Morgunblaðið - 17.02.2003, Síða 5
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 C 5
LUIS Figo var rekinn af velli þegar Real
Madrid tapaði óvænt fyrir Osasuna, 1:0, í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Figo
braut illa á Francisco Punal um miðjan síðari
hálfleik, fékk að líta rauða spjaldið, og þar
með voru möguleikar hans manna litlir en
Manfredini hafði komið heimaliðinu yfir í
fyrri hálfleik. Þó munaði litlu í lokin þegar
Fernando Morientes skallaði boltann uppundir
þverslána á marki Osasuna.
Real Sociedad nýtti ekki tækifærið, tapaði
3:2 fyrir Real Betis á útivelli og er áfram með
tveggja stiga forystu í deildinni, nú á bæði
Real Madrid og Valencia. Sociedad komst í 2:1
seint í leiknum með tveimur mörkum frá
Kahveci Nihat en Betis skoraði tvívegis á síð-
ustu fjórum mínútunum. Fernandez Fernando
gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu þegar komið
var framyfir venjulegan leiktíma.
Barcelona vann sinn fyrsta sigur undir
stjórn Radomirs Antics, 2:0, í nágrannaslag
gegn Espanyol, og komst með því í þægilegri
fjarlægð frá botnsætum deildarinnar. Cocu og
Xavi gerðu mörkin undir lok fyrri hálfleiks.
Figo fékk rautt
og Real tapaði
ÍVAR Ingimarsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, byrjaði vel sem lánsmaður hjá
Brighton í ensku 1. deildinni á laugardag-
inn. Brighton, sem hefur setið á botni
deildarinnar frá byrjun í haust, vann
Bradford á útivelli, 1:0, og komst í fyrsta
skipti úr neðsta sætinu – uppfyrir bæði
Stoke City og Sheffield Wednesday.
Ívar, sem er í láni í einn mánuð frá
Wolves, kom inn í vörnina og þótti standa
sig mjög vel. „Það var ein afgerandi breyt-
ing á liðinu. Ívar Ingimarsson var kominn
í staðinn fyrir hinn meidda Pethick, og ég
segi það hér og nú að hann lék frábærlega
í sínum fyrsta leik. Steig ekki feilspor, af-
ar einbeittur, Ísmaðurinn Ívar verður eft-
irlæti stuðningsmanna Brighton.“ Þannig
hljóðaði lýsing á þætti Ívars í leiknum á
vefsíðu stuðningsmanna Brighton.
Brighton hefur nú unnið tvo leiki í röð, í
fyrsta skipti á tímabilinu, og hefur sótt sig
jafnt og þétt eftir að Steve Coppell tók við
liðinu í að því er virtist vonlausri stöðu
fyrir áramótin.
Ívar byrjar vel
hjá Brighton
Ívar Ingimarsson
FÓLK
CARLO Ancelotti, þjálfari AC Mil-
an á Ítalíu, framlengdi á laugardag-
inn samning sinn við félagið til ársins
2005. Talsmaður félagsins sagði að
um leið hefðu verið gerðar breytingar
á launum þjálfarans, þau hefðu verið
lækkuð og slíkt væri nauðsynlegt til
að laga fjárhag félagsins og önnur fé-
lög ættu að gera slíkt hið sama.
KRISTIJAN Djordjevic, knatt-
spyrnumaður frá Serbíu-Svartfjalla-
landi, hálsbrotnaði á æfingu hjá liði
sínu, Schalke í Þýskalandi, fyrr í
þessum mánuði. Rudi Assauer, þjálf-
ari Schalke, upplýsti þetta um
helgina og sagði að Djordjevic verði
frá keppni í það minnsta eitt ár, og
hann myndi jafnvel aldrei spila knatt-
spyrnu framar. Djordjevic, sem er 27
ára, lenti í árekstri við félaga sinn
Gustavo Varela með þessum afleið-
ingum.
MATEJA Kezman skoraði þrjú
mörk fyrir PSV Eindhoven, sem
vann stórsigur á Zwolle á heimavelli í
Hollandi, 6:0.
LEIKMENN PSV voru búnir að
gera út um leikinn eftir aðeins 12
mínútur, en þá var staðan 4:0. Jan
Vennegoor of Hesselink opnaði leik-
inn með því að skora eftir aðeins 54
sekúndur en síðan skoraði Kezman
mörk á þriðju og níundu mín. og
Mark van Bommel það fjórða á tólftu
mín. Kezman náði þrennunni á 25.
mínútu.
CHRISTIAN Vieri er nýjasti með-
limurinn í 100 marka klúbbnum í 1.
deildarkeppninni á Ítalíu, Serie A.
Hann skoraði mark Inter, sem varð
að sætta sig við tap fyrir Chievo, 2:1.
Átta menn eru í 100 marka klúbbnum
– þeir eru, mörk og leikir: Roberto
Baggio 189 (196) Gabriel Batistuta
182 (168) Guiseppe Signori 177 (144)
Enrico Chiesa 106 (236) Hernan
Crespo 104 (168) Vincenzo Montella
102 (170) Filippo Inzaghi 102 (194)
Christian Vieri 100 (158) og Oliver
Bierhoff 100 (207).
JEAN Tigana, knattspyrnustjóri
Fulham, hótaði á laugardaginn að
hætta störfum hjá félaginu í vor ef
eigandinn, Mohamed Al Fayed, kæmi
ekki fram með einhverjar framtíðar-
áætlanir. Samningur Tiganas rennur
út í vor og hann er ekki tilbúinn til að
framlengja hann að svo stöddu.
AL-FAYED boðaði mikinn niður-
skurð fyrir skömmu og Tigana telur
óvissuna of mikla. Ekki liggur fyrir
hvar félagið leikur á næsta tímabili
eða hvað hægt verður að gera til að
efla leikmannahópinn. „Vandamálið
er að það er ekki á hreinu hvert félag-
ið vill stefna. Ég tel að það geti náð
lengra en það hefur gert, en vil fá ein-
hverjar áætlanir í hendurnar,“ sagði
Tigana.
JUVENTUS skákaði Mílanól-
iðunum í gær, nýtti sér stigamissi
þeirra beggja og komst á topp
ítölsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu með góðum útisigri á
Parma, 2:1. „Það er alltaf erfitt
að spila hérna en við erum með
mjög traust lið og sigurviljinn er
gífurlegur,“ sagði Marcello Lippi,
þjálfari Juventus.
Inter beið lægri hlut gegn
Chievo, 2:1, þar sem Eugenio
Corini skoraði úr tveimur víta-
spyrnum fyrir heimamenn en var
rekinn af velli áður en yfir lauk.
AC Milan komst í hann krappan
heima gegn Lazio í gærkvöld,
lenti 0:2 undir en jafnaði, 2:2,
með mörkum frá Filippo Inzaghi
og Rivaldo.
Juventus upp
fyrir Mílanóliðin
Ryan Giggs vill örugglega gleymaleiknum sem fyrst. Það var
óvíst fram á síðustu stundu hvort
hann gæti leikið, en hann stóðst
læknisskoðun og var í byrjunarliðinu.
Eftir hálfrar klukkustundar leik fékk
hann kjörið færi til að koma heima-
mönnum yfir en tókst á einhvern
óskiljanlegan hátt að skjóta yfir autt
markið frá vítateig, með verri fæt-
inum – þeim hægri. Giggs fékk frá-
bæra sendingu frá fyrirliða sínum,
lék á varnarmann og David Seaman
markvörð sem kom út á vítateigslín-
una. Síðan leit Giggs upp, sá autt
markið en sendi boltann yfir það.
Sir Alex Ferguson var eins og
steinrunninn, engin svipbrigði sáust
á kappanum en hann brást hins vegar
illa við þegar Brasilíumaðurinn Edu
kom meisturunum yfir fjórum mín-
útum síðar. Edu tók aukaspyrnu rétt
utan teigs, ætlaði að senda boltann
yfir varnarvegginn en hann lenti í
öxlinni á David Beckham, breytti um
stefnu og fór hægra megin við Fa-
bien Barthez, sem var lagður af stað í
hitt hornið og átti ekki möguleika.
Fyrri hálfleikur þessa stórleiks
helgarinnar í Englandi var nokkuð
jafn en meistararnir í Arsenal voru
þó ívið sterkari og miðjumenn liðsins
réðu gangi mála. Markaskorarnir
Thierry Henry og Dennis Bergkamp
voru ekki í byrjunarliðinu, Henry
kom inná á 73. mínútu en Bergkamp
var ekki í leikmannahópnum að
þessu sinni.
Fátt er svo með öllu illt…
„Við vorum óheppnir að komast
ekki yfir í fyrri hálfleik. Giggs var bú-
inn að gera það erfiðasta, leika á
markvörðinn og varnarmanninn, en
mistókst að ljúka við verkefnið. Eftir
að við lentum 2:0 undir var ljóst að
þetta yrði erfitt enda lék Arsenal vel
og skipulega og við komumst lítt
áleiðis,“ sagði Ferguson eftir leikinn.
„Það eina góða við slæm úrslit hér í
dag er að það léttir óneitanlega á
okkur að vera fallnir út úr bikarnum.
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af
þeirri keppni og getum einbeitt okk-
ur að deildinni og Meistarakeppn-
inni,“ sagði framkvæmdastjórinn.
Edu átti stóran þátt í öðru marki
Arsenal sem kom snemma í síðari
hálfleiknum. Hann og Sylvain Wilt-
ord léku vel saman, Edu renndi á
Wiltord sem lék illa á Wes Brown og
skoraði af öryggi. Eftir þetta léku
meistararnir af mikilli skynsemi,
héldu boltanum vel innan liðsins og
Edu og Patrick Vieira hreinlega yf-
irspiluðu þá Paul Scholes og Roy
Keane á miðsvæðinu og sóknarað-
gerðir heimamanna voru máttleysis-
legar.
„Þetta var góður sigur sem ég
vona að styrki okkur í trúnni á því
hvers við erum megnugir og hvað við
ætlum að gera á þessari leiktíð. Þetta
er mikilvægt þar sem við eigum mik-
ið af erfiðum leikjum framundan.
Liðið virðist vera mjög stöðugt um
þessar mundir og það er gott fyrir
framtíðina,“ sagði Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, eftir leik-
inn.
Hann sagði Giggs hafa verið
óheppinn að koma heimamönnum
ekki yfir skömmu áður en Edu skor-
aði fyrir Arsenal. „Giggs gerði allt
rétt, nema að skora. Ég er samt ekki
viss um að við hefðum tapað leiknum
þó svo hann hefði skorað,“ sagði
Wenger og Ferguson tók undir þau
orð.
Knattspyrnustjórarnir eru engir
perluvinir en þeir voru þó greinilega
báðir sammála um að dómarinn Jeff
Winter var ekki starfi sínu vaxinn að
þessu sinni. Leikurinn var mjög gróf-
ur fyrstu mínúturnar, sérstaklega
voru heimamenn grófir og sumir leik-
menn gestanna duttu við hvert tæki-
færi og gerðu meira úr ákveðnum at-
vikum en efni stóðu til. Peter
Schmeichel, fyrrum markvörður
United, lýsti leiknum í sjónvarpi og
hann var ekki par hrifinn af hörkunni
hjá van Nistelrooy og Scholes sem
voru greinilega eitthvað pirraðir á
laugardaginn. Enginn var þó rekinn
af velli og það er ljóst að ekkert verð-
ur gefið eftir þegar liðin eigast við í
apríl undir lok deildarkeppninnar.
Leikmenn Manchester United náðu ekki að brjóta Arsenal
niður með grófum leik strax í byrjun bikarorrustunnar
Meistararnir
miklu betri á
Old Trafford
ARSENAL átti ekki í teljandi erfiðleikum þegar liðið heimsótti Man-
chester United á Old Trafford í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar
ensku á laugardaginn. Bikarmeistararnir voru miklu sterkari aðilinn
í leiknum og sigruðu 2:0 í leik þar sem heimamenn náðu sér alls
ekki á strik og vilja þeir örugglega gleyma leiknum sem fyrst.
LEEDS slapp fyrir horn í
ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu í gær þegar lið-
ið lagði 1. deildarfélag
Crystal Palace, 2:1, á Sel-
hurst Park í London. Glæsi-
mark frá Harry Kewell
skildi liðin að í lokin en
hann lék varnarmenn Palace
grátt í skyndisókn og skor-
aði með fallegu skoti. Ann-
ars áttu leikmenn Leeds í
vök að verjast lengi vel og
voru heppnir í stöðunni 1:1
þegar aðstoðardómari sá
ekki þegar boltinn fór vel
innfyrir marklínu Leeds. Að
auki varði varnarmaður liðs-
ins með hendi sekúndubrot-
um áður án þess að upp um
hann kæmist.
Southampton lenti í mikl-
um vandræðum með 1. deild-
arlið Norwich á heimavelli
en vann að lokum 2:0. And-
ers Svensson braut ísinn
með marki 20 mínútum fyrir
leikslok og varamaðurinn Jo
Tessem bætti öðru við rétt á
eftir.
Fulham náði ekki að knýja
fram sigur gegn 1. deild-
arliði Burnley á heimavelli.
Úrslit urðu 1:1 og Burnley
fær annað tækifæri á heima-
velli. Sheffield United lagði
Walsall, 2:0, í uppgjöri
tveggja 1. deildarliða og á
því enn bikargengi að fagna.
Liðið var nálægt því að kom-
ast í úrslit deildabikarsins á
kostnað Liverpool eftir tvær
rimmur liðanna í síðasta
mánuði. Loks komst Wolves í
átta liða úrslitin í gærkvöld
með því að sigra 3. deild-
arlið Rochdale, 3:1.
Leeds
slapp
fyrir horn
í London