Vísir - 20.12.1980, Side 13

Vísir - 20.12.1980, Side 13
Getið þið hjálpað Jenna að komast heim til sin? Einfalt jóla- föndur Klippiö út þrjár lengjur af krep- pappir um það bil 60 cm á lengd og 5 sm á breidd. Festið endana saman með öryggisnælu viö stól t.d. og teygið aðeins á endunum og fléttiö þá siðan saman. Takið svo næluna úr og limið yfir end- ana með limbandi eins og sést á mynd nr. 1. Geriö nú hring úr fléttunni og þar sem endarnir mætast gerið þið slaufu úr endun- um sjálfum. Hún er siðan skreytt með gliti. Festið hringinn á vegg oghengiðihann jólakúlu. (Mynd: 2). Limið saman 6 drykkjarstrá eins og sést á myndinni. Þegar limið er orðið vel þurrt er falleg jólakúla hengd i stjörnuna. Þessa stjörnu má gjarnan nota til aö skreyta með glugga. (Mynd: 3). Umsjön: Anna K. BrynjUlfs- dóttir Eldspýtna- þrautir Takið 11 eidspýtur og raðiö þeim upp eins og sýnt er á myndinni hér að neöan: Færiö aðeins þrjár eidspýt- ur þannig að eftir verði aöeins tveir ferhyrningar. Nota verö- ur ailar eldspýturnar. Raðið 24 eldspýtum i 9 fer- hyrninga eins og sýnt er hér að neðan: Fjarlægið 8 eldspýtur svo eftir verði tveir ferhyrningar. Lausnir á bls. 30 i blaði I. Dregiö i jólagetrauninni. Mynd: Anna Jólagetraun barnanna: Vinningshafamir Mikill fjöldi svara barst við jólagetraun barnanna og hafa verið dregnir úr réttum lausnum 10 vinnings- hafar, sem hver um sig fær hreyfileikföng (play- mobil) frá versluninni Fido i Reykjavík fyrir 20 þús- und krónur. Vinningshafarnir eru: 1. Árni Þór Halldórsson, Esjuvöllum 11, Akranesi. 2. Borgþór Egilsson, Hagatúni 11, Höfn í Horna- firði. 3. Brynjar Ag. Sigurðsson, Marargötu 1, Reykjavík. 4. Grétar Þór Sæþórsson, Sæbóli 7, Grundarfirði. 5. Hannes örn Hilmisson, Kleppsvegi 140, Reykja- vik. 6. Jón Gunnar Sævarsson, Hæðarbyggð 2, Garðabæ. 7. Jórunn Sjöfn Guðlaugsdóttir, Fjölnisvegi 15, Reykjavík. 8. Lísa Ragnoli, Þrúðvangi 20, Hafnarfirði. 9. Njörður Sigurðsson, Kambahrauni 31, Hvera- gerði. 10. Ylfa og Njörður ólabörn, Bröttugötu 20, Vest- mannaeyjum. Við þökkum öllum þeim sem hafa sent bréf vegna getraunarinnar og óskum þeim gleðilegrar hátíðar. Gleöileg jóí Brádum koma blessuð jólin Ljóðið í dag velur Erla Kristin Jónsdóttir, 3 ára, Viðigrund 43. Hún velur sér Bráðum koma biessuð jólin eftir Jóhannes úr Kötlum. Bráðum koma blessuð jólin börnin fara að hlakka til. Allir fá þá eitthvað failegt i það minnsta kerti og spil. Hvaö það verður veit nú enginn vandi er um slikt að spá, en eitt er vist að alltaf verður ákaflega gaman þá. tj&fn ■ Brynhildur Hrund leikur jóia- Unnar Már er jólabarn Erla Kristfn velur jólakvæöi svein Krakkar I jólaskapi Þau voru komin f jólaskap krakkarnir á bamaheimilinu við Furugrund, þegar ég heim- sótti þau í vikunni. Brynhildur Hrund Jónsdóttir var meö jdla- sveinahúfu og lék lítinn jóla- svein. Unnar Már Sigurbjörns- son og Erla Kristin Jónsdóttir höfðu verið aö syngja jólalög og Erla Kristín valdi sér ljóð hér á siðuna. UnnarMár er jólabam, en hann veröur 3 ára á annan i jólum. myndir: Anna

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.