Morgunblaðið - 03.03.2003, Blaðsíða 5
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 B 5
HEIÐAR Helguson skoraði sitt níunda mark fyrir Wat-
ford í ensku 1. deildinni á þessu tímabili þegar lið hans
gerði jafntefli, 1:1, við Nottingham Forest á heimavelli
á laugardaginn. Heiðar kom Watford yfir á 13. mínútu
leiksins, skoraði þá með hörkuskalla eftir góða fyr-
irgjöf frá hægri. Darren Huckerby jafnaði fyrir Forest
í síðari hálfleik og jafnteflið var sanngjarnt. Watford
náði því ekki að brúa bilið á milli liðanna og er því
áfram átta stigum á eftir Forest, og frá því að komast í
úrslitakeppnina um sæti í úrvalsdeildinni.
„Þetta var frábær fyrirgjöf, fullkomin fyrir leik-
mann á borð við Heiðar,“ sagði Ray Lewington, knatt-
spyrnustjóri Watford.
Með þessu marki er þetta nú þegar orðið besta tíma-
bil Heiðars í ensku knattspyrnunni en hann hefur skor-
að þessi 9 mörk í 25 deildaleikjum. Áður hafði hann
mest skorað 8 mörk, í 33 leikjum tímabilið 2000–2001.
„Fullkomin fyrirgjöf
fyrir leikmann
á borð við Heiðar“
Morgunblaðið/Einar Falur
Heiðar Helguson
skoraði gegn Nott-
ingham Forest.
STOKE City nýtti ekki gullið
tækifæri til að komast úr fall-
sæti í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardaginn.
Hin þrjú liðin í fallslagnum,
Grimsby, Brighton og Shef-
field Wednesday, töpuðu öll en
Stoke fór illa með góð mark-
tækifæri á heimavelli gegn
Burnley og beið lægri hlut,
0:1. Bjarni Guðjónsson var á
meðal þeirra sem voru nálægt
því að skora en hann og Brynj-
ar Björn Gunnarsson spiluðu
allan leikinn. Pétur Marteins-
son var ekki í leikmannahópn-
um.
Burnley skoraði ódýrt mark
eftir hornspyrnu snemma í
síðari hálfleik og síðan hélt
markvörður liðsins, Marlon
Beresford, því á floti með því
að verja hvað eftir annað á
glæsilegan hátt.
„Þetta eru mikil vonbrigði,
ekki síst vegna þess að við vor-
um með boltann 90 prósent af
leiknum en töpuðum á marki
upp úr engu,“ sagði Tony Pul-
is, knattspyrnustjóri Stoke.
Stoke er því áfram næst-
neðst, stigi á eftir Grimsby og
Brighton, og fær Ívar Ingi-
marsson og félaga í Brighton í
heimsókn á miðvikudaginn.
Ívar lék allan leikinn með
Brighton sem tapaði, 3:0, í
Gillingham.
Gullið færi for-
görðum hjá Stoke
FÓLK
LES Ferdinand skoraði sitt fyrsta
mark fyrir West Ham á laugardag, í
2:0 sigri á hinu gamla félagi hans,
Tottenham. Ferdinand harkaði af
sér þrátt fyrir slæman árekstur við
Dean Richards, varnarmann Tott-
enham, snemma í leiknum.
FERDINAND gæti verið með
brákað bein við augnbotninn. Glenn
Roeder, knattspyrnustjóri West
Ham, hrósaði honum mjög. „Það
kom ekki til greina hjá honum að
fara af velli, hann er harður af sér, og
það var mjög við hæfi að hann skyldi
skora þetta mark,“ sagði Roeder.
ALAN Curbishley hjá Charlton
var valinn knattspyrnustjóri mánað-
arins í ensku úrvalsdeildinni. Charlt-
on vann fimm leiki í röð í deildinni,
nokkuð sem félagið hefur aldrei áður
gert, og það er komið í baráttu um
Evrópusæti, þvert ofan í allar spár
fyrir tímabilið þar sem flestir bjugg-
ust við liðinu í fallbaráttu.
TIL að kóróna frábæran febr-
úarmánuð hjá Charlton lék Paul
Konchesky, miðjumaðurinn efnilegi,
sinn fyrsta A-landsleik fyrir Eng-
land og félagi hans, Scott Parker,
var einnig valinn í enska landsliðs-
hópinn.
ARSENE Wenger gerði sex breyt-
ingar á liði Arsenal eftir jafnteflis-
leikinn gegn Ajax í meistaradeild-
inni síðasta miðvikudag. Þeir
Patrick Vieira og Lauren tóku út
leikbann og Ashley Cole er meiddur.
Þá tók Wenger þá Sylvain Wiltord,
Gilberto Silva og Dennis Bergkamp
út úr liðinu.
FREDDIE Ljungberg var einn
þeirra sex sem komu inn í lið Arsen-
al gegn Charlton í gær en hann hef-
ur verið lengi frá vegna meiðsla.
KEVIN Keegan, stjóri Manchest-
er City, sagði að draumurinn um
Evrópusæti væri úr sögunni eftir tap
gegn Blackburn, 1:0, á laugardag-
inn. „Við erum bara ekki nógu góðir
til að komast í eitt sex efstu sætanna.
Við höfum aðeins fengið eitt stig af
síðustu 18 mögulegum og tapað tví-
sýnum leikjum á móti liðum sem eru
ekkert betri en við,“ sagði Keegan.
GORDON Strachan, stjóri South-
ampton, sagði eftir 1:0 sigurinn á
WBA á laugardaginn að James Beat-
tie væri maðurinn sem gerði útslagið
fyrir lið sitt, en hann gerði sitt 19.
mark á tímabilinu. „Hann er undir
álagi, þarf að skora í hverjum leik því
aðrir í liðinu hafa ekki komið honum
til hjálpar með því að skora líka. Án
hans værum við á sama stað og WBA
í deildinni,“ sagði Strachan.
HERMANN Hreiðarsson tók út
sinn þriðja leik í fjögurra leikja
banni þegar lið hans, Ipswich, vann
mikilvægan útisigur á nágrönnum
sínum í Norwich, 2:0, í 1. deildinni.
Ipswich flaug upp í áttunda sæti
með sigrinum og er nú aðeins stigi á
eftir Norwich sem er í sætinu fyrir
ofan.
Það voru þeir Francis Jeffers ogRobert Pires sem skoruðu
mörkin fyrir Arsenal í gær, bæði í
fyrri hálfleiknum. Arsenal var mun
sterkari aðilinn og hefði getað skor-
að fleiri mörk, en þó tóku leikmenn
liðsins lífinu með ró á löngum köfl-
um.
„Úrslitin skiptu mestu máli í dag,
ekki frammistaðan, þó ég telji að við
höfum sýnt ágætan leik. Við hefðum
vissulega getað skorað fleiri mörk
en það er ekki aðalatriðið að gera
4–5 mörk í leik. Stigin þrjú eru aðal-
atriðið. Það er sama hverjir mót-
herjarnir eru, sigurviljinn er alltaf
til staðar hjá okkur. Charlton spilar
ávallt vel á Highbury og við vorum
því mjög einbeittir. Staða okkar í
deildinni er góð en það er staðan í
lok tímabilsins sem hefur mest að
segja,“ sagði Thierry Henry, sókn-
armaður Arsenal, sem lagði upp
markið fyrir Pires í lok fyrri hálf-
leiks.
Ranieri ánægður með
Chelsea þrátt fyrir tap
„Fótbolti er skrýtin íþrótt,“ sagði
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, eftir ósigurinn gegn New-
castle, 2:1, á St. Jameś Park á laug-
ardaginn. „Ég er mjög ánægður með
leik okkar en ekki með úrslitin. Ef
við spilum áfram eins og í þessum
leik vinnum við okkur sæti í meist-
aradeildinni. Við lékum vel gegn liði
sem er á mikilli siglingu og áttum
fleiri markskot en mótherjarnir.
Liðið stóð sig virkilega vel, allar við-
ureignir Chelsea og Newcastle eru
góðir fótboltaleikir,“ sagði Ranieri.
Eiður Smári Guðjohnsen lék allan
leikinn í fremstu víglínu hjá Chelsea,
átti tvö hættulegustu markskot liðs-
ins í fyrri hálfleik og lagði upp góð
færi fyrir samherja sína. Félagi
hans, Jimmy Floyd Hasselbaink,
náði sér ekki eins vel á strik og kom
Newcastle með ótrúlegu sjálfsmarki
– skallaði boltann í eigið mark eftir
fyrirgjöf frá Nolberto Solano. Frank
Lampard jafnaði fljótlega en Olivier
Bernard skoraði sigurmark Chelsea
snemma í síðari hálfleik.
„Þetta var mikil prófraun fyrir
okkur, því Chelsea gerði okkur mjög
erfitt fyrir og er með firnasterkt lið.
Ég er hæstánægður með mína
menn, sem hafa lært af reynslunni
að það er ekki alltaf nauðsynlegt að
sækja þegar þeir eru með 2:1 for-
ystu. Þeir þurfa líka að læra að vinna
nauma sigra og stundum byggjast
þeir á góðum varnarleik,“ sagði
Bobby Robson, hinn sjötugi stjóri
Newcastle, sem brosti út að eyrum í
leikslok. Hann var sérlega ánægður
með varnarmanninn Jonathan
Woodgate sem lék sinn fyrsta leik
eftir skiptin frá Leeds. „Hann hafði
ekki spilað í sjö vikur, ekki einu sinni
varaliðsleik. Hann sýndi sína sterk-
ustu hlið, sem traustur og yfirveg-
aður varnarmaður.“
Góð byrjun hjá Juninho
Juninho lék sinn fyrsta leik á
tímabilinu með Middlesbrough en
Brasilíumaðurinn snjalli meiddist á
æfingu í ágúst, nýkominn til félags-
ins. Hann kom inná sem varamaður
gegn Everton, í upphafi síðari hálf-
leiks, og jafnaði metin, 1:1. Everton
komst upp fyrir Chelsea og í fjórða
sætið með þessu stigi.
Arsenal náði átta
stiga forystu
Reuters
Francis Jeffers, sem skoraði fyrra mark Arsenal í gær, reynir
hér skot að marki Charlton en Mark Fish er til varnar.
ARSENAL náði í gær átta stiga
forystu í ensku úrvalsdeildinni
með því að sigra Charlton nokk-
uð örugglega á Highbury, 2:0.
Arsenal hefur leikið einum leik
meira en Manchester United og
Newcastle sem nú eru jöfn að
stigum. Manchester United átti
frí í deildinni um helgina vegna
úrslitaleiks deildabikarsins í
gær en Newcastle vann
Chelsea, 2:1, í hörkuleik og
komst með því að hlið strák-
anna hans Alex Fergusons. Eftir
ósigur Chelsea er ljóst að það
eru aðeins tvö lið sem geta ógn-
að sigri Arsenal í deildinni á
lokasprettinum.
■ Úrslit / B11
Merson lagði upp fimm
PAUL Merson, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins,
lagði upp öll fimm mörk Portsmouth sem burstaði Millwall, 5:0, á
útivelli í ensku 1. deildinni á laugardaginn. Hann lék sér að miðju-
mönnum og varnarmönnum heimaliðsins og nú eru taldar miklar
líkur á að hinn 35 ára gamli Merson hætti við að hætta og spili með
Portsmouth í úrvalsdeildinni næsta vetur en liðið er næsta öruggt
með sæti þar. „Þetta var stórkostleg frammistaða hjá Paul sem var
einfaldlega í allt öðrum gæðaflokki en aðrir leikmenn á vellinum. Ég
sé enga ástæðu til þess að hann geti ekki spilað á fullu í úrvalsdeild-
inni. Hann þarf aðeins að halda einbeitingu og vera í góðu líkamlegu
ástandi,“ sagði Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth.
ÍTÖLSKU meistararnir í
Juventus náðu í gærkvöld
þriggja stiga forystu í 1.
deildinni þegar þeir unnu
uppgjör toppliðanna við Int-
er, 3:0, frammi fyrir tæplega
60 þúsund áhorfendum á
Delle Alpi leikvanginum í
Tórínó.
Argentínski miðjumað-
urinn Andres Guglielm-
inpietro sendi boltann í eigið
mark eftir aðeins fjögurra
mínútna leik. Tékkneski
sóknartengiliðurinn Pavel
Nedved, óumdeilanlega besti
maður vallarins í gærkvöld,
bætti við öðru marki fyrir
hlé með hörkuskoti af 25
metra færi. Það var einmitt
hann sem átti drýgstan þátt
í sjálfsmarkinu. Skömmu
fyrir leikslok innsiglaði hinn
efnilegi argentínski Ítali,
Mauro Camoranesi sigur
Juventus með því að skora
þriðja markið.
Inter hefur nú ekki tekist
að sigra á Delle Alpi und-
anfarin tíu ár og vonir liðs-
ins um að vinna meistaratit-
ilinn í fyrsta skipti í 14 ár
biðu nokkra hnekki við
þennan ósigur. Liðið hefur
hvað eftir annað gefið eftir í
baráttunni þegar mest hefur
á reynt.
Juventus
fór illa
með Inter