Vísir - 06.03.1981, Side 4
4
SÍMINN
34420
Opið mánud.-föstud.
kl. 9-18
Opið laugardaga
Hárgreiðslustofan Gígja
Stigahlíð 45 - SUÐURVERI
2. hæð - Simi 34420
Borgarafundur um
skrefateljaramá/ið
verður haldinn að Hótel Sögu.
laugardaginn 7. mars og hefst kl. 14:00
Frummæ/endur:
Gísli Jónsson, prófessor,
Margrét Hróbjartsdóttir, safnaðarsystir
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi
Fundarstjóri:
Þórir Kr. Þórðarson, prófessor
SÝNUM SAMSTÖÐU -
MÓTMÆLUM SKREFAGJALDI
Samstarfsnefndin
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 92., 98. og 103. tbl. Lögbirtingablaðs 1980
á hluta i Skaftahlið 40, þingl. eign Páls Skúla
Halldórssonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavik og Útvegsbanka islands á eigninni sjálfri
mánudag 9. niars 1981 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 78, 80. og 82. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
hluta i Barðavogi 22, þingl. eign Einars Finnssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og
Búnaðarbanka íslands á eigninni sjálfri mánudag 9. mars
1981 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 78., 80. og 82. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
Blesugróf I C (28), þingl. eign Þorfinns Óla Tryggvasonar
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og
Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 9.
mars 1981 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Bergstaðastræti 45, þingl. eign
Geirs Hreiðarssonar fer fram eftir kröfu Péturs Axels
Jónssonar hdl. o.fl. á eigninni sjálfri mánudag 9. mars kl.
13.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Grettisgata
Njálsgata
Grettisgata
Klapparstígur
VÍSÍR
Föstudagur 6. mars, 1981
Armenski hryðju-
verkahópurinn, sem
lýst hefur ábyrgð á
hendur sér fyrir morðin
á tyrknesku' diplómöt-
unum i París, er aðeins
hluti af þéttriðnu neðan-
jarðarneti Armena, sem
eiga sér það aðallega
sameiginlegt að hata
Tyrki heitt og innilega.
Þessi sjálfskipaði „sjálfstæðis-
her Armena” hefur eins og
margir aðrir herskáir Armenar
gripið til skotvopna og vitisvéla
til þessað hefna þess, sem þeir
kalla óréttlæti Tyrkja gagnvart
Armenum. Óréttlætis, sem þeir
segja að taki yfir öll árin aftur til
1915.
Armenar halda þvi fram, að
meiren milljón feðra þeirra hafi
verið myrtir i fyrri heimstyrjöld-
inni af Tyrkjum Otto-
mana-veldisins. Armenar, sem
tala indó-evrópskt mál, bjuggu i
Armeniu, sem nú myndar austur-
hluta Tyrklands, suðurhluta
Sovétrikjanna, vesturhluta Irans
og norðurhluta Milleniu i austur-
löndum nær. Sagan greinir frá
þvi, að á lokadögum Ottomana-
veldsisins hafi búið um 500 þús-
und Armenar á tyrknesku yfir-
ráðasvæði, og annar eins fjöldi i
nágrannalöndunum.
Á meðan Tyrkjaveldi þá var i
bandalagi við Austurriki og
Þýskaland i fyrri heimstyrjöld-
inni, lá samúð Armena i Tyrk-
landi með Moskvu enda áttu þeir
ættmenni handan rússnesku
landamæranna. — Það var þá,
Guðmundur
Pétursson,
fréttastjóri
erlendra
frétta.
sem þjóðarmorðin á Armenum
munu hafa átt sér stað. Frásögn-
um ber þó ekki saman um, hve
margir Armenar voru i þvi blóð-
baði drepnir i Smyrnu og viðar.
Það hefur þó alltaf skipt hundruð-
um þúsunda.
Nú virðast afkomendur þessara
myrtu Armena staðráðnir i að
hefna örlaga þeirra.
Siðustu tiu árin hafa fjórir mis-
munandi hryöjuverkahópar verið
á kreiki undir ýmsum nöfnum og
beint sprengitilræðum sinum og
byssuára'sum að tyrkneskum
skotmörkum hér og hvar i
Evrópu, i Bandarikjunum og i
Astraliu. Resat Morali i Paris
núna i vikunni var 13. Tyrkinn,
sem fellur fyrir morðingjabyssu á
siðustu átta árum. Alls hafa 24
Tyrkir á þessum sömu átta árum
fallið i sprengitilræðum eða fyrir
skotvopnum launmorðingja
Armena.
Einn hryðjuverkahópurinn
kallar sig „Leyniher Armeniu”
og hefur bækistöð i Libanon.
Hann er talinn vera sami hópur-
inn, sem kallar sig „Rétt-
Armenskur hryðjuverkamaður handtekinn af tyrknesku lögreglunni.
Hefndarhugur
Armena I garð
Tyrkja
lætis-vikinga armenska þjóöar-
morðsins”. Þessi leyniher segist
sjálfur hafa orðið til fyrir rúmum
sex árum. Á blaðamannafundi i
Sidon i Libanon i april i fyrravor
sagði grimubúinn talsmaður
þessa hóps, að Armenar teldu sig
ekki eiga neitt sökótt við Moskvu
út af hinum sovéska hluta
Armeniu. — Til þessa fundar með
blaðamönnum var efnt i tilefni
samstarfs, sem hafið væri með
leynihernum og neðanjarðarsam-
tökum Kúrda.
I Ankara sögðu menn hins-
vegar, að þessi umræddu neðan-
jarðarsamtök Kúrda nytu einskis
stuðnings meðal tyrkneskra
Kúrda. Vilja Tyrkir margir
halda, að það séu aðrir aðilar,
sem styðji hefndaraðgerðir
Armena. Nefnilega
Kýpur-Grikkir, sem einnig vilji
hefna á Tyrkjum innrásinni á
Kýpur 1974.
Það er ekki vitað með vissu,
hve margir Armenar búa i
sovésku Armeniu, en vitað, að
þeir búa, sem þjóðarbrot, við
nokkuð góð kjör eftir þvi sem
gengur og gerist um hina ýmsu
þjóðernishluta i Sovétrikjunum.
Vitað er, að Armenár hafa komist
til hæstu metorða i sovéska
stjórnkerfinu. — Um 100 þúsund
Armenar eru sagðir búa enn i
Tyrklandi. Flestir þeirra eru
sagðir velmegandi kaupsýslu-
menn i Istanbul. Stærsta
Armenabyggðin i dag ér i Banda-
rikjunum. Um 200 þúsund
Armenar búa i Libanon og raunar
eru 5 þingmenn Libanon af ar-
mensku þjóðerni.
Aibiððlegir skart-
gripapjðiar
Tveir Bretar, sem játuðu að
hafa stolið gimsteinum fyrir 170
þúsund dollara af demantakaup-
mönnum I New York, voru
dæmdir þar i borg I 2ja ára og 4ra
ára fangelsi.
Báðum erlýst sem alþjóðlegum
skartgripaþjófum, sem lögreglan
i Þýskalandi, Frakklandi og Sviss •
sé á hnotskógum eftir.
Þeir voru handteknir i septem-
ber i Beverley Hills í Kaliforniu.
Demantasali þekkti þá aftur sem
sömu mennina, er lýst hafði veriö
eftir vegna þjófnaðarins i Man-
hattan i april I fyrra.
Olgetandl dæmdur
lyrir róg
Útgefandi vikurits eins I Aþenu
hefur veriö dæmdur I tveggja ára
fangelsi og dómurinn staöfestur i
hæstarétti. Blað hans haföi ófrægt
Georges Rallis forsætisráðherra.
Makis Kouris, útgefandi, birti
grein, þar sem þvi var haldið
fram, að eiginkona Rallis hefði
flutt inn vörur fyrir sportvöru-
verslun, sem hún rekur, og not-
fært sér sambönd bónda sins til
þess að koma vörunum inn i lægri
tollaflokkum, en þeim bar.
Rallis sagði þennan áburð
hreinan tilbúning og einungis
framsettan til þess að grafa
undan áliti hans sem forsætis-
ráðherra.
Útgefandinn sagði bróður sinn
vera höfund greinarinnar, en sá
býr ekki lengur i Grikklandi.
Olsarok I
Bangiadesb
Að minnsta kosti þrettán fórust
og hundruöir manna slösuðust,
þegar hvirfilbylur gekk yfir hér-
uðin noröur af Dakka i vikunni.
Fréttastofa Bangladesh segir,
að vindhraðinn hafi komist upp I
150 km á klst, rifiö upp heilu tren
með rótum stórskemmt bygg-
ingar og rofið simasamband i
sveitaþorpum um 120 km norðan
við höfuðborgina.
Það mun hafa orðið mikið tjón á
uppskeru.
Atvlnnuleysl
minnkar i
V-Þýskaiandl
Atvinnuleysi I V-Þýskalandi
minnkaði i febrúar. i janúar hafði
atvinnulausum fjölgað upp I 1,31
milljón manna, sem var mesta
atvinnuleysi I V-Þýskalandi i
fimm ár.
Blaöið „Bild Zeitung” segir, að
I febrdar hafi atvinnuleysið kom-
ist niður I 1.299.900, og um leiö
hafi þeim, sem einungis höfðu
vinnu hluta úr degi eða viku,
fækkað um 28 þúsund.
Þessar breytingar eru ekki
þakkaðar batnandi efnahags-
ástandi, heldur settar i samband
viö vetrarorlof og skiðahelgar.