Morgunblaðið - 23.12.2003, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 B 7
BÆKUR
Á síðustu stundu
er eftir Agöthu
Christie í þýðingu
Ragnars Jón-
assonar.
Frú McGinty
finnst látin á heim-
ili sínu og leigjandi
hennar er handtek-
inn, leiddur fyrir
rétt og sakfelldur fyrir morðið. Lög-
reglumaðurinn, sem rannsakaði
ódæðisverkið, er þó ekki viss um að
leigjandinn hafi í raun framið morðið og
fær Hercule Poirot í lið með sér. Upp-
hefst þá mikið kapphlaup við tímann
enda þarf Poirot að komst til botns í
málinu áður en leigjandinn verður tek-
inn af lífi fyrir glæp sem hann kann að
vera saklaus af.
Útgefandi er Skjaldborg bókaútgáfa.
Bókin er 212 bls. Verð: 3.480 kr.
Glæpasaga
Galdraúrið hans
Bernharðs er eftir
Andrew Norriss í
þýðingu Jóns Daní-
elssonar.
Úrið sem Bea
frænka gaf Bern-
harði var ekkert
venjulegt úr. Þegar
það stöðvast, hætt-
ir sjálfur tíminn að líða og allt stendur
kyrrt. Það getur komið sér vel þegar
maður er orðinn seinn með heimaverk-
efnin, en úrið er þó miklu máttugra og
það má nota til margs fleira ... Mjög
margs fleira! Sjónvarpsþættir gerðir
eftir bókinni hafa verið sýndir hér á
landi.
Útgefandi er Skjaldborg bókaútgáfa.
Bókin er 160 bls. Verð: 2.480 kr.
Börn
Árbók Barða-
strandarsýslu
2002 er komin út.
Árbókin kom fyrst
út 1948. Síðan þá
hefur hún komið
út fjórtán sinnum.
Allt frá upphafi
hefur áherslan
verið lögð á að
forða frá gleymsku fróðleik um menn
og málefni á sunnanverðum Vest-
fjörðum. „Mikilvægi þessa starfs er
jafnvel enn meira í nútímanum en
þegar bókin kom fyrst út. Heilu sveit-
irnar eru nánast komnar í eyði og því
er þetta björgunarstarf, að forða frá
gleymsku þekkingu kynslóðanna á
staðháttum sveitanna ærið,“ segir í
fréttatilkynningu frá útgefanda.
Ritnefnd skipa Jóhann Ásmunds-
son, Ari Ívarsson og Ragna Steinunn
Eyjólfsdóttir.
Útgefendur eru Vestfirska forlagið á
Hrafnseyri og Sögufélag Barðastrand-
arsýslu. Bókin er 152 bls.
Prentvinnsla: Ásprent, Akureyri.
Verð: 2.000 kr.
Árbók
Þegar himinninn
grætur er fyrsta
bók (kilja) Álf-
heiðar Bjarna-
dóttur.
Hér greinir frá
Birni Vilhjálms-
syni, Bjössa
kóng, sem var
máttarstólpi
þorpsins á Vestfjörðum. Andrea, hin
bráðfallega einkadóttir hans, átti
miklu ástríki að fagna hjá föður sín-
um. Hann kenndi henni að rækta
sálina og hjartalagið, en móður
sína hafði hún misst á unga aldri.
Andrea útskrifaðist úr Versl-
unarskólanum þar sem margir
skólabræður hennar voru bálskotnir
í henni, en hún hafði aldrei orðið al-
varlega ástfangin, þar til hún féll
fyrir Úlfljóti Hermannssyni, versl-
unarstjóra föður síns. En það fór
margt öðruvísi en hún ætlaði.
Gústa Gabríels, með sitt eldrauða
hár, er örlagavaldur sögunnar og
bruggar sín launráð.
Útgefandi er Vestfirska forlagið á
Hrafnseyri. Bókin er ki1ja, 163 bls.
Prentvinnsla: Ásprent, Akureyri.
Verð: 1.900 kr.
Skáldsaga
LANDINN er nokkuð vel kunnug-
ur bókum Isabel Allende, þar sem þær
hafa flestar verið þýddar á íslenska
tungu. Hún hefur heillað Frónbúa ekki
síður en aðra lesendur um víða verölda
með leiftrandi frásagnargleði og með
því að hleypa lesendum inn í þann lit-
ríka og framandi heim sem hún er
sprottin úr: Hinn seiðandi suður-am-
eríska tilfinningapott með öllum sínum
ólíkindum.
Í þessari sögu fáum við að kynnast
bandaríska unglingnum Alexander,
sem í byrjun bókar lendir, án þess að
fá nokkuð við það ráðið, í nýrri og
óvæginni aðstöðu. Honum er kastað út
í nýtt líf og verður að gjöra svo vel að
svamla eða drukkna
ella. Án þess að upp-
lýsa of mikið um það
sem gerist í bókinni, þá
er Alexander strax í
fjórða kafla kominn
inn í frumskóga Ama-
son með stórundar-
legri ömmu sinni og í
þessum nýja heimi,
sem er mjög svo frá-
brugðinn þeim sem
hann er vanur, verður
hann að skoða sjálfan
sig alveg upp á nýtt og
endurmeta lífsgildin.
Hin illu öfl eru allt um
kring og óvæntir at-
burðir við hvert fótmál og sagan því
líka hin besta spennusaga.
Með því að stefna þannig saman
ólíkum heimum og siðmenningu, tekst
Isabel Allende ekki aðeins að hrista
upp í Alexander, heldur fær hún les-
andann líka til að skoða
sjálfan sig í nýju ljósi og
hún vekur til umhugsun-
ar: Um það hversu langt
við í hinum vestræna
heimi erum komin frá
uppruna okkar í brjáluð-
um neyslukapítalisma og
hversu sorglega mikið við
erum úr tengslum við
náttúruna. Og hvert hefur
ofurtrú okkar á einstak-
linginn leitt okkur? Getur
verið að indíánarnir hafi
eitthvað til síns máls þeg-
ar þeir segja að einstak-
lingshyggja sé brjálsemi?
Með þessari bók erum við
minnt á hversu hrokafull við erum og
völtum yfir allt og alla í valdi peninga
og von um gróða.
Því ber að fagna að Isabel Allende
minni okkur rækilega á umgengni
okkar við náttúruna og mér varð
óneitanlega hugsað til Kárahnjúka,
sem eru nærtækasta dæmið hér á
landi í því samhengi.
En bókin gerir miklu meira en að
vekja til umhugsunar, hún skemmtir
lesandanum með kostulegum per-
sónum og höfundur töfrar fram æv-
intýraheim með sköpunargleðinni þar
sem fátt er ómögulegt og ekki alltaf
ljóst hvað er þessa heims eða annars:
Töframenn, rafmagnaðir fiskar, and-
ar, eitraðar örvar og talandi dýr. Fátt
er ómögulegt og jafnvel ná sumir
þeirri færni að breyta sér í dýr um
stundar sakir. En það sem mestu
skiptir: Sumir læra að sjá með hjart-
anu.
Á slóð skepnunnar er bók fyrir alla,
konur og karla, en ég mæli eindregið
með henni fyrir unglinga á svipuðum
aldri og söguhetjan Alexander sem er
fimmtán ára.
Að sjá með hjartanu
ÞÝDD KÁLDSAGA
Á slóð skepnunnar
ISABEL ALLENDE
278 bls. Mál og menning 2003.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Isabel Allende
MAURABÚIÐ hennar Söru eftir
Harry Gilbert er afskaplega sér-
kennileg saga. Hluti hennar gerist í
raunveruleikanum, en svo virðist
sem stór hluti hennar sé eins konar
ímyndun eða vondur draumur.
Sara er unglingsstúlka sem lend-
ir í tilfinningalegri kreppu þegar
móðir hennar yfirgefur heimilið og
enginn veit hvar hún er. Sara býr
hjá föður sínum sem virðist líka
vera talsvert ístöðu-
laus og getur ekki
veitt dóttur sinni þann
stuðning sem hún
þarfnast. Hún lendir í
vandræðum í skólan-
um sem leiðir til þess
að hún fer í annan
skóla samkvæmt ráð-
um skólasálfræðings.
Þar eignast hún vini,
tvíburana Láru og
Laufeyju og Davíð.
Samskiptin við þau
hafa góð áhrif á hana.
Þar sannast að góðir
vinir eru gulls ígildi og
gera lífið betra.
Síðan kemur að því að hún lendir
í einhvers konar óræðri veröld
maura og svo virðist
sem líf hennar verði
einhvers konar blanda
af draumi og veru-
leika, en þó kannski
heldur meiri draumur.
Þegar upp er staðið
í sögulok finnur hún
fótanna og getur
glaðst yfir að ná sam-
bandi við móður sína
að nýju. Móðirin veit
ekki alveg hvernig
hún á að mæta dóttur
sinni þegar þær hitt-
ast aftur. Þetta er
eins konar sálar-
flækjubók sem erfitt er að henda
reiður á. Hún er eiginlega mjög
draumkennd og erfitt að tengja
hana raunveruleikanum. Sálar-
flækjurnar hafa áhrif á allar per-
sónurnar og svo virðist sem enginn
viti hvernig hann eigi að bregðast
við atvikum hversdagsins. Tengsl
ungmenna við fjölskyldur sínar er
efni sem ástæða er til að staldra við
og velta fyrir sér. Það skiptir nefni-
lega ungar sálir svo miklu að vita
hvaða hugsanir og tilfinningar bær-
ast í brjóstum foreldranna og for-
eldrar þurfa líka að velta fyrir sér
hvað börn þeirra eru að hugsa.
Þýðinguna annaðist Kristján
Kristjánsson og Aðalsteinn Sigfús-
son gerði káputeikningu. Kápu-
mynd fellur vel að óræðu efni sög-
unnar.
Sálarflækjur
UNGLINGABÓK
Maurabúið hennar Söru
HARRY GILBERT
Íslensk þýðing Kristján Kristjánsson.
172 bls, Uppheimar, 2003.
Sigurður Helgason
ÞAÐ er oftar en menn grunar,
sem getið er um alls kyns dýrateg-
undir í almennum fréttum. Eflaust
langar þá marga til þess að vita ein-
hver deili á þeim skepnum, því að
ekki er alltaf auðvelt að átta sig á
þeim aragrúa tegunda, sem lifa í
heiminum. Með útkomu þessarar
bókar er einmitt komið handhægt
uppsláttarrit, sem veitir mjög góða
innsýn inn í hóp vefdýra og er
einkar aðgengilegt. Meginkaflar
bókarinnar eru sex, og fjalla þeir
um spendýr, fugla, skriðdýr, frosk-
dýr, fiska og að lokum um hrygg-
leysingja. Í inngangi er lýst helztu
einkennum hvers hóps, en síðan
koma myndir og stutt fræðsla um
hinar ýmsu tegundir. Að auki er
skotið inn ítarefni um einstök dýr.
Bókin er öll hin fróðlegasta, þó að
ekki sé langur texti um hverja teg-
und. Ekki er síðra, að með hennar
hjálp fæst glöggt yfirlit yfir ríki vef-
dýra og þá miklu fjölbreytni, sem
þar er að finna. Að vonum koma
mörg dýranöfn fyrir og eru allmörg
nýnefni, en nokkur hefð er þó kom-
in á flest þeirra, þótt framandi séu.
Nöfnin eru yfirleitt valin af smekk-
vísi en óneitanlega eru sum alllöng.
Það hefur verið venja að líta á teg-
undanöfn sem safnheiti og hafa þau
því í eintölu (og jafnan án greinis),
og sá háttur hefur lengi tíðkast að
hafa ættkvíslarnöfn í fleirtölu á ís-
lenzku, til mikils hagræðis. Því mið-
ur er þessi einfalda regla ekki í
heiðri höfð, eins og dæmið um haf-
örn sýnir. Að sjálfsögðu eru tegund-
anöfn á latínu en einhverra hluta
vegna eru þau ekki tekin með í at-
riðisskrá.
Við hverja tegund eru glöggar
merkingar um búsvæði tegundanna
og jafnframt er sagt frá meginút-
breiðslu. Eins og gefur að skilja eru
fæst þessara dýra íslenzk, en ekki
hefði sakað að geta þess sérstak-
lega, ef viðkomandi tegund lifir á
landi hér. Sums staðar getur verið
svolítið erfitt fyrir fólk að átta sig á
nákvæmri flokkun dýranna, því að
hér er oft aðeins birtur lítill partur
af stórum hópi. Þá er efnisyfirlit í
upphafi bókar ekki að fullu í sam-
ræmi við innihaldið. Þýðingin er yf-
irleitt vel af hendi leyst enda engir
aukvisar þar á ferð. Texti er jafnan
skýr en knappur, því að oft er lítið
rúm á milli mynda. Á stöku stað
mætti þó orða hlutina eilítið betur.
Til dæmis er sagt um tálkn og hin
æðaríku tálknblöð, að þau »eru
samsett úr miklum fjölda af fín-
gerðum plötum sem fullar eru af
æðum«.
Það er þó mála sannast, að bókin
er býsna vel úr garði gerð, gefur
góða yfirsýn yfir vefdýr og er öll
hin hnýsilegasta.
Ríki vefdýra
NÁTTÚRUFRÆÐI
Dýraalfræði fjölskyldunnar
JINNY JOHNSON
Íslenzk þýðing: Atli Magnússon og Örn-
ólfur Thorlacius. 264 bls. Útgefandi er
Skjaldborg ehf. – Reykjavík 2003.
Ágúst H. Bjarnason
BÆKURNAR um Artemis Fowl
hafa verið gífurlega vinsælar og fært
höfundi sínum Eoin Colfer verðlaun
og viðurkenningar. En mesta viður-
kenning hvers rithöfundar er sú stað-
reynd að fólk vill lesa bækur hans.
Colfer er írskur að þjóðerni, fyrrver-
andi kennari, en hefur á síðari árum
helgað sig ritstörfum. Artemis Fowl
er aðalsöguhetjan, eins konar undra-
drengur sem hefur ráð undir rifi
hverju og getur leyst ótrúlegustu
vandamál sem upp koma.
Raunsæi er einhvers staðar langt í
burtu í þessum bókum. Mest áhersla
er lögð á að skapa spennandi sögu-
þráð og halda lesandanum við efnið.
Það tekst Colfer mjög vel og margt í
söguþræðinum kemur á óvart og
skapar spennu og þar af leiðandi að-
dráttarafl.
Oft er reynt að finna höfundarverk-
um rithöfunda samsömun í verkum
annarra höfunda. Bækurnar um
Artemis Fowl hafa fengið þá lýsingu
að vera eins konar sambland af Harry
Potter og James Bond. Stóra spurn-
ingin varðandi bækur Colfers er sú,
hvort hann eigi sér nokkra raunveru-
lega samferðamenn í sinni sköpun,
hvort verk hans séu ekki albúin frá
hans hendi og hvort ekki sé óþarfi að
tengja hana beint við verk annarra
höfunda.
Vissulega hafa sögurnar ákveðin
einkenni njósnasagna,
en kannski eru þar einna
helst tekin hefðbundin
atriði og persónur sem
menn þekkja víða úr
bókmenntum. Sagan
stekkur milli raunveru-
legrar veraldar og ein-
hvers konar álfaheima
og álfatilveru, sem höf-
undi tekst reyndar að
gera trúverðuga á sinn
hátt.
Það sem Colfer tekst
best er að tengja þá ver-
öld sem ungmenni nú-
tímans eru nátengd, það
er veröld tölvualdar við líflegan sögu-
þráð. Og kannski eru þessar sögur að
sumu leyti tengiliður bókmennta og
fjölbreyttra tölvuleikja sem veita
börnum gleði. Spennan
úr leikjunum er komin
á bók. Það er alls ekki
auðvelt fyrir þýðanda
að koma slíkum texta
inn í hrynjandi íslensks
máls. Það tekst Guðna
Kolbeinssyni vel og
víst er að hann er einn
af meisturum íslensks
máls og í hvert skipti
sem hann þýðir bók
tekst honum að fella
texta hennar vel að ís-
lenskri tungu. Það
kemur engum á óvart
að margir velji Artemis
Fowl til gjafa eða til lestrar þegar far-
ið er á bókasafnið.
Ótrúlegur unglingur
BARNABÓK
Artemis Fowl – læsti teningurinn
EOIN COLFER
Íslensk þýðing Guðni Kolbeinsson. 318
bls, JPV útgáfa, 2003.
Sigurður Helgason