Morgunblaðið - 17.02.2003, Side 6
HANDKNATTLEIKUR
6 C MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HLYNUR Jóhannesson átti stórleik
í marki Stord sem sigraði Dram-
men, 30:27, í norsku úrvalsdeildinni
í handknattleik. Norska dagblaðið
Haugesunds Avis segir að með slíku
áframhaldi muni félagið eiga erfitt
með að halda honum í sínum röðum
en haft er eftir Hlyni í blaðinu að
umboðsmaður hans hafi verið í
sambandi við félög á Spáni og í
Danmörku. Hlynur kom til Stord
frá Midtsjælland í Danmörku fyrir
þetta tímabil.
„Ég mun leggja mig allan fram
um að standa mig sem best með
Stord það sem eftir er af þessu
tímabili en félagið er mjög seint á
ferðinni með að ganga frá samn-
ingum við leikmenn fyrir næsta
tímabil,“ sagði Hlynur í samtali við
blaðið.
Þjálfari Stord, Jesper Svensson,
lét líka liggja að því að stjórn fé-
lagsins stæði sig ekki nægilega vel
og kvaðst vonast til þess að eitthvað
færi að gerast í leikmannamálum á
næstu dögum.
Stord er í sjötta sæti af átta liðum
í úrvalsdeildinni og á góða mögu-
leika á að komast áfram í úr-
slitakeppni um norska meistaratit-
ilinn. Í gærkvöld tapaði liðið fyrir
efsta liði deildarinnar, Stavanger, í
hörkuleik á útivelli, 40:36
Hlynur á förum frá
Stord eftir tímabilið?
eftir tvíframlengdan leik við HK í
bikarkeppninni á miðvikudagskvöld-
ið. „Ég kaupi þá skýringu ekki,“
sagði Heimir og var þar með rokinn
til búningsklefa til þess að tala yfir
hausmótunum á lærisveinum sínum.
Eftir nokkuð góðan upphafskafla
Fram tók Afturelding völdin á vell-
inum eftir um tíu mínútna leik.
Framliggjandi vörn liðsins var geysi-
sterk og Reynir Þór Reynisson með
á nótunum í markinu. Skyttur Fram
fengu fá tækifæri til að athafna sig
og lokað var nær alveg fyrir línuspil.
Sóknarleikur Aftureldingar var góð-
ur, boltinn gekk hratt á milli manna
og vel gekk að finna leiðir framhjá
varnarmönnum Fram, ef Sebastían
Alexandersson markvörður var und-
anskilin. Hann varði á tíðum vel og
kom í veg fyrir að munurinn var ekki
meiri en þrjú mörk í hálfleik, 14:11.
Leikmenn Aftureldingar héldu
uppteknum hætti framan af síðari
hálfleik, léku hratt og vel gegn fram-
liggjandi og stemmningslausri vörn
Framara. Þegar 16,20 mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik jók Sverrir
Björnsson muninn í sex mörk, 22:16.
Fram svaraði með þremur mörkum,
þar af tveimur eftir hraðaupphlaup.
Munurinn var þar með kominn niður
í þrjú mörk, 22:19, og tíu mínútur eft-
ir. Á þessum kafla var sem Fram-
liðið vaknaði af Þyrnirósarsvefni. Er
trúlegt að leikhlé sem Heimir þjálf-
ari tók í stöðunni 22:17, hafi haft sitt
að segja.
Allt annað var að sjá til Framara í
vörninni á lokasprettinum, þeir tóku
að berjast sem mest þeir máttu. Það
sló verulega á sóknarleik Aftureld-
ingar. Hann varð hægari og boltinn
gekk ekki eins skilvíslega á milli
manna og áður og t.d. var lítið um að
hornamenn leystu inn á línu. Flæðið í
sóknarleiknum breyttist skyndilega
til verri vegar. Þá fékk Atli Rúnar
Steinþórsson, línumaður Mosfell-
inga, úr litlu að moða. Smátt og
smátt sáu heimamenn forystuna
renna út í sandinn þeim til mikillar
og skiljanlegrar gremju. „Ég breytti
engu á lokakaflanum, menn einfald-
lega vöknuðu og það nægði til að
krækja í þetta stig,“ sagði Heimir,
þjálfari Fram.
Atli Rúnar var besti leikmaður
Aftureldingar í leiknum. Hann var
sívinnandi bæði í vörn og sókn. Guð-
jón Drengsson og Sebastían voru
skástir í Fram-liðinu sem fékk meira
út úr leiknum en það verðskuldaði.
Fram situr sem fastast í 7. sætideildarinnar með 24 stig og á
sex leiki eftir en Afturelding er í
tólfta sæti með 11
stig og á sjö viður-
eignir óleiknar. Von-
in um sæti í úrslita-
keppninni er úr
sögunni hjá Mosfellingum en Fram-
arar eru í harðri baráttu um að vera
með í potti þeirra átta liða sem að
loknum löngum vetri fá tækifæri til
að klást um Íslandsmeistaratitilinn á
vormánuðum. Í ljósi stöðu Framara
kom áhuga- og baráttuleysi þeirra á
óvart gegn Aftureldingu. Lengst af
var sem úrslitin skiptu liðið engu
máli, það væri Aftureldingarmenn
sem væru enn með í baráttunni.
„Lið sem ekki leggur sig fram
nema í tíu mínútur í leik á ekki skilið
að fá stig, en svona er þetta. Í raun er
það með ólíkindum að lið sem er að
keppast um að komast í úrslita-
keppnina skuli mæta til leiks með
hangandi haus eins og mínir menn
gerðu að þessu sinni,“ sagði Heimir
og var allt annað en sáttur. „Það var
sem menn héldu að sigurinn kæmi af
sjálfum sér, án allrar fyrirhafnar,
slíkur hugsunarháttur gengur aldrei,
alveg sama við hvern menn leika og
hver staða liða er í deildinni,“ sagði
Heimir og vísaði þeirri kenningu al-
veg á bug að Fram-liðið væri þreytt
Fram
stal stigi
„VIÐ stálum stigi frá Aftureldingu í þessum leik, það er á hreinu, við
áttum það ekki skilið,“ sagði Heimir Ríkharðsson, þjálfari Fram, eft-
ir 24:24, jafntefli við Aftureldingu að Varmá í gær eftir að leikmenn
Aftureldingar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11. Þegar 14
mínútur voru til leiksloka, voru heimamenn sex mörkum yfir, 22:16,
en sterk vörn Fram og óyfirvegaður sóknarleikur Aftureldingar varð
þess valdandi að sveitirnar deildu með sér stigunum.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Leikmenn HK virtust frekar das-aðir þegar þeir gengu til leiks
mót KA á laugardaginn. Hugsan-
lega hefur ferðalagið
setið í þeim ellegar
hinn rammi bikar-
leikur í vikunni. KA
komst í 6:1 en þá tók
Árni Stefánsson leikhlé, barði kjark
og þor í sína menn og fullir baráttu
breyttu gestirnir stöðunni úr 8:2 í
8:7 á sex mínútum og héldu jöfnu í
leikhléi, 12:12. KA-menn tóku Jal-
iesky Garcia úr umferð frá byrjun
en HK svaraði með því að senda
mann til höfuðs Arnóri Atlasyni.
Leikurinn einkenndist allmjög af
ráðabruggi þessu.
Framan af seinni hálfleik höfðu
HK-menn frumkvæðið; nokkuð sem
engan gat órað fyrir miðað við upp-
haf leiksins. Staðan var 16:18 að
liðnum 10 mínútum í seinni hálfleik
en KA-menn jöfnuðu og eftir tæp-
lega tuttugu mínútna leik mátti sjá
stöðuna 21:21 á töflunni. Það sem
síðan gerðist er verðugt rannsókn-
arefni en KA skoraði þrjú mörk í
röð og tryggði sér þægilega stöðu á
endasprettinum. Líklegt má telja að
ísköld yfirvegun Baldvins Þor-
steinssonar á vítalínunni hafi gert
það að verkum að óhug hafi sett að
gestunum þótt staðan væri 26:24 er
tvær mínútur lifðu af leiknum. Vil-
helm Gauti Bergsveinsson minnkaði
muninn í eitt mark þegar ein og hálf
mínúta var eftir og HK fékk tæki-
færi til að jafna en Egidijus Petkevi-
cius varði skot Garcia 10 sekúndum
fyrir leikslok og sigurinn var í höfn.
Leikurinn kemst ekki á spjöld
sögunnar fyrir gæði en spennandi
var hann. Ingólfur Axelsson var
bestur KA-manna, Petkevicius stóð
fyrir sínu í markinu sem og Stelmo-
kas. Þá skoraði Einar Logi Frið-
jónsson mikilvæg mörk í seinni hálf-
leik eftir afleitt gengi framan af.
Hjá HK stóðu þeir Ólafur Víðir
Ólafsson, Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson og markvörðurinn Arnar
Freyr Reynisson upp úr. Örlítið
meiri grimmd frá Garcia hefði
örugglega skilað liðinu að minnsta
kosti öðru stiginu.
KA-menn lönduðu
eins marks sigri
ÞEIR fiska sem róa. Hið vel mannaða fley KA virtist vera á sókn-
armarki í upphafi vertíðar er att var kappi við Kópavogsskútu HK.
Þeim fyrrnefndu tókst að hala inn 6 mörk á ríflega 9 mínútum með-
an gæftaleysið hrelldi sunnanmenn og aðeins eitt vesælt mark var
dregið um borð. Kapteinn Árni Stefánsson hefur marga fjöruna
sopið og oftlega migið í brimsaltan sjá. Tókst honum að berja veiði-
hug í mannskap sinn svo úr varð hin æsilegasta veiðiferð en Jó-
hannes KA-kapteinn Bjarnason er svo sannarlega af sjóuðu fólki
kominn og honum tókst að landa markinu er skildi skipin að í lokin;
uppskipuð mörk KA 26 á móti 25 hjá HK.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
MAGDEBURG vann auðveldan sigur á
Wetzlar, 32:20, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik og var með yfirburði all-
an tímann. Staðan var 18:7 í hálfleik. Ís-
lendingarnir hjá Magdeburg höfðu sig
ekki mikið í frammi, Ólafur Stefánsson
skoraði 2 mörk, annað úr vítakasti, og
Sigfús Sigurðsson komst ekki á blað.
Julian Róbert Duranona var hins-
vegar í aðalhlutverki hjá Wetzlar og
skoraði 8 mörk. Róbert Sighvatsson
skoraði ekki og Sigurður Bjarnason var
fjarri góðu gamni en hann leikur ekki
meira með liðinu í vetur vegna slitins
krossbands.
Guðjón Valur Sigurðsson og Patrek-
ur Jóhannesson skoruðu 6 mörk hvor
þegar Essen vann Eisenach á útivelli,
28:26, á laugardaginn. Þeir voru í aðal-
hlutverkum ásamt Úkraínumanninum
Oleg Velyky, sem skoraði 10 mörk, en
Guðjón Valur var drjúgur undir lok
leiksins þegar Essen knúði fram sig-
urinn.
Átta mörk frá
Duranona
dugðu skammt
Duranona
Morgunblaðið/Kristin
Gísli H. Jóhannsson vísar Valdimari Þórssyni, Framara, af leikvelli eftir gróft brot, Valdimar fagnar end
stigið tryggt en fyrir aftan þá liggur einn Aftureldingarmanna sár eftir átökin á síðustu sekúndum leiksins
VIÐUREIGN Aftureldingar og
Fram á Íslandsmóti karla í hand-
knattleik í gær fór fram í nýrra
íþróttahúsinu á Varmá. Er þetta í
fyrsta sinn sem Afturelding leikur
kappleik á Íslandsmótinu í nýja
íþróttahúsinu, en það var vígt
haustið 1998. Hingað til hefur verið
látið nægja að nýta gamla íþrótta-
húsið, sem vígt var haustið 1977,
undir leiki handknattleiksliðsins.
Ástæðan fyrir því að ekki hefur
verið leikið í salnum fyrr er sú að
áhorfendabekki hefur alveg vant-
að. Í haust var loks drifið í að kaupa
bekki öðrum megin í salinn. Voru
þeir settir upp í síðasta mánuði og
formlega vígðir við hátíðlega at-
höfn 25. janúar með kappleik eldri
og yngri handknattleiksmanna úr
Aftureldingu.
Fjögurra ára
bið á enda