Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 1
2003  MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR BLAÐ C 80% A FS LÁ T T U R ÚTSALA 7.-23.FEB ALLT AÐ B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A JÓN ARNAR MAGNÚSSON STÓÐ SIG VEL Í TALLINN / C12 Samkvæmt nýrri félagaskipta-löggjöf FIFA er leikmönnum undir 18 ára aldri óheimilt að skipta á milli landa nema sérstakar ástæður liggi fyrir. Geir Þorsteins- son, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið í gær að mál Ara Freys væri alfarið í höndum FIFA. „Frá okkar hendi var engin fyr- irstaða varðandi félagaskipti hans en FIFA hefur óskað eftir því að ekki verið gefin út leikheimild að svo stöddu. Verndun yngri leik- manna er eitt af lykilatriðunum í nýju félagaskiptareglunum en það hafa verið mikil brögð að því að ungir leikmenn, sérstaklega frá Austur-Evrópu og Afríku, hafi komið til evrópskra félaga en síðan staðið uppi bjargarlausir ef þeir hafa ekki þótt nægilega góðir knattspyrnumenn. Til að svona ungir leikmenn geti skipt á milli landa þarf fjölskyldan helst að flytja búferlum, nám að vera tryggt og samningur hans við fé- lagið verður að samræmast vinnu- löggjöf viðkomandi lands,“ sagði Geir. Hann kvaðst halda að í hol- lensku vinnulöggjöfinni væri miðað við 16 ára aldur en Ari Freyr verð- ur 16 ára í maí. FIFA heimilar ekki skipti Ara til Heerenveen ARI Freyr Skúlason, 15 ára gamall knattspyrnumaður úr Val, dvelur um þessar mundir hjá hollenska úrvalsdeildarfélaginu Heerenveen. Hollendingarnir vilja semja við Ara Frey, enda hafði hann áður dval- ist hjá þeim og staðið sig mjög vel, og samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur náðst fullt samkomulag við alla aðila í málinu um að hann gangi til liðs við félagið. Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, heimilar hins vegar ekki félagaskipti hans að svo stöddu. RAGNA Ingólfsdóttir úr TBR varð um helgina þrefaldur Reykjavík- urmeistari í badminton, lagði alla mótherja sína í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Kínverjinn Lin Guang Yun varð Reykjavíkurmeist- ari í einliðaleik karla. Ragna lagði Katrínu Atladóttur í úrslitum í einliðaleik kvenna en Lin Guang vann Njörð Ludvigsson í karlaflokki. Með Rögnu í tvíliðaleik lék Katr- ín og unnu þær Brynju Péturs- dóttur og Vigdísi Ásgeirsdóttur í úrslitum og Njörður og Ragna unnu Magnús Helgason og Tinnu Helgadóttur í tvenndarleik Ragna þrefaldur meistari ÞAÐ hitnaði heldur betur í kol- unum undir lok leiks Aftureldingar og Fram í 1. deild karla í hand- knattleik í gær og m.a. þurfti lög- reglumaður að ganga á milli manna oog stilla til friðar í leiknum sem lauk með jafntefli, 24:24. Þremur sekúndum fyrir leikslok braut Valdimar Þórsson, leikmaður Fram, gróflega á Hrafni Ingv- arssyni, leikmanni Aftureldingar, sem gerði sig líklegan til þess að freista þessa að skora sigurmark leiksins fyrir heimaliðið. Þegar Valdimar var vísað af leikvelli með rautt spjald fagnaði hann með því að rétta upp hendurnar. Við það fauk í menn á varamannabekk Aft- ureldingar og einhverjum varð það á að spyrna knetti, viljandi eða óviljandi, í Valdimar þegar hann gekk út af. Þar með sauð uppúr Fram megin og kom til snarpra orðaskipta m.a. á milli Bjarka Sig- urðssonar, þjálfara Aftureldingar, og Héðins Gilssonar, leikmanns Fram, sem sat í skammarkróknum, hafði verið rekinn af leikvelli skömmu áður. Hópur manna gekk á milli Bjarka og Héðins og fleiri manna sem töldu sig hafa ýmislegt til málanna að leggja. Meðal þeirra sem gengu fram fyrir skjöldu til þess að lægja öldurnar var Heimir Ríkharðsson, þjálfari Fram og lög- reglumaður, sem rann blóðið til skyldunnar að koma í veg fyrir frekari leiðindi. Það tókst og hægt var að ljúka leiknum. Lögreglan greip í taumana ■ Fram stal… /C6 Reuters Króatísku systkinin, Ivica og Janica Kostelic, urðu um helgina heimsmeistarar í svigi og höfðu bæði nokkra yfirburði. Hér er Ivica á ferðinni í brautinni í St. Moritz í Sviss. Umsögn er á B11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.