Morgunblaðið - 24.03.2003, Qupperneq 8
ÍÞRÓTTIR
8 B MÁNUDAGUR 24. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SAN Antonio Spurs náðu að
leggja Los Angeles Lakers að
velli í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik í gærkvöld, 98:89, og var
þetta í fjórða sinn á leiktíðinni
sem Spurs vinnur meistaralið
þriggja síðustu ára. Spurs hefur
ekki afrekað slíkt frá því á
keppnistímabilinu 1993-1994.
Shaquille ÓNeal skoraði 32 stig
og tók 12 fráköst auk þess sem
hann varði 6 skot en það dugði
ekki til gegn Tim Duncan sem
skoraði 27 stig í leiknum.
San Antonio andar hressilega í
hálsmálið á Dallas Mavericks í
harðri keppni á vesturströndinni.
Spurs með
tak á Lakers
TIGER Woods sigraði með yfir-
burðum á Bay Hill-golfmótinu sem
lauk í Bandaríkjunum í gær. Woods
var ellefu höggum á undan næsta
manni og er þetta fjórða árið í röð
sem hann sigrar á þessu móti.
Aðeins þrír leikmenn hafa afrek-
að slíkt á bandarísku mótaröðinni.
Gene Sarazen vann opna-Miami
mótið fjórum sinnum, fyrst árið
1930 og Walter Hagan vann PGA-
meistaramótið 1924–1927.
Woods lék lokahringinn á fjórum
höggum undir pari, 68 höggum, og
lauk leik á 19 höggum undir pari.
Woods átti við matareitrun að etja á
lokadeginum og þurfti að bregða
sér frá annað slagið á lokasprett-
inum. Hann fór sér mun hægar í
leik sínum en vanalega og fylgdust
sjónvarpsvélar með hverri hreyf-
ingu hans - þar sem heilsufar kapp-
ans var orðið aðalatriðið.
„Ég lék mun betur en ég þorði að
vona þar sem ég kastaði upp í tví-
gang á lokasprettinum,“ sagði
Woods sem hefur unnið 37 atvinnu-
mannamót á ferli sínum og af síð-
ustu fjórum mótum á þessu ári
hefur hann unnið þrjú.
Woods með yfir-
burði á Bay-Hill
Sigurður játti því að liðin værubúin að kortleggja hvort annað
vel fyrir átökin. „Við getum orðað
það svo að við þekkjum Njarðvík-
urliðið ansi vel og þeir vita líka hvað
við erum að gera. Það var gaman að
fylgjast með Keflavíkurliðinu í dag
þar sem allir voru að leggja sitt af
mörkum. Allir sem tóku þátt í leikn-
um gerðu það af mikilli ákefð og
sýndu baráttuanda sem þarf við
slíkar aðstæður.
Menn ættu að varast að tala um
hver sé okkar veikleiki,“ sagði þjálf-
arinn og vitnaði þá í yfirburði liðsins
í fráköstum í þessum leik. „Við er-
um samt sem áður aðeins búnir að
vinna einn leik og getum ekki yljað
okkur við þessi úrslit lengi. Menn
eru ekki farnir á flug þótt að vel
hefði tekist til að þessu sinni. En
samt sem áður getum við bætt enn
við okkar leik og við notum tímann á
milli leikjanna til þess að skoða hvað
má betur fara í okkar leik,“ sagði
Sigurður. Damon Johnson fór mik-
inn í þriðja leikhluta hjá Keflvík-
ingum og virtist geta skorað að vild.
Damon sagði Keflavíkurliðið vera á
réttri leið. „Svona vil ég að liðið leiki
og þetta var beint framhald frá því
að við kláruðum dæmið gegn ÍR í
átta liða úrslitunum. Allir leikmenn
liðsins eru með sjálfstraust til þess
að taka af skarið þegar á þarf að
halda og ég nýt þess að sjá hve liðið
hefur vaxið að undanförnu. Vörnin
var frábær hjá okkur að þessu sinni
og makmiðið er að tapa ekki leik í
þessari rimmu,“ sagði Damon en
taldi litlar líkur á því að munurinn
yrði mikill á liðunum í næstu leikj-
um. „Það er stutt í næsta leik og við
vitum að Njarðvíkingar vilja sýna
sitt rétta andlit á heimavelli – en ég
tel að við séum búnir að slípa okkur
vel saman og séum illviðráðanleg-
ir,“ bætti Johnson við.
„Lékum
mjög góða
vörn“
Tindastólsmenn komu velstemmdir til leiks og áttu heima-
menn erfitt með að trúa sínum eigin
augum – staðan eftir
aðeins rúmar þrjár
mínútur var, 2:12 og
eftir fyrsta leikhluta
voru gestirnir með
afgerandi forustu, 21:10. Það var far-
ið að fara um heimamenn á áhorf-
endapöllunum, þegar tæplega tvær
mín. voru til leikhlés – tölurnar á
stigaklukkunni sýndu 25:41. Það var
þá sem heimamenn fundu taktinn og
settu tólf stig í röð án þess að gest-
irnir gætu svarað fyrir sig, 37:41.
Fyrstu fimm stigin í seinni hálfleik
voru heimamanna, sem komust í
fyrsta sinn yfir í leiknum 42:41.
Tindastólsmenn voru ekki á því að
gefa neitt eftir og voru með yfirhönd-
ina eftir þiðja leikhlutann. Þeir héldu
síðan áfram á sinni braut lungann af
fjórða leikhluta og voru líklegir til að
landa óvæntum útisigri.
Þegar fjórar og hálf mínúta eru til
loka leiks taka heimamenn leikhlé í
stöðunni 74:65 fyrir Tindastól. Gest-
irnir skora næstu tvö stig en síðan
koma nokkur stig í röð hjá heima-
mönnum sem ná að minnka muninn í
fimm stig 76:71.
Það var þá sem kom að þætti Guð-
laugs Eyjólfssonar – hann skorar tólf
stig fyrir heimamenn frá þeirri
stundu til loka leiks og tryggði heima-
mönnum sigur. Síðustu tvær mínút-
urnar eins og í fyrri hálfleik voru
heimamenn með stórleik og það
dugði til sigurs í þetta sinn 87:80.
Sennilega voru gestirnir betri í 35
mínútur en fimm mínútur voru nóg
fyrir heimamenn í þetta skiptið.
„Þetta er búið að vera oft svona hjá
okkur í vetur. Við byrjuðum mjög
seint í dag og þetta er ekki gott. Við
höfum verið að spila svona í bylgjum,
skorum tíu stig í röð en dettum niður
á milli. Nú er það útivöllurinn og hann
er ótrúlega erfiður. Það var lykilatriði
fyrir okkur að fara norður með sigur í
farteskinu,“ sagði Guðlaugur, besti
leikmaður Grindvíkinga.
„Það verður ekki tekið af Tinda-
stólsmönnum að þeir voru afslappað-
ir, spiluðu góða vörn og sóknarleik.
Þeir náðu að nýta sér hvað við vorum
æstir í byrjun. Það hlýtur að vera
mjög svekkjandi fyrir þá að tapa
þessum leik því við stálum sigrinum í
blálokin. Þetta er styrkur fyrir okkur
að klára svona leiki. Vandamálið var
að við náðum ekki að stoppa þá tvisv-
ar sinnum í röð nema undir leik leiks-
ins. Guðlaugur átti sviðið í lokasen-
unni,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson,
þjálfari Grindvíkinga.
Þjálfari Tindastólsmanna, Kristinn
Friðriksson, var ekki jafnkátur í lok
leiks. „Þetta gekk ekki, þeir vildu
vinna en við ekki. Við vorum betra lið-
ið í leiknum, komum tilbúnir til leiks
en náðum ekki að klára. Við breytum
einu í næsta leik og það er niðurstöð-
unni.“
Bestir í liði gestanna voru þeir
Clifton Cook og Axel Kárason.
Michail Andropov var einnig drjúgur.
Hjá heimamönnum áttu þeir Helgi
Jónas Guðfinnsson og Guðlaugur
Eyjólfsson fína spretti.
Morgunblaðið/Sverrir
Friðrik Ragnarsson þjálfari Njarðvíkinga hafði ekki ástæðu til þess að gleðj-
ast í gær þar sem lærisveinar hans féllu á prófinu gegn grannaliðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Landsliðsmaðurinn Friðrik Stefánsson, Njarðvík,
treður með tilþrifum en það dugði ekki til.
Guðlaugur
átti stórleik
í Grindavík
GRINDVÍKINGAR fögnuðu sigri í fyrstu viðureign sinni við leikmenn
Tindastóls í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitlinn í körfuknatt-
leik, 87:80. Heimamenn spiluðu illa lengstum, en stórleikur Guð-
laugs Eyjólfssonar í blálokin var nægjanlegur til að landa sigri.
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
VIÐ lékum mjög góða vörn að þessu sinni og beittum varnaraf-
brigðum sem við höfum ekki notað mikið í vetur,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir að lið hans hafði tekið Ís-
landsmeistaralið Njarðvíkur í kennslustund í fyrstu rimmu liðanna í
undanúrslitum Íslandsmótsins, 108:64.