Morgunblaðið - 09.11.2003, Qupperneq 6
6 C SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vaktstjórar
Vel þekkt veitingahús á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir að ráða eftirtalið Starfsfólk:
Vaktstjóra (Veitingastjóra) til umsjónar með
veitingasal o.fl.
Matreiðslumann sem vaktstjóra í eldhúsi.
Skilyrði eru að umsækjendur séu eldri en 23.
ára, og hafi að minnsta kosti þriggja ára
reynslu í sambærilegum störfum.
Umsóknum skal skilað inn á auglýsingadeild
Morgunblaðsins fyrir föstudaginn 15. nóvem-
ber 2003, merkt: „Stormur 5349“.
Laugar health & spa centre sem verður
opnað í janúar 2004 óskar eftir að ráða til
sín gott, jákvætt og traust fólk í eftirtalin
störf í veitingadeild nýju heilsu- og líkams-
ræktarmiðstöðvarinnar sem nú er verið að
reisa í Laugardal:
Matreiðslumenn.
Aðstoð í eldhús (reynsla æskileg).
Þjóna í sal og í afgreiðslu veitinga- og
kaffihússins.
Við leitum að góðu, traustu og ábyrgðar-
fullu fólki sem hefur gaman af og áhuga
á að vinna saman í góðu teymi og skemmti-
legu umhverfi. Góð enskukunnátta er skil-
yrði.
Skilyrði er að umsóknum fylgi ítarleg feril-
skrá og er reynsla af fyrrgreindum störfum
sem í boði eru æskileg. Lágmarksaldur er
18 ár. Umsóknarfrestur er til 17. nóv. 2003
og skulu umsóknir berast augldeild Mbl., eða
á box@mbl.is merktar: „104 Laugar Café“.
Rauði kross Íslands
Reykjavíkurdeild
Vinalínan
R-RKÍ óskar eftir starfsmanni í 75% starf hjá
Vinalínunni. Starfið felst í almennum skrifstofu-
störfum, stjórnun, stuðningi við sjálfboðaliða,
kynningar og námskeið.
Umsóknir ásamt náms- og starfsferilsskrá
óskast sendar til: Rauði kross Íslands, Reykja-
víkurdeild, b.t. framkvæmdastjóra, Fákafeni
11, 108 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2003.
Lækna- og
móttökuritarar
Heilsugæslan Salahverfi — Kópavogi
Salus ehf. óskar eftir að ráða læknaritara og
móttökuritara til starfa í Heilsugæslunni Sala-
hverfi í Kópavogi.
Heilsugæslan verður staðsett á Salavegi 2,
Kópavogi, og er fyrst og fremst ætlað að þjóna
íbúum Linda-, Sala- og Vatnsendahverfa í
Kópavogi skv. samningi Salus ehf. við Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Stöðin
tekur til starfa um mánaðamótin janúar—febrú-
ar nk. Á stöðinni verður öll almenn heilsu-
gæsla; læknisþjónusta, hjúkrun, meðgöngu-
og ungbarnaeftirlit og rannsóknarstofa. Æski-
legt er að viðkomandi hafi reynslu af heilsu-
gæslu og vinnu við Sögukerfið.
Umsóknir með upplýsingum um náms- og
starfsferil skulu berast fyrir 21. nóvember nk.
til Guðjóns Magnússonar, Salus ehf., Flatahra-
uni 5a, 220 Hafnarfirði, en hann veitir einnig
frekari upplýsingar um starfið í síma 540 6380
eða á netfangið gudjon@nysir.is .
Staða tæknimanns við eðlisfræðistofu
Raunvísindastofnunar
Háskólans
er laus til umsóknar
Starfið felst í sýnagerð vegna rannsókna í eð-
lisfræði hálfleiðara og skyldra efna, meðal ann-
ars ræktun kristalla með sameindaúðun (e.
molecular beam epitaxy),húðun málmsam-
skeyta á hálfleiðandi sýni auk rafmælinga eða
ljósmælinga efir atvikum til að greina eigin-
leika sýnanna. Tæknimanninum er einnig
ætlað að hafa umsjón með rekstri og viðhaldi
rann- sóknatækja stofunnar. Starfið hentar eð-
lisfræðingi, efnafræðingi eða verkfræðingi
með reynslu af sýnagerð og rannsóknum í eð-
lisfræði þéttefnis. Umsækjandi þarf að vera
reiðubúinn til að mennta sig á þessum sviðum.
Ráðningartími er þrjú ár frá 1. janúar 2004.
Nánari upplýsingar gefur Hafliði Pétur Gísla-
son, forstöðumaður eðlisfræðistofu, í tölvu-
fangi haflidi@hi.is eða í síma 525 4800.
Laun greiðast samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist til framkvæmdastjóra Raun-
vísindastofnunar Háskólans fyrir 20. nóvember
nk.
Raunvísindastofnun Háskólans.
„Au pair“ í Svíþjóð
Íslensk læknafjölskylda í Suður-Svíþjóð (milli
Lundar og Malmö), óskar eftir reyklausri „au
pair“-stúlku á aldrinum 18—25 ára til að að-
stoða við barnapössun á börnunum okkar
tveimur, 8 og 4ra ára. Þarf að byrja í janúar ´04
og dvelja hjá okkur í a.m.k. 6 mán. Áhugasam-
ar hafi samband í síma 0046-40-463244 eða
með tölvupósti til annabjorn@telia.com.
Embætti
héraðsdómara
Dómsmálaráðherra, samkvæmt tillögu dóm-
stólaráðs, auglýsir laust til umsóknar embætti
héraðsdómara. Embættið er veitt frá og með
1. febrúar 2004. Mun dómarinn, fyrst um sinn,
ekki eiga fast sæti við tiltekinn héraðsdómstól,
sbr. heimild í 1. mgr. 15. gr. laga um dómstóla
nr. 15/1998. Fyrsta starfsstöð dómarans verður
Héraðsdómur Reykjavíkur en auk starfa þar
verða honum einnig falin verkefni meðal ann-
ars við Héraðsdóm Suðurlands og Héraðsdóm
Vesturlands.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, Skuggasundi, eigi síðar en 1. desem-
ber 2003.
Dóms-og kirkjumálaráðuneytinu,
6. nóvember 2003.
Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa
skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar. Umsóknir þar
sem umsækjandi óskar nafnleyndar verða ekki teknar gildar.
DVALARHEIMILIÐ HÖFÐI
300 AKRANES SÍMI 431 2500
Hjúkrunarforstjóri
Á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, er laus
staða hjúkrunarforstjóra. Um er að ræða 100%
stöðu sem laus er frá 1. janúar 2004.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður hjúkr-
unarfræðinga:
90% staða deildarstjóra á hjúkrunardeild.
80% staða deildarstjóra á almennri vistdeild.
60% staða hjúkrunarfræðings á vöktum.
Stöðurnar eru lausar frá 1. janúar 2004.
Dvalarheimilið Höfði er blandað hjúkrunar-
og dvalarheimili með 78 íbúum.
Nánari upplýsingar veitir Sólveig Kristinsdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 431 2500.
Heilbrigðisstofnunin
Patreksfirði
Lausar tvær stöður lækna
Staða yfirlæknis:
Starfið skiptist til helminga á heilsugæslusviði
og á sjúkradeild.
Staða læknis:
Starfið er til helminga á heilsugæslusviði og
á sjúkrasviði.
Æskileg sérgrein heimilislækningar en þó ekki
skilyrði.
Stöðurnar veitast frá og með 1. janúar 2004.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2003.
Starfssvæðið er Vestur- Barðastrandarsýsla
þ.e. Patreksfjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur
og aðliggjandi sveitir. Öll aðstaða við stofnun-
ina er til fyrirmyndar. Mannlíf er gott á svæðinu
sem og öll þjónusta.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Jón B.G.
Jónsson, yfirlæknir, í síma 450 2000.
Umsóknir skulu sendast Úlfari B. Thoroddsen,
framkvæmdastjóra, Stekkum 1, 450 Patreks-
fjörður.