar Francesco Antonioli mark- verði Roma var vikið af velli og Per- ugia komst í 2:0 með marki úr víta- spyrnu sem dæmd var á Antonioli virtust Roma allar bjargir bannaðar. En með seiglu tókst þeim að jafna með mörkum Christians Panucci og Fransesco Totti.  REAL Sociedad er óvænt í topp- sæti spænsku 1. deildarinnar, tveim- ur stigum á undan Mallorca. Socied- ad sem löngum hefur verið að berjast fyrir lífi sínu vann góðan úti- sigur á Villareal, 1:0.Tyrkinn Nihat Kahveci skoraði sigurmarkið, sjötta mark sitt í átta leikjum.  REAL Madrid og Deportivo La Coruna gerðu markalaust jafntefli í leik mikilla vonbrigða. Stórstjörnun- ar, Ronaldo, Zidane og Luis Figo voru allir í liði Real Madrid en tókst ekki að láta ljós sitt skína. Real Madrid hefur nú leikið sjö leiki í röð án þess að sigra og er kominn mikil spenna í herbúðir Evrópumeistar- anna.  ÍTALSKA knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Giovanni Trappa- toni yrði áfram við stjórnvölinn sem landsliðsþjálfari þar til samningur hans rennur út árið 2004. Mikil gagnrýni hefur verið á störf Trappatoni enda hefur Ítölum vegn- að illa undir hans stjórn og er skemmst að minnast ósigurs fyrir Wales í undankeppni EM í síðasta mánuði.  VÅLERENGA varð á sunnudag norskur bikarmeistari í knattspyrnu er liðið lagði Odd/Grenland að velli, 1:0. Þetta er í þriðja sinn sem Ósló- arliðið verður bikarmeistari en Odd/ Grenland hefur oftast allra liða í Noregi fagnað titlinum, alls 13 sinn- um og fyrst fyrir 100 árum. Bjørn Arild Levernes skoraði markið fyrir Vålerenga strax á 5. mínútu. FÓLK STOKE City tapaði fimmta leik sín- um í röð þegar liðið beið lægri hlut fyrir Walsall, 4:2, í ensku 1. deild- inni. Stoke lék sinn fyrsta leik undir stjórn Tony Pulis og ekki verður annað sagt en að hann eigi erfitt verk fyrir höndum. Stoke hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum og fagnaði síðast sigri á Ips- wich hinn 22. september.  Walsall, sem ekki hafði unnið heimaleik frá því í september, komst í 3:0 á fimmtán mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks, en Brynjar Björn Gunnarsson var óheppinn að jafna ekki metin í 1:1 þegar þrumufleygur hans small í stönginni. Varamaðurinn Andy Cook minnkaði muninn í 3:2 á 77. og 81. mínútu en Walsall innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu sex mínútum fyrir leikslok.  Brynjar Björn Gunnarsson lék allan leikinn, Bjarni Guðjónsson var tekinn út af á 71. mínútu en Pétur Marteinsson var sem fyrr ekki í leikmannahópnum. Stoke er í fjórða neðsta sæti deildarinnar. Fimmti ósigur Stoke í röð DJURGÅRDEN varð á laugardag sænskur meistari í knattspyrnu og er þetta í fyrsta sinn síðan 1966 að liðið nær þessum árangri. Gamla stórveldið IFK Gautaborg verður hins vegar að leika í umspili um laust sæti í úrvalsdeild næsta vor. Hjálmar Jónsson kom inn á sem varamaður í liði Gautaborgar á 30. mín. Í lokaumferðinni lagði Djur- gården lið Elfsborg að velli á útvelli í Borås. Malmö tapaði fyrir Halmstad, 1:0, og varð í öðru sæti, Guðmundur Mete lék ekki með Malmö. Örgryte varð í þriðja sæti, en Atli Sveinn Þórarinsson kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. 36 ára bið á enda BJARNÓLFUR Lárusson, knatt- spyrnumaður, mun leika áfram með ÍBV en hann gekk um helgina frá nýjum samningi við Eyjamenn. Sögusagnir voru á kreiki um að Bjarnólfur væri á förum en Bjarnólf- ur ákvað að fylgja fordæmi annarra leikmanna ÍBVsem voru með lausa samninga og framlengdi hann um tvö ár. Að sögn forráðamanna ÍBV- liðsins eru samningamál leikmanna vel á veg komin og allt útlit er fyrir að flestir leikmenn, sem léku með liðinu í sumar, verði með á næstu leiktíð en þó er vitað að Hlynur Stef- ánsson hefur lagt skóna á hilluna og líklega einnig bæjarstjórinn, Ingi Sigurðsson. Bjarnólfur kyrr hjá ÍBV STJÓRNIR knattspyrnufélaga Grindavíkur og Þórs frá Akureyri hafa komist að munnlegu sam- komulagi um að varnarmaðurinn Óðinn Árnason gangi til liðs við Grindavík á næstu leiktíð. Óðinn er 23 ára gamall og lék 15 deildarleiki með Þór á liðnu sumri en félagið féll sem kunnugt er í 1. deild. Óðinn, sem hefur æft með Bröndby í Danmörku, hefur leikið alla sína tíð með Akureyrarliðinu mun gera samning við Grindavík til þriggja ára. Óðinn semur við Grindavík Jón Arnór, sem er tvítugur aðaldri, hélt utan í atvinnu- mennskuna í sumar en hann lék með liði KR í úrvalsdeildinni hér á landi. Aðspurður sagði Jón Arnór að hann hefði ekki átt von á því að hlutirnir gerðust á þessum hraða. „Ég átti von á að fá að spila eitt- hvað í hverjum leik en ekki svona mikið. Ég leik tvær stöður, er ým- ist leikstjórnandi eða skotbakvörð- ur, og þetta hefur verið krefjandi verkefni.“ Trier er í næstneðsta sæti af alls 14 liðum en Jón Arnór gerði samning til eins árs við félag- ið og telur það þjóna sínum til- gangi. „Er alltaf að líta í kringum mig“ „Ég er mjög ánægður hérna en ég væri að skrökva ef ég segði að ég hefði ekki hug á að skoða aðra möguleika í vor. Það var markmiðið að fá reynslu hér á fyrsta ári og koma sér á kortið sem atvinnumað- ur og það er að takast að mínu mati,“ en Jón Arnór er með um- boðsmann á sínum snærum sem er að vinna að því að koma honum á framfæri í Evrópu. Jón Arnór sagði að gríðarlegur munur væri á æfingum liðsins og því sem hann átti að venjast hjá KR. „Hér æfum við fjóra til fimm tíma á dag, taktík, þrek og lyftingar. Hraðinn er mun meiri og ég átti í erfiðleikum í upp- hafi með að „hanga“ út æfingar liðsins sem eru gríðarlega erfiðar. En núna er þessir hlutir í góðu lagi. Leikmenn deildarinnar eru líka gríðarlega hávaxnir og ég hef því verið að finna aðrar leiðir að körf- unni en ég gerði á Íslandi og þessa dagana er ég að taka mikið af stökkskotum frá svæðinu við víta- línuna. Uppi við körfuna eru nefni- lega rúmlega 2 metra háir „risar“ sem erfitt er að eiga við. En þetta gengur bara vel og ég er sáttur við mína hluti en liðinu þarf að fara að ganga betur,“ sagði Jón Arnór. Þess má geta að hálfbróðir Jóns Arnórs er Ólafur Stefánsson, hand- knattleiksmaður hjá Magdeburg, og sagði Jón Arnór að þeir gætu ekki „kíkt í kaffi“ á sunnudögum þótt þeir væru báðir í Þýskalandi. „Það er um 6 tíma keyrsla frá Trier til Magdeburg þannig að það væri erfitt, auk þess sem við höfum vart tíma til þess að gera neitt annað en að æfa, borða og sofa,“ sagði Jón Arnór. Tölfræði hans til þessa vekur at- hygli þar sem hann leikur að með- altali í 31 mínútu í leik af alls 40, skorar 13,4 stig, tekur tæp 3 frá- köst og gefur 4 stoðsendingar. Hann er einnig með fína nýtingu, eða 47% inni í teig og 40% fyrir ut- an 3 stiga línuna. „Kominn á kortið“ Morgunblaðið/Ásdís Jón Arnór Stefánsson í leik með KR á sl. leiktíð. JÓN Arnór Stefánsson og félagar hans hjá þýska úrvalsdeildarlið- inu í körfuknattleik Trier brutu loks ísinn á laugardag er liðið vann sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu, gegn neðsta liði deildarinnar, Avitos Gießen, 87:72, en þetta var 7. leikur liðsins í vetur. „Þetta er búin að vera erfið fæðing en að þessu sinni var allt liðið „mætt til leiks“ hugarfarslega og þá gekk þetta eins og í sögu,“ sagði Jón Arnór á sunnudag en hann skoraði 9 stig í leiknum, lék í 31 mínútu og gaf 7 stoðsendingar á félaga sína. Jón Arnór Stefánsson leikur lykilhlutverk með Trier MAREL Jóhann Baldvinsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, hefur dval- ið hjá þýska félaginu Nürnberg frá því á föstudag en það hefur sýnt áhuga á að fá hann til liðs við sig frá Stabæk í Noregi. Marel gekkst und- ir læknisskoðun þar í gær en nið- urstaða hennar liggur ekki fyrir fyrr en í dag. Marel á tvö ár eftir af samn- ingi sínum við Stabæk og þýska fé- lagið þarf því væntanlega að greiða einhverja tugi milljóna króna fyrir hann. Netútgáfa Kicker sagði í gær að Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, hefði bent forráðamönnum Nürn- berg á Marel og þeir litu á hann sem mögulegan arftaka Sasa Ciric, helsta markaskorara liðsins. Marel hjá Nürnberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.