Morgunblaðið - 10.11.2003, Page 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 10 mörk í
gær þegar Ciudad Real gerði jafntefli,
34:34, við Lemgo frá Þýskalandi á heima-
velli í Meistaradeild Evrópu í handknatt-
leik. Sex markanna skoraði hann úr víta-
köstum. Liðin eru efst og jöfn í sínum riðli
með 5 stig eftir þrjá leiki og eru nokkuð
örugg með að komast í 16-liða úrslitin en
þau hafa ekki verið í teljandi vandræðum
með Zaporzhye frá Úkraínu og Convers-
ano frá Ítalíu.
Leikurinn var jafn og spennandi frá
upphafi til enda og liðin voru með forystuna til skiptis. Ciudad
Real komst í 15:12 og það var mesti munurinn í leiknum. Lemgo
var yfir í hálfleik, 19:18.
Entrerrios kom næstur á eftir Ólafi í markaskoruninni hjá
Ciudad með 8 mörk og Talant Dujshebaev skoraði 4. Christan
Schwarzer skoraði 10 mörk fyrir Lemgo, Florian Kehrmann 6
og Volker Zerbe 5.
Tíu mörk Ólafs
gegn Lemgo
RÓBERT Gunnarsson, landsliðsmaður í
handknattleik, var markahæstur hjá Århus
GF í báðum leikjum liðsins við Boavista frá
Portúgal í EHF-bikarnum í handknattleik
um helgina. Leikirnir voru báðir leiknir í Ár-
ósum og á laugardag skoraði Róbert 9 mörk
þegar lið hans sigraði, 39:24. Í gær gerði
hann síðan 8 mörk þegar Århus GF sigraði,
36:25.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson skoraði eitt
mark fyrir danska liðið í hvorum leik.
Danska liðið FC Köbenhavn átti enn
greiðari leið áfram um helgina en liðið mætti
HC Tbilisi frá Georgíu í tveimur leikjum í
Kaupmannahöfn. Danirnir unnu fyrri leikinn
39:13 og þann síðar með hvorki meira né
minna en 38 marka mun, 43:5.
Róbert skoraði
17 mörk
gegn Boavista
Heimamenn voru skrefinu á und-an nánast allan tímann, en
gestunum tókst alltaf að halda
spennu í leiknum.
Leikurinn var bráð-
fjörugur og ágæt
skemmtun, enda
hafa leikir þessara
liða verið hörkurimmur í gegnum
tíðina. FH-ingar náðu mest fjögurra
marka forskoti í fyrri hálfleik, og
náðu góðum kafla sem skilaði þeim
auðveldum mörkum úr hraðaupp-
hlaupum. Stjarnan svaraði því hins
vegar undir lok fyrri hálfleiks, þar
sem Rússinn David Kekelija skoraði
þrjú mörk í röð. Forysta FH var því
aðeins eitt mark í hálfleik, 15:14.
Síðari hálfleikurinn þróaðist á
svipaðan hátt, FH-ingar með yfir-
höndina en Stjörnumenn aldrei
langt undan. Þegar tuttugu mínútur
voru eftir af leiknum kom þjálfarinn
Sigurður Bjarnason inn á í lið
Stjörnunnar. Var forskot heima-
manna þá orðið fimm mörk, 22:17,
en Sigurði tókst að hleypa lífi í leik
sinna manna og tókst þeim að
minnka muninn mest niður í eitt
mark, 25:24. Á lokakaflanum misstu
Stjörnumenn einbeitinguna og fóru
að pirra sig á öllum hlutum. Leik-
reyndir leikmenn FH nýttu sér það
vel og kláruðu leikinn af öryggi. Úr-
slit leiksins urðu 30:26 og mikilvæg
stig í höfn hjá FH.
Óhætt er að hrósa leikmönnum
beggja liða fyrir góða baráttu en þó
gengu menn fullhart fram á köflum
sem skilaði sér í þrettán brottvís-
unum. Jóhannes Jóhannesson,
varnarjaxl hjá Stjörnunni, var úti-
lokaður frá leiknum þegar um sex
mínútur lifðu af leiknum, eftir að
hann missti stjórn á skapi sínu og
braut klaufalega af sér. Liðin léku
bæði 6-0 vörn allan tímann og gekk
það misjafnlega, en þjálfarar lið-
anna eru tæplega ánægðir með að fá
á sig meira en 25 mörk.
FH-ingar voru klókir þegar á
reyndi og tókst að halda sér í bar-
áttunni um að komast upp úr riðl-
inum. Hornamennirnir Guðmundur
Petersen og Hjörtur Hinriksson
voru bestu menn liðsins og nýttu
færin sín mjög vel. Arnar Péturson
var sterkur í vörninni og Magnús
Sigmundsson varði ágætlega í síðari
hálfleik. Logi Geirsson var þeirra
markahæstur eins og oft áður en
var með slaka skotnýtingu. Í liði
Stjörnunnar var markvörðurinn
Jarek Kowal bestur og varði 18
skot, þar af eitt vítakast. Kekelija
átti einnig góðan leik og skoraði úr
öllum skotum sínum í leiknum. Vil-
hjálmur Halldórsson er þeirra
hættulegasti maður, en líkt og Logi
þá virtist hann ekki alveg finna sig
þrátt fyrir að vera markahæstur
gestanna, og brenndi til að mynda af
tveimur vítaköstum. Sigurður
Bjarnason kom sterkur inn eins og
áður segir, en annar þrautreyndur
leikmaður, Gústaf Bjarnason, skil-
aði hins vegar sáralitlu í þessum leik
og hlýtur það að vera áhyggjuefni
fyrir Stjörnumenn.
Valsmenn betri
á öllum sviðum
Hið unga lið Aftureldingar hittisvo sannarlega fyrir ofjarla
sína þegar Valsmenn heimsóttu þá í
Mosfellsbæinn síð-
degis í gær. Leik-
menn Afturelding-
ar, sem slógu FH-
inga út í bikar-
keppninni á fimmtudagskvöldið,
áttu aldrei erindi í einbeitta leik-
menn Vals sem voru betri á öllum
sviðum, lokatölur 32:18, eftir að
munurinn að loknum fyrri hálfleik
var átta mörk, 13:5.
Valsmenn sluppu með skrekkinn í
fyrri leik liðanna í haust og ætluðu
þeir greinilega ekki að láta Mosfell-
inga sljóta sér skelk í bringu að
þessu sinni. Leikurinn var í járnum
fyrstu tíu mínúturnar, staðan 3:3.
Eftir það var sem eitt lið væri á vell-
inum. Valsmenn lokuðu vörninni,
fengu að gera það sem þeim sýndist
óáreittir í sókninni auk þess sem
lukkudísirnar voru á þeirra bandi.
Eftir það þurfti ekki að spyrja að
leikslokum. Síðari hálfleikurinn bar
síðan keim af þeim yfirburðum sem
Valsmenn náðu í fyrri hálfleik og
einstefnan var algjör af hálfu Hlíð-
arendapilta.
„Við lékum góða vörn frá byrjun,
markvarslan var fín og þannig náð-
um við góðu forskoti. Leikmenn
lögðu sig alla fram og voru stað-
ráðnir í að gera sitt besta og það
tókst,“ sagði Óskar Bjarni Óskars-
son, þjálfari Vals. „Við vissum að
fenginni reynslu að við yrðum að
leika vel til að vinna því Aftureld-
ingar-liðið hefur staðið sig vel til
þessa og við berum virðingu fyrir
leikmönnum þess því þetta er ungt
og afar efnilegt lið, þetta er fyrsti
skellur liðsins á keppnistímabilinu.
Í ljósi árangurs Aftureldingar til
þessa vissum við að það þýddi ekk-
ert annað en að koma af fullum
krafti í leikinn og það tókst og þar
með skildi leiðir,“ sagði Óskar.
Fyrsti sigur Selfyssinga
Þeir voru ekki margir sem reikn-uðu með því að leikur Breiða-
bliks og Selfoss í suðurriðli undan-
keppni Íslandsmóts
karla í handknatt-
leik myndi verða
skráður í sögubæk-
ur fyrir glæsileika.
En þeir voru heldur ekki margir
sem áttu von á þeim hörmungarleik
sem liðin buðu uppá í Smáranum í
gær. Leikurinn reis aldrei uppúr því
hnoði og moði sem byrjendur í bolt-
anum sýna á köflum. Gestirnir frá
Selfossi sigruðu örugglega, 34:30,
og fóru heim með stigin tvö, sem eru
þau fyrstu sem liðið vinnur sér inn í
vetur.
Selfyssingar voru staðráðnir í að
hefna tapsins á heimavelli fyrr í vet-
ur og keyrðu upp hraðann í leiknum
sem mest þeir máttu. Þeir skoruðu
12 af 19 mörkum sínum í fyrri hálf-
leik úr hraðaupphlaupum. Blikarnir
vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið
en vonir þeirra og væntingar lágu
fyrst og fremst í þeim slaka varn-
arleik sem Selfyssingar buðu uppá
og náðu að setja 13 mörk í fyrri hálf-
leiknum.
Eitthvað hefur Brynjar Freyr
Stefánsson, þjálfari Breiðabliks, átt
uppí erminni í leikhléinu því á fyrstu
sjö mínútum seinni hálfleiks minnk-
uðu Blikar muninn í 2 mörk, 19:21,
og hleyptu örlítilli spennu í leikinn.
Hún var þó fljót að fjara út, gest-
irnir þurftu enda ekki mikið til að
laga leik sinn og unnu 30:34 sigur
sem fyrr segir.
Stefán Guðmundsson lék best í
liði Breiðabliks ásamt Birni Óla
Guðmundssyni en hjá Selfyssingum
lék Haraldur Þorvarðarsson best
ásamt þeim nöfnum Ramunas
Mikalonis og Kalendauska.
Mikilvægur
sigur FH gegn
Stjörnunni
FH-INGAR sigruðu nágranna sína í Stjörnunni, 30:26, í suðurriðli 1.
deildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gær. Sigurinn var þeim
mikilvægur til þess að halda sér í baráttunni um efstu sætin í riðl-
inum. Að sama skapi missti Stjarnan af gullnu tækifæri til þess að
skilja FH eftir í neðri hlutanum.
Kristján
Jónsson
skrifar
Ívar
Benediktsson
skrifar
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Vignir Svavarsson, línumaður Hauka, brýst í gegnum vörn Varda
Fram að tíundu mínútu var jafnt á meðliðum komið en síðan gekk allt á aft-
urfótunum hjá Fram þegar níu af tíu sókn-
um þeirra fóru í súginn.
Víkingum hinsvegar efldust
við hvert mark þar til for-
skotið var 12:7. Þá tók þjálf-
ari Fram leikhlé og setti í
kjölfarið skyttur Víkinga, Bjarka Sigurðs-
son og Tomas Kavolius, í stranga gæslu í
sókninni auk þess að Héðinn Gilsson var
sendur á vettvang til að treysta sóknarleik
Fram. Það skilaði sér strax en ekki að fullu
fyrr en í síðari hálfleik þegar Framarar
jafna 17:17. Í stað þess að láta kné fylgja
kviði virtust þeir bíða eftir að forystan færð-
ist yfir til þeirra en með góðan baráttusigur
í seilingarfjarlægð lögðu Víkingar allt í söl-
urnar og ef ekki hefði verið fyrir frábæra
markvörslu Egidjusar Petkevicius í marki
Fram hefði sigur Víkinga orðið stærri.
„Við höfum einmitt verið að klúðra svona
leikjum í vetur en það kom ekki til greina
núna þótt þetta væri tæpt,“ sagði Andri
Berg Haraldsson, skytta í Víkingi, sem átti
góðan leik á laugardaginn. „Þeir tóku tvo úr
umferð hjá okkur og það tók nokkurn tíma
að finna lausn á því en svo var þetta bara
barningur sem eftir lifði leiks. Það er alltaf
svona erfitt á móti Fram, liðið gefst al
upp. Við höfum alls ekki sýnt mikið af
sem við getum því við höfum aldrei náð
ur á strik í vetur en tókst þó að hafa sig
þessum. Við erum eftir sem áður ekki í g
stöðu svo við tökum einn leik fyrir í ein
sjáum hvað það gefur okkur.“ Ásamt An
átti Reynir Þór Reynisson markvörður
an leik og Þresti Helgasyni tókst ágæt
að halda uppi spili hjá Víkingum undir lo
Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram,
ómyrkur í máli eftir leikinn. „Við spilu
gríðarlega illa og það má víst ekkert s
um dómara, svo að ég sleppi því. Menn m
ír spiluðu hvorki vörn né sókn eins og f
var lagt. Í vörninni voru menn aðalle
hliðar-saman-hliðar sporum og snertu v
mótherja á meðan Víkingar voru í slags
um,“ sagði Heimir eftir leikinn. „Við hö
verið í vandræðum og söknum Björg
Þórs og Hjálmars, sem gátu ekki verið
og Héðinn hefur ekki getað æft á milli le
vegna meiðsla svo að við ætluðum að h
hann í sókninni en menn höndluðu það
heldur spiluðu eins og krakkar og gáfu s
leikinn í lokin.“ Egidijus, Héðinn og V
mar Þórsson voru bestir hjá Fram en A
Þór Sæþórsson og Jón Björgvin Pétur
áttu góða spretti.
Loks þraukuðu
Víkingar til enda
Stefán
Stefánsson
skrifar
LOKS er Víkingum tókst að þrauka heilan leik fengu þeir það rækilega launa
með góðum baráttusigri á Fram í Víkinni á laugardaginn, 24:23. Fram misst
fyrir vikið af efsta sæti norður-riðils deildarinnar en siglir samt lygnan sjó á
meðan allt verður að ganga upp hjá Víkingum til að þeir eigi möguleika á að
komast í úrvalsdeildina.