Vísir - 06.03.1981, Page 16
16
Föstudagur 6. mars, 1981
V'70
VÍSIR
PEHNAVINIB I GHAWfl
Umræöa um ketti og kattahald
hefur verið hin fjörugasta á
lesendasiðunni undanfarnar
vikur.
.Hvaö
pýöir
Detta orð”
Bóndakona úr Lundar-
reykiadal hringdi:
Einhver sem kallar sig
„Robba” skrifaði bréf i Visi i gær
— mánudag — og varði þar mjög
málstað þeirra sem vilja banna
kattahald i höfuðborginni.
Ég ætla ekki að blanda mér i
þær deilur þvi þær koma mér ekki
við þótt svo ég hafi skoðun á þessu
máli, en „Robbi” sagðii greininni
orð sem mig langar til að biðja
hann skýringa á.
Hann sagðist styðja G.H.T.
vegna þess að G.H.T. skrifaði
ekkert „Lundarreykjadalskjaft-
æði”.Þettaorð vil ég fá skilgreint
nánar, og fá að vita merkingu
þess að nota það á þennan hátt. —
Hvað þýðir eiginlega þetta orð?
Engin nafniaus bréf
Að gefnu tilefni viljum við
itreka, að við sjáum okkur ekki
fært að birta lesendabréf, sem
ekki eru merkt sendanda meö
nafni hans, nafnmímeri og heim-
ilisfangi. Að sjálfsögðu getur
sendandi beðið um að bréfið verði
birt undir dulnefni og verður það
gert nema að um persónulegar
árásir sé að ræða i bréfinu.
Munið, látið nafn, nafnnúmer
og heimilisfang fylgja
bréfunum!!
Nokkrir Ghana-búar óska eftir
pennavinum á tslandi. Þeir skrifa
allir á ensku og eru á aldrinum
12—20 ára. Hér koma nöfnin og
helstu upplýsingar. Josiah J.
Mcnsah. Öskar eftir pennavinum
á aldrinum 15—25 ára, en er 20
ára. Helstu áhugamál eru knatt-
spyrna, borðtennis, tónlist, dans
og sund.
Banby Shandy. Óskar eftir
pennavinum á aldrinum 15—20
ára, en er 17 ára. Helstu áhuga-
mál eru sund, tónlist og dans.
Kwasi Atta Panyin.öskar eftir
pennavinum á aldrinum 15—30
ára, en er 20 ára. Helstu áhuga-
mál eru knattspyrna, sund, borð-
tennis og körfuknattleikur.
Bob Ras Mensah. Hann er 16
ára og óskar eftir pennavinum á
aldrinum 10—18 ára. Helstu
áhugamálin eru söngur, blak,
borötennis og tennis.
Joe Mensah.Hann er tólf ára og
óskar eftir pennavinum á aldr-,
inum 10—17 ára. Hann hefur
áhuga á öllum leikjum.
Christopher J. Mensah. Hann
er 15 ára og óskar eftir penna- ■
vinum á öllum aldri. Og hann
hefur áhuga á alls kyns leikjum.
Þessir ágætu Ghana búar hafa
allir sameiginlegt póstbox og
þangað geta væntanlegir penna-
vinir skrifað:
Post Box 1137
Cape Coasi
Ghana
Niu litlir ráðherrar
vildu teija niður
Einn þeirra taldi upp á við
og þá urðu eftir átta
Átta litiir ráðherrar
vildu kaupa togara
einn þeirra keypti atkvæði
og þá urðu eftir sjö
Sjö litlir ráðherrar fóru út til Köben
Einn þeirra gleymdist útí
og þá voru eftir sex
Sex litlir ráðherrar
létu éta flugskýli
Einn þeirra át yfir sig
og þá voru eftir fimm
Fimm litlir ráðherrar
týndu ekki tölunni
Einn þeirra týndi sjálfum sér
og þá voru eftir f jórir
Fjórir litlir ráðherrar
fóru’ að semja skýrslur
Einn þeirra samdi yfir sig
og þá voru eftir þrir
Þrir litlir ráðherrar
gengu framhjá flokknum
Einn þeirra gekk fram af sér
og þá voru eftir tveir
Tveir litlir ráðherrar
vilduhalda áfram
Annar rak þá Gervason
og þá var eftir einn
Einn mikill ráðherra
gat þó ekki hætt
Hann sat enn i rikisstjórn
þegar siðast fréttist
Við erum
samt bestir
Handboltaáhugamaður
skrifar:
Ég er orðinn svo þreyttur á að
heyra sifellt harmakvein um
slaka frammistöðu islenska
handboltalandsliðsins i Frakk-
landi. Eg vil minna á að ýmsar
óheppilegar aðstæður röðuðust
samanog varð það islenska liðinu
að falli. Þrátt fyrir lélega útkomu
i B-keppninni, voru Islendingar
sannanlega með langbesta lið
keppninnar!
Við vorum einstaklega óheppn-
ir með dómara, ekki sist i leikn-
um gegn Svium, en sá leikur var
einmitt vendipunkturinn i keppn-
inni. Hefði sá leikur unnist, hefði
verið leikur einn að sigra Frakka
— og Pólverjar hefðu ekki mátt
sin mikils.
En áfallið að mega þola tap
gegn Svium var meira en áhuga-
mennirnir okkar þoldu. Álagið
var mikið, þvi hér heima ætluðust
allir til þess að liðið sigraði i
keppninni. Með þrotlausum
æfingum fyrir keppnina — sam-
hliða mikilli vinnu, voru taugar
landsliðsmannanna strekktar til
fulls og brustu svo er liðið tapaði,
með hjálp dómaranna, fyrir Svi-
um.
Við skulum ekki gleyma þvi, að
skömmu fyrir keppnina lögðu
hetjurnar okkar bæði Austur- og
Vestur-Þjóðverja að velli i
handknattleiknum — tvær sterk-
ustu handknattleiksþjóðir heims.
Það sýnir og sannar, að við erum
ennþá bestir.
Bréfritari hefur samið brag um ríkisstjórnina viö lagiö „Tiu ^itlir
negrastrákar”.
Ein lltíl
ríkisstjórn
Lesendasiðunni barst þessi ljóðabálkur frá
,,Einum með bros á vör” :
Tiu litlir ráðherrar
mynduðu með sér rikisstjórn
einn þeirra talaði af sér
ogþáurðu eftirniu