Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nei, nei, Magnús minn, þetta er nú orðið gott hjá þér, góði, við getum nú alveg talið pen-
ingana sjálfir.
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands
Kostir og gallar
í brennidepli
Náttúrulækninga-félag Íslandsstendur fyrir
málþingi á morgun,
þriðjudaginn 27. janúar, í
þingsal 1 áHótel Loftleið-
um klukkan 20. Slagorð
málþingsins er „Berum
ábyrgð á eigin heilsu“ og
er umræðuefnið erfða-
breyttar afurðir. Meðal
fyrirlesara er Jónína Þ.
Stefánsdóttir, matvæla-
fræðingur hjá Umhverfis-
stofnun.
Segðu okkur aðeins frá
inntaki þingsins.
„Erfðabreyttar afurðir
eru meðal þess athyglis-
verðasta í framleiðslu
matvæla og lyfja í heim-
inum. Erfðabreyttar
plöntur hafa t.d. innbyggt
viðnám við skordýraplágum,
plöntusjúkdómum og illgresis-
lyfjum, þannig að við ræktun
erfðabreyttra nytjaplantna er
minni þörf á notkun skordýra- og
illgresislyfja og eiturmengun
matvæla og jarðvegs verður því
minni. Margir hafa hins vegar
áhyggjur af því að erfðabreyttar
afurðir geti verið heilsuspillandi
og haft neikvæð áhrif á umhverf-
ið. Á málþinginu verður fjallað
um erfðabreyttar lífverur og af-
urðir þeirra frá ýmsum hliðum.“
Hvað er erfðabreytt afurð?
„Erfðabreyting felur í sér að
erfðaefni lífveru, t.d. plöntu, er
breytt. Þetta er gert með því að
flytja hluta úr erfðaefni milli teg-
unda og er þannig hægt að flytja
eftirsóknarverðan eiginleika sem
finnst í lífveru yfir í nytjaplöntu,
t.d. þol gegn illgresiseyði úr
bakteríum yfir í sojaplöntur.
Þetta er sú erfðabreyting sem
núna er mest nýtt í ræktun.
Illgresiseyðir sem kallast ro-
undup virkar á flestar plöntur og
er talinn fremur umhverfisvænn
miðað við marga aðra illgres-
iseyða. Þegar efninu er úðað yfir
sojaakra lifa erfðabreyttu soja-
plönturnar en illgresi drepst og
skilar það aukinni uppskeru af
soja.
Sú erfðabreyting sem er næst-
mest nýtt í plöntur til ræktunar
er þol gegn skordýrum. Þá hefur
gen úr bakteríunni Bacillus thur-
ingiensis verið flutt í plöntur s.s.
maís, sem veldur því að skordýr
ná ekki að skaða plöntuna.
Erfðabreytt afurð er afurð líf-
veru sem hefur verið erfða-
breytt. Algengasta erfðabreytta
plantan er soja, síðan koma maís,
baðmull og repja. Úr erfða-
breyttum plöntum eru unnar
fjölbreyttar afurðir sem eru not-
aðar í margskonar matvæli, sem
við neytum.
Auk erfðabreyttra plantna
eruýmsar afurðir erfðabreyttra
örvera notaðar í matvælaiðnaði
og lyfjaframleiðslu. T.d. eru með
örverum framleidd ensím til
ostagerðar.
Þess má geta að engin gen úr
dýrum eða mönnum eru notuð í
plöntur til matvæla-
framleiðslu. Hins veg-
ar eru slík gen notuð
til lyfjaframleiðslu.“
Hverjir eru helstu
kostir erfðabreyttrar
afurðar?
„Erfðabreytingar geta auð-
veldað baráttuna við að skordýr
og illgresi skaði uppskeru. Þann-
ig er hægt að auka fæðufram-
leiðslu. Mögulegt er að þróa
nytjaplöntur sem geta þolað erf-
iðari skilyrði s.s. þurrk, salt og
frost. Einnig er hægt að auka
næringargildi, vinnslueiginleika
og geymsluþol matvæla.“
… og helstu gallarnir?
„Við leyfisveitingu til ræktun-
ar erfðabreyttra plantna er gerð
krafa um áhættumat, þar sem
metið er sérstaklega út frá
plöntutegund og umhverfi hvaða
áhrif gætu orðið á heilsu manna
og á umhverfið bæði til skamms
tíma og langs tíma. Þetta er ný-
leg tækni svo að vissulega sjáum
við ekki fyrir endann á öllum at-
riðum. Ýmis umhverfisáhrif eru
hugsanleg ef ekki er farið nægi-
lega varlega. Skordýr gætu
myndað þol gegn efninu sem
skordýraþolnar plöntur mynda.
Sumar plöntutegundir gætu
blandast við skyldar tegundir í
nágrenni ræktunarstaðar. Í leyf-
um til ræktunarinnar eru síðan
sett skilyrði og varúðarráðstaf-
anir.
Margir neytendur hafa eðli-
lega lítinn skilning á erfðatækni
og óttast þess vegna ýmislegt
sem ekki á við rök að styðjast
eða hefur ekki staðist vísindaleg
rök, s.s. það að neyta matvæla
með breytt erfðaefni.
Ekki eru heldur allir sáttir við
t.d. að verið sé að sýsla með
erfðaefnið, s.s. við flutning þess
milli óskyldra tegunda og þegar
erfðaefni er flutt úr matvælum
sem ekki er neytt vegna trúar-
bragða yfir í önnur matvæli.“
Helstu áherslur á málþinginu?
„Skilgreint verður hvað erfða-
breytt afurð er og hvernig þær
verða til. Sömuleiðis hvað það er
sem veldur ótta margra við
neyslu erfðabreyttra afurða.“
Hvernig er ástandið í þessum
málefnum á Íslandi?
„Ekki er nein fram-
leiðsla erfðabreyttra
afurða á Íslandi, en þó
fara fram rannsóknir
og tilraunir með erfða-
breyttar lífverur. Við
getum einnig gert ráð fyrir að
hluti matvæla í verslunum inni-
haldi efni sem eru úr erfða-
breyttum afurðum.“
Tilgangurinn með málþinginu?
„Þar sem neysla erfðabreyttra
afurða er að aukast víða um heim
þurfa Íslendingar að velta því
fyrir sé hvort æskilegt sé að
rækta og nota erfðabreyttar af-
urðir hér á landi.“
Jónína Þ. Stefánsdóttir
Jónína Þ. Stefánsdóttir fædd-
ist í Árnessýslu 18. maí 1957.
Stúdent frá MR. Lauk BS 1980
og BS honour 1986 í matvæla-
fræði frá HÍ. Hefur starfað hjá
SH, Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins, Sælgætisgerðinni
Freyju, Heilbrigðiseftirliti Suð-
urlands, Hollustuvernd ríkisins
og Umhverfisstofnun.
Gift Halldóri Sigurðssyni og eiga
þau þrjú börn; Berglindi, Hug-
rúnu og Bjarna.
Neytendur
hafa eðlilega
lítinn skilning