Vísir - 06.03.1981, Side 27
Föstudagur 6. mars, 1981
VÍSIR
27
Mars-seðil/
i
HVAÐA ÁR FÉKK □ 1945
HALLDÓR LAXNESS r-i -q,-!-
NÓBELS■ 111955
VERÐLAUN/N? □ 1965
HVAÐA ÁR VAR □ 1955
VIÐRE/SNA RSTJÓRN/N i : 1956
STOFNUD? ^ 1959
¥ei$fu rétta svarið?
pig v íta 11 tta sv ario v ið spurningunum krossar þú Einn gctraunaseðill birtist fvrir hvern már
lJegar þú telur
i viðeigandi reit.
Ef þú ert ekki þegar áskrifandi að Visi, þá krossar þú i reitinn tii
hægri hér að neðan, annars i hinn.
Að loknu þessu sendir þú getraunaseöilinn til Visis, Siðuinúla 8.
105 Keykjavik, merkt „Afmælisgetraun".
Mundu að senda seöilinn strax. Annars getur þaö gleymst og þú
orðið af góðum vinningi.
Vinsamlegast setjiö kross viö þann reit,sem viö á:
I I fcg er þegar I | fcg óska að gerast
L I áskrifandi ' ' áskrifandi
aö Vlsi aö Visi
Nafn J
Heimilisfang Byggðarlag
Simi Nafnnúmer
Einn gctraunaseðili birtist fyrir hvern mánuð. Þetta er seöillinn
f.vrir mars mánuð. Þú þarft ekki að senda seðlana i hverjum
mánuði. en eykur vinningslikurnar, ef þú sendir hvern mánaðar-
seðil.
Fyrsti vinningurinn hefur verið dreginn út (Visis-Coltinn). Næst
verður Suzukinn dreginn út (31. mars) og loks sumarbústaðurinn
(39. mai).
— Verðmæti vinninganna er samtals 340.000 kr. (34 millj. gkr.)
Utanaskriftin er:
ViSIR Síðumúla 8
105 Reykjavik,
merkt
,, Af mælisgetraun".
V
SJOTUGUR OG SIUNGURI
Taktu
eftir
Allir áksrifendur geta
tekið þátt i getrauninni.
Geta byrjað hvenær
sem er. Auka vinnings-
líkur með því að byrja
strax.
Þátttaka byggist á því
aö senda inn einn get-
raunaseðil fyrir hvern
mánuð.
Getraunaseðill hvers
mánaðar er endurbirt-
ur tvisvar (fyrír nýja
áskrifendur og þá
gleymnu).
Getrauninni lýkur i
mailok, þegar seinasti
vinningurinn verður
dreginn út.
Fyrsti vinningurinn,
Mitsubishi Colt, hefur
verið dreginn út (verð
7.5 millj. gkr.)
Annar vinningurinn, SS
Suzuki F 80, (verð 6
millj. gkr.) verður
dreginn út 31, mars n.k.
Þrið ji vinningurinn
sumarbústaður frá
Húsasmiðjunni (verð
20 millj. gkr) verður
dreginn út 29. mai n.k.
Skilyröi að áskrifandi
sé ekki með vanskila-
skuld, þegar dregið er
út.
vertu
Sími 86611
etr/v /wl i v Cwrrt'h/V^i
5VO lldv&rJilX O V UXUlUIUii
Sænskan eða norrænan slðnvarpshnðtt
Komið er á daginn, að þeir
sem mest hafa talað gegn
sjónvarpshnctti Norðurlanda,
hafa nú komist að þeirri niður-
stöðu að honum skuli skotið á
loft af — Svium. Svo undarlega
vill til að innan norræns
samstarfs hefur mest borið á
andmælum við samnorrænum
sjónvarpshnetti frá Svium,
finnskum kommúnistum og
sænskum tslendingum. Það hef-
ur svo komið á daginn, að Sviar
ætla sjálfir að skjóta á loft
hnetti til sjónvarpssendinga
liklega til að hafa nokkra yfir-
burði i lofti á hinu norræna
menningarsvæði nú þegar uppi
eru nokkrar varnir á hinum
Norðurlöndunum gcgn stór-
veldadraumum þeirra á sviði
menningarmála. Danir,
Norðmenn og íslendingar hafa
vfirleitt talið sjálfsagt af sam-
keppnisástæðum að koma upp
gervihnetti og standa samein-
aðir að honum. Hér heima hefur
yfirleitt ekki verið rætt við
nokkurn mann um Nordsat I
fjölmiðlum, eins og hnötturinn
hefur verið nefndur, nema
Njörð P. Njarðvik, sem eins og
alkunna er gerðist lektor í
Gautaborg og kom til baka
sænskari en Olav Palme, sátta-
semjari án árangurs. Nefndur
Njörður kom i sjónvarpið og
taldi af og frá að það hentaði að
koma Nordsat á loft og bar fyrir
sig höfundarréttarmál m.a., en
liann er þeim mjög kunnur síðan
hann lagðist inn á Landakot til
að þvða barnasögu úr Sviþjóð
eða Finnlandi.
Kjafthátturinn gegn Nordsat
er sem sagt að skýrast nú þegar
Ijdst er að Sviar ætla að skjóta
hncttinum á loft. Fer þá að
verða skiljanlegt hvers vegna
andófi gegn hnettinum hefur
verið haldið á lofti viða á
Norðurlöndum og i islensku
rikisfjölmiðlunum. Þessi kjaft-
hattur var ekki annað en tilraun
til að afla Svium einkaréttar á
útsendingum sjónvarpsefnis til
allra Norðurlanda með tilheyr-
andi dagskrám farandverka-
manna frá Tyrklandi, Grikk-
landi, Sömum og Alandseyjum.
Gott ef islenska þjóðarbrotið i
Sviþjdð fær ekki hálftima í viku.
Að öllu samanlögðu mun dag-
skrá sænska sjónvarpsins vera
sú dmerkilegasta á
Norðurlöndum svona dag frá
degi. en auðvitað áttu það aö
verða örlög Norðurlanda aö búa
við hana frá gervihnetti.
Það er ljóst að Evrópuþjóðir
eins og Vestur-Þjóðverjar,
Frakkar og Englcndingar munu
koma upp sjónvarpshnöttum,
sem geta sent allt norður til
tslands og Grænlands og allt
austur i mitt Rússland. Rússar
hafa brugðist ókvæða við
þessum hnöttum og sent
málvini sina i Finnlandi af stað
til að hindra að Norðurlönd
sendu upp gervihnött. Það var
skil janleg afstaða hjá
lepptungum þeirra. öllu ver
gekk að skilja þá menn á hinum
norðurlöndunum sem gengu
gegn Nordsat með misjafnlega
ómerkum mótrökum. Nú virðist
hins vegar svo komið, aö Svium
einum eigi að vera heimilt að
skjóta sjönvarpshnetti á loft, og
verður þess ekki vart að Rússar
sendi mótmæli við þvi með
lepptungum sinum á
Norðurlöndum. Þvi má ætla að
Rússum þyki sem sænsk dag-
skrá muni ekki verða svo bölvuð
fyrir tötralýðinn i lepprikjun-
um. Hvað tslendinga snertir er
alveg sjálfsagt að þeir verði
með f Nordsat. Við þykjumst
hafa ýmislegt til málanna að
leggja á menningarsviði, þótt
einstakir Gautaborgar-lektorar
kunni að vera á öðru máli. Dag-
skrá okkar sjónvarps ber
tvimælalaust af dagskrám
sjónvarps á hinum Norðurlöndun
um. Og með Nordsat mætti
segja, að á kæmist samband við
islendinga búsettra erlendis
sem annars næðist ekki. Þaö er
mikilsvert nú á timum, þegar
vaxandi fjöldi flytur úr landi til
lengri og skemmri tima. Um
höfundarrétt hlvtur að fara
samkvæmt alþjóðlegum
venjum, þótt Gautaborgarlekt-
orinn verði kannski ekki eins
fjáður af ritverkum sinum og
vera skyldi, eftir að þau hætta
að vera innilokuð á málsvæði
sem er svo litið að flest getur
viðgengist.
A fundi Norðurlandaráðs i
Höfn hafa islenskir fulltrúar
réttilega tekið af skarið um
Nordsat. Þeir ætla ekki að sitja
að sænskri dagskrá um aldur og
ævi. Og þegar ljóst er orðið hver
ætlunin var með andmælum við
Nordsat mun enginn ráðaniaður
á Norðurlöndum utan Sviþjóöar
ljá máls á öðru en norrænum
sjdnvarpshnetti i allra næstu
framtið.
Svarthöfði.