Morgunblaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003 B 3
STUTTGART skaust upp í annað
sætið í síðustu umferð þýsku deild-
arinnar og stal þar með sæti í Meist-
aradeild Evrópu af Dortmund. Lev-
erkusen, sem hefur verið í miklu
basli í allan vetur, bjargaði sér frá
falli með sigri.
Leverkusen, sem komst í úrslit
meistaradeildarinnar í fyrra og varð
í öðru sæti þýsku deildarinnar, rétt
slapp við fall í ár. „Ef einhver hefði
sagt mér fyrir ári síðan að ég ætti
eftir að taka við hamingjuóskum í
dag með að sleppa við fall, þá hefði
ég hlegið að hinum sama. Í dag tek
ég feginn við þessum hamingjuósk-
um,“ sagði Rainer Calmund, stjóri
Leverkusen, eftir að lið hans hafði
lagt Nürnberg.
Leikmenn Stuttgart fögnuðu einn-
ig innilega sigri á Wolfsburg en á
sama tíma sátu leikmenn Dortmund
eftir með sárt enni eftir jafntefli á
heimavelli við neðsta liði Cottbus.
Þessi úrslit þýða að Stuttgart náði
öðru sæti deildarinnar og fer í meist-
aradeildina en Dormund þarf að fara
í forkeppni hennar.
Forráðamenn Stuttgart eru sér-
lega ánægðir með árangur liðsins því
það er skuldum vafið og gat ekki
keypt leikmenn en notaði þess í stað
unga leikmenn í vetur. Það gekk vel
og leikmenn hafa greinilega trú á
Felix Magath, þjálfara liðsins.
Hertha Berlín þurfti að vinna til að
tryggja sæti í UEFA-bikarnum og
það tókst. Eyjólfur Sverrisson var
ekki með, er meiddur.
Þórður Guðjónsson og félagar í
Bochum unnu góðan sigur á 1860
München á útivelli. Þórði var skipt
útaf á 87. mínútu. Thomas Christian-
sen gerði eitt marka Bochum og kom
sér með því við hlið Giovane Elbers,
leikmanns meistara Bayern
München, í efsta sæti yfir marka-
hæstu menn, báðir gerðu 21 mark.
Stuttgart stal meist-
aradeildarsætinu
MAREL Baldvinsson var fluttur á sjúkrahús
og Arnar Grétarsson var rekinn af velli þegar
Lokeren gerði markalaust jafntefli við Sint-
Truiden í lokaumferð belgísku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu í gær. Rúnar Krist-
insson lék ekki með Lokeren, tók út leikbann,
og það var því aðeins einn Íslendingur á vell-
inum seinni hluta leiksins, fyrirliðinn Arnar
Þór Viðarsson.
Marel fékk slæmt högg á hönd rétt fyrir
leikhlé, en hann hefur að undanförnu spilað
slasaður á hendi og meiðslin tóku sig upp að
nýju. Hann var fluttur beint á sjúkrahús í
hálfleik. Í byrjun síðari hálfleiks var brotið
illa á Arnari Grétarssyni, sem svaraði fyrir
sig með því að ýta við þeim brotlega og var
fyrir það vísað af velli. Stuðningsmenn Loker-
en púuðu á dómarann næstu tíu mínúturnar.
Annars var leikurinn daufur og bar keim af
því að ekkert var í húfi. Í leikslok var hins
vegar efnt til mikillar fagnaðarhátíðar í
Lokeren því að félagið tryggði sér þriðja sæt-
ið og þátttökurétt í UEFA-bikarnum í fyrsta
skipti í tæplega tvo áratugi.
Marel á sjúkrahús
og Arnar fékk rautt
Marel Baldvinsson
FÓLK
GUÐMUNDUR Viðar Mete
tryggði Norrköping jafntefli gegn
Kalmar, 3:3, í sænsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gær. Guðmundur
skoraði síðasta mark leiksins og
jafnaði þar með, tólf mínútum fyrir
leikslok.
HELGI Kolviðsson og félagar í
Kärnten töpuðu fyrir Rapid Vín, 2:1,
í næstsíðustu umferð austurrísku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu á
laugardaginn. Helgi fór af velli á
lokamínútu leiksins. Deildakeppn-
inni lýkur í vikunni og á sunnudaginn
mætast Kärnten og meistarar
Austria Vín í bikarúrslitum.
VIKTOR Bjarki Arnarsson lék
allan leikinn með TOP Oss sem tap-
aði, 3:1, fyrir Volendam í hollensku
1. deildinni í knattspyrnu.
AÐALSTEINN Jónsson hefur
verið ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Gróttu/KR í handknattleik kvenna.
Hann tekur við af nafna sínum, Að-
alsteini Eyjólfssyni, sem ráðinn hef-
ur verið þjálfari meistaraliðs ÍBV.
Aðalsteinn Jónsson hefur m.a. þjálf-
að kvennalið Stjörnunnar.
EGILL Sigurbjörnsson, kylfingur
úr GKj, fór holu í höggi á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ á laugardaginn. Þetta
var í Opna Nóatúnsmótinu og gerð-
ist á 6. braut og notaði Egill járn
númer átta til verksins.
EGILL Gunnlaugsson, GÍ, sigraði
á vormóti Golfklúbbs Ísafjarðar sem
fram fór á Tungudalsvelli á laugar-
daginn. Páll Guðmundsson, GBO,
varð annar og Vilhjálmur Antons-
son, GÍ, þriðji.
RAJ Bonifacius og Sigurlaug Sig-
urðardóttir sigruðu í meistaraflokk-
um karla og kvenna á Víkings-
mótinu, fyrsta mótinu í sumar-
mótaröð Tennissambands Íslands,
sem lauk í gær.
RAJ sigraði Jón Axel Jónsson í úr-
slitaleik í karlaflokki og Sigurlaug
bar sigurorð af Rebekku Péturs-
dóttur í kvennaflokki. Bæði komu
meira við sögu því Raj sigraði í tví-
liðaleik ásamt Jóni Axel og Sigur-
laug varð sigurvegari í flokki stúlkna
18 ára og yngri.
KENNY Perry sigraði á Colonial
golfmótinu sem lauk í Fort Worth í
Texas í gær og var mest í fréttunum
fyrir helgi vegna þátttöku hinnar
sænsku Anniku Sörenstam. Perry
setti met á mótinu með því að leika á
19 höggum undir pari og hann var
sex höggum á undan næsta manni,
Justin Leonard.
PERRY og Leonard settu enn-
fremur vallarmet því báðir léku einn
hring á 61 höggi. Perry á laugardag-
inn og Leonard í gær.
Íslandsmeisturum KR eru sáttir við hvernig Íslandsmótið fer af stað
Ég hefði viljað fá öll þrjú stigin úrþví sem komið var. Við fengum
mark á kjörtíma og þurftum bara að
spila af skynsemi og
einbeitingu út leik-
inn og þá hefði þetta
komið. Einbeitingin
var ekki nægileg í
lokin, við tókum rangar ákvarðanir
sem gerðu það að verkum að þeir
detta inn þarna fyrir framan teiginn
og fengu aukaspyrnu sem þeir
nýttu,“ sagði Willum um gang mála í
leiknum.
Þjálfarinn var ekki alveg sammála
því að fyrri hálfleikurinn hafi verið á
rólegu nótunum og lítið hafi gerst.
„Tjaaá. Hvorugt liðið vildi gefa færi á
sér og ég skal ekki segja til um hvort
varfærnin hafi verið of mikil. En leik-
menn börðust af krafti og það er oft
þannig að þegar menn mætast í bar-
áttunni verður oft lítið um færi. Mér
fannst vanta svona herslumuninn hjá
báðum liðunum, vantaði aðeins slag-
kraftinn í fyrri hálfleik.“
Það vantaði nokkra leikmenn í
hópinn hjá þér í kvöld, en það virðist
ekki koma mikið að sök, þú ert með
stóran og öflugan hóp.
„Já, já, það koma bara ungir og
frískir strákar inn í þetta í staðinn og
berjast fyrir stöðum sínum,“ sagði
Willum.
Hann sagði upphaf Íslandsmótsins
vera svipað og hann hafði búist við
fyrirfram. „Ég held þetta sé svipað
og ég átti von á. Það ekkert endilega
innistæða fyrir þeirri umræðu sem
hefur verið um okkur, það eru öll lið
búin að styrkja sig og mótið er þann-
ig að það er alveg ljóst að við verðum
að berjast í hverjum einasta leik.“
-Þið eruð þá ekki búnir að setja
2003 á bikarinn?
„Það er sko alveg langt frá því.
Hópurinn okkar er alveg niðri á jörð-
inni varðandi þetta mót og við gerum
okkur fyllilega grein fyrir því sem
fram undan er í sumar,“ segir Will-
um.
-Hvernig finnst þér knattspyrnan
svona í upphafi tímabilsins?
„Mér finnst þetta fara vel af stað
og það eru margir einstaklingar sem
setja svip sinn á deildina. Liðin virð-
ast koma vel undirbúin til leiks og öll
eru tilbúin að selja sig dýrt og hafa
trú á að þau geti unnið hvaða lið sem
er. Leikirnir einkennast af því.
Mér finnst líka mikil breyting í ár
frá því sem var áður að núna er kom-
in hollning og mynd á liðin í upphafi
móts en áður voru menn oft með til-
raunastarfsemi langt fram á sumar.
Knattspyrnan er líka betri, minna
um misheppnaðar sendingar og ein-
föld mistök sem maður hefur oft séð í
upphafi móts. Mér finnst þetta byrja
vel, boltinn flýtur vel hjá liðunum og
menn verða að vera á tánum,“ segir
Willum.
-Þú ert alltaf á tánum við hliðarlín-
una!
„Já, já, mér finnst það hluti af
leiknum. Mér líður ekkert sérstak-
lega vel að sitja inni í varamannaskýli
og horfa á leikinn þaðan. Þess vegna
reyni ég að taka þátt í leiknum eins
og ég get,“ sagði Willum.
Hópurinn
okkar er
á jörðinni
Morgunblaðið/Arnaldur
Willum Þór Þórsson er vel með á nótunum á hliðarlínunni.
WILLUM Þór Þórsson, þjálfari meistaraliðs KR, var ekki alveg sáttur
við sína menn í leiknum við Fram í gærkvöldi. Jafntefli varð niður-
staðan en Willum hefði viljað fá þrjú stig eins og í fyrsta leiknum á
móti Þrótti, en sá leikur fór einnig fram á Laugardalsvelli.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Willum Þór
Þórsson
’ En leikmennbörðust af krafti og
það er oft þannig að
þegar menn mætast
í baráttunni verður
oft lítið um færi. ‘
ÍSLENSKU landsliðsmennirnir
Eiður Smári Guðjohnsen og Jó-
hannes Karl Guðjónsson voru
báðir í fréttum í Englandi um
helgina, sem tengdust Chelsea.
Sunday People sagði í gær að
Chelsea hefði boðið Eið Smára til
annarra félaga í úrvalsdeildinni
fyrir 6 milljónir punda, eða um
700 milljónir króna. Vangaveltur
eru um að þetta sé vegna fjár-
hagsvandræða Chelsea – Eiður
sé besta söluvara félagsins um
þessar mundir.
Á heimasíðu stuðningsmanna
Chelsea var sagt að þrálátur orð-
rómur hefði verið uppi síðustu
daga um að Jóhannes Karl Guð-
jónsson væri á leið til félagsins,
og að þar hefðu menn hvorki ját-
að né neitað þeim fréttum.
Jóhann-
es í stað
Eiðs?