Morgunblaðið - 25.06.2003, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 B 7
bílar
Vagnhöfða 6 - 110 Reykjavík
Sími 577 6090 - Fax 577 6095
Eigum til vatnskassa/bensíntanka
og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum
ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvélum.
Einnig intercoolera í vörubíla og vinnuvélar.
Varahlutir — hagstætt verð
Gabriel höggdeyfar, drifliðir,
drifliðshosur, vatnsdælur, vatnslásar,
stýrisendar, spindilkúlur, tímareimar,
sætaáklæði, ökuljós o.fl.
Bíldshöfða 14 • sími 567 6744
Alternatorar – Startarar
í allflesta fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar,
bátavélar á lager og hraðpantanir.
Trumatic gasmiðstöðvar
í bíla, báta o.fl.
Bílaraf Auðbrekku 20, s. 564 0400, f. 564 0404, n.bilaraf@isl.is
umboðið umboðið
Bílskúrs og Iðnaðarhurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir í
öllum stærðum og gerðum.
Fjölbreytt litaúrval.
Stuttur afgreiðslufrestur
Gluggasmiðjan hf
Viðarhöfða 3
Sími 577-5050
Pústþjónusta BJB ehf.
Flatahraun 7 - 220 HAFNARFIRÐI - Sími 565 1090
Sala, smíði og ísetning á pústkerfum
Tjónaskoðun
Tákn um gæði
Fitjum • Njarðvík • sími 421 5488 og 421 4888
EVRÓPSKIR bílaframleiðend-
ur, sem hafa dregið sig út af
Bandaríkjamarkaði á síðustu
tveimur áratugum, líta nú aftur
hýru auga til Bandaríkjanna.
Margir þeirra, t.a.m. Alfa Rom-
eo, Fiat, Citroën, Renault og
Peugeot, hafa nú þegar á prjón-
unum eða eru að íhuga að snúa
aftur.
Renna enn á ný hýru
auga til Bandaríkjanna
ALCOA framleiddi álfelgur undir Jeep Wrangler Rubicon
jeppann fyrir Chrysler-samstæðuna en bíllinn verður í
kvikmyndinni Tom Raider þar sem Lara Croft fer með eitt
aðalhlutverkið. Um er að ræða einstaka útfærslu af fjölda-
framleiðslubílnum Wrangler Rubicon og til þess að falla í
kramið í kvikmyndinni þurfti bíllinn að sjálfsögðu sér-
stakar felgur.
Chrysler fór þess á leit við Alcoa, sem er að reisa álver á
Reyðarfirði, eins og mönnum er kunnugt, að fyrirtækið
framleiddi og hannaði felgur undir bílinn.
Það var felgudeild Alcoa í Cleveland sem annaðist verk-
ið. Alls var um að ræða 5.000 felgur sem Chrysler kaupir
á næstu þremur mánuðum.
Felgurnar eiga að standast mikið álag eða svipaða með-
Alcoa smíðar
felgur á Wrangler
ferð og Wrangler Rubicon Löru Croft fær í kvikmyndinni.
Ljóst þykir að þessi sérstaka útfærsla af jeppanum
verði söfnunargripur og því sérstakur heiður að því að
tengjast framleiðslu hans.
FÁIR bílar vöktu jafnmikla
athygli og ánægju og Alfa
Romeo 156 þegar hann kom á
markað árið 1997. Nú eru lið-
in sex ár sem er nokkuð lang-
ur líftími bíls án umtals-
verðra breytinga. Nú stendur
fyrir dyrum að breyta 156 í
157 og setja hann splunku-
nýjan á markaðinn í ársbyrj-
un 2005. 157 verður stærri en
núverandi 156. Grillið verður
stærra og nær lengra upp á
vélarhlífina ekki ósvipað og á Spid-
er- og GTV-bílunum frá Fiat. Bíllinn
verður hannaður af Giugiaro, hinum
heimsþekkta ítalska bílhönnuði hjá
Italdesign.
Undirvagn 157 er hins vegar
hannaður í Svíþjóð í sam-
starfi við Saab, en fyrirtækin
eru nú bæði hluti af GM-
keðjunni. Saab valdi hins
vegar ekki að nýta sér þenn-
an nýja undirvagn sem er
þróaður á þann veg að bæði
er unnt að hafa í honum
framhjóladrif og fjórhjóla-
drif. Líklegt þykir því að Alfa
Romeo muni nýta undirvagn-
inn seinna meir til þess að
þróa sinn fyrsta jeppling.
Einnig þykir líklegt að arftaki 166
verði seinna meira smíðaður á þenn-
an sama undirvagn.
Alfa Romeo 157 verður stærri en núverandi 156. Nýr undirvagn var hannaður í samvinnu við Saab.
Nýr 157 í ársbyrjun 2005
Ekki eru sjáanlegar miklar breytingar að aftan.