Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 17
GARÐEIGENDURhafa ýmsa mögu-leika þegar kemur að því að koma sér upp garðhúsum og girðingum í garðinn. BYKO selur margvíslegar gerðir að þessum vörum. „Fyrirtækið framleiðir mikið af þessum vörum í Lettlandi í verksmiðju sinni þar,“ segir Konráð Vilhjálmsson hjá BYKO. „Við erum einnig að selja frá þessu sama fyr- irtæki bekki, borð og stóla og ýmsa aðra hluti í garðinn.“ En hvað með garð- hýsi? „Þau koma frá Finn- landi frá fyrirtæki sem heitir Luoman Puuote og þessi hús heita Lillevilla. Við erum með sex mis- munandi gerðir af þess- um húsum, allt frá því að vera lítil garðhýsi fyrir skóflur og hrífur og þess háttar og til þess að vera gestahús við sumarhús. Einnig erum við með sér- stök barnahús. Húsin eru frá þremur upp í 14 fermetra. Þau eru úr timburbjálkum, furu eða greni.“ Er auðvelt að setja þessi hús upp? „Já, þau koma til- sniðin og seljast þannig og með þeim fylgja leið- beiningar um hvernig eigi að setja þau saman. Þau eru styrkt sér- staklega fyrir íslenskar aðstæður.“ Hvernig eru þau sett niður? „Þau eru sett niður á steyptar súlur og undir þeim er grind sem binst niður á súlurnar. Þessa aðferð þekkja þeir sem byggt hafa sum- arbústaði.“ Er mikill áhugi á þess- um húsum? „Já, við byrjuðum að selja þau árið 2001 og þau tóku strax að renna út og gera enn.“ Kaupir fólk í ríkari mæli tilbúnar girðingar núna? „Já, það er stígandi í sölu á slíku. Mestur áhugi er á lágum girð- ingum sem ramma lóðir af án þess að fólk sé beinlínis að koma upp miklu skjóli. Talsvert er þó um að fólk kaupi hærri einingar sem það setur upp í kringum sól- verandir. Við höfum nýlega gef- ið út handbókina Sumar í garðinum. Þar eru leið- beiningar fyrir garðeig- endur um hvernig eigi að skipuleggja garða. Leið- beiningarnar vann Björn Jóhannsson landslags- arkitekt fyrir BYKO. Í þessum bæklingi er tek- ið á öllum helstu þáttum sem varða uppbyggingu á girðingum, sólpöllum, málningu á timbri og lýs- ingu í garðinum. Fólk getur fengið þennan bækling á öllum sölu- stöðum BYKO eða hringt í okkur og við sendum hann heim til viðkom- andi. Garðhús og girð- ingarein- ingar og nýr garð- bæklingur Hús til að grilla í í garðinum er eitt af því sem boðið er upp á í „húsaflórunni“ hjá BYKO. Girðingareiningar og hlið setja mikinn svip á garðinn. Oft er erfitt að finna geymslu fyrir garðverkfærin eða þá að börin vilja fá lítið hús til að leika sér í. Þessu og fleiru segir Konráð Vil- hjálmsson í BYKO frá – sem og frá bæklingnum vinsæla: Sumar í garðinum eftir Björn Jóhannsson landslagsarkitekt. und Evrópu, Glókollurinn, sem étur sitkalús. Eftir því sem sá fugl breiðist út um land á næstu árum á skaði af völdum sitkalúsar í trjám í skógum og sumarbústaðalöndum að verða minna vandamál. En vandamálið af sitkalúsinni er fyrst og fremst sjónræns eðl- is, trén verða ljót, einkum fyrsta árið. Það á hins vegar eftir að vaxa út úr brumum trjánna og þau klæða skemmdirnar af sér á þremur til fimm árum. Ekki er því ástæða til að fella tré sérstaklega út af sitkalúsinni. En ef þörf er á að grisja hvort sem er þá er rétt að fella þau brúnu fremur en þau grænu. Það sést mikill einstaklingsmunur á grenitrjám gagnvart lús- inni. Þess má geta að fyrstu árin eftir sitka- lúsaár kemst meira ljós á skógarbotninn en ella og undirgróður verður gróskumeiri í kjölfar- ið.“ Þú nefndir áðan ösp, sumir segja að hún sé vart garðatré, sé bara víðavangstré, hvert er þitt álit á þessu? „Fyrr á árum var talað um alaskaösp eins og hún væri eingöngu garðtré af því hún væri svo kröfuhörð á vatn og næringu. En sú speki stenst ekki reynslu síðustu ára. Það er hægt að rækta alaskaösp á tiltölulega rýru landi á úrkomusömum svæðum, Suðurlandi, Vest- urlandi og víðar, sé þess gætt að hún fái áburð fyrstu ár uppvaxtarins. Alaskaösp er sú tegund sem vex allra trjáa mest og hraðast á æsku- skeiði sínu. Því er hún víða kjörinn skjólgjafi fyrir sumarbústaðabyggðir. Svo ganga auðvit- að ýmsar sögur af ýmsum eiginleikum sem öspin eigi að hafa umfram aðrar trjátegundir, svo sem að rætur hennar smeygi sér fremur í klóakrör og sprengi undirstöður húsa. Þetta er ekki rétt. Klóakrör sem lögð eru í dag eiga að vera örugg gagnvart rótum trjáa en gömul rör eru í hættu vegna allra róta. Fólk á því ekki að fella aspir af slíkum orsökum heldur aðeins ef þær eru orðnar of fyrirferðarmiklar í umhverf- inu eða ef þær þarf að fella til að veita öðrum tegundum meira vaxtarrými og birtu.“ ipulag skógræktar á sumarbústaðalöndum að varðveita útsýni frá t.d. stofugluggum. yrirfram Blandaður skógur á grjótholti. Alaskasypris (Chamaecyparis nootkatens- is) Annað dæmi um trjátegund sem mögu- legt er að rækta í sumarbústaðalöndum þegar skjól hefur myndast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.