Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 25. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kom, söng og
sigraði
Rakel Pálsdóttir vann söngva-
keppni Samf́és | Fólk í fréttum
Íþróttir | Úti er ævintýri í SlóveníuSlæm bikartöp
hjá Íslendingaliðum Fasteignir | Fjölbýlishús rís í
hálfhring Bjart útlit yfir baðherberginu
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands,
hefur ekki fengið viðvörunarbréf frá dóm-
aranum sem rannsakar dauða vopnasér-
fræðingsins Davids Kellys, og þykir það til
marks um að hann muni sleppa við alvar-
legar aðfinnslur þegar niðurstaða rann-
sóknarinnar verður birt.
Þetta kom fram í dagblöðunum The
Sunday Telegraph og The Observer í gær.
Hutton lávarður, sem stýrir rannsókninni,
mun á miðvikudag birta niðurstöðurnar úr
rannsókninni á sjálfsmorði Kellys en dauði
hans hefur verið miðpunktur umræðunnar
um hvort Blair hafi ýkt hættuna af ger-
eyðingarvopnaeign Íraka. Í The Sunday
Telegraph kom fram að nokkrir sem
tengjast Kelly-málinu hefðu fengið viðvör-
unarbréf, m.a. Geoff Hoon varnarmálaráð-
herra, Alastair Campell, fyrrverandi
blaðafulltrúi Blairs, og yfirmenn hjá BBC.
Blair ekki í vafa um vopnaskýrslur
Blair segir að ekki leiki vafi á að leyni-
skýrslurnar um gereyðingarvopn sem
hann fékk fyrir innrásina í Írak hafi verið
ósviknar. „Ég hef alls engar efasemdir um
að leyniskýrslurnar innihéldu sannleik-
ann,“ sagði Blair í viðtali við The Observ-
er. Hann vildi hins vegar ekki svara því
hvort hann teldi að raunveruleg vopn
myndu finnast í Írak.
Colin Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, segir hins vegar að þeirri spurn-
ingu sé ósvarað hvort Írakar hafi haft
gjöreyðingarvopn undir höndum áður en
innrásin í landið var gerð í fyrra en fyrir
stríðið sagðist hann fullviss um að Írakar
réðu yfir gereyðingarvopnum. Hann legg-
ur þó áherslu á að þau gögn sem njósn-
arar Bandaríkjamanna lögðu fram fyrir
innrásina, um að Írakar hefðu haft í
hyggju að þróa gjöreyðingarvopn, stand-
ist.
Reuters
Telja að Blair
sleppi við
aðfinnslur
Lundúnum. AP.
HRINGURINN hefur gefið 50 milljónir til
Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans
og 15 milljónir til Barnaspítala Hringsins. Fé-
lagið er 100 ára í dag.
Áslaug Viggósdóttir, formaður Hringsins,
segir annars vegar um að ræða framlag til
byggingar göngudeildar hjá BUGL við Dal-
braut og hins vegar til kaupa á húsnæði fyrir
foreldra barna utan af landi, sem þurfa að
dvelja í höfuðborginni meðan börnin eru til að-
hlynningar á spítalanum.
Hringskonur gefa ekki fé á hverju ári, að
hennar sögn, en síðasta stóra gjöfin var til
Barnaspítalans árið 2002, samtals 200 millj-
ónir.
Áslaug hefur verið formaður Hringsins síð-
astliðin þrjú ár. Segir hún forgangsverkefni,
héreftir sem hingað til, að efla tækjakost
Barnaspítala Hringsins og styðja við starfsemi
hans.
ur hafa verið um vanda BUGL um nokkurt
skeið og ríkisstjórn látið málefnið til sín taka.
Síungar og sígildar
Hringurinn safnar fé með ýmsum hætti, að
sögn Áslaugar. Fyrst má nefna minningarkort
sem seld hafa verið frá árinu 1914. Einnig sel-
ur félagið jólakort og heldur jólabasar. Jóla-
kaffi Hringsins er haldið fyrsta sunnudag í að-
ventu og síðast en ekki síst er að telja
stuðning einstaklinga og fyrirtækja.
„Þar má nefna styrki og áheit og fólk sem
hefur ánafnað félaginu heilu húseignirnar.
Þær eru seldar og andvirðið ávaxtað vel. Við
þurfum að halda vel utan um fé sem okkur er
falið og veltum hverri krónu fyrir okkur. Eig-
inlega erum við frægar fyrir að borga aldrei
neitt. Að öðru leyti erum við sígildar og síung-
ar á þessum tímamótum,“ segir Áslaug
Viggósdóttir, formaður Hringsins.
„Við lítum líka í fleiri áttir og þótti aðstoð
við Barna- og unglingageðdeildina bæði brýnt
og þarft mál,“ segir Áslaug, en miklar umræð-
Líknar- og mannúðarfélagið Hringurinn fagnar aldarafmæli í dag
Gefa alls 65 milljónir til
BUGL og Barnaspítala
YFIRMAÐUR Kjarnorkustofnunar
Sameinuðu þjóðanna sagði í viðtali
sem birtist í gær að aldrei hefði verið
meiri hætta en nú á að kjarnorku-
stríð brytist út.
Mohamed El Baradei lét þessi
ummæli falla í viðtali við þýska viku-
ritið Der Spiegel.
El Baradei sagði þetta mat sitt
byggt á áhyggjum af leynilegri
verslun með tækni og þekkingu á
sviði kjarnorkumála. „Hættan hefur
aldrei verið meiri
en nú um stundir.
Kjarnorkustríð
nálgast tökum við
ekki þegar í stað
að huga að nýju
alþjóðlegu örygg-
iskerfi á þessu
sviði,“ sagði hann.
Nefndi El Bar-
adei að hann hefði
„gríðarlega þung-
ar áhyggjur“ af kjarnorkuáformum
stjórnvalda í Norður-Kóreu. „Það
kæmi mér alls ekki á óvart ef Norð-
ur-Kóreumenn ættu nú nothæfa
kjarnorkusprengju.“ Stjórnvöld í
Norður-Kóreu hafa ítrekað gefið til
kynna að þau ráði nú þegar yfir slík-
um vopnum. Bandarískir sérfræð-
ingar og embættismenn hafa sagt að
geta til að framleiða efni í gereyðing-
arvopn sé fyrir hendi í Yongbion-
kjarnorkuverinu sem Norður-Kór-
eumenn settu á ný í gang í fyrra.
El Baradei kvaðst óttast að
hryðjuverkamenn og harðstjórar
kæmust yfir kjarnorkuvopn. „Ég hef
einnig áhyggjur af kjarnavopnum
þeim sem lýðræðisríkin ráða yfir
vegna þess að á meðan vopn þessi
eru til er aldrei hægt að tryggja al-
gjörlega að þau hafi ekki skelfilegar
afleiðingar í för með sér sökum
þjófnaðar og skemmdarverka eða
fyrir slysni.“
Kveðst óttast kjarnorkustríð
Berlín. AP.
Mohamed
El Baradei
FRAMLAG Hringsins til Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítalans gerði útslagið með
það að farið er af fullum krafti í byggingu
göngudeildar við deildina,“ segir Ólafur Ó.
Guðmundsson, yfirlæknir á Barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans.
„Byggingin mun kosta að minnsta kosti 300
milljónir króna þannig að þetta framlag er
einn sjötti hlutinn af því. Þetta gjörbreytir
stöðunni, ásamt öðrum fjárveitingum gerir
þetta okkur kleift að fara af stað. Þannig að
þetta er alveg ótrúlega rausnarlegt framlag.“
„Gjörbreytir stöðunni“
SAMHÆFÐUR skautadans er ung grein inn-
an skautaíþróttarinnar og í örum vexti um all-
an heim. Stór hópur rennir sér samtímis á
vellinum í samhæfðum skautadansi og hefur
mörg tækifæri til þess að keppa erlendis.
Stúlkur í Skautafélagi Reykjavíkur æfðu
sig í samhæfðum skautadansi á skautasvellinu
í Egilshöll í gær.
flokki 12–18 ára frá Skautafélagi Reykjavíkur
nú verið boðið að fara til Svíþjóðar í mars og
taka þátt í sænsku móti. Margfaldir Íslands-
meistarar eru í liðinu, sem ekki hefur fengið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samhæfðar á skautum
JESÚS og George W. Bush Banda-
ríkjaforseti voru langt á eftir fót-
boltastjörnunni David Beckham
þegar ungt fólk í Bretlandi var spurt
hver væri mesta hetjan þeirra í net-
könnun sem birt var í gær. Beckham
var efstur, næstur kom leikarinn
Brad Pitt og svo popparinn Justin
Timberlake. Þeir Bush og Jesús
voru saman í 123. sæti og Tony Blair
í 69. sæti. Um 2.500 ungmenni tóku
þátt í könnuninni.
Beckham
mesta hetjan
Lundúnum. AFP.
Íþróttir og Fasteignablað