Morgunblaðið - 06.07.2003, Page 14
Opnari
stofnun
Kvikmynda-
miðstöðin
úthlutar fyrstu
styrkjunum
eftir helgina.
AÐ MARGRA áliti var það Bruce Be-
resford sem fyrstur vakti athygli
Bandaríkjamanna á áströlskum leik-
stjórum. Það gerðist í kjölfar vin-
sælda mynarinnar Ævintýri Barrys
McKenzies (’72), sem fór sigurför um
heimalandið og gerði ágæta hluti í
Evrópu. Myndin rataði á tjaldið í
Bandaríkjunum og fékk góða dóma.
Síðan skutu þau upp kollinum, hvert
af öðru, Peter Weir, Fred Schepisi,
Gillian Armstrong, Jane Campion.
George Miller o.fl.
Leikararnir sigldu í kjölfarið.
Frumkvöðullin er Olivia Newton-
John, sem sló eftirminnilega í gegn í
Graese (’78) og Mel Gibson, sem lagði
heiminn skömmu síðar að fótum sér
ser í hlutverki Brjálaða Max (Mad
Max). Þetta var síðla á áttunda ára-
tugnum og brátt bættust Judy Davis,
Sam Neill ofl. í hópinn. Innrásin var
hafin.
Straumurinn frá Eyjaálfu rís hæst í
tveim bylgjum. Fyrstir komu frum-
herjarnir á árunum í kringum 1980 og
á síðari hluta tíunda áratugarins verð-
ur önnur sprenging. Þar á milli er jafn
og þéttur stígandi, einkum í hópi leik-
ara sem gera garðinn frægan í Vest-
urheimi.
Ekkert lát er á velgengni andfæt-
linganna nema síður sé. Listamenn á
borð við leikstjórann Peter Jackson
og leikarana Nicole Kidman og Hugh
Jackman halda gunnfánanum á lofti
yfir Hollywood. Það er ekki úr vegi að
athuga nánar hvað þetta hæfileikafólk
er að bauka í kvikmyndaborginni.
Farið er fljótt yfir sögu hvað frum-
herjana snertir en nánar vikið að
þeim sem eru að festa rætur í óblíðri
samkeppninni.
Fyrri bylgjan
Sem áður segir hefur Beresford og
Newton-John verið kennt um upptök
atgervisflóttans til Hollywood. Beres-
ford kemur þó lítið við sögu á vest-
urströndinni fyrr en 1983, að hann
lýkur við Vægð og miskunn (Tender
Mercies), tilfinningaríkan nútíma-
vestra sem færði Robert Duvall lang-
þráð Óskarsverðlaun. Beresford er
mistækur leikstjóri sem hefur gert
best með Ekið með Daisy (Driving
Miss Daisy) (’89) og Svörtu skikkj-
unni (Black Robe) (’91).
Gillian Armstrong hóf Holly-
woodiðju með Mrs. Soffel (’84), sem
fékk ágæta dóma en dræma aðsókn
þó Diane Keaton og Mel Gibson færu
með aðalhlutverkin. Armstrong fer
sínar eigin leiðir og leggur meira upp
úr listrænum en fjárhagslegaum
ávinning. Hún samræmdi bæði mark-
miðin í Litlum konum (Little Women)
(’94) og hefur verið í sviðsljósinu með
hina mögnuðu Óskar og Lúcinda (’97),
og nú síðast Charlotte Grey (’01)
Fred Schepisi vakti heimsat-
hygli með The Chant of Jimmy
Blacksmith (’78), og er kominn
til Hollywood 1982. Gerir vestr-
ann Barbarossa með goðsögninni
Willie Nelson í aðalhlutverki og
gamanmyndin Roxanne (’87)
með Steve Martin kemur honum
endanlega á kortið, ásamt Gráti í
myrkrinu (A Cry In the Dark), ári
síðar.
Peter Weir hefur farnast hvað best.
Eftir heimsviðurkenninguna sem
Lautarferð að Gálgakletti og Loka-
bylgjan hlutu á ofanverðum áttunda
áratugnum hélt leikstjórinn vígreifur
til Hollywood þar sem hann sló um-
svifalaust í gegn með Vitninu (Wit-
ness) (’85). Bekkjarfélagið (Dead
Poets’ Society) (’89) og Þátturinn um
Truman (’89), hafa styrkt stöðu Weirs
ennfrekar. Mikils er vænst af næstu
mynd hans, Ferðinni á heimsenda,
sem verður frumsýnd í nóvember.
Nýsjálendingurinn Jane Campion
gerði garðinn frægan með Píanóinu
(’93), sem færði henni Óskarsverð-
launin fyrir besta handritið og leik-
konunum Holly Hunter og Önnu Paq-
uin. Hún hefur m.a. gert Andlitsmynd
af hefðarkonu fyrir bandaríska fram-
leiðendur en ekki tekist að jafna sig-
urför Píanósins. Campion er engu að
síður í miklum metum í kvikmynda-
heiminum.
George Miller skráði nafn sitt í sög-
una með Mad Max-myndunum þrem.
Hann gerði einnig Nornirnar í East-
wick (’87) og Olíu Lorenzos (’92) og
fjórða MM-myndin er væntanleg að
ári.
Phillip Noyce stimplaði sig inn með
Dauðalogni (Dead Calm) (’89), og hef-
ur haft ærinn starfa síðan við gerð
spennumynda, m.a eftir bókum Toms
Clancy.
Seinni bylgjan
Tugir leikara fylgdu þeim Gibson
og Newton-John eftir og komu sér
fyrir í kvikmyndaborginni. Gibson er
enn sem fyrr einn eftirsóttasti karl-
leikari samtímans.
Ástralinn Nicole Kidman er í svip-
uðum sessi kvenleikara. Hún sló í
gegn í Dauðalogni (’89), spennumynd
Noyce, og hefur verið að vinna sig á
toppinn síðan, hægt en örugglega.
Kidman hefur sýnt einstaka dóm-
greind í hlutverkavali gegnum árin.
Sam Neill hefur verið mjög áber-
andi síðasta aldarfjórðunginn, eða frá
því hann lék á móti Davis í Minn frá-
bæri ferill. Neill hefur prýtt mynd-
irnar Grát í myrkri, Dauðalogn, Pí-
anóið og Júragarðinn I. og II.
Cate Blanchett er sú leikkona sem
næst kemur Kidman hvað vinsældir
og hæfileika snertir í hópi Eyjaálfu-
manna í Hollywood. Hún vakti
óskipta athygli fyrir frammistöðu sína
í Óskar og Lúsindu (’97), og enn frek-
ar í titilhlutverki Elizabeth (’98), sem
færði henni urmul verðlauna og til-
nefninga. Síðan hefur hún sett mark
sitt á myndir á borð við Hinn snjalli
hr. Ripley (The Talented Mr. Ripley)
(’99), Hæfileikinn (The Gift) (’00) og
Hringadróttinssaga I. og II. Blanch-
ett er tvímælalaust ein eftirsóttasta
og virtasta leikkona okkar tíma og fer
næst með matarmikið hlutverk Kath-
arine heitinnar Hepburn í The Av-
iator (’04), mynd Martins Scorsese
um sérvitringinn Howard Hughes.
Russell Crowe er einnig toppmað-
ur í kvikmyndaiðnaðinum. Eftir sig-
urgöngu í Leynimakk í Los Angeles
(L.A. Confidential) (’97), hlaut hann
Óskarstilnefningu fyrir leik sinn í
Innherjanum (’99); vann þau ári síðar
fyrir titilhlutverkið í Skylminga-
þrælnum og enn var hann tilnefndur
fyrir Fögur sál (A Beautiful Mind)
(’01). Crowe er í hópi á að giska fimm
vinsælustu leikara samtímans, sem
þiggja 20 milljón dali eða meira, fyrir
hvert hlutverk! Næst sjáum við
hann í jólamyndinni Ferðin á
heimsenda (Master and Comman-
der: The Far Side of the World).
Nýsjálendingurinn Anna Paq-
uin hefur haldið sig í sviðsljósinu
síðan hún sigraði heiminn í Ósk-
arsverðlaunaham í Píanóinu. Öf-
ugt við flestar aðrar barnastjörn-
ur hefur Önnu tekist að komast í
gegnum unglingsárin á hvíta
tjaldinu og er mikilsvirt í dag eftir
góða frammistöðu í Amistad, X-
menn I. og II. og Á 25. stundu
(25th Hour (’02).
Toni Colette hefur haft nóg fyr-
ir stafni síðan hún kom, sá og sigr-
aði í gamanmyndinni Brúðkaup
Muriel (Muriel’s Wedding) (’94).
Hún gefur m.a. gert góða hluti í
Emmu (’96), Sjötta skilningarvit-
inu (The 6th Sense) (’99), og
Stundunum (The Hours) (’02).
Geoffrey Rush er ógleymanleg-
ur þeim sem sáu hann í Undrið
(Shine) (’96), sem færði leikaran-
um Óskarsverðlaunin. Hann var
tilnefndur fyrir frammistöðu
sína í Ástföngnum Shake-
speare (Shakespeare In
Love) (’98), og Fjöður-
stöfum (Quills) (’00).
Hann átti einnig
magnaðan leik í Eliza-
beth og Banger systurn-
ar (The Banger Sisters)
(’02), og er væntanlegur í
mörgum, forvitnilegum
myndum.
Maórinn Tem-
uera Morrison er í
uppáhaldi eftir frábæra
frammistöðu sem Jake
Heke í Eitt sinn stríðsmenn I.
og II. Hann hefur leikið í all-
nokkrum Hollywood-myndum
(Speed 2; Sex dagar, sjö nætur;
Stjörnustríð II., ofl), en á eftir að fá
sjálfsagða viðurkenningu.
Naomi Watts hefur verið að fikra
sig upp á við með viðkomu í hvers-
kyns ruslmyndum uns hún landaði að-
alhlutverkinu í Mulholland tröð (Mul-
holland Drive), og fór á kostum undir
stjórn Davids Lynch. Hún stóð sig vel
í hrollinum Hringnum (The Ring)
(’02), og er væntanleg í forvitnilegum
myndum eins og I Love Huckabees,
21 gramm (21 Grams) og Morðið á
Nixon forseta (The Assassination of
Richard Nixon), í tveim síðastnefndu
myndunum leikur hún á móti Sean
Penn.
Rachel Griffith er önnur athygl-
isverð leikkona sem hefur komið víða
við, einkum í áströlskum myndum uns
hún vakti athygli fyrir snjalla túlkun á
Hilary du Pré í Hilary og Jackie (’98).
Hin föngulega Griffiths hefur m.a.
komið við sögu að undanförnu í Blow
(’01), og Nýliðanum (’02), með Dennis
Quaid.
Richard Roxburgh er einn af senu-
þjófunum í Rauðu myllunni (’01), og
hefur haft ærið nóg fyrir stafni síðan.
Við sjáum hann í sumarmyndinni Sér-
sveit hinna framúrskarandi heiðurs-
manna (LXG), með Sean Connery
ofl., og að ári sem Drakúla greifa í
Van Helsing (sem margir spá met-
aðsókn).
Hugh Jackman kemur þar einnig
við sögu því hann leikur titilper-
sónuna, vampírubanann, en þessi knái
Sydneybúi skaust upp á Holly-
woodhimininn í X-menn (00), og
tryggði sig enn frekar í sessi í fram-
haldsmyndinni og í gjörólíku hlut-
verki í Kötu og Leópold (’01). Hann á
framtíðina fyrir sér.
Annar ungur Ástrali á uppleið er
Adam Garcia, sem vakti athygli í Á
rúntinum með strákunum (Riding in
Cars With Boys) (’01), og Ljótur
Coyote (Ugly Coyote) (’00).
Eric Bana kom við sögu Svart-
haukurinn ferst (Black Hawk Down)
(’01), en stökk síðan í titilhlutverk
sumarsmellsins Hulk. Bana fer með
aðalhlutverkið í Tróju (Troy) (’04),
ásamt Brad Pitt, undir stjórn Wolf-
gangs Petersen.
Radha Mitchell er ein af mörgum,
efnilegum, áströlskum kvikmynda-
stjörnum sem eru á barmi frægðar-
innar. Hún var firna góð í Van Diesel
tryllinum Biksvart (Pitch Black) (’00),
og Símaklefanum (Phone Booth), sem
verið er að sýna hérlendis um þessar
mundir. Hún er væntanleg síðar á
árinu í tryllinum Maður í ljósum log-
um (Man on Fire), þar fer hún með
aðalhlutverkið á móti Denzel Wash-
ington.
Frances O’Connor vakti talsverða
athygli í aðal kvenhlutverki Gervi-
greindar (A.I.), Spielbergs, og er
væntanleg í stórmyndinni Tímalína
(Timeline), byggðri á metsölubók
Micahels Crichton undir stjórn Rich-
ards Donner.
Guy Pierce er að sigla upp stjörnu-
himininn og stóð sig afar vel í Leyni-
makki í L.A. (’97) og Memento (’00).
Hann er einnig minnisstæður í Prisc-
illa: Drottning eyðimerkurinnar (Pris-
cilla: Queen of the Desert) (’94) og
Ravenous (’99). Næst sjáum við leik-
arann í Tveim bræðrum (Two Broth-
ers) (’04), nýjustu mynd
fransmannsins Jean-Jacques Annaud.
Hugo Weaving er annar gæðaleik-
ari sem hitti í mark í Priscillu. Hann
hefur m.a. komið við sögu stórmynda
kenndra við Matrix og Hringadrótt-
inssögu.
Glæsimennið Heath Ledger er í
góðri uppsveiflu eftir mannalega
frammistöðu í Föðurlandsvininum
(The Patriot) (’99), Riddarasögu (A
Knight’s Tale) (’01), og Kalt kveðjuhóf
(Monster’s Ball) (’01). Næst ber hann
fyrir sjónir í Söfnuðinum (The Order),
nýrri mynd Brians Helgeland.
Og ekki má gleyma sjálfum
Krókódílamanninum, Paul Hogan.
Þá er ógetið Peters Jackson,
„stærstu vonar kvikmyndanna“ eins
og hann hefur verið títtnefndur eftir
sigurför meistaraverkanna sem
kennd eru við Hringadróttinssögu.
Óhætt er að fullyrða að hann er eitt
mesta efni sem komið hefur fram í
sinni stétt í áratugi og verður
forvitnilegt að fylgjast með þessum
leiðtoga og hinum breiða hópi kvik-
myndagerðarmanna frá Eyjaálfu
næstu áratugina.
Ástralar og Nýsjálendingar vinsælir í Hollywood
Velgengni Ástrala og Nýsjálendinga í Hollywood
hlýtur að teljast með ólíkindum. Frá því að kvik-
myndir frá þessum fjarlæga heimshluta urðu
skyndilega í miklum metum á Vesturlöndum hefur
innrás andfætlinganna staðið yfir. Hún er komin um
þrítugt og Sæbjörn Valdimarsson sér síður en svo
þreytumerki á ótrúlegri sigurgöngu.
Heath Ledger Peter JacksonNaomi WattsMel Gibson
Þrjátíu
ára stríðið Þennan harðsnúna kvartett Eyjaálfumanna þarf ekki að kynna fyrir kvikmyndahúsa-gestum. Ástralinn Mel Gibson er ókrýndur kóngur í Hollywood; Heath Ledger er stór-
efnilegur, ungur og upprennandi leikari – líkt og Naomi Watts, hin föngulega stjarna Mul-
holland-traðar. Og Nýsjálendingurinn Peter Jackson (Hringadróttinssögurnar) er
titlaður „helsta von kvikmyndaheimsins“.
Fjórir úr hópnum
Stórstjarna
framtíðarinnar:
Cate Blanchett.
Glæst og hæfileikarík.