Morgunblaðið - 25.10.2003, Blaðsíða 8
DAGLEGT LÍF
8 B LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞETTA húsnæði sem versluniner í var búið að standa autt ínokkurn tíma þegar okkur
datt í hug að setja á stofn skartgripa-
og gjafavöruverslun,“ segir Oddný
Bragadóttir. „Það var í maí 1992.
Okkur datt þetta bara allt í einu í hug
og það kom ekki annað til greina en
að við myndum flytja allar vörurnar
í verslunina inn sjálfar. Síðan hefur
þetta þróast af sjálfu sér og í aukn-
um mæli höfum við boðið upp á
handunna vöru eftir okkur sjálf.“
Það voru mæðgurnar Oddný og
Kristín Jónasdóttir sem ákváðu að
stofna verslunina. Kaupmennska
hefur verið viðloðandi fjölskyldu
Kristínar í margar kynslóðir og
sjálf hefur hún starfað við versl-
unarstörf frá unga aldri.
Verslun og verkstæði
í fjölskylduhúsi
Um það leyti sem búðin var
opnuð bjuggu þau Oddný og eig-
inmaður hennar, Shaban Tbeiaa,
í Reykjavík en fluttu fljótlega í Borg-
arnes. Oddný vann í Sparisjóði Mýra-
sýslu en Kristín afgreiddi og Shaban
framleiddi í Kristýju. Oddný
vann svo í frístundum við
að framleiða fyrir búð-
ina. Þegar Sandri son-
ur þeirra Shabans
fæddist 1997 hætti
hún í Sparisjóðnum
og hefur unnið í
Kristý frá þeim tíma.
Verslunin er við
Skúlagötu í Borgar-
nesi og var upphaflega
í aðalverslunarhverf-
inu, en nú eru flestar
verslanir í nágrenni við
Borgarfjarðarbrúna. Oddný
kveðst þó ekki finna fyrir að
vera út úr. „Þetta húsnæði hefur
upp á svo margt að bjóða sem erfitt
væri að finna annars staðar,“ segir
hún.
„Foreldrar mínir eiga húsið og búa
á efri hæðinni og úr búðinni er hring-
stigi upp í íbúðina þeirra. Mamma
vinnur í búðinni, en getur sinnt ýmsu
heima fyrir ef lítið er að gera. Við
Shaban vinnum bæði hér því verk-
stæðið og lagerinn eru inn af búðinni
og þegar Sandri er búinn í skólanum,
sem er hérna rétt hjá, kemur hann
hingað og spjallar mikið við afa sinn,
Braga Jóhannsson, enda eru þeir góð-
ir vinir.“
Hefur alltaf haft gaman af
að búa eitthvað til
Oddný segir að hún hafi alla tíð haft
gaman af því að búa eitthvað til, eins
og að hnýta flugur og fleira. Fljótlega
eftir að verslunin var opnuð var hún í
fermingarveislu og sá þar fallegan
spegil úr gleri. Hún fékk að vita
að hann hefði fengist hjá
Listgleri í Kópavogi og
ákvað að fara á námskeið
hjá fyrirtækinu. Þar lærði
hún að búa til glervörur
með svokallaðri Tiffanýs aðferð.
Síðan kenndi hún Shaban aðferð-
ina og upp frá því hafa þau alltaf haft
fjölbreytt úrval af slíkum vörum á
boðstólum. Einna vinsælust hefur
verið mynd af Borgarfirðinum og
Hafnarfjalli sem hægt er að hengja út
í glugga.
En smám saman fengu þau áhuga á
að gera fleira. Þau fóru til dæmis á
einkanámskeið í gullsmíði til Birm-
ingham á Englandi og fengu þar góða
innsýn í grunnatriði gullsmíðinnar,
efnisval og hvaða tækjabúnaður er
notaður. Einnig hafa þau farið á leir-
námskeið og glerbræðslunámskeið.
„Núna er ég að fara á námskeið hjá
Jónasi Braga glerlistamanni og
hlakka mikið til,“ segir Oddný.
„Annars finnst mér áberandi hvað
fólk hefur mikinn áhuga á að kaupa
handunna gjafavöru. Ég verð líka vör
við að fólk úr Borgarfjarðarhéraði
hefur gaman af því að gefa gjafir sem
búnar eru til hér. Fyrir utan það sem
við búum til sjálf bjóðum við upp á
innflutta handunna hluti. Til dæmis
höfum við flutt inn ýmiss konar mat-
aráhöld, svo sem ostahnífa, steikar-
hnífa, kökuspaða, salatsett og fleira
frá Afríku sem hefur verið ákaflega
vinsælt. Við förum reglulega á vöru-
sýningar í útlöndum. Það þýðir ekk-
ert annað ef maður ætlar að vera með
hluti sem eru öðruvísi en aðrir bjóða
upp á. Og það er fljótt að spyrjast út.“
Oddný segir að þau vinni mikið upp
í sérpantanir bæði fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Fyrirtæki á svæðinu
leita mikið til þeirra og hafa þau bæði
unnið ýmiss konar verðlaunagripi, t.d.
fyrir Borgarbyggð, og einnig gjafir
fyrir einstaklinga af einhverju sér-
stöku tilefni.
Að undanförnu hefur verið mikið
um nýjungar í versluninni, svo sem
ýmsar glervörur og glermyndir og
sambland af járni og gleri.
„Ég fæ mínar bestu hugmyndir
rétt áður en ég fer að sofa,“ segir
Oddný. „Þá er ró og friður og ég læt
hugann reika. Það virkar mjög vel.“
asdish@mbl.is
Maður og kona: Gyllt
gler í járnramma.
Latibær:
Glerskál
með húsum.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdótti
Kristín og Oddný í Kristý. Fyrir framan þær eru ýmsir munir eftir Oddnýju.
Fjólublár engill úr gleri
með gyllingu.
Hugmyndirnar
kvikna rétt
fyrir svefninn
Lundi
á steini.
Kertastjaki úr
járni og gleri.
Hún lætur ekki mikið yfir sér verslunin
Kristý í Borgarnesi. Ásdís Haraldsdóttir
vissi þó að innanbúðar starfar bæði hug-
myndaríkt og framkvæmdaglatt fólk.