Vísir - 21.11.1980, Qupperneq 11
11
Föstudagur 21. nóvember 1980
Cll £)OK!tI]H
Sýndu að þú sért hetja
Sýndu að þú sért hetja er ný
unglingabók sem komin er út hjá
Máli og menningu. Höfundur
bókarinnar er K.M. Peyton, sem
einnig er höfundur bókanna um
Patrick Pennington. Sýndu aö þú
sért hetja gerist á slóðum þeirra
Patricks og Rutar i Essex i Eng-
landi en sögurnar um Patrick
Pennington hafa notið mikilla
vinsælda. Þýðandi þeirra, Silja
Aðalsteinsdóttir, hefur lesið þær i
útvarp, og þær hafa allar komið
út hjá Máli og menningu.
Á ystu nöf.
Ct er komin á vegum Iöunnar
skáldsaga A ystu nöfeftir breska
höfundinn Adam Hall. Þetta er
njósnasaga og er söguhetjan
Quiller sá sem frá var sagt i bók
höfundar, Njósnir i Berlln.sem út
kom á islensku i fyrra.
Um efni sögunnar A ystu nöf,
Quiller i eyðimörkinni, segir svo á
kápubaki: „Hröpuð flutninga-
flugvél liggur grafin i eyði-
merkursandinn, áhöfnin orðin
hrægömmum aö bráð. Óhugnan-
legur farmur vélarinnar er gildra
hverjum sem nálgast hann.
Asetningur Quillers er að kanna
hann nákvæmlega...”
Alfheiður Kjartansdóttir þýddi
A ystu nöf. Sagan er i tuttugu
köflum, 240 blaðsiður. Oddi
prentaði.
Kirkjan játar
Bókaútgáfan Salt hf hefur sent
frá sér bókina Kirkjan játar,
játningarrit islensku þjóð-
kirkjunnar með inngangi og skýr-
ingum eftir dr. Einar Sigur-
björnsson. A þessu ári eru liðin
450 ár frá þvi að Agsborgarjátn-
ingin var lögð fram og er þess
minnst meö ýmsum hætti um
hinn lútherska heim. Bókin ætti
að vera öllum þeim, er vilja
kynna sér játningargrundvöll is-
lensku kirkjunnar, kærkomin
lesning og inniheldur hún auk
þess aðgengilegar skýringar á
textum játninganna.
Setningu prentun og bókband
annaðist Prentverk Akraness.
Hún fæst i bókaverslunum og
kostar 13.585 kr.
Skothrfð úr launsátri
Hörpuútgáfan á Akranesi
sendir nú frá sér nýja bók eftir
Francis Clifford og er það 13. bók-
in hans, sem út kemur á islensku.
„1 þessari bók tekst Francis
Clifford að spinna þræði sem
mynda hinn fullkomna vef Hin
mannlegu viðbrögð og úrslit eru
svo óvænt að enginn getur spáð i
þau fyrirfram. Clifford rekur á
snilldarlegan hátt þann hildar-
leik, sem hér er háður”.
Francis Clifford hlaut 1. verð-
laun „Crime Writer’s
Association” árið 1969 og hefur
siðan hlotið fjölda af verðlaunum
og viðurkenningum fyrir bækur
sinar.
Bókin er 197 bls. Skúli Jensson
þýddi. Hún er prentuð i Prent-
verki Akraness hf. og bundin i
Arnar-Bergi hf. Káputeikningu
gerði Hilmar Þ. Helgason.
ERLINO POULSEN
Ást og eldur
Ást og eldur
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
sent frá sér nýja ástarsögu eftir
danska rithöfundinn Erling Poul-
sen.
Ast afbrýði, dularmögn og
flóknir forlagaþræðir fléttast
saman á siöum bókarinnar og
spinna söguþráð sem er svo
spennandi að bókin verður lesin I
einni lotu.
Aður eru útkomnar i bóka-
flokknum Rauðu ástarsögurnar:
1. Hjarta mitt hrópar á þig
2. Ast í skugga óttans
3. Það ert þú sem ég elska
4. óvænt örlög
Bókin er 198 bls. Skúli Jensson
þýddi. Prentverk Akraness hf.
hefur annast prentun og bókband.
VISIR
Veiðar og veiðarfæri
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér Veiðarfærabók AB —
Veiöar og veiðarfæri — eftir
Guðna Þorsteinsson fiskifræöing.
Bókin lýsir i rækilegum texta
veiðiaðferðum og veiðarfærum
sem tiðkast hafa og tiðkast nú við
veiði sjávardýra hvar sem er i
heiminum. Már Elisson fiski-
málastjóri ritar formála fyrir
bókinni og segir þar m.a.: „Bók
sú er nú kemur fyrir almennings-
sjónir er hin gagnlegasta og bætir
úr brýnni þörf... Höfundurinn
Guðni Þorsteinsson býr augljós-
lega yfir mikilli þekkingu á fisk-
veiðum og margvislegri veiði-
tækni og þróun hennar viðsvegar
um veröldsvo ogsögu fiskveiða...
Bókin er með fjölda mynda og
nákvæmum skrám yfir veiðar-
færi, nöfn þeirra bæöi á
ensku og islensku. Hún er 186 bls.
aö stærð og i sama bókaflokki og
Fiskabók AB og Jurtabók AB.
mdcíHuor 1 iinynuldu
ðiÐEIRS
mmm
Aðeins móðir
Bókaútgáfan Salt hefur sent frá
sér bókina Aðeins móðir eftir
hollensku konuna A.M. de
Moor-Ringnalda. Bókina skrifar
sex barna móðir og lýsir hún
samskiþtum og samstarfi sinu við
eiginmánn og börn i bliðu og
striðu. '
Vera má að lesendum kunni að
finnast bókin túlka gamaldags
skoðanir á hlutverkaskiptingu
kynjanna aö hlutur föðurins i
heimilislifinu sé annar en vera
ætti á nútimaheimili. En höf-
undur er ekki að boða misrétti
kynjanna eöa binda konuna við
húsmóðurstörfin ein heldur er
hann að miðla af reynslu sinni i
þvi skyni að varpa ljósi á hvers
þýðingarmikil störf húsmóður-
innar er. Bók þessa hefur Jó-
hanna. G. Möller þýtt, en hún las
hana i útvarp sumarið 1978.
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiði alls konar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallt fyrirliggjandi ýmsar
stœrðir verðlaunabikara og verðlauna-
peninga einnig styttur fyrir flestar
greinar iþrótta.
Leitið upplýsinga.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavogi 8 - Reykjavík - Sími 22804
Nouðungaruppboð
annað og siöasta á Funahöfða 17, þingl. eign Stálvers h.f.
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Iðn-
lánasjóðs og Sigurðar Sigurjónssonar hdl. á eigninni
sjálfri mánudag 24. nóvember 1980 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og slðasta á hluta i Njörvasundi 27, þingl. eign
Hjartar Grimssonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar
I Reykjavlk og Innheimtust. sveitarfél. á eigninni sjálfri
mánudag 24. nóvember 1980 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
SETJARI
vanur pappirsumbroti,
óskast strax.
SVANSPRENT HF.
Auðbrekku 55 — Sími 4-27-00
Enginn kaupir
rúm eða sófasett
m
Smurbrauðstofan
BJQRINJINrsJ
Njálsgötu 49 - Simi 15105