Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 4
4 B FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ NFRÉTTIR MIÐAÐ við þróunina er ekki óvar- legt að áætla að við færum að út- skrifa um 500 manns úr grunnnámi í viðskiptagreinum ári,“ segir Agnar Hansson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann telur að í kjölfar fjölgunar viðskiptafræð- inga verði mikilvægt fyrir íslenskt menntakerfi að bjóða upp á fjöl- breytt framhaldsnám við hæfi. Síðastliðið haust voru um 2.700 manns skráðir í nám í viðskiptafræði eða tengdum greinum hér á landi. Ætla má að talan sé nálægt 3.000 ef þeir sem nema erlendis eru teknir með. Agnar segir að um 4.000 manns í landinu séu með viðskiptatengda menntun. Hann segist telja líklegt að í vor útskrifist á fjórða hundrað manns úr viðskiptanámi en að talan verði nær 500 áður en langt um líður. „Við þurfum að búa okkur undir þessa þróun. Ég geri ráð fyrir að Há- skólinn í Reykjavík þurfi að geta tek- ið við 100–150 nemendum í meistara- nám í viðskiptafræði árlega þegar maður horfir á 3–5 ár fram í tímann. Við erum að fjölga leiðum í fram- haldsnámi og ég er í engum vafa um að það sama er að gerast í Háskóla Íslands. Ef við segjum að af þessum 500 manns fari 300 í framhaldsnám þá er líklegt að um 100 þeirra fari til útlanda. Eftir standa um 200 ein- staklingar, bara úr hópi þeirra sem eru með grunnmenntun í viðskipta- fræði og vilja halda áfram í námi. Það er óhemju mikilvægt að stjórnvöld og háskólarnir séu sam- taka í að gera það mögulegt fyrir þetta fólk að hafa alvöru valkosti. Það eru ekki alvöru valkostur að bjóða upp á einn skóla.“ Hættum að slást Samkvæmt tölum um fjölda nem- enda í viðskiptanámi á þessu skóla- ári varð mest fjölgun í framhalds- nám. Agnar segir að þeir sem sæki í framhaldsnám í viðskiptum séu úr öllum stéttum og hafi ekki endilega viðskiptamenntun að baki. „Ég myndi telja líklegt að ef við höfum 200 manns með menntum í viðskiptafræði sem vilja fara í fram- haldsnám hér á landi þá séu 100 til viðbótar með annars konar menntun sem myndu vilja fara í framhalds- nám í viðskiptafræðum. Við þurfum að setja kraftana í þennan undirbúning frekar en að eyða þeim í áð slást við hvort annað. Ég er sannfærður um að með því að halda áfram að fókusera á menntun og styrkja betur tengslin milli menntastofnana, atvinnulífsins og stjórnvalda þá náum við árangri. Þetta er komið langt út fyrir það að vera málefnalegt þegar rektor Háskóla Íslands mætir í mennta- málaráðuneytið með drög að frum- varpi sem á að skilgreina HÍ sem eina rannsóknarháskólinn á Íslandi. Þetta er bara eins og að segja að Innkaupastofnun ríkisins eigi að vera eini innflytjandinn í landinu.“ BS-gráðan stendur fyrir sínu Spurður að því hvort hann telji að BS-gráða í viðskiptafræði hafi minna gildi nú en áður segist hann ekki telja svo vera. Hins vegar sé hún alls engin ávísun á æðstu stöður. „Auð- vitað munu verða einstaklingar sem ná langt þó þeir hafi enga menntun. Ég held að viðskiptafræðimenntun sé mjög góð menntun vegna þess að hún er svo breið. BS-gráða í við- skiptafræði stendur alltaf fyrir sínu en afleiðingin af aukinni ásókn í framhaldsnám verður hins vegar sú að þrýstingur verður meiri. Hún mun líklega ekki gilda áfram sem gjaldmiðill í æðstu stjórnunarstöð- ur.“ Að mati Agnars er íslenskt at- vinnulíf að verða móttækilegra fyrir mikilvægi menntunar en áður. „Það hefur í gegnum tíðina verið mikil fjölskyldupólitík í fyrirtækjum á Ís- landi. Menn fá stöður út á það hverj- ir þeir eru en ekki út á hvað þeir geta. Þetta er að breytast. Áður voru kannski tveir háskólamenntaðir menn hjá hverju fyrirtæki. Nú erum við komin með miklu menntaðri yf- irmenn en áður var og það fólk vill hafa menntað fólk með sér í liði.“ Hann segir þó vert að velta því fyrir sér hvort eftirspurn sé til stað- ar eftir öllu þessu viðskiptamennt- aða fólki og skoða hvaða áhrif þessi mikla ásókn í viðskiptanám hefur á fyrirtækin í landinu. „Við þurfum að velta því fyrir okkur hvaða áhrif þessi þróun mun hafa á það starfs- fólk sem fyrir er í fyrirtækjunum.“ Lágt hlutfall Háskólamenntað fólk á Íslandi er rúmlega 17,5% af vinnumarkaðnum. Agnar segir það hlutfall vera 4% undir meðaltali á Norðurlöndum. „Í Danmörku er þessi tala 18,5% og á hinum Norðurlöndunum er hún vel yfir 20%. Í Finnlandi eru til dæmis 24,5% fólks á vinnumarkaði með há- skólapróf. Til að ná meðaltali Norð- urlandanna vantar í raun 12.000 ein- staklinga í hóp háskólamenntaðra.“ Í frumkvöðlaskýrslu sem kynnt var á dögunum kom í ljós að þátttaka í stofnun nýrra fyrirtækja er hæst á Íslandi meðal allra Vestur- Evrópu- landa. „Árangurinn sem við erum að ná út úr fyrirtækjunum er ekkert sérstakur. Ef menntunarstigið væri hærra og þessi frumkvöðlaandi væri til staðar væri líklegra að við gætum gert meira en nú. Menn geta til dæmis hugsað sér hver staðan væri ef við hefðum 10 þúsund verk- og tæknifræðinga til viðbótar og 10% af þeim væru frumkvöðlar. Við eigum að gera allt sem við getum til að fá atvinnulífið og stjórnvöld til að taka meiri þátt í uppbyggingu menntunar,“ segir Agnar. Skólar fyrir sjálfa sig? Agnar segir stuðningi við frum- kvöðlastarfsemi verulega ábótavant hér á landi. Háskólinn í Reykjavík hefur lagt áherslu á frumkvöðla- kennslu en Agnar telur að kenna þurfi frumkvöðlafræði á fleiri skóla- stigum. „Ef við styðjum við frum- kvöðlastarfsemi mun það leiða til þess að einhverjir frumkvöðlanna muni ramba inn á þá leið sem kemur til með að hafa verulega áhrif á það hvernig framleiðsla okkar er saman- sett. Menntun til að undirbúa fólk til að takast á við fyrirtækjarekstur er í algjöru lágmarki hérlendis. Skiln- ingur á því í skólakerfinu er varla til staðar.“ Háskólinn í Reykjavík leggur mikla áherslu á tengsl við atvinnu- lífið, að sögn Agnars. „Ef þú skoðar annars vegar bandaríska háskóla og hins vegar evrópska háskóla þá sést gjörólíkt umhverfi. Bandarískir há- skólar eru margir afar virkir í um- hverfinu í kringum sig. Öll þessi tækniþróun og nýsköpun sem á sér stað er beintengd inn í háskólana. Stundum veltir maður því fyrir sér hvort þessir gamalgrónu skólar í Evrópu eru til fyrir sig eða fyrir þjóðfélagið. Ástæðan fyrir því að bandaríska skólakerfið hefur geyst fram úr öðr- um er kannski sú að það hefur skilið betur tilgang sinn í þjóðfélaginu. Það er sama hvaða mælikvarði er notað- ur, Bandaríkjamenn hafa tekið af- gerandi forystu í þessum efnum. Þar eru stærstu og virtustu skólarnir. Við sjáum það í löndunum í kringum okkur að háskólarnir hafa verið að loka sig inn í fílabeinsturni.“ Munaðarlaust fjármagn Í frumkvöðlaskýrslunni sem nýlega var kynnt í Háskólanum í Reykjavík var sérstaklega vikið að fjármögnun nýsköpunar- og frumkvöðlaverk- efna. „Fjármagnið sem kemur inn í frumkvöðlastarfsemi á Íslandi kem- ur að stærstum hluta frá vinum og vandamönnum, ef þannig má að orði komast, en ekki frá skipulögðum fjárfestingarsjóðum. Okkur þykir líklegt, án þess að við höfum beinlín- is upplýsingar um það, að stór hluti af þessu fjármagni komi frá yfir- dráttarheimildum í bönkum. Slíkar heimildir eru auðvitað ekki hannaðar til þess að styðja við frumkvöðla- starfsemi og þar með er engin þjón- usta veitt í kringum þær til að styðja við bakið á frumkvöðlunum.“ Agnar segir það ekki endilega slæmt að fólk skuli ná sér í fé til stofnunar fyrirtækja með þessum hætti en stuðninginn á bak við fjár- magnið vanti. „Bankarnir hafa sumir hverjir sagt að þeir séu ekki í ný- sköpunarstarfsemi. En tölurnar sem við sjáum benda til annars. Það eru í rauninni viðskiptabankarnir sem eru að fjármagna þetta, án þess að bjóða upp á neina þjónustu. Þetta er vandamál sem frumkvöðlastarfsemi á Íslandi stendur frammi fyrir. Stærstur hluti af fjármagninu er nokkurs konar munaðarlaust fjár- magn. Það fylgja því engin foreldra- ráð.“ Einn skóli er ekki nóg Líklegt er að 500 manns útskrifist úr grunn- námi í viðskiptatengdu námi árlega áður en langt um líður. Að mati Agnars Hanssonar, forseta viðskiptadeildar Háskólans í Reykja- vík, þarf íslenskt menntakerfi að taka sig á til að geta brugðist við þessum fjölda. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Fjármagnið sem kemur inn í frumkvöðlastarfsemi á Íslandi kemur að stærstum hluta frá vinum og vandamönnum, en ekki frá skipulögðum fjárfestingarsjóðum. Það fylgja því engin foreldraráð,“ segir Agnar. ÍSLENSKA skókeðjan ASTA sem er í eigu Noris Gruppen A/S er stærsti söluaðili fyrir Diesel-skó í Noregi. ASTA hefur verið valin í hóp fimm fyrirtækja til að taka þátt í markaðsherferð sem Oslo City, stærsta verslunarmiðstöð Óslóborg- ar, stendur fyrir. Auk ASTA munu Vera Moda, Selected, Marlboro Classic og Voice of Europe taka þátt í herferðinni. Verðmæti herferðarinnar, sem standa mun í mánuð, er um 30 millj- ónir íslenskra króna. Auglýst verður í dagblöðum, strætisvagnaskýlum og sporvögnum. Skóverslanir ASTA eru sjö talsins, fimm í Ósló og tvær í Stavangri. Noris gruppen A/S er alfarið í eigu Íslend- inga. Fyrirtækið var stofnað árið 2001 af þeim Gunnari Birni Gunnarssyni og Sigurði Róbertssyni. Að sögn Sverris Rafnssonar, sem nýverið bættist í hóp eigenda, er verið að auka hlutafé fyrirtækisins um þessar mundir og vinna að frekari stækkun þess. Sverrir segist telja lík- legt að fyrirtækið opni verslun í Sví- þjóð eftir um það bil ár. Eftir það sé ætlunin að opna verslanir í Þýska- landi og í Danmörku. Hann segir ekki standa til að opna skóverslun undir merkjum ASTA á Íslandi. Stefnt er að opnun fjögurra versl- ana til viðbótar í Ósló í Noregi á þessu ári áður en útrás hefst til annarra landa. ASTA-skóverslanirnar í Noregi verða orðnar ellefu áður en árið er liðið. Íslensk skókeðja stærsti seljandi Diesel í Noregi ASTA-skókeðjan valin í 30 milljóna markaðsherferð í Ósló LÁNSTRAUST hf. hyggst á næstunni taka í gagnið nýtt upplýs- ingakerfi sem ætlað er að gefa fyr- irtækjum kost á að nálgast áður óað- gengilegar upplýsingar um skilvísi viðskiptamanna. Í tilkynningu frá Lánstrausti segir að með nýja kerf- inu, sem hlotið hefur nafnið Greiðsluhegðunarkerfi Lánstrausts hf., geti fyrirtæki aukið öryggi í við- skiptum með betri áhættuflokkun viðskiptamanna, bættu sjóðstreymi og náð fram sparnaði við innheimtu. Fyrstu samningar við fyrirtæki um þátttöku í Greiðsluhegðunarkefinu voru undirritaðir 7. apríl síðastlið- inn. Greiðsluhegðunarkerfi Láns- traust er að miklu leyti hannað að erlendri fyrirmynd. Segir í tilkynn- ingu Lánstrausts að kerfi sem þessi hafi verið til um þónokkurt skeið í helstu viðskiptalöndum Íslands. Persónuvernd gaf skilyrt leyfi fyrir starfrækslu kerfisins síðastlið- ið haust. Styrmir Guðmundsson, ráðgjafi hjá Lánstrausti, segir að kerfið safni saman upplýsingum um greiðslu- hegðun lögaðila hjá þeim fyrirtækj- um sem í kerfinu eru og miðlar þeim síðan til þessara sömu fyrirtækja. „Þannig fá þátttakendur endur- gjaldslausan aðgang að sambæri- legum upplýsingum frá öðrum þátt- takendum innan kerfisins, en vert er að taka fram að einungis er um að ræða upplýsingar um greiddar kröf- ur, ekki vanskil, segir Styrmir. Hann segir að kerfið veiti fyrir- tækjum aðgang að upplýsingum um skilvísi viðskiptamanna, bæði þeirra sem séu þegar í viðskiptum og nýrra viðskiptamanna. Greiðsluhegðun fyrirtækis sé sýnd með samanburði við sambærileg fyrirtæki. Einnig sé stuðst við upplýsingar frá mismun- andi tímabilum svo að hægt sé að meta hvort greiðslugeta viðkomandi fyrirtækis fari batnandi eða versn- andi. Þá segir Styrmir að þátttak- endur geti séð hvort innheimta þeirra sé hugsanlega lakari en ann- arra þátttakenda og hvort viðskipta- vinir þeirra greiði öðrum fyrirtækj- um hugsanlega fyrr eða síðar. Nýtt upplýsingakerfi hjá Lánstrausti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.