Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 10
Sólhattur
FRÁ
Ertu með
kvef eða flensu?
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
FRÍHÖFNIN
-fyrir útlitið
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Höfum til sölu
lítið notaða sýningarbíla árg. 2002 og 2003 á
frábæru verði, allt að 2 millj. kr. afsláttur
Fáið besta verðið án allra milliliða, persónuleg og góð þjónusta.
Fáið sendan myndabækling í pósti.
Verð á nýjum bíl frá 3,5 millj. kr.
Nánari uppl. í síma 00352-2136-5895 og tölvupósti island@pt.lu
Útvegum einnig allar
gerðir af notuðum
húsbílum.
Hægt er að fá bílinn
afhentan erlendis sé
þess óskað og byrja
fríið með fjölskyldunni
í Evrópu. Við flytjum
svo bílinn til Íslands,
tollafgreiðum og
skráum.
Það er örstutt frá Kaupmanna-
höfn í Danmörku til Malmö í
Svíþjóð. Upplýsinga um Malmö
er að finna á slóðinni:
www.malmo.se
JEPPADEILD Útivistar ætlar í
samstarfi við Arctic trucks að bjóða
upp á dagsferðir annan laugardag
hvers mánaðar sem kallaðar verða
jepparæktarferðir. Tilgangur jeppa-
ræktarinnar er að skapa vettvang
fyrir styttri ferðir að vetri til sem
hæfa flestum jeppum og stuðla að
skemmtilegum ferðum í góðum fé-
lagsskap annarra jeppamanna.
Að sögn Lóu Ólafsdóttur fram-
kvæmdastjóra hjá Útivist eru ekki
fararstjórar í ferðunum en allir
leggjast á eitt að gera ferðirnar fjöl-
breytilegar, fróðlegar og skemmti-
legar. Útivistarfólk tekur höndum
saman um ferðatilhögun og hjálpast
að við skipulagningu og framkvæmd.
Fyrsta jepparæktarferðin var far-
in í gær en sú næsta er 8. febrúar
næstkomandi en þá verður ekið
að Skíðaskálanum Í Hveradölum.
Þaðan verður ekið eftir leið nr. 12 í
Grænu bókinni, inn í Innstadal að
nokkrum skálum sem eru á þessum
slóðum. Ekkert þátttökugjald er og
fólk þarf ekki að láta skrá sig í ferð-
irnar fyrirfram. Mæting er fyrir ut-
an skrifstofu Útivistar á Laugavegi
178 kl. 10.00 og verður haldið í ferðir
í næsta nágrenni Reykjavíkur.
Fyrir hverja ferð verður leiðarlýs-
ing og/eða GPS punktar á heimasíðu
Útivistar, www.utivist.is.
Dagsferðir fyrir jeppaeigendur
Tilgangur jepparæktarinnar hjá Útivist er að skapa vettvang fyrir styttri ferðir
að vetri til sem hæfa flestum jeppum og stuðla að skemmtilegum ferðum í fé-
lagsskap annarra jeppamanna.
Á HVAMMSTANGA eru í undir-
búningi hamingjuhelgar, sem
skipuleggjendur vonast til að njóta
muni vinsælda meðal fólks sem
leitar að afslöppun í góðu um-
hverfi. Það eru þær mæðgur Guð-
rún Jóhannesdóttir og Guðrún
Ester Jónsdóttir, sem eiga og reka
Gunnukaffi á Hvammstanga, sem
standa fyrir hamingjudögunum og
ætla þær að hefja fyrstu hamingju-
helgina föstudaginn 17. janúar
næstkomandi.
„Þessar hamingjuhelgar ganga
út á það að pör eða einstaklingar
geti komið og átt helgi í rólegheit-
um og afslöppun með smádekri.
Boðið verður upp á nudd, heilun,
fótsnyrtingu, kertagerð, höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeðferð,
gönguferðir, kirkjuferð og sund-
og pottaferðir svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Guðrún Jóhannes-
dóttir.
ári í samstarfi við dóttur sína og eig-
inmenn þeirra beggja, Ragnar Stef-
ánsson og Skúla Guðbjörnsson, en
áður var Hótel Sel rekið í húsnæð-
inu. Auk þess að vera með gistiað-
stöðu reka Gunnurnar veitingasölu,
veisluþjónustu og litla verslun árið
um kring. „Mér finnst alltof fáir vita
af Hvammstanga. Ekki eru nema
um sex kílómetrar til okkar frá
þjóðveginum og ég er sannfærð um
að fólk gæti fengið heilmikið út úr
því að taka á sig lítinn krók. Við er-
um t.d. með kornmyllu hér inni í
Hvamminum sem malar á sumrin
og ef keyrt er áfram út á Vatnsnesið
eru menn komnir í hreina dýrð.“
að vinna með fólki og hef reyndar
sjálf upplifað það að taka þátt í eins
konar hamingjudögum. Þá tók ég
þátt í kristilegum dögum þar sem
þátttakendur unnu hver með ann-
an. Þetta gaf mér mjög mikið og
hefur mig alltaf dreymt um að geta
haldið einhverju svona úti. Nú er
ég með aðstöðuna og ég vona svo
sannarlega að fólk geti komið,
slappað af og notið sín hér í sæl-
unni.“
Smákrókur af þjóðveginum
Guðrún, sem segist hafa flutt til
Hvammstanga árið 1986 úr Dölun-
um, opnaði Gunnukaffi fyrir rúmu
Tíu manns í einu
Þær mæðgur, Gunnurnar í
Gunnukaffi, geta tekið á móti allt
að tólf manns í einu í sex tveggja
manna herbergi, en þær segjast
miða við að taka ekki fleiri en tíu
manns inn hverja helgi. „Við viljum
nefnilega geta sinnt fólkinu vel og
eftir bestu getu.“
Þegar Guðrún eldri er spurð
hvað hafi orðið til þess að hún fékk
þessa hugdettu svarar hún því til
að líklega hafi hugmyndinni skotið
upp hjá sér einhverja andvöku-
nóttina. „Mér finnst mjög gaman
Hamingjuhelgar
á Hvammstanga
Gunnukaffi
Eyrarlandi 1,
530 Hvammstanga,
sími: 451-2860 eða 861-
4208.
SUMARHÚSAEIGENDUR á Spáni
sem bóka ferð hjá Plúsferðum til
Alicante geta nú skráð sumarhúsin
inn á vefslóð ferðaskrifstofunnar
www.plusferdir.is ef áhugi er á að
leigja húsið út vissan tíma ársins.
Eigendur sumarhúsa senda þá
Plúsferðum allar upplýsingar um
húsið eða íbúðina og leigutímann og
skráningargjaldið er 1.500 krónur.
Að sögn Laufeyjar Jóhannsdóttur
framkvæmdastjóra Plúsferða geta
síðan þeir sem hafa hug á að leigja
hús á Spáni í vor og sumar farið inn
á vefslóðina og skoðað það sem í boði
er.
Nokkur hús eru þegar komin á
vefslóðina og fleiri munu bætast við
á næstu vikum. Á slóðinni verður að
sögn Laufeyjar visst form sem sum-
arhúsaeigendur fylla út fyrir vænt-
anlega leigjendur þar sem allar upp-
lýsingar koma fram, stærð hússins,
staðsetning og leigutími og í flestum
tilfellum líka myndir.
Laufey tekur fram að Plúsferðir
muni ekki hafa milligöngu um út-
leigu húsanna heldur þarf fólk sjálft
að koma sér í samband við eig-
endur og ganga frá öllum samn-
ingum við þá.
Beint leiguflug í sumar
Plúsferðir munu bjóða beint
leiguflug til Alicante á Spáni frá og
með 11. apríl næstkomandi. Flogið
verður dagana 11. og 24. apríl og
síðan frá 21. maí alla miðvikudaga í
sumar. Að sögn Laufeyjar er flogið
í morgunflugi með Flugleiðum og
er miðaverð frá 32.900 krónum án
flugvallarskatta.
Þá segir hún að nú bjóði Plús-
ferðir einnig félagsmönnum í Fé-
lagi sumarhúsaeigenda 2.000 króna
afslátt á mann ef bókuð eru 20 sæti
eða fleiri fyrir 1. mars. Sætin þurfa
ekki að vera í sama flugi.
Skiptimarkaður fyrir sum-
arhús og íbúðir á Spáni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þeir sem hafa áhuga á að leigja sum-
arhús af Íslendingum á Spáni geta skoð-
að slóðina www.plusferdir.is en um þess-
ar mundir er verið að skrá þar inn bæði
hús og íbúðir.
Nánari upplýsingar fást hjá
Plúsferðum í Hlíðasmára í
Kópavogi og í síma 5352100
eða á slóðinni www.plus-
ferdir.is
SKÍÐADEILD Úrvals-Útsýnar efnir
til 7 daga skíðaferðar til Madonna
di Campiglio á Ítalíu 1. febrúar
næstkomandi.
Í fréttatilkynningu frá Úrvali-Útsýn
kemur fram að í ferðinni eigi að
endurvekja þá stemningu sem
ríkti í Kerlingarfjöllum. Dagskrá
verður lögð fram fyrir hvern dag
og farið í undirstöðuatriði „carv-
ing“skíðunar. Gönguskíðasvæðið í
Campo Carlo Magno verður einnig
kannað með leiðsögn.
Einar Karlsson verður fararstjóri í
ferðinni ásamt Auði Ebenezers-
dóttur en þau eru bæði skíða-
kennarar.
KERLINGARFJALLA-
STEMNING Á ÍTALÍU
Allar nánari upplýsingar
fást hjá Úrvali-Útsýn í Lág-
múla og í síma 585 4000.
Í KENSINGTON-HÖLL, sem eitt sinn var
heimkynni Díönu prinsessu, verður boðið upp
á sýningu undir heitinu „Royal Hats and
Handbags“ eða konunglegir hattar og töskur.
Hefjast sýningar í maí.
Hampton Court, sem einnig er glæsileg
höll, býður gestum að fræðast um mat-
armenningu á dögum Elísabetar drottningar.
Verða kynningarnar um helgar og hefjast 9.
apríl næstkomandi.
Sýning á höttum og
töskum í Kensington-höll
Hafi menn áhuga á að kynna sér þess-
ar sýningar nánar skal bent á netslóðina:
www.hrp.org.uk eða netfangið: nat-
asha.woollard@hrp.org.uk.
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfur
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 697