Morgunblaðið - 03.11.2003, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2003 B 3
ADAM Spanich leikmaður úrvals-
deildarliðs KFÍ skorar mest allra að
meðaltali í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik, Intersportdeildinni, þeg-
ar fimm umferðir eru búnar af
deildinni. Athygli vekur að nýliðar
KFÍ eru með tvo leikmenn af fimm
efstu og nýliðar Þórs frá Þorláks-
höfn eru með tvo leikmenn á meðal
tíu efstu. Spanich hefur hitt mjög
vel úr skotum sínum til þessa. Hann
er með yfir 50 % nýtingu úr tveggja
stiga skotum sínum og rúmlega
42% fyrir utan þriggja stiga línuna.
Enginn íslenskur leikmaður
kemst á lista yfir tíu efstu stiga-
hæstu leikmenn deildarinnar og
listinn þannig skipaður:
Adam Spanich, KFÍ................ 34,8
Leon Brisport, Þór Þ.............. 30,8
Brandon Woudstra, UMFN .......29
Jeb Ivey, KFÍ........................... 28,2
Michael Manciel, Haukar ...... 27,2
Darrel Lewis, Grindavík .......... 25
Derrick Allen, Keflavík ......... 24,2
Raymond Robins, Þór Þ......... 24,2
Chris Woods, KR........................ 24
Clifton Cook, Tindastóll ........ 22,4
Páll Axel skorar mest
af Íslendingunum
Eins og sjá má komast íslenskir
leikmenn ekki á listann en þrír leik-
menn eru þó nálægt því að vera á
þeim lista.
Ef þeir eru teknir sérstaklega út
þá er íslenski listinn yfir 10 stiga-
hæstu að meðaltali þannig:
Páll A.Vilbergson, Grindav... 21,6
Eiríkur S. Önundarsson, ÍR .. 21,3
Kristinn Friðriksson, Tind.... 21,2
Kevin Grandberg, ÍR ............. 18,4
Pálmi Sigurgeirsson, Brei. ....17,2
Sigurður Þorvaldsson, Snæf. 15,6
Friðrik E. Stefánsson, Nja. ... 15,2
Gunnlaugur Erlendsson, Þór... 14
Falur Harðarson, Keflavík.... 14,5
Lárus Jónsson, Hamar........... 13,8
Ísfirðingurinn Adam
Spanich skorar mest
En á móti kemur að inn í liðið komu
menn núna sem sýndu að þeir hafa
bætt sig verulega sem varnarmenn,
eins og til dæmis Gunnar Berg Vikt-
orsson. Við erum alltaf að leita að
mönnum sem geta leyst þessa stöðu
inn á miðjunni í vörninni til að létta
aðeins á þeim sem þar mest brennur
á. Gunnar kom vel út í þeirri stöðu.
Þá lék Guðjón Valur vel sem bak-
vörður, staða sem hann hefur ekki
leikið mikið í vörn landsliðsins. Hann
skilaði sínu hlutverki vel, eins nafn-
arnir Róbert Sighvatsson og Gunn-
arsson í horninu. Þeir voru einnig
fínir. Það eru afar jákvætt að sjá
fleiri leikmenn koma inn í þetta erf-
iða hlutverk í vörninni, þessir leikir
hafa fært okkur heim sanninn um
það að aukin breidd er að færast í
varnarleikinn okkar þótt margt sé
ennþá ógert.
Sex núll vörnin gekk betur heldur
en fimm plús einn og fimm einn vörn,
ekki satt?
„Ég get tekið undir það. Fram-
liggjandi vörnin gekk á tíðum ágæt-
lega í Hafnarfirði í fyrsta leiknum en
eftir það var hún lakari. Það er mikil
vinna framundan í 5+1 vörninni og
5/1 en sex núll vörnin okkar gekk
betur ég hafði ef til vill reiknað með.
Það var bara ekki hægt að fara yfir
öll þau atriði sem við vildum á þeim
stutta tíma sem við höfðum til æf-
inga. En fyrsta og fremst þá fengum
við svör við mörgum spurningum og
getum því hagað undirbúningi okkar
á markvissan hátt þegar liðið kemur
saman næst í byrjun næsta árs. “
Guðmundur sagðist vera í heild
sáttur við útkomu leikjanna og þau
svör sem hann fékk, en undirstrikar
að það sé mikil vinna framundan fyr-
ir EM og þótt liðið standi að mörgu
leyti vel nú þá sé ekki sopið kálið.
Allt verði hreinlega að ganga upp
þegar á EM verði komið, meðal ann-
ars það að hann geti stillt upp sínu
sterkasta liði. Þá megi heldur ekki
byggja upp of miklar væntingar þótt
staðan sé góð í dag, nánast allt verði
að gang upp á EM til þess að árang-
ur náist, bestur þjóðir heim í hand-
knattleik séu í mikilli framför. „Við
setjum að sjálfsögðu markið hátt en
þegar komið er í hóp þeirra bestu má
ekkert bera út af því bestu þjóðirnar
eru það sterkar.“
Sóknin var í heildina ágæt
Það eru ennþá nokkur vandræði í
sóknarleiknum á vinstri vængnum
sem ekki tókst að leysa fyllilega í
þessum þremur leikjum?
„Í raun veru finnst mér það ekki.
Sóknarleikurinn var góður í fyrsta
leiknum og eins í viðureigninni í
Ólafsvík ef undan er skilin sá kafli
þar sem Pólverjarnir tóku tvo leik-
menn úr umferð. Þá komu upp atriði
sem við teljum okkur hafa leyst. Það
var hins vegar gott að þetta atriði
kom upp núna til þess að við getum
brugðist við í tíma.
Þegar heildina er lítið finnst mér
helst hægt að gangrýna sóknarleik-
inn hjá okkur síðustu fimmtán til
tuttugu mínúturnar í síðustu viður-
eigninni. Þá misstum við niður hrað-
ann og við gerðum okkur seka um
mistök. Það er ef til vill ekki óeðlilegt
þegar á það er litið að þetta þriðji
leikurinn á þremur dögum og menn
máski farnir að þreytast. Þá má
heldur ekki gleyma því að Pólverjar
voru að reyna eitt og annað í sínum
varnarleik, breyttu mikið innan
leikjana og því hefði kannski mátt
eiga von á sóknin hjá okkur gengi
eitthvað verr en raun varð á. “
Hvernig finnst þér líkamlegt
ástand manna vera?
„Ástand manna er yfir höfuð mjög
gott, ég er sáttur við það eins og það
er. Menn verða hins vegar að gera
sér grein fyrir því að það er mikil
keppni framundan. Það má ekki
slaka á nú þótt staðan sé góð. Fram-
undan er hörkukeppni á EM þar sem
allir leikmenn verða að vera fullkom-
lega klárir í slaginn, leika átta leiki á
tíu dögum. Það kostar gríðarlega
orku og er ólíkt því að leika tvo leiki
á viku. Leikmenn verða því haga æf-
ingum sínum miðað við það á næstu
vikum og mánuðum.
Með þetta gríðarlega álag í huga
þá var það ætlun mín að nota sem
flesta leikmenn í leikjunum við Pól-
verja og það tókst og án þess að kom
niður á hraða og leikskipulagi okk-
ar.“
Þrátt fyrir að hraðaupphlaupin
hafi gengið vel þá segir Guðmundur
það greinilegt að menn sakni mjög
Patreks, Ólafur og Patrekur „bera“
boltann mun hraða upp völlinn en
aðrir og greinilegt að fjarvera Pat-
reks veiki liðið einnig að því leytinu.
„Seinni bylgjan í hraðaupphlaupum
var ekki nógu góð og er eitt þeirra
atriða sem við verðum að skoða ofan
í kjölinn og leita skýringa á.“
Markvarslan hefur á stundum
verið áhyggjumál. Þegar þú lítur yfir
þessa þrjá leiki hvað finnst þér um
hana?
„Hún var viðundandi, en því miður
þá detta markverðirnir svolítið niður
á milli og þá kannski á mikilvægum
augnablikum eins og undir lokin í
þessum þriðja og síðasta leik. Eins
undir lokin í viðureigninni í Ólafsvík.
En þetta atriði ekki í augnblikinu
eins mikið áhyggjuefni og oft áður.
Á þessi stundu hef ég mestar
áhyggjur af Róberti Sighvatssyni
línumanni sem hugsanlega er fing-
urbrotinn eftir þennan leik, það að
lítur að minnsta kosti ekki vel út á
þessari stundu. “
hefur úr miklu að moða eftir vináttuleikina þrjá við Pólverja um helgina
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðmundur Guðmundsson gefur hér lærisveinum sínum góð ráð í leiknum við Pólverja í gær.
iben@mbl.is
LOGI Gunnarsson skoraði 6 stig
fyrir Giessen 46’ers í þýsku úrvals-
deildinni í körfuknattleik á laugar-
dag en liðið tapaði 109:112 fyrir TBB
Trier eftir framlengingu. Staðan var
95:95 að loknum venjulegum leik-
tíma. Þess má geta að Jón Arnór
Stefánsson var í herbúðum Trier á
síðustu leiktíð. Giessen 46’ers hefur
unnið tvo leiki til þessa af fjórum og
er um miðja deild sem stendur.
ÁSBJÖRN Stefánsson, hornmað-
ur í liði Vals, er kominn í herbúðir
Víkings en félögin náðu samkomu-
lagi um lánssamning. Ásbjörn á að
taka stöðu Ragnars Hjaltested sem
þurfti að fara í uppskurð og leikur
ekki meira með á tímabilinu.
AC Milan og Juventus skildu jöfn,
1:1, í toppslag ítölsku A-deildarinnar
í knattspyrnu. Evrópumeistararnir í
AC Milan og Ítalíumeistarar Juv-
entus tróna saman á toppnum með
20 stig en Roma er tveimur stigum á
eftir. Danski landsliðsmaðurinn Jan
Dahl Tomasson kom Mílanóliðinu
yfir en Marco Di Vaio jafnaði sex
mínútum fyrir leikslok.
VINCENZO Montella og norski
framherjinn John Carew tryggðu
Roma sigurinn á Reggina í gær.
Carew kom inn á fyrir Montella í síð-
ari hálfleik og þakkaði traustið með
því að skora gott mark.
RONALDO skoraði tvívegis og
Luis Figo eitt þegar Real Madrid
vann öruggan sigur á Atletico
Bilbao, 3:0, í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardagskvöld.
David Beckham lék með Madridar-
liðinu á nýjan leik eftir meiðsli.
BARCELONA og Real Sociedad
skildu jöfn í miklum markaleik, 3:3.
Thiago Motta, Marc Overmars og
Gabri skoruðu fyrir Börsunga og
jafnaði Gabri metin sjö mínútum fyr-
ir leikslok en Börsungar voru þá
orðnir manni færri eftir að Motta var
vikið af velli á 78. mínútu.
TIM Henmann fagnaði sigri á at-
vinnumannamóti í tennis í París í
gær. Bretinn lagði Rúmenann Andr-
ei Pavel í úrslitaleik, 6:2, 7:6 og 7:6.
Á leið sinni í undanúrslitin lagði
Henmann Gustavo Kuerten og
Andy Roddick, sem er stigahæstur á
styrkleikalista alþjóðatennissam-
bandsins.
ZACH Randolph skoraði 21 stig
og tók 13 fráköst er lið hans Port-
land Trail Blazers lagði Cleveland
Cavaliers, 104:85, í NBA-deildinni í
körfuknattleik aðfaranótt sunnu-
dags. Allra augu beindust að nýlið-
anum LeBron James í liði Cavs en
hann sá aldrei til sólar í leiknum og
skoraði aðeins átta stig.
FÓLK
RÓBERT Sighvatsson, línumaður íslenska
landsliðsins í handknattleik, meiddist á
fingri undir lok leiksins við Pólverja í Laug-
ardalshöll í gærkvöld. Róbert fer í lækn-
isskoðun í Þýskalandi í dag og þá kemur
endanlega í ljós hvers kyns meiðsli þetta
eru.
„Það er þrennt sem kemur til greina.
Brot, slitið liðband eða ég hef farið úr liði.
Ég verð bara að vona það besta en ég er
mjög bólginn og aumur í fingrinum,“ sagði
Róbert við Morgunblaðið en hann átti góð-
an leik gegn Pólverjum í gær og skoraði 5
mörk.
Elís Þór Rafnsson sjúkraþjálfari íslenska
liðsins sagði í samtali við Morgunblaðið að
líklega væri Róbert óbrotinn en liðbandið
skaddað en reikna má með að Róbert verði
frá æfingum og keppni næstu vikurnar.
Óhappið varð með þeim hætti að Róbert
var í baráttu við pólskan varnarmann um
frákast sem endaði með því að sá pólski
lenti harkalega ofan á hendi Róberts með
fyrrgreindum afleiðingum.
Róbert meidd-
ist á fingri
Morgunblaðið/Árni Torfason
Róbert Sighvatsson skoraði fimm mörk gegn Pólverjum
í gær en hann meiddist á fingri undir lok leiksins og það
skýrist í dag hversu alvarleg meiðslin eru.