Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 23
M
jög margir reyna að
koma sér upp timb-
urverönd við hús sitt
eða sumarhús. Í
Húsasmiðjunni fást marg-
víslegar tegundir af viði í slíka
smíði en allt er þetta háð
tískustraumum að hluta eins
og annað í okkar umhverfi.
Einar Sveinsson hefur með
fleirum með þessi mál að gera
hjá fyrirtækinu og var hann
spurður um hvað helst væri
nýtt að frétta af þessum vett-
vangi.
„Harðviður er nú það nýjasta
í þessu máli,“ svarar Einar.
„Við erum að flytja inn harð-
við til þessara nota sem heitir
bangkirai og er frá Indonesíu
og Malasíu. Þetta er mjög
harður viður, rauðbrúnn í ætt
við tekk og mahóní. Hann er
mikið notaður víða í Mið-
Evrópu þar sem vatnselgur er
mikill í kringum sundlaugar og
brýr.“
Er erfitt að smíða úr þessu?
„Nei, það er ekki erfitt en
það þarf að bora fyrir öllum
skrúfum. Þetta efni er þannig
að búið er að fræsa í það rákir
sem gerir það að verkum að
það er ekki eins hált og þetta
gefur ákveðið sérkennilegt út-
lit.“
Er þetta sterkt efni?
„Já, þetta er mjög sterkur
viður, milli 1.000 og 1.100 kg
hver rúmmetri. Þessi viður fún-
ar nær ekki og er viðhaldsfrír,
það þarf ekki að lakka hann
eða bera á hann viðarvörn en
þá verður hann silfurgrár með
tímanum. Það má hins vegar
olíubera hann og þá helst
þessi fallegi rauðbrúni litur á
honum. Við flytjum þennan við
inn í þremur stærðum. Hann er
dýrari en fura en líka endingar-
betri. Gagnfúavarin fura hefur
mest verið notuð í smíði ver-
anda hingað til.“
Hefur smekkur manna á
skipulagi veranda breyst mik-
ið?
„Nei, ekki mikið en meira er
þó sífellt lagt í skjólveggi og
menn nota æ meira tilbúnar
einingar sem auðveldar alla
smíði fyrir óvana.“
Seljið þið sólstofur?
„Já, en það er sérpöntun á
hverri stofu eftir teikningum.“
Nýjungar í
efniviði
í verandir
Harðviður er mjög vinsæll í verandir núna.