Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 6

Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 6
G ömul hús hafa sál, ef marka má umsagnir ým- issa sem næmir eru taldir. Vegna þess og einnig af byggingarfræðilegum áhuga hafa margir tekið þann kost að gera upp gömul hús, bæði til að búa í árið um kring og eins til þess að nota sem sumarhús. Guðmundur Hannesson er í þessum hópi, hann er um þessar mundir að gera upp gamalt hús á Eyrarbakka ásamt Eyjólfi Pálssyni mági sín- um með aðstoð smiðsins Jóns Karls Ragnarssonar. „Húsið sem um ræðir er frá 1898, en þegar við keyptum húsið 1997 var það talið vera byggt 1902,“ segir Guðmundur. „Þetta er timburhús, báru- járnsklætt með Mansard-þaki og er í heild um 120 fermetrar, hæð og ris og viðbygging, skúr sem er áfastur við endann á húsinu.“ Í hvernig ástandi var húsið þegar þið keyptuð það? „Það var bárujárnsklætt að hluta en svo var forskalað að utan að hluta á bárujárninu, sem var hið versta mál, því sá hluti sem forskalaður var hafði ekki náð að „anda“. Það er mjög slæmt ef steypt er upp á járnið því þá nær loftið ekkert að leika um þannig að viðurinn undir fúnar.“ Og hvað gerðuð þið? „Við rifum allt utan af þessu og það var skipt um grind í öllu húsinu. Þetta var gert á ná- kvæmlega sama hátt og gert var í gamla daga, allt timbrið var tappað saman.“ Trúir upphaflegri mynd hússins Kunnuð þið þetta? „Við höfðum góðan smið með okkur, Jón Karl, hann er vanur að gera upp gömul hús og kunni þetta alveg. Hann ger- ir ekkert nema eins og hlutirnir eiga að vera.“ Hafið þið þá verið mjög trúir upphaflegri mynd hússins? „Já, núverandi mynd þess er alveg eins og hún var í upp- hafi.“ Hvenær var skúrinn byggður? „Um það eru skiptar skoð- anir, sumir segja að hann sé frá svipuðum tíma og húsið sjálft. Í bók sem við höfum undir höndum segir að viðbygg- ingarnar séu báðar mjög gaml- ar, ef ekki frá sama tíma og húsið sjálft.“ (Eyrarbakki, húsa- könnun, útg. af Þjóðminjasafni 1989.) Hvernig gekk ykkur að fá efnivið af sama toga og hinn upphaflegi? „Það gekk nú bara vel. Við tókum mest af efninu úr Húsa- smiðjunni. Þetta var ófúavarið timbur eins og var í gamla daga, mest fura. Timbrið er ekkert fúavarið fremur en var áður fyrr.“ Hvað með glugga? „Þeir eru allir nýir en smíð- aðir eins og þeir voru. Reyndar er tvöfalt gler, sem var ekki, en allt er kíttað með línóleumkítti eins og var notað þá. Við urð- um að hafa glerið tvöfalt en það sést ekki að svo sé, það er þannig gert.“ Ekki sama hvernig bárujárn er notað Hvar fenguð þið járnið? „Við fengum járn utan á hús- ið í Blikksmiðju Gylfa. Það er ekki sama heldur hvaða báru- járn er notað. Bárujárnið utan á þessu húsi er eins og bárujárn- ið sem notað var áður, bylgj- urnar voru stærri, ef svo má segja, en er á því járni sem nú er algengast.“ En málningin? „Það er ekki búið að mála, járnið verður að standa og veðrast til þess að losna við feiti sem er á því enn.“ Hvað með húsið innan- stokks? „Við erum ekkert byrjaðir á þeim framkvæmdum enn, hins vegar er ætlunin að hafa hús- ið að innan eins og það var. Það þurfti að teikna allt húsið upp að utan sem innan og leggja teikningarnar fyrir húsa- friðunarnefnd og byggingar- nefnd á Selfossi. Stefán Örn Stefánsson arkitekt mældi upp og teiknaði húsið. Húsið telst friðað að utan samkvæmt þjóðminjalögum vegna aldurs síns, en við vilj- um líka hafa það eins og það var að innan. Búið er að klæða yfir margt hið upp- runalega í tímans rás en við sjáum hvað undir er og lagfær- um og endurgerum eftir þörf- um. T.d. er spjaldapanell í veggjum stofunnar. Í eldhúsinu er gömul Rafha-eldavél sem við ætlum að halda í.“ Hvaða erfiðleikar hafa helst orðið á vegi ykkar í þessum framkvæmdum það sem af er? „Í lokin áttum við erfitt með að fá kantaða nagla sem not- aðir voru til að negla bárujárn- ið. Þeir voru á gamla járninu og við vildum fá eins. Ég fékk loks það sem vantaði hjá Blikksmiðju Gylfa af hreinni til- viljun. Þess má geta að fyrir framan húsið er vatnsbrunnur sem er nothæfur. Hann var gerður upp, hlaðinn upp, fyrir nokkrum árum. Hann verður áfram í því ástandi sem hann er.“ Hvað með garðinn? „Í stórum dráttum er hann til en þarfnast lagfæringa. Það var þarna kartöflugarður bak við húsið en við ætlum aðeins að hafa lítinn matjurtagarð. Þess má geta að kjallari húss- ins er hlaðinn úr grjóti og hús- ið sett þar ofan á. Þetta er eins og það var. Sá sem byggði þetta hús var Magnús Magnússon þurrabúð- armaður en við erum fimmtu eigendur hússins.“ Hús þeirra Guðmundar og Eyjólfs eins og það var þegar þeir keyptu það. Hús Guðmundar Hannessonar og Eyjólfs Pálssonar á Eyrarbakka sem verið er að gera upp. Gamalt hús á Eyrarbakka gert upp Gömul hús hafa mikinn „sjarma“. Einmitt vegna þess takast menn á hendur hið skemmtilega en oft erfiða verk að endurnýja þau. Guðmundur Hannesson segir hér frá endurgerð húss á Eyrarbakka sem byggt var 1898 en er raunar enn verið að vinna að. Blómin freysliljur eðafresíur eins og þaueru venjulega köll- uð eru afar ilmgóð blóm, fíngerð og fögur. Þau eru til í mörgum litbrigðum en þau eru ekki ræktuð af mörgum á Íslandi. Þorvaldur Snorrason í Hveragerði er einn þeirra fáu sem lagt hafa fyrir sig ræktun á fresíum. „Ræktun á fresíum hófst hér um 1970 og fyrst voru þær ræktaðar af fræjum en seinna af hnýðum. Einn helsti frumkvöðullinn á þessu sviði var Skafti Jós- epsson garðyrkjumaður í Hveragerði. Ég keypti garðyrkjustöðina hans, Grein, fyrir 10 árum og hef síðan ræktað sjálfur fresíur. Ég hafði unnið hjá Skafta þá um nokk- urn tíma og hafði lært af honum auk þess sem ég er útskrifaður úr Garð- yrkjuskóla ríkisins,“ seg- ir Þorvaldur. Er hægt að rækta fres- íur í garðinum heima? „Það er mjög erfitt hér á landi. Þó myndi ég ætla að það væri smá „sjens“ að rækta þær af hnýðum ef um væri að ræða ræktun í köldu gróðurhúsi yfir sumartím- ann, en margir eru með köld gróðurhús í garð- inum hjá sér.“ Hvers vegna er þetta svona erfitt? „Fresíur þola ekki næturfrost en lifa af lágt hitastig, t.d. 4 til 5 gráðu hita. Ég rækta fresíur allt árið um kring í gróður- húsum, vorin eru lang- besti sölutíminn en það er tæpt á að það borgi sig að rækta þær á vet- urna, lýsingarkostnaður- inn er hár og plönturnar gefa minna af sér þá. Heimkynni fresía eru í Suður-Afríku en það eru Hollendingar sem hafa komið þeim á framfæri í gróðurheiminum og hafa stöðugt verið að kyn- bæta þær síðan ræktun á þeim hófst að ráði upp úr 1950.“ Freysliljur eru fögur blóm Fresíur eru undurfagrar og eftir því ilmgóðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.