Morgunblaðið - 16.01.2004, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16|1|2004 | FÓLKÐ | 11
The Last Samurai er sannkölluð epík, stór-
mynd um árekstra og aðlögun tveggja heima,
svo gjörólíkra á flestum sviðum – Japan á of-
anverðri 19. öld, þegar landið var að opnast
fyrir vestrænum áhrifum. Fjallað er um upphaf
þessara miklu þjóðfélagsbreytinga í hnotskurn
í stórbrotinni sögu þar sem tveir stríðsmenn,
japanskur og bandarískur, eru í fylking-
arbrjósti.
AUSTRIÐ MÆTIR VESTRI
Tom Cruise leikur Nathan Algren, fyrrum höf-
uðsmann í Þrælastríðinu, sem er, í mynd-
arbyrjun, ákveðinn í að drekka sig í hel. Fyrir
orð vinar síns tekur hann boði um að gerast
þjálfari herdeilda Japanskeisara, sem þekkja
lítið sem ekkert til vestrænna skotvopna og
hernaðarfræði. Algren heldur til Japans og hef-
ur þjálfunina, kennir skylmingamönnum að
handleika byssur og önnur vestræn vopn. Svo
virðist sem keisaranum sé mikið í mun að
ganga frá fornri menningu föðurlandsins á
flestum sviðum og nýtur til þess fulltingis vold-
ugra þegna sinna á borð við járnbrautarbar-
óninn Omura (Masato Harada).
Sá er slægviturt illmenni sem ræður Algren
til að bæla niður uppreisn samúræja, sem er
stjórnað af leiðtoganum Katsumoto (Ken Wat-
anabe). Allt fer á annan veg en ætlað er. Algren
mætir – sér til mikillar furðu – ofjörlum sínum í
skylmingamönnunum og er tekinn til fanga.
Framhaldið er jafnvel enn óvæntara því gagn-
kvæm virðing og vinátta tekst með hinum ólíku
stríðsgörpum, þeir verða bandamenn í kom-
andi átökum, samúræinn Katsumoto og kapt-
einninn bandaríski. Heiður og hugprýði bindur
þá saman.
SÍÐASTI SAMÚRÆINN – SAIGÔ TAKAMORI
Sagan sem The Last Samurai byggist á, er
að talsverðu leyti sótt í staðreyndir. Einn kunn-
asti samúræi Japana á 19. öld og jafnframt
einn sá síðasti sem lét að sér kveða, hét Saigô
Takamori (1828–1877). Hefur Edward Zwick,
annar handritshöfundur og leikstjóri mynd-
arinnar, skýrt frá því að hann sé fyrirmynd Kats-
umoto, annarrar aðalpersónunnar og sam-
nefnd ævisaga hans eftir Mark Ravina,
aðalinnblástur kvikmyndarinnar.
Saigô Takamori var einn
þeirra sem kváðu niður veldi
stríðshöfðingjans (shogun)
Tokugawa og endurreisti
keisaraveldi Meiji. Hann
mátti síðan fylgjast
með því – sér til
Brittany Murphy leikur Molly Gunn í gam-
anmyndinni Uptown Girls sem er frum-
sýnd í Smárabíói og Laugarásbíói um
helgina. Molly er forfallin eyðslukló, dóttir
látinnar rokkstjörnu, sem verður skyndi-
lega að fara að vinna fyrir sér þegar
hún er rænd arfinum.
í tónlistarheiminum og hefur lítið sinnt dótturinni.
Molly hefur á hinn bóginn aldrei þurft að hafa áhyggjur og
látið aðra sjá um hlutina fyrir sig á meðan telpukrakkinn Ray
hefur axlað byrðar heimsins svo lengi sem hún man. Það
gengur því á ýmsu í samskiptum þessara ólíku einstaklinga
því Ray fær Molly til að haga sér eins og fullorðin mann-
eskja á meðan Molly laðar fram barnið í Ray. Leikstjórnin er í
höndum Boazar Yakin, sem á að baki Remember the Titans
og Rush.
TVÆR STJÖRNUR Á HRAÐRI UPPLEIÐ
Aðalleikonurnar í Uptown Girls, Brittany Murphy
og Dakota Fanning, eiga framtíðina fyrir sér.
Murphy hóf leikferilinn í sjónvarpsþáttunum David
and Lisa og King of the Hill, þaðan sem leiðin lá í
smáhlutverk í Girl, Interrupted; Don’t Say a Word
og Clueless. Hún vakti stormandi athygli á síðasta
ári í Just Married, gamanmyndinni vinsælu og tón-
listarmyndinni 8 Mile.
Dakota Fanning er kornung að árum og er ein
eftirsóttasta barnastjarnan í Hollywood um þessar
mundir. Hún er yngsti leikarinn sem hlotið hefur til-
nefningu verðlauna SAG (Samtaka bandarískra leik-
ara), fyrir frammistöðu sína sem Lucy, dóttir Seans
Penns, í I’m Sam. Síðan hefur hún m.a. leikið á
móti Mike Myers í Dr. Seuss’ The Cat in the Hat.
Nýjasta mynd Fanning heitir Man on Fire, spennu-
tryllir eftir Tony Scott þar sem hún fer með stórt
hlutverk á móti Denzel Washington. Hún verður
frumsýnd í apríl. |saebjorn@mbl.is
Molly hefur aldrei dýft hendi í kalt vatn og lífið
verið nánast eitt stanslaust partí þegar henni
er kippt inn í raunveruleikann. Endurskoðand-
inn hennar hefur látið greipar sópa um auð-
æfin sem hún erfði eftir rokkgoðsögnina,
móður sína. Partíinu er lokið, Molly verður
að leita sér vinnu.
ÚR LJÚFA LÍFINU Í BARNAPÖSSUN
Með góðra vina hjálp auðnast Molly að
hafa eitthvað fyrir stafni. Ekkert draumastarf
að vísu, hún gerist barnapía Ray (Dakota
Fanning), 8 ára stelpu sem er ofantekin af
sýklum og reynir að lifa lífinu eins óaðfinn-
anlega og kostur er. Hún hefur þurft að læra
að bjarga sér á eigin spýtur þar sem Roma,
(Heather Locklear), móðir hennar, er stórt nafn
ómældra sálarkvala – er stjórn Meiji, í herferð
fyrir nútímalegra þjóðfélagi, svipti samúræjana
öllu því sem gerði þá að samúræjum; fulltrúum
ævafornra, japanskra hefða, heiðurs og sóma,
auk ýmissa forréttinda sem fylgdu gamla
lénskipulaginu.
Æfisaga Ravina sviptir hulunni af Saigô og
skoðar hann bæði sem goðsögn og í sögulegu
ljósi.
Saigô er einn af óyggjandi hetjum Japana og
sem fyrr segir fyrirmynd Katsumoto, uppreisn-
armannsins, skáldsins og stríðsherrans sem
kennir Nathan Algren (Cruise) hefðbundnar sið-
venjur og tækni samúræja. Ravina rekur í bók
sinni hvernig skilningur Saigôs á heiðri sam-
úræjans leiðir hann í upphafi til stuðnings við
keisarann gegn lénskipulaginu; síðar til upp-
byggingar keisaraveldisins og að endingu
hvernig hann snýr við því baki. Í þessari drama-
tísku frásögn af stjórnmálum og byltingarátök-
um fer höfundur ofan í saumana á baráttunni á
milli hugmyndaheims samúræjans Saigô og
hinna yfirvofandi, japönsku nútímaviðhorfa.
Þau menningarlegu umskipti eru mikilvægur
þáttur í bakgrunni The Last Samurai.
Útgáfa Kurosawa af Lé konungi, hatrömm,
litrík og mikilfengleg fyrir augað.
|saebjorn@mbl.is
kyttur &
kylmingamenn
Í Síðasta samúræjanum – The Last Samurai – liggja saman leiðir
tveggja stríðsmanna þegar Japanskeisari ákveður að ráða upp-
gjafarhermann úr Þrælastríðinu (Tom Cruise), til að þjálfa her
sinn að hætti Vesturlanda. Myndin, sem er leikstýrt af Edward
Zwick, er frumsýnd í Háskólabíói og Sambíóunum um allt land.
FRUMSÝNT
Stelpurnar úr fína hverfinu
FRUMSÝNT