Morgunblaðið - 15.01.2003, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 C 7
bílar
Kia Sportage Wagon 2,0
Nýskr. 12. ‘99.
Ek. 85 þ. km. Bsk.
Verð kr. 1.350 þús.
Daewoo Lanos SE 1,3
Nýskr. 12. ‘00.
Ek. 57 þ. km. Bsk.
Verð kr. 690 þús.
Toyota Corolla Touring 4x4 1,8
Nýskr. 10. ‘97.
Ek. 82 þ. km. Bsk.
Verð kr. 960 þús.
Kia Sportage Classic TDI. 2,0
Nýskr. 08. ‘00.
Ek. 43 þ. km. Bsk.
Verð kr. 1.480 þús.
Opel Corsa 1,2 16v
Nýskr. 05. ‘00.
Ek. 56 þ. km. Bsk.
Verð kr. 650 þús.
Daihatsu Terios GL. 1,3
Nýskr. 09. ‘97.
Ek. 85 þ. km. Bsk.
Verð kr. 690 þús.
Kia Pride Wagon Glxi 1,3
Nýskr. 02. ‘02.
Ek. 9 þ. km. Bsk.
Verð kr. 745 þús.
Kia Clarus 4d Glxi 2,0
Nýskr. 06. ‘00.
Ek. 38 þ. km. Ssk.
Verð kr. 880 þús.
Hyundai Accent 1500 Glxi
Nýskr. 07. ‘99.
Ek. 46 þ. km. Ssk.
Verð kr. 610 þús.
Kia Carnival 2,9 T-Dísel
Nýskr. 10. ‘99.
Ek. 83 þ. km. Ssk.
Verð kr. 1.590 þús.
Tilboð 1.190 Þús. Tilboð 560 þús. Tilboð 860 þús. Tilboð 1.350 þús.
Tilboð 750 þús. Tilboð 490 þús. Tilboð 550 þús.
Tilboð 590 þús.
MMC Pajero 2.5 tdi 1998, 5g, 33"
breyttur, ek. 112 þ. km, fallegur jeppi,
bílalán 1100 þús., verð 1970 þús.
MMC Pajero Gls 3.5 bensín 7/2000,
ssk, leður, ek. 43 þ. km, verð 4090
þús.
Landrover Defender td-5 7/2001, 5g,
33" breyttur, snorkel, ek 58 þ. km,
Verð 2950 þús.
Nissan Patrol 3.0 tdi Elegance
7/2001, ssk, 35" breyttur, leður, kubb-
ur, og fl, ek. 34 þ. km, verð 4390 þús.
Ranger Rover disel turbo td-59
/1993, 5g, lengri gerð, leðurklæddur,
(ný vél), verð 1890 þús, ýmis skipti.
Musso 2.9 tdi Prestige 9/1998, ssk,
leður, allt rafdr, ek. 48 þ. km, 31"
dekk, 1.eigandi. Verð 1890 þús.
Suzuki Sidekick jx 1996, 5g, rauður,
ek. 105 þ. km, Verð 680 þús.
Nissan Terrano II 2.7 Tdi 9/1997, 5g,
dráttarkr, ek 113 þ. km, 2.eigendur.
Verð 1390 þús.(einnig 3dyra tdi 1998)
Dodge Ram Cummings disel dráttar-
bíll 1994, (98 útlit) dana 80/60, blár,
verðhugmynd 2,7m.
Isuzu Crew Cab 3.1 tdi 9/2000, ssk,
35" breyttur, aukatankur, hús, verð
2.4 m. (vantar dýrari breyttann jeppa).
Jeep Cherokee Grand Laredo 4.0
1993, ssk, ek. 132 þ. km, gott eintak.
Verð 1090 þús.
Toyota Lc 90 Lx tdi 38" breyttur, 5g,
intercooler, aukatankur,3" púst og fl,
topp bíll, ek 72 þ km bílalán 1900
verð 3,3 ath skipti.
Funahöfða 1 - Fax 587 3433
www.litla.is
Sími 587 7777
Skráðu bílinn á www.litla.is
Mikil sala!
BLAÐFJAÐRIR hafa til þessa verið
algengasti fjöðrunarbúnaður jeppa.
Þær hafa þann kost að vera mjög
einföld hönnun. Auk hefðbundins
hlutverks síns, að fjaðra, halda þær
hásingunni á sínum stað. Fjaðrir
hafa þá annmarka að fjöðrunarvega-
lengdin er takmörkuð, þær eiga til
að endast illa, brotna og síga var-
anlega sé of mikið á þær lagt. Blað-
fjaðrir hafa auk þess innra viðnám
sem myndast þegar blöðin strjúkast
saman. Á árum áður gerðu menn
ýmislegt til að minnka innra viðnám í
blaðfjöðrum. Sett var smurning milli
blaðanna og fjöðrun síðan vafin með
strigapoka til að sandur og óhrein-
indi festust ekki í feitinni. Nú eru
settir plastklossar milli blaðanna
sem minnka viðnámið. Við íslenskar
aðstæður, ryk og sand, vilja þeir
slitna hratt og eru þá ekki til gagns.
Gormar og gormafjöðrun
Gormar henta jeppum mjög vel að
því leyti að með þeim er hægt að ná
tiltölulega langri og mjúkri fjöðrun.
Gallinn er hins vegar lítið burðarþol
við mikla hleðslu. Prógressífir gorm-
ar eru að vissu leyti lausn á þeim
hleðsluvanda því uppbygging þeirra
er önnur en hefðbundinna gorma.
Ástæðan er sú að vafningarnir í þeim
eru venjulega hafðir þéttari í öðrum
endanum og þá stífna þeir meira eft-
ir því sem hleðslan eykst. Það er
mikill kostur við gorma að þeir hafa
ekkert innra viðnám. Prógressífir
gormar eru almennt ekki staðalbún-
aður í jeppum heldur seldir sem
aukabúnaður. Við val á gormum í
jeppa er mikilvægt að huga að því
hvaða eiginleikum verið er að sækj-
ast eftir. Þarfir ökumanna eru mis-
munandi og eiginleikar gormanna
einnig.
Loftpúðafjöðrun
Loftpúðafjöðrun er mikið notuð
undir vörubíla og flutningavagna
vegna mikils hleðsluþols. Hún hefur
einnig reynst vel undir jeppa sem
þarf að hlaða mikið, t.d. vegna vinnu
á hálendi. Jafnvel þótt bíllinn sé
þunghlaðinn er hægt að hafa hann
mjög mjúkan og halda honum í kjör-
hæð.
Einn ótvíræður kostur við loft-
púðafjöðrun er hæðarstýring. Hægt
er að rétta bílinn af í hliðarhalla með
því að stýra hæð púðanna eða nota
sjálfvirka hleðslujöfnun sem pumpar
í púðana eftir því sem hleðsla eykst.
Gallinn við loftpúðafjörðun er oft
mikið viðhald. Púðarnir eiga til að
springa, einkum í kjölfar rangrar
ísetningar. Þá vilja slöngur fara í
sundur auk þess sem innra viðnám í
púðunum minnkar fjöðrunareigin-
leika. Það er þó hverfandi miðað við
blaðfjaðrir.
Vindustangir
Vindustangir hafa alla eiginleika
gorma því í raun er gormur ekkert
annað en uppvafin vindustöng. Hins
vegar fer möguleg fjöðrunarvega-
lengd að mestu leyti eftir því hver
lengd vindustangarinnar er. Hún er
því yfirleitt ekki mikil.
Vökvafjöðrun
Í Land Cruiser 100 er vökvafjöðr-
un fáanleg sem aukabúnaður. Við
fjöðrun þrýstist vökvinn í tjökkunum
út í gegnum rafstýrðan flæðiventil,
sem gegnir hlutverki dempara, og
inn í gasbelg sem fjaðrar.
Auk vökvakerfisins eru hafðir
gormar að aftan og vindustangir að
framan sem hjálpa til við fjöðrun og
minnka álag á vökvakerfið. Það sem
einkennir fjöðrunarkerfið í Land
Cruiser 100 er tölvustýring. Vökva-
kerfinu er stjórnað af tölvu sem
tengd er fjölda nema víðs vegar um
bílinn. Þeirra hlutverk er að stýra
dempun og hæð fjöðrunarinnar eftir
hreyfingum bílsins, hraða, hleðslu,
stöðu stýrishjóls og fleiri atriðum.
Vökvafjöðrunarkerfi hefur lítið
innra viðnám og með því að stýra
dempuninni þannig að stífni demp-
aranna breytist jafnvel oft á sekúndu
fæst mjög góð fjöðrun.
Fjöðrunarbún-
aður jeppa
Gormar henta jeppum vel og bjóða upp á langa fjöðrun.
Vafningar prógressífs gorms eru misþéttir.
Jeppahornið
Úr Jeppabók Arctic Trucks.