Morgunblaðið - 17.02.2003, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 C 3
BAYERN München er byrjað að bera víurnar í 21
árs gamlan sóknarmann nágrannaliðsins 1860
München, Benjamin Lauth, eða „Benny Bomber“
eins og hann er kallaður.
Lauth er samningsbundinn 1860 fram til ársins
2006 en það kemur þó ekki í veg fyrir að stórliðið í
München, Bayern, hefur sýnt pilti mikinn áhuga.
„Lauth hefur alla hæfileika til að verða frábær
leikmaður, leikmaður sem getur unnið leiki upp á
sitt einsdæmi,“ segir Ottmar Hitzfeld þjálfari
Bayern sem segir ljóst að slíkir leikmenn hljóti að
vilja vera með stórliðum og komast þannig í Meist-
aradeildina.
Brasilíumaðurinn Giovane Elber er helsti sókn-
armaður Bayern en talið er að hann verði ekki hjá
félaginu lengur en til næsta árs og er Lauth ætlað
að leysa hann af hólmi. „Hann er greinilega rétti
maðurinn fyrir Bayern. Hann hefur ótrúlega næmt
auga fyrir mörkum,“ segir Elber um væntanlega
arftaka sinn.
Lauth hefur gert tíu mörk í deildinni, mörg hver
„með stórkostlegum hætti, bakfallsspyrnum eða
með því að prjóna sig svoleiðis framhjá sterkustu
varnarmönnum Þýskalands að þeir liggja eins og
hráviði eftir,“ eins og segir í frétt AP um pilt.
Bæjarar vilja
„Benny Bomber“
LOGI Gunnarsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, átti
stórleik á laugardaginn þegar
lið hans, Ulm, sigraði Jena af
öryggi, 94:79, í toppslag í
þýsku 2. deildinni. Logi skor-
aði 27 stig í leiknum og þótti
besti maður heimaliðsins.
Hann skoraði meðal annars
þriggja stiga körfu langt utan
af velli um leið og lokaflaut
þriðja leikhluta gall, og með
henni náði Ulm 16 stiga for-
skoti sem Jena náði aldrei að
ógna.
Sigurinn var afar mik-
ilvægur fyrir Ulm sem komst
með honum í annað sætið og
er með 34 stig eins og Jena
og Tübingen. Fyrir ofan er lið
Karlsruhe með 38 stig.
Stór-
leikur
hjá Loga
Logi Gunnarsson
við verðum að vinna alla leikina til
að verða bikarmeistarar þannig að
mér er sama í hvaða röð þeir
koma, en ég vil bara fá heimaleik,“
sagði markaskorarinn.
Vil ekki
mæta Arsenal
Le Saux er einnig nokk sama,
en vill ekki mæta Arsenal. „Ef við
sleppum við að mæta Arsenal þá
væri ég ánægður, ekki heldur í úr-
slitaleiknum,“ sagði hann, en liðin
mættust í úrslitum í fyrra.
Eftir að Hasselbaink kom
Chelsea yfir var ekki spurning
hvorum megin sigurinn lenti því
þeir bláklæddu voru mun sterkari
og Grönkjær hleypti nýju blóði og
krafti í sóknarleikinn þegar hann
kom inn á í síðari hálfleiknum.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri
Stoke, var nokkuð ánægður með
leikinn þrátt fyrir tap. „Við lékum
vel í dag og ég er bara nokkuð
sáttur þrátt fyrir tapið enda er
Chelsea með eitt af fjórum bestu
liðum Englands. Þessi leikur var
bara bónusleikur fyrir leikmenn og
áhorfendur og vonandi gefur
frammistaðan í bikarnum okkur
kraft í lokasprettinn í deildinni,
ekki veitir okkur af,“ sagði stjór-
inn.
Claudio Ranieri, stjóri Chelsea,
vonast eftir að krækja í titilinn og
verða þar með bikarmeistari í
þriðja landinu, hefur áður orðið
bikarmeistari á Spáni og Ítalíu.
„Við reyndum að leika skipulega
en það var erfitt því leikmenn
Stoke gáfu okkur engan frið til að
byggja upp spil. Ég er sérlega
ánægður með hvernig leikmenn
mínir brugðust við, með mikilli
baráttu og andinn í liðinu var bæði
góður og réttur í dag. Við höfum
leikið með réttu viðhorfi gegn öll-
um liðum í vetur, nokkuð sem
vantaði hjá okkur í fyrra og ég er
mjög sáttur við þá breytingu,“
sagði Ranieri.
Reuters
Jimmy Floyd Hasselbaink kemur Chelsea hér á bragðið án þess að Steve Banks, markvörður Stoke, komi við vörnum.
ingaslagnum í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar ensku
Reuters
John Terry, fyrirliði Chelsea, fór fyrir sínum mönnum í Stoke og
er hér í harðri baráttu við Chris Greenacre, sóknarmann Stoke.
FÓLK
ÍTALINN Claudio Ranieri,
knattspyrnustjóri Chelsea, sagði
eftir sigurinn á Stoke, að hann
vilji ekki mæta Englands- og bik-
armeisturum Arsenal í 8-liða úr-
slitunum, en dregið verður í bik-
arkeppninni í dag.
Ranieri horfir fram á veg og gerir
sér grein fyrir að fyrr eða síðar
verður hann að horfast í augu við
leikmenn Arsenal, sem fögnuðu
sigri á hans mönnum í í bikarúr-
slitaleik í Cardiff í fyrra.
„ÉG vona að við fáum heimaleik
í næstu umferð,“ sagði Ranieri,
sem var ánægður með sína menn
gegn Stoke. „Leikmenn Stoke
voru erfiðir viðureignar – léku vel
skipulagðan varnarleik og voru
hættulegir þegar þeir fengu auka-
spyrnur og hornspyrnur.“
ÞAU lið sem eru í pottinum þeg-
ar dregið verður í dag í 8-liða úr-
slitin, eru: Arsenal, Chelsea, Shef-
field United, Southampton, Leeds,
Watford, Fulham/Burnley, sem
þurfa að leika á ný og Wolves.
EYJASTÚLKUR mættu FH í
handknattleik á laugardaginn og
þær létu það ekki á sig fá að koma
upp á land þó ljóst væri að þær
kæmust varla til síns heima fyrr
en óveðrinu slotaði. Stúlkurnar
unnu góðan sigur í Kaplakrika þar
sem Vigdís Sigurðardóttir varði
meðal annars þrjú vítaköst frá FH-
stúlkum.
EFTIR að ÍBV náði tíu stiga for-
ystu fengu óreyndari stúlkur að
reyna sig í liði Eyjastúlkna og
gekk það ágætlega.
ÍRIS Andrésdóttir, knattspyrnu-
kona úr Val, var í byrjunarliði Ís-
lands gegn Bandaríkjunum í vin-
áttulandsleiknum sem hófst í
Charleston laust fyrir miðnættið.
Hún lék þar með sinn fyrsta lands-
leik. Hrefna Jóhannnesdóttir og
Dóra Stefánsdóttir, sem aðeins
höfðu leikið einn landsleik, hófu
einnig leikinn. Honum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun en
sjá má allt um hann á mbl.is.
STAÐAN í leiknum, þegar
Morgunblaðið fór í prentun, var
1:0 fyrir Bandaríkin og gerði
besta knattspyrnukona heims, Mia
Hamm, markið strax á 4. mínútu.
Þá höfðu stúlkurnar leikið í hálfa
klukkustund á rennandi blautum
vellinum í Charleston.
PREDRAG Pramenko, nýi leik-
maðurinn hjá úrvalsdeildarliði
Grindavíkur í körfuknattleik, kom
til félagsins á laugardag. Hann
spilaði með gegn KR í gærkvöld en
kom lítið við sögu og skoraði að-
eins tvö stig.