Vísir - 21.11.1980, Síða 18
PT
18
vism
-bd fi * ';.i, . ■ y t i t ;.rt‘}J p <?'
Föstudagur 21. nóvember 1980
manrúíí
,9Vid gerum okkur
grein fyrir hættunnV*
— vidtal vid Önnu og Jakob í vikubíadinu People
t nýjasta hefti bandarfska
timaritsins People er birt þriggja
siftna grein og vifttal meft mynd-
um af þeim hjónum önnu
Björnsdóttur og Jakob
Magnússyni, se m biisett eru i Los
Angeles. Timaritift er eitt hift
útbreiddasta á sinu svifti i vestur-
heimi en þaft fjaiiar aðallega um
frægt fólk og mannlff i ýmsum
myndum. Greinin fjallar um fcril
þeirra vestra og islenskan upp-
rnna og er skemmtileg til af-
lestrar. Þó er þaft ýmisiegt sem
kemur spánskt fyrir sjónir okkar
mörlandans og minnir okkur á, aft
Amerikaninn er á margan hátt
óiikur okkur f hugsunarhætti enda
er þar oft fjallaft um menn og
málefni út frá einkennilegum
sjónarhornum, að þvf er okkur
finnst. Þetta kemur m.a. fram i
upphafi greinarinnar um önnu og
Jakob:
„Hjónaband þeirra önnu Bjorn
og Jakobs Magnússonar mætir
fleiri ögrunum, en mörg önnur
hjónabönd. 25 ára gömul, er
Bjorn ein af fallegustu og eftir-
sóttustu fyrirsætum i heiminum.
Hún vinnur sér inn meira en 2000
dollara á dag (1.1 milljón isl.
króna) fyrir Noxzema sjónvarps-
auglýsingarnar „Take it off” og
„Trust Anna” (en þar fetar hdn i
fótspor Noxzema stúlknanna
Gunilla Knutsson og Farrah Faw-
cett) og fyrir Sassoon auglýs-
inguna þar sem hún þyrlar ljósu
hárinu.
„Norræna menningin er sterk”, — segir Jakob og gefur smá sýnishorn
ásamt önnu f þjóftbúningi mcft fánann I bakgrunni.
-J
WtfflmL \> ratöL j'Æ
Wr * \
í samanburði viö þetta er frami
Jakobs enn ilága drifinu, (eins og
þaö er oröaö i People). A síöasta
ári hræröi hann í gagnrýnendum i
bandariska jassheiminum meö
fyrstu amerisku breiöplötu sinni
„Special Treatment” sem var
mjög rafmögnuð. Jakob, sem er
27 ára gamall, segir um þetta:
„Platan var ef til vill of fldkin fyr-
irhinn almenna hlustanda”. Þaö
þýöir, aö platan náöi ekki aö slá i
gegn sem söluvara, — (segir
People).
1 samkvæmislifmu mæta hjón-
unum önnur vandamál. Þau hafa
veriö gift i tvö og hálft ár og á
gestalistanum eru margar
þekktar persónur og þar má
nefna samkvæmi meö fólki eins
og Christopher Reeve (Super-
man), Maud Adams og Britt Ekl-
and. — „Hvenær sem er má búast
viö aö glæsileg kona eöa myndar-
legur maöur liti inn”, — játar
Jakob. „Viö gerum okkur grein
fyrir hættunni.” — „Samt sem
áöur er Jakob mjög afslapp-
aður”, — segir Anna. „Ég hef
aðeins einu sinni vitaö til aö hann
væri afbrýðisamur og þaö var á
vissan hátt þægileg tilfinning.”
En þrátt fyrir tekjumismun og
freistingar viröist hjónabandiö
traust. „Viö mundum bæöi eiga
erfitt meö aö búa meö öörum”, —
segir Jakob. — „Þaö er enginn
hér sem þekkir bakgrunn okkar
heima”.
Hér á hann viö Island, fjalla-
land þar sem fólksfjöldinn er um
230 þúsund manns. Anna segir aö
afi sinn hafi verið fyrsti tann-
læknir á Islandi og frönskukenn-
ari Jakobs hér i eina tiö, er konan
sem .nú er forseti landsins. Rokk-
hljómsveit Magnússonar, Stuö-
menn, var um árabil ein
vinsælasta hljómsveit landsins og
seldi hljómplötur I þúsundatali,
sem er sambærilegt viö milljónir
hér i Ameriku. „Heima vorum viö
stórir fiskar i litilli tjörn”, — út-
skýrir hann.
Þau eru enn islenskir
rikisborgarar og taka þátt i' starfi
Islendingafélagsins í Kaliforniu,
sem hefur um 400 meðlimi.
Nokkrum sinnum á ári fara hjón-
in heim til Reykjavikur, höfuð-
borgar Islands. „Þar er mikiö af
listamönnum og rithöfundum”,
segir Jakob m.a.
Anna og Jakob gengu i sama
menntaskólann i Reykjavik, en
kynntust þó aldrei á þeim tima.
Anna, sem var tveimur árum á
eftir Jakob rifjar þetta timabil
upp: „Ég var með gleraugu,
fléttur og var flatbrjósta i þá tlð.
Hann hefði aldrei litiö viö mér.”
ILondon áriö 1974, rakst Jakob
á mynd af henni i dagblaði. Hann
bauö henni út aö boröa og á þessu
fyrsta stefnumóti þeirra pantaði
hann smokkfisk. „Hún neitaöi aö
boröa hann”, — segir Jakob
þegar hann. rifjar þetta upp. —
Jakob i einkastúdíói sinu i bilskúrnum, kannar hina ýmsu möguleika rafmagnstónlistarinnar. „Ég heid
aft Bach heffti gertþetta Hka”, —segir hann.
Elin Holmtoft, ein
þekktasta og vinsæl-
asta fyrirsæta
Dana, sem i mörg ár
hefur unnið fyrir
aðra, hefur nú sett á
stofn eigin módel-
samtök sem hún
nefnir ,,Fashion-
Girls". Lét hún svo
um mælt, að timi
væri til kominn að
breyta til og taka
sjálf við stjórnar-
taumunum. Sam-
hliða þessu hefur
hún ákveðið að
hætta sjálf að sýna
enda i nógu að
snúast við að stjórna
fyrirtækinu....
Skugga-
Sveinn
í brúdu-
líki
Um þessar mundir
stendur yfir sýning Jóns
E. Guðmundssonar á
Kjarvalsstöðum, en Jón
sýnir þar tréskurðar-
myndir og málverk. Og
þar sem Jón er faðir
íslensks brúðuleikhúss
þótti sjálfsagt og eðlilegt
aðsetja upp brúðuleikrit í
tengslum við sýninguna
og varð leikritið Skugga-
Sveinn fyrir valinu.
Verður leikritið sýnt á
hverjum degi á meðan á
sýningunni stendur en
brúðunum stjórna nem-
óndur úr Leiklistarskóla
ríkisins. Ljósmyndari
Vísis, Gunnar V. Andrés-
son, var viðstaddur
frumsýninguna á laugar-
daginn síðastliðinn og tók
hann þar meðfylgjandi
myndir.
Aft lokinni frumsýningu á
Skugga-Sveini voru Jóni færft
blóm og er hann hér aft þakka
fyrir sig. A myndinni má sjá
Forseta tslands, Vigdisi Finn-
bogadóttur, sem viðstödd var
frumsýninguna.
m-------------->
Nemendur úr Leiklistarskóla
rikisins, sem stjórna brúðunum
koma fram I ieiksiok. — (Visis-
myndir: G.V.A.)