Morgunblaðið - 08.01.2003, Qupperneq 6
Um leið og nýr Toyota
Land Cruiser 90 er kynnt-
ur hafa Arctic Trucks-
menn breytt bíl fyrir 38
tomma dekk. Farnar eru
nýjar leiðir við breyt-
inguna og afturstuðari
m.a. lækkaður sem er
framlag Arctic Trucks til
árekstravarna.
A
RCTIC Trucks, dótturfyrirtæki P.
Samúelssonar hf., umboðsaðila
Toyota á Íslandi, hefur kynnt fyrsta
Toyota Land Cruiser 90 bílinn sem
hefur verið breytt fyrir 38 tomma dekk. Bíll-
inn er reyndar frumgerð en framleiðsla er að
hefjast á hlutum til breytinga en þess má geta
að m.a. eru nýir bremsudiskar sérsmíðaðir
fyrir breytinguna og brettakantar, sem hann-
aðir voru í Bandaríkjunum, eru sérsmíðaðir á
Íslandi.
Toyota-menn eru ánægðir með hráefnið til
breytinganna, þ.e.a.s. hinn nýja Land Cruiser
90. Hann er t.a.m. með stærri framdrif en áð-
ur, sterkari framöxla og betri þyngdardreif-
ingu. Einnig telst það til kosta að hann er 11,5
cm lengri á milli hjóla og þá hefur afstöðu
stýrismaskínu verið breytt til samræmis við
það sem er í Land Cruiser 100.
Sérstakt tillit til árekstravarna
Toyota-menn stefna markvisst að vandaðri
vinnu við breytingar og hafa í því skyni m.a.
þróað tölvuvætt gæðakerfi sem tryggir að ná-
kvæmlega er farið eftir verklýsingum við hina
ýmsu verkþætti. Markmiðið er að halda sem
mest upprunalegum eiginleikum bílsins og
auk þess er stefnt að hámarksöryggi og akst-
urseiginleikum.
Við hönnun á breytingunni er í fyrsta sinn
tekið sérstakt tillit til árekstravarna, en mikil
umræða hefur farið fram hérlendis um hætt-
una sem smábílum er búin ef til áreksturs við
mikið breytta og hækkaða jeppa kemur. Í
þessu skyni er afturstuðarinn hafður 180 mm
lægri en reglur gera ráð fyrir og sömuleiðis er
framgrind hönnuð til að gefa eftir í árekstri
auk þess sem 38 tomma hækkunin er 110 mm
lægri en á eldri gerðinni.
Sérsmíðaðir bremsudiskar
Breyttir bílar þurfa öflugri bremsur og af
þeim sökum er bremsudælunum skipt út fyrir
stærri dælur úr Land Cruiser 100. Þá er
þykkari bremsudiskur, eins og fyrr segir, sér-
smíðaður. Hann er 32 mm að þykkt í stað 28
mm. Það fellur einnig undir öryggismarkmið-
in að bíllinn er ekki hækkaður jafnmikið og
eldri gerðin í 38 tommu breytingu. Hækkun á
yfirbyggingu er 6 cm í stað 10 cm áður. Þetta
lækkar þyngdarpunktinn og eykur stöðug-
leika bílsins. Arctic Trucks ætla að bjóða 38
tomma breytingu með eða án 12 cm færslu á
afturhásingu. Þeir telja víst að jeppamenn
muni áfram vilja færslu á afturhásingu en
telja jafnframt að lengra hjólhaf og sporvídd
dugi flestum án þess að afturhásingin sé færð.
Innifalið í breytingunni er 15 tomma dekk og
felgur, brettakantar, sex cm hækkun á yfir-
byggingu og lægri drif. Breytingin kostar
1.598.000 kr. og 1.750.000 kr. með færslu á aft-
urhásingu.
Jafnframt verður boðið upp á 33, 35 og 37
tomma breytingar. Í öllum tilvikum er bíllinn
þá á 17 tomma dekkjum og felgum. 33 tomma
breytingin kostar 298–330.000 kr., 35 tomma
breytingin 750-850.000 kr. og 37 tomma breyt-
ingin 1.200-1.300.000 kr.
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Toyota Land Cruiser breyttur fyrir 38 tommu dekk.
Arctic Trucks breytir nýjum
Land Cruiser
6 C MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Dodge Durango SLT
árg. 1999, ek. 52 þús.
Einn með öllu, sjálfsk.,
leður o.fl. V8 4,7 l.
Verð 3.400.000.
ATH! Góður stað-
greiðsluafsláttur.
Musso Grand Lux
TDI árg. 1999.
Ek. 54 þús.
"33 breyttur, 5 gíra.
Verð 2.140.000.
MITSUBISHI Motors Corporation og
Mitsubishi Motors North America,
Inc., dótturfyrirtæki MMC í Banda-
ríkjunum, heimsfrumsýndu nýja En-
deavor-jeppann á bílasýningunni í
Detroit sem nú stendur yfir.
Aðrar bifreiðir sem eru á stalli í
sýningardeild Mitsubishi eru hug-
myndabíllinn Tarmac Spyder, sem er
hugmynd að aflmiklum opnum fram-
tíðarsportbíl, og Lancer Evolution
VIII, sem er sérbúinn fyrir Banda-
ríkjamarkað, nýjasta bifreiðin í Evolu-
tion-línu MMC.
Endeavor
Endeavor er fyrsta bifreiðin sem
hönnuð er eingöngu með markaðinn í
Norður-Ameríku í huga. Endeavor er
ný kynslóð jeppa sem sameinar kosti
jeppa og hefðbundinna fólksbifreiða.
Hann er léttbyggður en samt á stíf-
um grunni, sem gefur framúrskarandi
aksturseiginleika ásamt rúmgóðu
innanrými.
Markaðssókn á Bandaríkjamarkaði
hefst vorið 2003, og er stefnan sett
á sölu á 70.000 bifreiðum fyrsta ár-
ið. Endeavor er 4.830 mm á lengd og
breiddin er 1.870 mm. Þetta eru
stærðarhlutföll sem skipa bílnum í
millistærðarflokk jeppa. Minnsta hæð
frá jörðu er 210 mm, sem er sam-
bærilegt við meginþorra jeppa. Góð
veghæð sílsa, sem er 310 mm, mætir
jafnframt kröfum þeirra sem horfa á
kosti „alvörujeppa“. Að innan hefur
bíllinn stílhreint og sportlegt inn-
anrými en um leið er yfirbragðið
tæknilegt sem kemst vel til skila í
mælaborði, hurðarspjöldum og öðrum
hlutum. Sérstæðri lýsinginu á mæla-
borði og stjórntækjum er náð fram
með notkun á bláum ljósdíóðum. Að
innan er gott pláss fyrir fimm full-
orðna og rúmgott farangursrými. Vél-
in er 3,8 lítra, V6 með ECI-Multi-
innsprautun, sem gefur gott afl á öllu
snúningssviðinu og mætir vel hinni
nýju Sportronic fjögurra þrepa sjálf-
skiptingunni frá Mitsubishi. Bíllinn er
með sídrifsbúnaði með miðmis-
munadrifi með vökvalæsingu. En-
deavor, sem er byggður á nýrri léttri
botnplötu með miklum stífleika, er
með MacPherson gormafjöðrun að
framan og fjölliðafjöðrun að aftan.
Tarmac Spyder
Með Tarmac Spyder er gefin innsýn
í framtíðarþróun opinna sportbíla hjá
MMC. Markhópurinn er yngri kaup-
endur með tækniþekkingu, sem
stundum eru sagðir tilheyra Y-kyn-
slóðinni. Við þróun bílsins var lögð
áhersla á gott viðbragð og háan há-
markshraða, beygjuhæfni, hemlun og
önnur atriði sem prýða sportbíla.
Tarmac Spyder er opinn sportbíll því
hægt er að fjarlægja harðtoppinn á
einfaldan hátt. CCD-vídeomyndavél
og DVD-spilari eru meðal búnaðar.
Tarmac Spyder yfirlit Framendi
Tarmac Spyder undirstrikar vel hið
nýja hönnunarútlit MMC; nýtt grill
með lyftum þríhyrndum grunni með
þriggja demanta vörumerki Mitsu-
bishi.
Vegna þess hve auðvelt er að fjar-
lægja harðtoppinn og þrátt fyrir að
vera með samþjappað form hefð-
bundins kraftmikils sportbíls, gefur
Tarmac Spyder kost á því að fjórir
farþegar ferðist í bílnum. Einföld
hönnunin að innan er undirstrikuð
með sterklegri umgjörð milli sæt-
anna, sem vekur upp hugmyndir um
stjórnklefa kappakstursbíls. Í mæla-
borði og stjórntækjum er að finna
bogalínurnar sem einkenna nýja
hönnun innanrýmis hjá MMC. Inn-
byggð vídeómyndavél geymir upp-
lifun ferðalagsins, hvort sem ekið er
niður að sjó eða upp til fjalla, og á
meðan geta farþegar í fram- og aft-
ursætum notið þess sem er í gangi á
DVD-spilaranum á díóðuskjám sem
eru við hvert sæti. Vélin er 2,0 lítra,
fjögurra strokka með sextán ventlum
og tvöföldum yfirliggjandi kambás.
Við hana er tengd 5 þrepa Sportronic
Sequential-Shift sjálfskipting frá
Mitsubishi.
Tarmac Spyder með og án þaksins.
Mitsubishi Endeavor.
Tveir nýir frá
Mitsubishi