Morgunblaðið - 26.06.2003, Qupperneq 2
2 B FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR
!"
#
$"" %
& #
'#
(
( ) " !* !"
)
"
+
,--.),/,/012,/3
)455./3')6788.,9/,/
23:,70*,;7.9<.%%
ÁÆTLANIR lyfsölukeðjunnar
Lyfja & heilsu hf. gera ráð fyrir að
veltan verði fjórum sinnum meiri á
þessu ári en árið 1999, en starfsem-
in hófst á því ári. Gert er ráð fyrir
að velta Lyfja & heilsu í ár verði um
4,3 milljarðar króna en hún var um
einn milljarður árið 1999.
Þegar Lyf & heilsa tóku til starfa
var fjöldi lyfjaverslana innan keðj-
unnar samtals tólf en þær eru nú
28. Stefnt er að því að verslanirnar
verði samtals 31 í lok þessa árs.
Af lyfjaverslunum Lyfja & heilsu
eru 25 reknar undir því vörumerki
og þrjár undir vörumerkinu Apó-
tekarinn. Samtals eru átján lyfja-
verslanir keðjunnar á höfuðborgar-
svæðinu, fimm á Suðurlandi, þrjár á
Norðurlandi, ein á Vesturlandi og
ein á Suðurnesjum. Á þessu ári hef-
ur Lyf & heilsa hf. keypt tvö apó-
tek, Nesapótek á Eiðistorgi á Sel-
tjarnarnesi og Apótek Keflavíkur,
en auk þess var ný lyfjaverslun
keðjunnar nýlega opnuð í JL-húsinu
við Hringbraut í Reykjavík. Fyrr á
þessu ári undirrituðu Lyf & heilsa
hf. og Kaupás hf. samstarfssamning
sem felur í sér að Lyf & heilsa hf.
mun opna lyfjaverslanir í verslunar-
kjörnum þar sem Kaupás rekur
dagvöruverslanir.
Sneru bökum saman
Núgildandi lyfjalög voru samþykkt
á Alþingi í maí 1994 og tóku þau
gildi hinn 15. mars 1996. Með þeim
var frjálsræði í lyfsölu aukið veru-
lega. Áður hafði fámennur hópur
manna sérleyfi til að reka apótek og
nýir aðilar komust ekki inn í það
kerfi nema þegar þeir sem fyrir
voru hættu störfum, til að mynda
sökum aldurs. Meginbreytingar
hinna nýju lyfjalaga, sem gildi tóku
árið 1996, lutu ekki að hlutverki
apóteka heldur að ytri ramma
þeirra.
Sérleyfin voru felld niður, en hver
sem er getur nú opnað apótek að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Karl Wernersson, framkvæmda-
stjóri Lyfja & heilsu hf., segir að í
kjölfar gildistöku lyfjalaganna frá
1994 hafi ný apótek sprottið upp í
landinu og samkeppnin um við-
skiptavini apótekanna tekið á sig
nýja mynd. Hann segir að sam-
keppnisstaða þeirra apóteka sem
fyrir voru, og byggðu starfsemi sína
á venjum og siðum frá tímum sér-
leyfanna, hafi versnað mikið. Þessi
apótek hafi í mörgum tilfellum ekki
náð að aðlagast breyttum aðstæðum
á markaði nægilega hratt. Við þess-
ar aðstæður hafi upphaf Lyfja &
heilsu markast. Gamlir keppinautar
á lyfsölumarkaði hafi í mars árið
1999 ákveðið að snúa bökum saman.
Fyrirtækið Hagræði hf., sem síð-
ar varð Lyf og heilsa hf., var stofn-
að í mars 1999.
Styrkur í faglegri þekkingu
Að sögn Karls var fyrsta verkefni
stjórnar hins nýja félags á árinu
1999 að móta stefnu félagsins, finna
því hlutverk og skapa því sérstöðu á
markaðinum. Hann segir að helsti
styrkur Lyfja & heilsu á þessum
tíma hafi verið mikil fagleg þekking,
þjónustulund starfsfólks og traust
samband við viðskiptavini. Helstu
veikleikarnir hafi hins vegar verið
gamaldags lyfjaverslanir með tak-
markað vöruúrval og litla möguleika
á verðsamkeppni við nýjar lyfja-
verslanir. Þá hafi tap jafnframt ver-
ið á rekstrinum. Karl segir að það
hafi verið niðurstaða þeirrar stefnu-
mótunarvinnu sem stjórn Hagræðis
hf. hafi ráðist í á árinu 1999, að Lyf
& heilsa hf. ætti að að hasla sér völl
sem verslunar- og ráðgjafarfyrir-
tæki sem legði áherslu á þjónustu
við viðskiptavini á sviðum sem
tengjast heilsu, heilbrigði og lífs-
gæðum.
Hann segir að það hafi því verið
ákveðið að á fyrsta starfsári félags-
ins myndu megináherslur í starf-
seminni ekki snúast eingöngu um
hreina verðsamkeppni. Þess í stað
hafi verið lögð áhersla á góða þjón-
ustu og þekkingu starfsfólksins og
faglegan metnað þess. Karl segir að
ástæðan fyrir þessu hafi verið tví-
þætt. Í fyrsta lagi hafi fyrirtækið
hvorki haft fjárhagslegt bolmagn né
rekstrarlegar forsendur til að fara
út í verðsamkeppni. Í annan stað
hafi Lyf & heilsa haft annað og
betra að bjóða, þ.e. þjónustu og fag-
mennsku. Samhliða þessu hafi
kostnaðargrunnur félagsins lækkað
jafnt og þétt og síðustu þrjú árin
hafa verðkannanir mælt Lyf &
heilsu með samkeppnishæft verð.
Þessi aðferðarfræði hefur að sögn
Karls tekist fullkomlega. Hann seg-
ir að Lyf & heilsa hf. sé stærsta fyr-
irtækið á smásölumarkaði lyfja hér
á landi. Fyrirtækið sé rekið með
hagnaði og framtíð þess sé björt.
Allra leiða sé þó enn leitað til að
halda rekstrarkostnaði niðri, því
neytendur geri sífellt auknar kröfur
um gæði, þjónustu og gott verð.
Starfsmenn um 220 talsins
Við stofnun félagsins voru hluthafar
alls átta talsins, með eignarhlut á
bilinu 5–26%. Í dag eru hluthafar
fimm. Stærstu hluthafar eru: Mile-
stone ltd., eignarhaldsfélag syst-
kinanna Steingríms, Ingunnar og
Karls, og Kaldbakur hf. Samanlögð
hlutafjáreign þessara félaga nemur
95% af heildarhlutafé fyrirtækisins.
Starfsmenn Lyfja & og heilsu eru
í dag um 220 talsins. Þar af eru 56
lyfjafræðingar og 28 lyfjatæknar.
Karl segir að fyrirtækið hafi í gegn-
um árin haft yfir að ráða öflugu
starfsfólki sem hafi tekið virkan
þátt í hraðri uppbyggingu fyrirtæk-
isins.
„Við höfum verið óhrædd við að
virkja styrkleika starfsfólkins sam-
hliða því að markvisst hefur verið
unnið að því að styrkja það í starfi.
Starfsánægja hefur mælst mikil
meðal starfsfólksins og skiptir það
fyrirtækið miklu máli enda sýna
rannsóknir sterk tengsl milli starfs-
ánægju og ánægju viðskiptavina.
Við munum því í framtíðinni halda
áfram að rækta þennan þátt starf-
seminnar,“ segir Karl Wernersson.
Stefnt að áframhaldandi
vexti Lyfja & heilsu
Morgunblaðið/Jim Smart
Karl Wernersson, framkvæmdastjóri Lyfja & heilsu hf., segir að fyrirtækið sé rekið
með hagnaði. Allra leiða sé þó leitað til að halda rekstrarkostnaði niðri.
Lyf & heilsa hf. er stærsta lyfsölukeðja
landsins og hefur vaxið hratt frá stofnun á
árinu 1999. Fjöldi lyfjaverslana keðjunnar
er nú 28 en stefnt er að því að þær verði 31 í
lok þessa árs. Karl Wernersson, fram-
kvæmdastjóri lyfsölukeðjunnar, sagði Grét-
ari Júníusi Guðmundssyni frá umsvifunum og
þeim áformum sem uppi eru.
HINN 30. júní næstkomandi
verður hlutafé Líftæknisjóðs-
ins MP BIO lækkað þannig að
hlutafjáreign hluthafa verður
1/10 af fyrri eign hans. Þetta
er þó háð samþykki aðalfundar
félagsins sem verður á morg-
un, föstudag. Frá þessu var
greint í tilkynningu frá MP
BIO til Kauphallar Íslands í
gær.
Í byrjun þessa mánaðar var
greint frá því að tap til lækk-
unar á eigin fé MP BIO á
fyrsta ársfjórðungi hefði num-
ið 71,5 milljónum króna sam-
anborið við 128,9 milljóna tap
á sama tímabili í fyrra. Eigið
fé MP BIO nam 423 milljónum
króna í lok mars síðastliðins en
var 494,5 milljónir um síðustu
áramót.
Síðasta viðskiptaverð með
hlutabréf MP BIO í Kauphöll
Íslands var 0,43.
Áfanga náð
MP BIO greindi einnig frá því
í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands í gær að BioStratum Inc.
í Bandaríkjunum hefði kynnt
niðurstöður úr fyrstu af þrem-
ur fasa IIb rannsóknum á
verkun lyfsins Pyridorin á hóp
sykursjúkra. MP BIO á 8,94%
hlut í BioStratum og eru það
rúm 50% af fjárfestingum
sjóðsins.
Haft er eftir Bob Schotzing-
er, framkvæmdastjóra BioStr-
atum, í tilkynningunni að nið-
urstöður rannsóknarinnar á
Pyridorin séu mjög jákvæðar
og hvetjandi og styðji þá skoð-
un aðstandandenda fyrirtæk-
isins að Pyrirdorin sé öruggt
lyf og árangursríkt við með-
höndlun á nýrnasjúkdómum.
Jón Ingi Benediktsson,
framkvæmdastjóri MP BIO,
segir að árangurinn af rann-
sóknunum á Pyridorin sé já-
kvæður. Hann sýni að þær for-
sendur sem MP BIO gekk út
frá séu réttar. Þetta sé þó ein-
ungis einn áfangi á langri leið.
Hlutafé
MP BIO
fært niður