Morgunblaðið - 08.08.2003, Side 8
8 B FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐEFNI
HREFNA verður veidd við
Ísland síðar í þessum
mánuði en hrefnuveiðar hafa
ekki verið stundaðar frá árinu
1986. Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra hefur
kynnt áætlun sem felur í sér
að veiddar verði 38 hrefnur í
vísindaskyni í ágúst og
september.
Sjávarútvegsráðherra segir
að þótt ekki sé um
stórtækar veiðar að ræða sé
engu að síður verið að brjóta
blað með ákvörðuninni.
Almennur stuðningur sé við
það hér á landi að hefja veið-
arnar, það hafi komið fram í
skoðanakönnunum.
Bandarísk stjórnvöld hafa
lýst yfir miklum vonbrigðum
með ákvörðunina um að
hefja veiðar. „Allt frá því
Íslendingar tilkynntu fyrr á
þessu ári að þeir hygðust
byrja dráp á hvölum hafa
Bandaríkjamenn hvatt
Íslendinga til að láta ekki
verða af þeim fyrirætlunum,“
sagði blaðafulltrúi banda-
ríska utanríkisráðuneytisins.
Hvalveiðar hafnar á ný
Morgunblaðið/Jim Smart
MARGIR voru á ferðinni um
verslunarmannahelgina, en
stærstu hátíðirnar voru á
Akureyri, í Vestmannaeyjum
og í Galtalæk. Talið er að um
tólf þúsund manns hafi verið
á Akureyri, átta þúsund voru í
Eyjum og um sjö þúsund í
Galtalæk. Hátíðarhöld fóru
víðast hvar vel fram, lítið var
um alvarleg slys í ár og veðrið
var víðast hvar gott.
Verslunarmannahelgin
Morgunblaðið/Kristinn
Um sjö þúsund manns voru á bindindismóti í Galtalæk um
verslunarmannahelgina.
ÁSTHILDUR Helgadóttir,
fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í
knattspyrnu og leikmaður KR,
gengur til liðs við sænska liðið
Malmö FF 30. ágúst. Ásthildur
fer til Svíþjóðar í
framhaldsnám.
Ásthildur sagði að hún yrði
að öllum líkindum ekki með
KR í Evrópukeppninni upp úr
miðjum ágúst í leikjum í
Danmörku, þar sem Malmö FF
tekur einnig þátt í keppninni.
Ljóst er að KR mun fara
með vængbrotið lið til leiks í
Evrópukeppnina, þar sem
þær Þóra B. Helgadóttir
markvörður og Edda
Garðarsdóttir varnarmaður
verða farnar til náms í
Bandaríkjunum.
Stúlkurnar þrjár héldu með
íslenska landsliðinu til
Rússlands í gær, en
kvennalandsliðið leikur
Evrópuleik gegn Rússum í
Moskvu á morgun.
Ísland, Rússland,
Frakkland, Ungverjaland og
Pólland leika í sama riðli og
hafa fjórir leikir farið fram:
Pólland - Ungverjaland........0:2
Rússland - Pólland..............6:0
Ungverjaland - Frakkland ...0:4
Ísland - Ungverjaland..........4:1
Ásthildur hefur leikið 52
landsleiki, verið fyrirliði í
sautján leikjum og skorað 15
mörk.
Ásthildur til liðs
við Malmö FF
Ásthildur Helgadóttir í
landsleik gegn Ungverjum.
Morgunblaðið/Golli
RÚTA með 28 tékkneskum
farþegum valt við
Geldingadraga á laugardag.
Margir farþeganna slösuðust
og 20 þeirra voru fluttir á
slysadeild. Þrír þeirra fóru á
gjörgæslu og var einn þeirra,
tékknesk kona, alvarlega
slasaður og var í öndunarvél
þangað til í gær.
Slysið varð þannig að rútan
mætti gráum jeppa á
veginum og fór svo utarlega
að bílstjóri rútunnar missti
stjórn á henni. Grái jeppinn
sem mætti rútunni hefur ekki
enn fundist. Þegar rútan kom
aftur upp á veginn ákvað
bílstjórinn að láta rútuna
velta frekar en að láta hana
fara niður bratta brekku sem
var framundan. Talið er að
með þessu hafi bílstjórinn
bjargað mannslífum.
Alvarlegt rútuslys
MIKILL hiti hefur verið í
Evrópu síðustu daga. Hefur
hitinn valdið skógareldum,
neyðarástandi í landbúnaði
og hættulega miklu
ósonmagni í lofti.
Í Portúgal hefur verið lýst
yfir neyðarástandi vegna
skógarelda, sem eru þeir
mestu þar í landi í mjög
langan tíma. Eldarnir hafa
kostað níu manns lífið.
Samtals hefur hitabylgjan í
Evrópu dregið 38 manns til
dauða. Nokkrir hafa látist úr
hjartaáfalli vegna hitans.
Hitinn fór víða yfir 40
gráður í Frakklandi og
Þýskalandi. Í Frakklandi er
farið að skammta vatn. Í
Frakklandi og víðar sjá bænd-
ur fram á uppskerubrest.
Í Bretlandi er búist við því
að hitinn muni ná sögulegu
hámarki um helgina og slá
hitamet frá árinu 1990. Þá
náði hitinn 37,1 gráðu.
Í dýragörðum í evrópskum
borgum gripu starfsmenn til
ýmissa ráða til að reyna að
vernda dýrin í kæfandi
sumarhitanum. Mörgæsir í
dýragarðinum í London fengu
fiskfrostpinna, ljón og
tígrisdýr rósmarín- og
blóðrósmarínfrostpinna.
Birnir og apar fengu ávaxtaís.
Deilt er um hvort hitinn
tengist langvarandi
loftslagsbreytingum vegna
svokallaðra
gróðurhúsaáhrifa, en sumir
telja að svo sé.
Hitabylgja
í Evrópu
Reuters
Slökkviliðsmenn reyna að slökkva skógareld nálægt bænum
Serta í Mið-Portúgal.
Netfang: auefni@mbl.is