Morgunblaðið - 07.04.2003, Síða 1
2003 MÁNUDAGUR 7. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞRÓTTUR MEISTARI Í BLAKI FJÓRÐA ÁRIÐ Í RÖÐ / B12
Morgunblaðið/Golli
Broddi Kristjánsson bætti enn einum Íslandsmeistaratitli í safn sitt í gær og eru titlarnir nú alls 41 á 25 ára ferli hans í íþróttinni.
BRODDI Kristjánsson landaði enn
einum Íslandsmeistaratitli sínum í
badminton er hann sigraði í tvíliða-
leik ásamt Helga Jóhannessyni.
Þeir félagar eru í TBR og lögðu
þeir Svein Sölvason og Tryggva
Nielsen 15/7, 10/15, 15/3. Sveinn
og Tryggvi áttu titil að verja en sáu
á eftir honum í hendur Brodda og
Helga.
Broddi sem jafnframt er lands-
liðsþjálfari sagði að mótið hefði
verið jafnt og spennandi. „Ég er
löngu hættur að telja hve oft ég hef
fagnað Íslandsmeistaratitli en því
var hvíslað að mér að þessi titill
væri númer 41 og að ég hefði unnið
tvíliðaleikinn í 18 skipti,“ sagði
Broddi og var ekki viss um hvort
hann myndi mæta til leiks á næsta
ári. „Maður veit aldrei og ég hef
verið spurður svo oft að þessu und-
anfarin ár að það er best að segja
sem minnst,“ sagði Broddi sem
verður 43 ára gamall seint á þessu
ári. Þess má geta að Broddi ákvað
að verja ekki titil sinn í einliða-
leiknum sem hann landaði fyrir ári.
„Ég fer kannski út að borða í tilefni
dagsins,“ sagði Broddi sem tók þátt
í fyrsta Íslandsmóti sínu árið 1978.
„Ég man vel eftir þeim leik þar
sem ég tapaði gegn Herði Ragn-
arssyni frá Akranesi og líkast til
hefur það hert mig í framhaldinu,“
bætti Broddi við en þess má geta að
dóttir Harðar er Drífa sem lét mik-
ið að sér kveða á Íslandsmótinu.
„Er hættur að telja“
Árni var nýkominnheim frá Stavanger
en þar þreyttu norsku
meistararnir lokapróf sitt
fyrir deildakeppnina sem
hefst um næstu helgi og
sigruðu Viking, 5:0. Árni
Gautur sat sem fastast á
bekknum og sá Espen
Johnsen standa sig ágæt-
lega á milli stanganna
hjá Rosenborg sem á í
höggi við Vålerenga í
fyrstu umferðinni næstkomandi
laugardag.
„Það er lítið sem ég gert gert
nema að reyna að vinna mig inn í
liðið sem allra fyrst,“ sagði Árni
Gautur en eins og fram hefur kom-
ið er líklegt að hann yfirgefi Rosen-
borg á þessu ári en Árni
hefur ekki viljað skrifa
undir nýjan samning við
liðið. „Það er verið að
vinna í því að ég rói á
önnur mið og vonandi
kemur eitthvað spenn-
andi upp á borðið í sum-
ar. Mig langar að reyna
fyrir mér annars staðar
og umboðsmaður minn
er með allar klær úti og
er að þreifa fyrir sér um
hvaða félög eru að leita að mark-
vörðum.“
Árni Gautur hefur orðið meistari
með Rosenborg síðustu fimm árin
og undanfarin þrjú tímabil hefur
hann verið einn albesti leikmaður
liðsins.
Árni Gautur
úti í kuldanum
„ÞAÐ lítur allt út fyrir það að ég sitji á tréverkinu og það verði mitt
nýja hlutskipti hjá liðinu í upphafi mótsins,“ sagði landsliðs-
markvörðurinn Árni Gautur Arason hjá Rosenborg í samtali við
Morgunblaðið í gær.
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
MARGRÉT Ólafsdóttir, fyrrum
fyrirliði Breiðabliks, hafnaði tilboði
frá norska úrvalsdeildarliðinu Kol-
botn á dögunum en eins og Morg-
unblaðið greindi frá í síðustu viku
þá gerði KR-ingurinn Ásthildur
Helgadóttir slíkt hið sama.
Margrét var reyndar með fleiri
tilboð uppi á borðinu því kínverska
liðið Bejing sóttist eftir kröftum
hennar en Margrét svaraði tilboð-
inu neitandi en hún ákvað í vetur
að leggja knattspyrnuskóna á hill-
una.
Margrét hafnaði boði frá Kína