Morgunblaðið - 19.03.2003, Side 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
SKIPA
ÞJÓNUSTA
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
VOLVO er þekkt fyrir að setja þá fáu
hugmyndabíla sem fyrirtækið smíðar í
framleiðslu og þess vegna getur VCC
hugmyndabíllinn, sem sýndur er á
bílasýningunni í Genf, veitt okkur
mikla innsýn í framtíðina hjá Volvo.
Þannig hafa tveir nýlegir hug-
myndabílar Volvo verið settir í fram-
leiðslu á einn eða annan hátt. Volvo
ACC (Adventure Car Concept) var
t.a.m. grunnurinn að nýja XC90
sportjeppanum og PCC, (Performance
Concept Car II), var fyrirboði hins afl-
mikla V70R sem er nýkominn á mark-
að.
Fjölmargir aðdáendur Volvo hafa
því ástæðu til að staldra við þegar
Volvo kynnir VCC-hugmyndabílinn.
Hann er nefnilega grunnurinn að
næstu kynslóð S80 eða jafnvel nýjum
V90.
Nýr flokkur bíla?
VCC er æði sérstæður á margan
hátt. Í fyrsta lagi er hann stór, eða alls
4,90 metrar á lengd. Í annan stað er
erfitt að setja hann í flokk með öðrum
bílum. Þrátt fyrir stór hjól, 20" felgur,
er þetta ekki jeppi. Hann er ekki held-
ur venjulegur langbakur. Til þess er
hann of sérstæður. Það er t.a.m. eng-
inn b-biti á yfirbyggingunni og aftur-
hurðirnar opnast í öfuga átt við fram-
dyrnar. Fjölnotabíll er þetta heldur
ekki. Til þess er þakhæðin of lág. En
þó mætti einna helst flokka þennan bíl
sem fjölnotabíl því aftursætin eru á
sleðum og hægt að færa fram og til
baka.
Hugmyndabílar eru oft á tíðum
stútfullir af nýjum uppfinningum og
tækni og það er VCC líka. Innri hringur
stýrisins, sem venjulega hefur að
geyma flautuna og líknarbelginn, er
t.a.m. fastur og snýst ekki þegar stýr-
inu er snúið. Þetta hefur þann kost að
ýmsir stjórnrofar á stýrinu eru alltaf í
sömu stöðu þótt stýrinu sé snúið.
Auk þess er tryggt að líknarbelg-
urinn blæs alltaf út í sömu stefnu þótt
verið sé að taka beygju. Fyrir vikið er
hægt að hanna púðann á annan hátt í
þeim tilgangi að hann veiti hámarks-
vörn.
Hreint loft
Þakið á bílnum er í raun ein stór
sóllúga. Auk þess að veita mikilli birtu
inn í bílinn þjónar glerþakið þeim til-
gangi að framleiða orku með inn-
byggðum sólarrafhlöðum sem knýja
loftfrískunarkerfi bílsins. Áður en úti-
loftið sleppur inn í bílinn hreinsar kerf-
ið bæði kolvatnsefni og köfnunar-
efnisoxíð úr því.
VCC er líka með hugmyndavél.
Þetta er 2,6 lítra línusexa með beinni
strokkinnsprautun og forþjöppu og á
að skila í kringum 250 hestöflum. Í
framtíðinni vonast Volvo eftir að geta
tengt við þessa vél kúplingslausa
handskiptingu.
Spennandi
framtíðarsýn
Volvo
Afturhurðir opnast í öfuga átt.
Glerþak er á bílnum alsett sólarrafhlöðum.
VCC-hugmyndabíllinn er með 250 hestafla vél.
MEÐALALDUR íslenska
fólksbílaflotans hefur hækkað
og er nú 9,5 ár en var 8,8 ár í
árslok 2000. Meðalaldur fólks-
bíla í Evrópu er nálægt 7,5 ár.
Fjöldi bíla á skrá 13. mars síð-
astliðinn var 186.238 bílar, þar
af 164.029 fólksbílar, en í um-
ferð voru einungis 155.279
bílar, þar af 140.702 fólksbílar.
Þetta þýðir að um 30.000 bílar,
sem eru á skrá, eru ekki í notk-
un. Mörgum þeirra hefur verið
fargað án þess að hafa verið af-
skráðir en engu að síður er
ljóst að nýtt umhverfisgjald verður
lagt á alla bíla sem eru á skrá sem
eru yngri en fimmtán ára um mitt
þetta ár. Einnig þarf að gera grein
fyrir öllum bílum á skrá á skattfram-
töl. Ef miðað er eingöngu við fólks-
bíla í umferð var 1,76 bíll á hvern
íbúa landsins 13. mars sl.
Mun færri bílar
í notkun en á skrá
Fjöldi bíla er á skrá þótt ekki sé hann í umferð.
1,76 fólksbíll á hvern íbúa landsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HYUNDAI var ásamt Honda með
næstlægstu tíðni bilana í könnun
Consumer Reports, tímariti banda-
rísku neytendasamtakanna, á 25
mismunandi bílategundum. Toyota
var í efsta sæti. Þar með hefur þessi
suður-kóreski bílaframleiðandi
blandað sér í toppbaráttuna um
lægstu bilanatíðnina, sem þykir at-
hyglivert í ljós þess að fyrir 10 árum
var Hyundai meðal þeirra slökustu.
Langbesti árangur Hyundai
Hyundai deildi öðru sætinu með
Honda, þar sem báðir framleiðendur
voru með 11 bilanir á hverja 100 bíla.
Þetta er langbesti árangur Hyundai
til þessa, sem varð í 12. sæti í síðustu
könnun með 24 bilanir. Í fyrsta sæti
var Toyota með 10 bilanir á hverja
100 bíla og í því þriðja varð Subaru
með 13. Könnunin náði til bíla af 2002
árgerð og reyndist meðalbilanatíðn-
in vera 18 á hverja 100 bíla. Þetta
meðaltal hefur lækkað úr 21 bilun á
milli ára, sem er í samræmi við þá
þróun að bilanatíðnin hefur þegar á
heildina er litið verið að lækka jafnt
og þétt með hverri nýrri árgerð.
Kostnaðar vegna ábyrgða snarlækkað
Að sögn Davids Champion, eins
ritstjóra Consumer Reports, eru
umskipti Hyundai ein þau mesti sem
um getur í þau 50 ár sem blaðið hefur
kannað bilanatíðni bíla. Sókn fram-
leiðandans hafi jafnframt verið sér-
staklega hröð á síðustu þremur árum
eða svo. Að sögn Atla Viðars Krist-
inssonar, ábyrgðarstjóra hjá B&L,
umboðsaðila Hyundai á Íslandi,
koma þessar niðurstöður ekki á
óvart. Ábyrgðir vegna bilana í
Hyundai-bílum hafi dregist verulega
saman hjá B&L, sér í lagi á undan-
förnum tveimur til þremur árum.
Telur Atli Viðar að þar sé um veru-
lega fækkun að ræða eða allt að 40 til
50% eftir tegundum. Aðrir umboðs-
aðilar hafi svipaða sögu að segja,
m.a. í Bandaríkjunum þar sem
kostnaður vegna ábyrgðartjóns hafi
lækkað um allt að 50%.
Ford og Benz slakastir
Niðurstöður Consumer Reports
eru unnar upp úr 480.000 svörum frá
áskrifendum blaðsins við könnun
sem það sendir út árlega. Mikið er
jafnan um þær fjallað í bandarískum
fjölmiðlum og bar t.d. Wall Street
Journal lof á Hyundai og General
Motors, sem einnig hefur bætt
frammistöðu sína töluvert. Verstu
útreiðina fengu að mati blaðsins
Ford, sem hefur ekki fengið verri
niðurstöður frá árinu 1997, og
Mercedes-Benz, lúxuslína Daiml-
erChrysler samsteypunnar. Það má,
að sögn Don Dees, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra gæðasviðs Chrysler
Group, e.t.v. rekja til þess að Benz-
eigendur átti sig enn ekki til fulls á
nýrri hátækni bílanna, og telji því
um bilanir að ræða, þótt ekkert ami
að.
Hyundai
í toppslaginn