Morgunblaðið - 11.08.2003, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRASILÍSKI miðjumaðurinn
Kaka, 21 árs, leikmaður hjá San
Paolo, er á leiðinni til AC Milan, sem
mun greiða um 800 millj. ís. kr. fyrir
hann. Kaka mun hitta fyrir Brasilíu-
mennina Rivaldo og Cafu. „Það verð-
ur stórkostlegt að klæðast búningi
AC Milan og leika við hliðina á Riv-
aldo og Cafu,“ sagði Kaka.
JUAN Sebastian Veron er kominn
á ný í landsliðshóp Argentínu – fyrir
vináttuleik gegn Uruguay, sem fer
fram í Flórens á Ítalíu 20. ágúst.
Þetta er í aðeins annað sinn sem hann
er valinn í liðið frá því á HM 2002.
LANDSLIÐS-þjálfararnir Marcelo
Bielsa hjá Argentínu og Juan Ramon
Carrasco hjá Uruguay, ætla að tefla
fram þeim leikmönnum sem leika í
Evrópu.
Í ARGENTÍSKA liðinu eru margir
kunnir leikmenn, eins og varnar-
mennirnir Facundo Quiroga (Sport-
ing Lisbon), Roberto Ayala (Val-
encia), Walter Samuel (Roma),
Gabriel Heinze (París St Germain),
Diego Placente (Leverkusen), miðju-
mennirnir Javier Zanetti og Matias
Almeyda (báðir hjá Inter), Juan Seb-
astian Veron (Chelsea), Pablo Aimar
(Valencia) og sóknarmennirnir Jav-
ier Saviola (Barcelona), Hernan
Crespo (Inter Milan) og Claudio Lop-
ez (Lazio).
LEIK Watford og Coventry í ensku
1. deildarkeppninni var frestað á
laugardaginn, eftir að Jimmy Davis,
21 árs, leikmaður Watford, lést í bif-
reiðarslysi á hraðbraut við London,
er hann var á leið til leiks. Watford
fékk Davis lánaðan frá Manchester
United í júní.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Englandsmeistara Manchester
United, sagði á laugardag að hann
ætlaði sér að halda áfram að stjórna
United liðinu svo lengi sem hans
starfskrafta væri óskað á Old Traf-
ford.
LENNOX Lewis, þungavigtarbox-
ari, hefur ákveðið að berjast ekki
meira á árinu en það stóð til að hann
myndi mæta Vitali Klitschko í nóv-
ember. Lewis sigraði Klitschko í
mjög umdeildum bardaga í sumar og
margir boxáhugamenn vilja sjá þá
berjast aftur.
LEWIS, sem er 37 ára gamall, hef-
ur ekki gefið það út hvort hann sé
endanlega hættur að berjast. „Ég
myndi hafa gaman af því að mæta
Klitschko aftur en ég mun ekki mæta
honum í ár. Kannski berst ég við hann
á næsta ári en það mun bara koma í
ljós,“ sagði Lewis við blaðamenn.
REAL Madrid sigraði landslið Taí-
lands 2:1 í gær en þetta var síðasti
leikur liðsins í æfingaferð félagsins í
austurlöndum. Fernando Morientes
og Javier Portillo gerðu mörk
spænsku meistaranna.
FÓLK
Leikmenn Rússlands byrjuðu leik-inn með að sækja að marki Ís-
lands, en íslensku stúlkurnar vörðust
vel og á 12. mín. náðu þær skyndisókn
sem endaði með því að Hrefna Jó-
hannesdóttir sendi knöttinn í netið
hjá Rússum, 1:0. Sóknin hófst með því
að Laufey Ólafsdóttir átti góða send-
ingu frá hægri kanti inn að vítateig
Rússa, þar tók Ásthildur Helgadóttir
við knettinum, lék á varnarmann og
spyrnti að marki – knötturinn skall á
stönginni og knötturinn fór út.
Hrefna var þar á réttum stað og sendi
hún knöttinn örugglega í netið.
Þessi óskabyrjun hafði góð áhrif á
leik íslenska liðsins, en stúlkurnar
náðu þó ekki að koma í veg fyrir að
Rússar næðu að jafna aðeins fimm
mín. síðar með þrumuskoti utan víta-
teigs. Þóra B. Helgadóttur, mark-
vörður, átti ekki möguleika á að verja.
Strax í upphafi síðari hálfleiks, á 50.
mín., fékk einn leikmaður Rússlands
gult spjald í tvígang og var því rekinn
af leikvelli. Eftir það náðu íslensku
stúlkurnar góðum tökum á leiknum,
en þeim tókst ekki að nýta sér liðs-
muninn og tryggja sér sigur. Heppn-
in var ekki með þeim, því að tvisvar
hafnaði knötturinn á tréverkinu hjá
Rússum. Ásthildur Helgadóttir átti
fyrst skot í slá og skömmu síðar skall-
aði Hrefna Jóhannesdóttir knöttinn í
slána. Markahrókurinn Olga Fær-
seth fékk einnig tvö mjög góð tæki-
færi til að skora, en henni brást boga-
listin.
Íslenska liðið verður að teljast
óheppið að hafa ekki farið heim með
þrjú stig frá viðureigninni gegn Rúss-
um, sem eru með eitt sterkasta lands-
lið heims.Ásthildur Helgadóttir, fyr-
irliði íslenska liðsins, átti mjög góðan
leik, eins og Laufey Ólafsdóttir. Þá
voru þær Íris Andrésdóttir og Björg
Ásta Þórðardóttir sterkar í vörninni.
Barátta og leikgleði
„Við erum mjög ánægðar með leik
okkar, en svekktar að hafa ekki náð
að leggja Rússa að velli,“ sagði Erla
Hendriksdóttir eftir leikinn. „Við ætl-
uðum okkur að ná jafntefli og mætt-
um grimmar til leiks. Það var gaman
að sjá hvað leikur liðsins var yfirveg-
aður. Við vorum óhræddar að halda
knettinum og leika honum á milli okk-
ar. Við lékum ekki stífan varnarleik,
heldur sóttum við.
Óheppnar í
Rússlandi
„VIÐ getum ekki annað en verið ánægðar með að ná jafntefli hér
gegn Rússum,“ sagði Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari íslenska
kvennadsliðsins, sem kom skemmtilega á óvart með því að gera
jafntefli við Rússland í undankeppni Evrópukeppni landsliða í Sel-
iatino á laugardaginn, 1:1. Íslensku stúlkurnar fengu tækifæri til að
gera út um leikinn, en heppnin var ekki með þeim – tvisvar hafnaði
knötturinn á þverslánni á marki Rússa. „Það hefði verið gaman að
ná sigri – við fengum tækifæri til þess.“
Kvennalandsliðið gerði jafntefli við Rússa
í Evrópukeppni landsliða í Seliatino
ÞÓRÐUR Guðjónsson, leikmaður Bochum,
lék síðari hálfleikinn gegn Hamburg í
þýsku 1.deildinni á laugardaginn en liðin
skildu jöfn 1:1. Þórður lék vel og vonar að
með frammistöðu sinni fái hann tækifæri
gegn Bayern München um næstu helgi.
„Ég kom inná miðjuna og mér gekk mjög
vel og ég er mjög sáttur. Það kom betra
skipulag á leik okkar eftir að ég kom inná.
Í fyrri hálfleik var Hamburg mun sterkara
liðið. Þeir hefðu getað verið þremur til
fjórum mörkum yfir eftir 30 mínúta leik en
þetta er rosalega sterkt lið. Í síðari hálfleik
lékum við betur og hefðum getað skorað
nokkur mörk en það gekk ekki að þessu
sinni. Aðstæðurnar voru rosalega erfiðar
því hitinn var nánast óbærilegur og hann
komst upp í 47° gráður og það er mjög erf-
itt að koma inná við svoleiðis aðstæður,“
sagði Þórður í samtali við Morgunblaðið.
Þórði gekk
vel í hitanum
LÁRUS Orri Sigurðsson, leikmaður West Brom Albion í ensku 1. deild-
inni, þurfti að fara af leikvelli gegn Walsall á 35. mínútu vegna meiðsla.
West Brom tapaði 4:1 á útivelli en staðan var 1:0 fyrir Walsall þegar Lár-
us Orri fór af velli. „Þetta eru taugameiðsl í baki og það er mjög erfitt að
eiga við þessi meiðsl en ég byrjaði að finna fyrir þeim síðasta fimmtu-
dag. Ég ákvað að láta að reyna á hvort ég gæti leikið heilan leik en það
gekk ekki að þessu sinni. Nú er bara einn dagur í einu tekinn og ég var í
sjúkrameðferð í dag og það er allt gert til þess að ég komist í gang sem
allra fyrst. Ég vonast til að geta leikið í deildinni næsta laugardag en
það verður bara að koma í ljós hversu snöggur ég verð að ná mér,“ sagði
Lárus Orri í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður um leikinn gegn
Walsall sagði Lárus Orri að þetta hefði verið einn af þessum dögum þar
sem þetta gekk ekki upp. „Ég hef spilað fjórum sinnum á þessum velli og
alltaf tapað og ég hef ekki góðar minningar frá honum. Fyrstu 30 mín-
úturnar vorum við miklu betri og mér fannst bara tímaspursmál hvenær
við kæmust yfir. Þegar þeir komust yfir hafði ég ekki miklar áhyggjur
því ég hélt að við myndum ná yfirhöndinni þegar líða tæki á leikinn.
Walsall skoraði tvö frábær mörk og þetta var einn af þessum dögum þar
sem þetta gekk einfaldlega ekki upp. Það eru nú 45 leikir eftir í deildinni
þannig að við höfum nú ekki of miklar áhyggjur af þessu tapi.“
Lárus Orri fór
meiddur af leikvelli
Lárus Orri
„VIÐ gerðum okkur grein fyrir
hvað leikur okkar var góður, þegar
þjálfari rússneska liðsins hrósaði ís-
lenska liðinu og sagði eftir leikinn
að liðið hafi leikið betur en fyrir ári
síðan, en þá gerðum við einnig jafn-
tefli í Rússlandi. Rússneska liðið
hefur æft mikið að undanförnu,
enda er það að búa sig undir þátt-
töku í heimsmeistarakeppninni,“
sagði Erla Hendriksdóttir.
Erla sagði að það hafi ekki orðið
miklar breytingar á rússneska lið-
inu frá því í fyrra, en við erum að-
eins fimm eftir í íslenska liðinu sem
lék þá. Ég, Þóra, Ásthildur, Edda
og Olga. Við erum með ungt lið,
sem er í framför og lofar góðu.
Næsti leikur okkar verður í
Frakklandi, en Rússar og Frakkar
voru taldir sigurstranglegastir í
riðlinum. Við munum fara til
Frakklands með sama hugarfari og
við fórum til Rússlands. Vonandi
náum við sama árangri þar, eða
jafnvel sigri,“ sagði Erla.
Hrós frá þjálfara Rússa
FH 1:2 Fylkir
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
13. umferð
Kaplakriki
Sunnudaginn 10. ágúst
2003
Aðstæður:
Blautur völlur en góður, lítill
vindur og mikil rigning á köfl-
um
Áhorfendur: 1050
Dómari:
Erlendur Eiríksson,
Fram, 3
Aðstoðardómarar:
Leiknir Ágústsson,
Garðar Örn Hinriksson
Skot á mark: 15(7) - 10(4)
Hornspyrnur: 6 - 3
Rangstöður: 2 - 2
Leikskipulag: 4-5-1
Daði Lárusson
Magnús Ingi Einarsson
Freyr Bjarnason
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson M
Sverrir Garðarsson
(Víðir Leifsson 60.)
Baldur Bett
Jón Þorgrímur Stefánsson M
Heimir Guðjónsson M
Hermann Albertsson
(Jónas Grani Garðarsson 79.)
Allan Borgvardt M
Atli Viðar Björnsson
Kjartan Sturluson M
Helgi Valur Daníelsson M
Þórhallur Dan Jóhannsson
Hrafnkell Helgason M
Kjartan Antonsson M
Ólafur Ingi Skúlason M
(Arnar Þór Úlfarsson 90.)
Finnur Kolbeinsson M
Sverrir Sverrisson
Ólafur Páll Snorrason
(Theódór Óskarsson 55.)
Haukur Ingi Guðnason
Sævar Þór Gíslason
(Björn Viðar Ásbjörnsson 66.) M
0:1 (73.) Björn Viðar Ásbjörnsson fékk boltann hægra megin í vítateignum og
lék aðeins inn í teiginn og skaut lúmsku skoti neðst í markhornið en
Daði Lárusson hreyfði sig ekki á línunni og horfði á eftir boltanum í
netið.
0:2 (81.) Finnur Kolbeinsson náði boltanum upp við endamörkin og lék þar
glæsilega á Heimi Guðjónsson og skaut föstu hnitmiðuðu skoti sem
endaði í markhorninu, óverjandi fyrir Daða Lárusson.
1:2 (90.) Eftir mikinn atgang í vítateig Fylkismanna barst boltinn til Jón Þor-
gríms Stefánssons sem skoraði með föstu skoti.
Gul spjöld: Hermann Albertsson, FH (31.) fyrir brot. Sverrir Sverrisson, Fylkir (90.) fyrir
brot.
Rauð spjöld: Engin
VERNHARÐ Þorleifsson
náði bestum árangri ís-
lenskra júdómanna, sem
kepptu um helgina á sterku
alþjóðlegu móti í Braunsch-
weig í Þýskalandi. Vern-
harð varð fimmti í 100 kg
flokki. Hann vann þrjár við-
ureignir og tapaði einni.
Vernharð varð síðan að
gefa viðureign um brons-
verðlaun, þar sem hann
meiddist á öxl.
Bjarni Skúlason varð
sautjándi í sínum þyngd-
arflokki, Gígja Guðbrands-
dóttir þrettánda í sínum
flokki. Margrét Bjarnadótt-
ir keppti einnig á mótinu,
tapaði einu viðureign sinni.
Vernharð
meiddist
á öxlÞað var barátta og leikgleði sem
einkenndi leik okkar og ungu stúlk-
urnar komu vel frá leiknum,“ sagði
Erla og hún sagði að markið hefði
komið á mjög góðum tíma.
„Það varð til að auka sjálfstraustið
hjá okkur, en við vorum nokkuð
spenntar fyrir leikinn. Það kom ró yf-
ir leik liðsins, enda þungu fargi af
okkur létt. Það kom okkur nokkuð á
óvart, þegar Rússar misstu leikmann
af velli í byrjun seinni hálfleiksins, að
þeir breyttu ekki leikaðferð sinni. Við
það náðum við góðum tökum á miðj-
unni, en því miður var heppnin ekki
með okkur. Við hefðum mátt vera
ákveðnari og grimmari síðustu tutt-
ugu mínútur leiksins, en þreytan var
þá farin að segja til sín.
Eftir leikinn vorum við ánægðar
með jafnteflið, en frekar sárar að hafa
ekki náð að nýta okkur liðsmuninn og
knýja fram sigur,“ sagði Erla.