Morgunblaðið - 23.12.2003, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BÆKUR
DAUÐASYNDIRNAR sjö, höfuðsyndirnar,
the seven deadly sins hafa einhvern miðaldablæ
yfir sér. Finna má daun úldinna viðhorfa leggja af
nöfnum þeirra: Hroki, ágirnd, öfund, heift, mun-
úð, nautnasýki og andleg leti.
Samt er líkt og þær séu ekki enn dauðar úr öll-
um æðum því nýjasta birtingarform þeirra er í
bókinni Syndirnar sjö eftir Jaakko Heinimäki í
ágætri íslenskri þýðingu Aðalsteins Davíðssonar.
Heinimäki er finnskur guðfræðingur sem hlot-
ið hefur fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, því
hann kann að skrifa fyrir almenning. Hugmynd
hans að þessu sinni var að endurvekja dauða-
syndirnar og máta þær við nútímann. Hann rekur
sögu þeirra og tengir þær svo við daginn í dag
með dæmisögum. Hér er ein: „Söfnuður einn í
Austurríki fékk vænt fjárframlag í hjálparsjóð
kirkjunnar. Presturinn sagði frá þessu eftir pre-
dikun og tók það fram að gefandinn vildi ekki láta
nafns síns getið. Einhver ræskti sig frammi í
kirkjunni. Maður einn stóð þar upp og sagði: „Já,
okkur konu minni þótti réttast að hafa þennan
háttinn á“ (27, hroki).
Þessi saga sýnir að það er rétt sem sagt er í
kynningunni á verkinu: „Höfundur sameinar
gamansemi og alvöru þegar hann fjallar um þau
heimspekilegu og siðferðilegu álitamál sem
snerta okkur dýpst.“
Ég er mjög hrifinn af þessu verki Heinimäki –
því nálgun hans á viðfangsefninu hentar almenn-
ingi afar vel. Textinn er skiljanlegur og það er
hægt að endursegja hann kunningjum sínum án
þess að lenda í teljandi vandræðum. Einnig geta
lesendur tengt efnið við það sem á sér stað í ís-
lensku þjóðfélagi eins og þegar þeir telja sig
verða vara við ágirnd eða hroka í viðskiptum og
stjórnmálum svo dæmi sé tekið.
Kaþólska kirkjan hefur þegar fært höfuðsynd-
ir mannsins í nútímahorf þar sem finna má syndir
eins og umhverfisspjöll og hryðjuverk. Glittir þó í
dauðasyndirnar í sumum þeirra eins og þegar
skírlífisbrot, misnotkun á áfengi og sjálfsfróun
eru nefnd. Afrek Jaako Heinimäki í Syndunum
sjö felst einmitt í því að opinbera gömlu synd-
irnar í nútímanum og sýna fram á að þær séu enn
hættulegar. Þetta gerir hann þó af mikilli háttvísi
og án þess að gera tilraun til að hræða lesandann.
Hann veitir t.d. innsýn í muninn á bandarískri og
rússneskri öfund – sem ég ætla ekki að upplýsa
hér (59).
Niðurstaðan er tær: Þrælgagnleg bók fyrir
heilann – og þegar rýna þarf í hroka, ágirnd, öf-
und og heift annarra, og stilla þarf eigin munúð,
nautnasýki og andlegri leti í hóf.
Afbragðs syndir!
SIÐFRÆÐI
Syndirnar sjö
Aðalsteinn Davíðsson sneri úr finnsku.
110 bls. Bjartur 2003.
JAAKKO HEINIMÄKI
Gunnar Hersveinn
BIRNIR og pöndur
er í bókaflokknum
Skoðum náttúr-
una. Bókin er eftir
Michael Bright í
þýðingu Björns
Jónssonar.
Allt frá hinum
ógnvekjandi grá-
birni í Norður-
Ameríku til pöndunnar á afskekktustu
útnárum í Kína hafa birnir löngum
höfðað til ímyndunarafls manna. Birnir
og pöndur er hrífandi bók, sem varpar
ljósi á líf þessara styggu og ein-
staklega villtu dýra. Hér má lesa um líf
bjarndýra og ættingja þeirra, kynnast
því hvað skilur hinar ýmsu tegundir að,
og hvernig birnir spjara sig í afar ólíku
umhverfi. Ljósmyndir og skýring-
armyndir prýða bókina.
Útgefandi er Skjaldborg bókaútgáfa.
Bókin er 64 bls. Verð: 2.380 kr.
Dýralíf
AMMA Óla er engin venjuleg
amma heldur Súperamma. Eftir að
allir bæjarbúar í rólega bænum
þeirra eru lagstir til svefns flýgur
hún yfir bæinn og gætir að því að
allt sé í lagi. Ef hún kemur auga á
eitthvað athugavert er hún fljót að
bjarga málunum ýmist ein og sjálf
eða með hjálp lögreglunnar.
Óli hefur lengi vitað af leyndar-
máli ömmu og beðið spenntur eftir
því að hún efni loforð sitt um að
leyfa honum að fljúga með sér um
bæinn á sex ára afmælisdeginum
hans.
Eins og nærri má geta er Óli að
springa úr tilhlökkun allan afmæl-
isdaginn. Hann hlakkar svo til að
hann hefur ekki áhyggjur af því fyrr
en hann lítur út um þakgluggann
hvernig hann eigi eiginlega að fara
að því að fljúga. Amma hans er ekki
lengi að setja hann inn í flugkún-
stina og saman lenda þau í æsi-
spennandi eltingarleik við harðsvír-
aða bankaræningja um nóttina.
Að lokum hafa þau hendur í hári
ræningjanna og amma Óla gerir sér
lítið fyrir og heldur bíl ræningjanna
með þeim öllum innanborðs hátt á
lofti á meðan Óli tilkynnir lögregl-
unni hvar ræningjana sé að finna.
Ef krakkarnir í skólanum bara
vissu…
Leyndarmálið hennar ömmu er
svo sannarlega spenn-
andi saga með alvöru
leyndarmáli, æsispenn-
andi eltingarleik og
ótrúlegri hetjudáð.
Skemmtilegasti hluti
sögunnar felst þó í því
hvernig er með per-
sónulýsingu ömmunn-
ar ráðist að þeirri
klisju að ömmur séu
alla jafna frekar lit-
lausar manneskjur og
til lítils annars nytsam-
legar en að prjóna
sokka og segja sögur.
Ólíkt hinni dæmigerðu
ömmu er amma Óla
ekki einu sinni snyrtileg. Heima hjá
henni uppi á lofti er allt í drasli,
skrýtin hljóð berast úr talstöðinni
og dularfullar símhringingar hljóma
í íbúðinni seint um
kvöld. Amma Óla er
svo sannarlega ekki öll
þar sem hún er séð –
frekar en flestar ömm-
ur!
Leyndarmálið henn-
ar ömmu er tilvalin
bók fyrir unga lestrar-
hesta því að þó textinn
sé knappur er fram-
vinda sögunnar hröð
og spennandi. Ekki
spillir heldur fyrir að
vakin er athygli á lyk-
ilorðum sögunnar með
stærra letri en í meg-
intextanum. Myndir
Bjarkar eru lifandi og mynda
skemmtilegt samspil með textanum.
Súperamma fer á flug
BARNABÓK
Leyndarmálið hennar ömmu
BJÖRK BJARKADÓTTIR
Meðhöfundur að texta: Sigþrúður Gunn-
arsdóttir. Mál og menning, Reykjavík,
2003.
Anna Gunnhildur
Björk Bjarkadóttir
SKRIFAÐ við núll-
punkt er eftir
Roland Barthes í
íslenskri þýðingu
Gauta Krist-
mannssonar og
Gunnars Harð-
arsonar. Ritstjóri
er Ástráður Ey-
steinsson.
Í fréttatilkynningu frá útgefanda seg-
ir m.a.: „Skrifað við núllpunkt frá 1953
er fyrsta bók Barthes. Hún markar upp-
haf nýrrar hugsunar enda skoðar þar
einn af merkustu hugsuðum tutt-
ugustu aldar á róttækan hátt tilurð
þeirrar gerðar skrifa sem einkennt
hafa bókmenntir undanfarinna tveggja
alda, hvernig bókmenntirnar storkn-
uðu við núllpunkt skrifa og urðu að tali
sem snýst í kringum sjálft sig og stað-
festir kyrrstöðu borgaralegs valds.
Barthes lítur öðrum augum á skrif:
Bókmenntir verða að útópíu tungu-
málsins.“
Bókin er hluti af ritröð Bókmennta-
fræðistofnunar Háskóla Íslands.
Útgefandi: Bókmenntafræðistofnun
Háskóla Íslands og Háskólaútgáfan.
Bókin er 112 bls. Verð 2.990 kr.
Fræði
ÞAÐ eru margir sem koma að bókinni um
norsk hús, sem á upphaf sitt í því að sendi-
herra Noregs á Íslandi spurði hvað væri
norskt að finna héreldis. Úr varð fallegur
gripur með talsverðum fróðleik um áhrif
norskrar húsagerðalistar á íslenskt umhverfi
og byggingarstíl. Í bókinni eru tíu greinar eft-
ir fimmtán höfunda og myndir á hverri blað-
síðu.
Hjörleifur Stefánsson skrifar sögulegan
inngang þar sem lesandandinn fær skýringu á
því því, sem blasir raunar við, að húsakostur á
Íslandi er furðulega ólíkur dönskum, þrátt
fyrir aldalanga sameiginlega sögu. Skýringin
liggur í því að Norðmenn hafa síðan á miðöld-
um kunnað þá list að sníða til hús þar sem tré
eru felld og selja þau til fjarlægra staða. Lík-
ur eru leiddar að því að þegar á landnámsöld
hafi verið flutt heil hús til Íslands og fram eft-
ir miðöldum. Sumt af því er þekkt, en annað
eru getgátur.
Grein Kjells Halvorsen er um handverk,
iðnað og útflutning í Noregi, þar sem nánar er
lýst þróun tilsniðinna húsa í Noregi. Útflutn-
ingur Norðmanna á húsum á 18. og 19. öld er
venjulega kenndur við iðnbyltinguna, en á sér
greinilega miklu lengri sögu. Því er ljóst að
losun á verslunarhömlum átti ekki síður þátt í
því að afurðirnar fóru lengra. Mörg hús á Ís-
landi risu furðulega hratt á þeim tíma og fram
á 20. öld, og þótt ekki sé alltaf hægt að sýna
fram á að þau hafi verið keypt í heilu lagi til
landsins er auðvelt að draga þá ályktun. Það
kemur einnig til af því Ísland var stærsti
timburútflutningsmarkaður Norðmanna, hús-
in hérlendis voru sambærileg við þau norsku
og hægt er að sýna fram á þróun þeirra húsa
hérlendis í sérstakan íslenskan stíl. Jens
Christian Eidal skrifar um húsagerðarlist í
stærra samhengi. Stílþróun í Noregi var ná-
tengd hugmyndastefnum samtíðarinnar og
glæstar hugmyndir norrænna manna um for-
sögu sína hafði mikil áhrif á hvert þeir sóttu
hugmyndir sínar og hvernig þær voru útfærð-
ar.
Stærsti hluti bókarinnar eru greinar sem
lýsa norskum timburhúsum, hver á sínum stað
á landinu. Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Páll
Bjarnason og Pétur H. Ármannsson segja frá
því á hvaða hátt fjölgun timburhúsa í Reykja-
vík mótaði þróun og skipulag höfuðstaðarins
og öfugt, það er hvernig skipulag og reglu-
gerðir höfðu áhrif á byggingu húsanna. Eins
og í kaflanum um Reykjavík, segir Þóra Guð-
mundsdóttir frá einstökum húsum á Seyð-
isfirði, norskasta bæ landsins. Hús, sem hægt
var að kaupa eftir vörulista, hvort sem um var
að ræða íbúðarhús fyrir vel stæða kaupmenn,
kirkjur, skólahús, tómthús, skemmur eða
bryggjuhús. Danski bærinn Akureyri var ekki
undanskilinn, eins og kemur fram í grein
Finns Birgissonar og Hönnu Rósu Sveins-
dóttur. Þar léku síldveiðar stórt hlutverk,
þótt á annan hátt væri en á Siglufirði. Örlyg-
ur Kristfinnsson rekur annað landnám Norð-
manna þar, sem hófst 1903 og varði í ein sex-
tíu ár, þótt lítið standi eftir. Þar var þróunin
sérstök, því flest húsin byggðu Norðmenn, en
ekki íslenskur aðall. Að lokum segja Elísabet
Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir
frá miðstöð hvalveiðanna, Ísafirði, og rekja
sig í gegnum norskan húsakost þar.
Enn eru ótaldar tvær greinar. Sú fyrri er
eftir Magnús Skúlason og Jon Nordsteien og
rekur sögu húsaverndar á Íslandi og lokar
hringferðinni um landið með dæmi af henni
frá Stykkishólmi. Hin síðari, sem reyndar er
framar í bókinni, er um veiðar Norðmanna við
strendur Íslands. Þótt fiskveiðisagan sé sann-
arlega stór skýringarþáttur í tilurð norskrar
timburhúsabyggðar á þessi grein ekki beint
erindi í þessa bók, þar sem allar hinar grein-
arnar eru um hús, og uppröðun þeirra og upp-
bygging nokkuð heilsteypt. Sú saga hefði far-
ið mun betur inni í öðrum greinum, til dæmis í
inngangskaflanum eða í Akureyrar-, Ísafjarð-
ar- og Siglufjarðargreinunum, þar sem sumt
er raunar endurtekið. Endurtekningar eru
sennilega helsti ljóðurinn á þeirri aðferð að
skipta bók upp með þeim hætti sem hér er
gert. Það er til dæmis margsagt að lagasetn-
ing hafi gert útlendingum að selja eigur sínar
hér á landi árið 1922 og að sértakur íslenskur
sveitserstíll hafi orðið til með fyrirskipunum
um notkun bárujárns.
Margar myndirnar eru gullfallegar og mik-
ill fengur að því að sjá húsin sem sagt er frá.
Svarthvítu myndirnar eru þó sumar dálítið
dökkar og aðrar muskulegar og ef til vill hefði
verið hægt að vinna þær betur. Á einstaka
stað er myndavalið sérkennilegt, til dæmis á
blaðsíðu 77, þar sem eru myndir af bröggum á
Íslandi þótt umræðuefnið sé þróun svipaðra
bygginga í Bretlandi. Furðulegt þótti mér líka
að engin mynd væri af rauða húsinu á Ísafirði,
sem er þó sagt frá í sérstakri rammagrein. Er
það af því það er óuppgert? Myndaskrá aftast
er í formi neðanmálsgreina, þar sem aðeins er
vísað til geymslustaða myndanna og blaðsíðu-
tals, en ekki er hægt að fletta upp myndum
eftir henni, sem er miður. Á stundum er hætt
við að fáfróður lesandi verði útundan þegar
fagmál smiðanna tekur völdin í textanum. Þar
hefði farið vel á að hafa skýringarmyndir um
byggingartækni, því áhuginn vaknar sannar-
lega við lesturinn. Annars er málfarið með
ágætum og bókin skemmtilesning. Heimilda
er getið aftast, en aðeins er vísað beint til
þeirra í sumum greinunum. Það er óskilj-
anlegt ósamræmi og hefði verið nær að hafa
tilvísanir allstaðar.
Í heild er bókin skrautgripur sem kemur á
óvart, því í henni eru nýjar upplýsingar, en
slíkt fer ekki oft saman.
Timburhús
BYGGINGARSAGA
Af norskum rótum
RITSTJÓRAR: HJÖRLEIFUR STEFÁNSSON,
KJELL H. HALVORSEN OG MAGNÚS SKÚLASON
Þýðandi Stefán Hjörleifsson. Útgefandi Mál og menning.
Ritstjórn á forlagi Ólöf Eldjárn, myndritstjórn Margrét
Tryggvadóttir, nýjar ljósmyndir Guðmundur Ingólfsson,
umbrot, útlit og kápa Anna Cynthia Leplar, litgreining
Litróf. Prentun Prentsmiðjan Oddi. 286 bls.
Lára Magnúsardóttir
MYSTIC Journey
nefnist ljóðabók
eftir Þórgunni
Jónsdóttur. Áður
hefur komið út eftir
hana ljóðabókin
The Wheel of
Time. Ljóðin í bók-
inni eru ort á ár-
unum 1997–2002
á Stokkseyri, þar sem Þórgunnur hefur
verið búsett síðan 1995. En hún dvaldi í
Kaliforníu frá 1975–1983, þar sem hún
byrjaði að yrkja á ensku. Þórgunnur yrkir
einnig á íslensku og verður næsta ljóða-
bók hennar á móðurmálinu.
Bókin fæst í Pennanum Eymundsson
í Austurstræti og hjá Máli og menningu,
Laugavegi 18. Innan skamms verður
einnig hægt að nálgast bókina á Netinu
á penpress.net, amazon.co.uk, the-
bookplace.co.uk alphabetstreet.co.uk,
waterstones.co.uk og fleiri vefsíðum.
Útgefandi er Bókaútgáfan Pen Press í
London. Bókin er pappírskilja og er 43
blaðsíður. Kápan er myndskreytt af höf-
undi.
Ljóð
ALLIR í formi er
eftir Árna Heiðar
Ívarsson.
Bókin er fyrir
börn og unglinga
og forráðamenn
þeirra um það
hvernig komast
skuli í gott form. Ít-
arlega er fjallað
um þjálfun, hreyfingu og mataræði. Þá
er fjölþætt safn æfinga og leikja til
notkunar við allar aðstæður og einnig
skrár um íþróttagreinar og hreyfiað-
ferðir fyrir börn og unglinga. Bókin er
ríkulega myndskreytt.
Höfundur hefur B.Ed.-gráðu frá
Kennaraháskóla Íslands og hefur
starfað við íþróttakennslu og einka-
þjálfun um árabil.
Útgefandi er Skjaldborg ehf. Bókin
er 92 bls. Verð: 1.980 kr.
Líkamsrækt