Morgunblaðið - 25.06.2003, Side 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Jeep Cherokke Grand Limited. árg.1999. Ekinn 70 þús. km, ssk. ABS.
álfelgur, topplúga, leður, CD magasín, rafmagn í öllu. Verð 3.550.000
Lán. 2.200 þús. ATH öll skipti.
Verð kr.
3.550.000
B
RAUTIN hefur tekið breyt-
ingum í ár síðan í fyrra, en
hún liggur við jaðar forn-
frægrar brautar með sama
nafni og jafnan var nefnd Græna hel-
vítið.
Formúlu-1 kappakstri var hætt um
skeið í Nürburgring eftir slysið hrika-
lega árið 1976 þar sem Niki Lauda
slapp naumlega en illa meiddur úr
eldhafi. Brautin var upphaflega 22,5
km og byggð í atvinnubótavinnu 1925
fyrir bílprófanir þýskra bílaframleið-
enda. Fyrsti kappaksturinn fór þar
fram tveimur árum seinna. Jackie
Stewart sagði 1976, rétt eftir Lauda-
slysið, að á löngum köflum í brautinni
væru ökuþórarnir eins og farþegar í
bílunum því þeir hefðu ekkert að gera
annað en stíga bensíngjöfina í botn.
Brautin var endurgerð og keppni í
Formúlu-1 hafin þar á ný 1984, annar
Evrópukappaksturinn, sem Alain
Prost vann á McLaren-bíl. Keppnis-
liðunum fannst brautin með endem-
um illa hönnuð og einhæf svo að eftir
keppnina 1985 leið áratugur þar til
þar var keppt á ný. Brautinni var
breytt og er hún mjög frábrugðin því
sem var, en þó var beina upphafs- og
lokakaflanum haldið.
Tímarnir breytast því 1995 töldu
keppnisliðin brautina eina þá bestu
sem keppt væri á. Þar eru 12 beygjur
og áhorfendur njóta víðast hvar frá-
bærs útsýnis yfir brautina. Í fyrra var
bætt við hlykk með þremur beygjum
strax eftir beinan upphafskafla henn-
ar og hún er því 5,2 km á lengd. Lítils-
háttar hefur verið átt við hana einnig í
ár.
Ferrari sigraði þrjú síðustu ár
Evrópukappaksturinn hefur verið
háður á fjórum brautum í þremur
löndum frá 1984 og fer nú í níunda
sinni fram í þýsku brautinni. Fyrsta
mótið fór fram í Brands Hatch í Eng-
landi 1983 og vann Nelson Piquet á
Brabham-bíl.
Ferrari hefur hins vegar hrósað
sigri þrjú síðustu árin í mótinu, Mich-
ael Schumacher fyrri tvö en Rubens
Barrichello í fyrra. Schumacher vann
í mótinu 1994 og 1995, en þá á Benett-
on, og hefur því hrósað sigri fjórum
sinnum.
Englendingurinn Johnny Herbert
vann sinn þriðja sigur á ferlinum og
fyrsta og eina sigur Stewart-liðsins í
afar tíðindasömum kappakstri í
Nürburgring árið 1999. Var liðið árið
eftir selt Ford sem nefnt hefur það
Jagúar síðan. Einungis einn annar
breskur ökuþór hefur unnið í Evr-
ópukappakstrinum en það gerði Nig-
el Mansell á Williams-bíl á heimavelli
í Brands Hatch árið 1985.
Jacques Villeneuve vann jómfrúr-
sigur sinn í Nürburgring árið 1996 á
Williams-bíl, í aðeins sínu fjórða móti.
Hann var krýndur heimsmeistari í
Evrópukappakstrinum árið eftir, sem
fram fór í Jerez á Spáni, eftir að hafa
lifað af tilraun Michaels Schumachers
til að keyra hann út af brautinni.
Mika Häkkinen vann mótið og þar
með sinn fyrsta mótssigur í Form-
úlu-1.
Aðeins þrír ökuþórar hafa ekki
unnið stig í keppni á árinu, Antonio
Pizzonia hjá Jagúar og Minardi-þór-
arnir Jos Verstappen og Justin Wil-
son. Spurningin er hvort breyting
verði þar á um helgina.
13. Evrópukappakstur-
inn við hlið Grænhelju
Evrópukappaksturinn fer fram
í 13. sinn um komandi helgi
og að þessu sinni er
Nürburgring í Eifel-fjöllum
í vestanverðu Þýskalandi
vettvangur hans. Ágúst
Ásgeirsson segir frá mótinu.
!
"##"
!"#$ %&'()#*#+#,'+ - #./.#00-
1!,#*2#$
"++#,0
3"44%.+"#$
3"44%.5-,/
#" 55-,/
"'5('+%6!
"'5('"7$5-.
8%9'5/5/200
$ %&'
%(
%(
)*+,-
%(
"-
"00',5-"'+:.#/0/).
;%6-:,<#,'+%.)#="'+:<#,'+51023/
4-5
4-
6(
7((-
89
:8
6(
$6(
;
-
6(< =-6(
4-
89
>8:-(
:
'
>#,'+,#? >#,'+,# ?
8 @ = 3
A#*#+#,'+
:(
TÍMAMÓT verða á ferli þriggja
ökuþóra í Evrópukappakstrinum
í Nürburgring um helgina. Verð-
ur það 150. kappakstur Heinz-
Haralds Frentzens hjá Sauber
og Davids Coulthards hjá McLa-
ren í Formúlu-1 og 100. mót Jos
Verstappens hjá Minardi.
Frentzen segir tímamótin
enga þýðingu hafa í huga sér,
þótt skemmtilegt sé að ná þess-
um áfanga í heimamóti sínu, á
braut sem hann þekki einkar vel
– þótt breytingum hafi tekið í
seinni tíð – enda oft ekið þar
bæði í Formúlu-1 og í keppni í
öðrum bílaflokkum. Er
Nürburgring eigi fjarri æsku-
stöðvum Frentzen í Mönchengl-
adbach.
Með þessum áfanga kemst
Frentzen í hóp 20 ökuþóra sem
keppt hafa 150 sinnum eða oftar
í Formúlu-1 mótum. Til saman-
burðar keppti Ayrton Senna 161
sinni, Mika Häkkinen 162 sinn-
um, Niki Lauda 171 sinni og
mótið verður 181. kappakstur
Michaels Schumachers og 166.
mót Rubens Barrichellos en þeir
eru í 9. og 13. sæti á lista yfir
reynslumestu ökuþórana.
Oftast hefur Ítalinn Ricardo
Patrese keppt eða 256 sinnum,
en fimm ökuþórar eiga 200 mót
eða fleiri að baki.
Coulthard og
Frentzen keppa í
150. sinn um helgina
skýrt frá því
að Jean Todt,
liðsstjóri
Ferrari, hafi
varað Jordan
við að knýja
málið til úr-
lausnar fyrir
dómi því
Ferrari-liðið
myndi í stað-
inn beita neit-
unarvaldi
gegn tillögum um sérstaka fyr-
irgreiðslu við fátækari lið Form-
úlu-1, þ.e. 8 milljóna dollara
greiðslu til annars vegar Jordans
og hins vegar Minardis.
Í bréfi til Jordans, sem blaðið
vitnar til, skrifar Todt: „Framan
af vorum við reiðubúnir að finna
lausn þar sem við hefðum afsalað
nokkru af okkar réttindum til
þín ... Við rituðum [Bernie Eccle-
stone] 26. febrúar þar sem við
lýstum stuðningi við nýju lausn-
ina, að því tilteknu að þú drægir
til baka kröfur á hendur Voda-
fone.“
Þessa framkomu af hálfu Ferr-
ari segir Eddie Jordan jafngilda
„bolabrögðum“ sem „beri keim
af hótunum og kúgun“. Hann
segir ennfremur í blaðinu:
„Sauber, Minardi og við erum
einu liðin sem stórir bílafram-
leiðendur standa ekki á bak við.
Þau njóta góðs af tilveru okkar,
en er andsk... sama hvort hvort
við lifum af.“
Um málið hafa hvorki Ferrari
né Vodafone viljað tjá sig.
EDDIE Jordan á nú í málaferl-
um á hendur símafyrirtækinu
Vodafone sem hann segir hafa
ekki uppfyllt samningsskuldbind-
ingar. Sakar hann Ferrari-liðið
um tilraunir til að kúga sig til að
láta mál, sem rekið er fyrir rétti
í London, niður falla.
Jordan heldur því fram að eft-
ir viðræður hafi verið kominn á
munnlegur samningur milli liðs
hans og Vodafone er hafi gildi.
Félagið hafi hins vegar kippt að
sér höndum á síðustu stundu.
Þessu vísar símafélagið á bug og
segir viðræður aldrei hafa kom-
ist á það stig að samningur hafi
nánast legið á borðinu.
Fjallað er um málið í breska
blaðinu The Sunday Times síð-
astliðinn sunnudag og þar er
Jordan sakar Ferrari um kúgun
Eddie Jordan
MICHAEL Schumacher hjá Ferrari
getur náð áfanga sem engum öðrum
hefur tekist í Formúlu-1 með því að
ljúka keppni í stigasæti í Nürburgring
um helgina.
Schumacher hefur það sem af er
ferlinum, frá því hann hóf keppni
með Jordan-liðinu í Spa Francorch-
amps í Belgíu í ágústmánuði 1991,
unnið 999 stig og gæti því rofið þús-
und stiga múrinn á sunnudag.
Sömuleiðis yrðu tímamót í starfi
Schumachers hjá Ferrari færi hann
með sigur af hólmi í Nürburgring því
það yrði 50. mótssigur hans fyrir lið
sitt. Hefur hann unnið í 68 mótum,
þar af 49 á Ferrari-fáki.
Næstir Schumacher að stigum
eru fjórir ökuþórar sem allir unnu
heimsmeistaratign einu sinni eða
oftar; Frakkinn Alain Prost með
798, Brasilíumaðurinn Ayrton Senna
614, Brasilíumaðurinn Nelson Piquet
485 og Bretinn Nigel Mansell 482.
Tveir aðrir fyrrverandi meistarar,
Austurríkismaðurinn Niki Lauda og
Finninn Mika Häkkinen, unnu 420
stig hvor.
Í sjötta sæti yfir stigahæstu öku-
þóra er David Coulthard hjá McLaren
með 426 stig og af ökuþórum sem
enn eru að hefur Rubens Barrichello
hjá Ferrari unnið 293, Jacques Ville-
neuve hjá BAR 214, Ralf Schumach-
er hjá Williams 210, Heinz-Harald
Frentzen hjá Sauber 167, Juan Pablo
Montoya hjá Williams 120, Giancarlo
Fisichella hjá Jordan 91, Kimi Rä-
ikkönen hjá McLaren 90, Olivier
Panis hjá Toyota 66 og Jarno Trulli
hjá Renault 55, en hann er í 51. sæti
á listanum yfir stigahæstu ökuþóra.
Rýfur Schumacher
1.000 stiga múrinn?
Reuters
Michael Schumacher getur brotið blað í sögu Formúlu 1.