Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra,
segir fjarri því að niðurstaða sé í
sjónmáli í varnarviðræðum ís-
lenskra og bandarískra stjórnvalda.
Það mál sé ekki leyst og fundir með
Bandaríkjamönnum hafi ekki sér-
staklega verið til þess fallnir að
auka mönnum bjartsýni í þeim efn-
um.
Hann sagði engin ríki koma vel í
stað Bandaríkjamanna þegar hugað
væri að vörnum landsins. Sam-
kvæmt varnarsamningi landanna
þyrfti að tryggja hér lágmarksvarn-
ir og hann tryði því enn að Banda-
ríkjamenn mundu axla þá ábyrgð.
Málið væri erfitt viðfangs þar sem
sjónir þeirra beidust nú að öðrum
heimshlutum.
Þetta kom fram hjá forsætisráð-
herra og formanni Sjálfstæðis-
flokksins á fjölmennum morgun-
fundi sjálfstæðismanna í Valhöll á
laugardaginn.
Forneskjuviðhorf
Þegar spurt var um viðhorf Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, vara-
formanns Samfylkingarinnar, þess
efnis að Íslendingar ættu að skipa
sér í sveit með Evrópu þegar kæmi
að vörnum landsins því stefna
Bandaríkjanna einkenndist af vald-
beitingu, sem stjórnaðist öðru frem-
ur af hagsmunum stórfyrirtækja og
fjármagns, sagði Davíð með ólík-
indum að hlusta á þennan málflutn-
ing. Viðhorf varaformanns Samfylk-
ingarinnar væri eins og „aftan úr
grárri forneskju“ og hefði mátt bú-
ast við að sjá slíkt á síðum Þjóðvilj-
ans fyrir 20 árum. Hann sagði ekk-
ert vikið að stefnu gagnvart
Bandaríkjamönnum í stefnuskrá
Samfylkingarinnar og ekkert væri
nýtt í þessum ummælum.
Hin miklu svik
Davíð sagði að það hefði verið
mjög mikilvægt að Sjálfstæðisflokk-
urinn héldi áfram í ríkisstjórn eftir
síðustu kosningar. Á það hefði hann
lagt áherslu svo hægt yrði að halda
áfram umbótum á íslensku efna-
hagslífi; atvinnuleysi og verðbólga
væri lítil, erlendar skuldir áfram
greiddar niður og kaupmáttur al-
mennings væri mikill. Sagði hann
dásamlegt að gott ástand efnahags-
mála gæti varað í svo langan tíma. Í
lok kjörtímabils yrði svo komið að
hér yrðu engir eignarskattar, erfða-
fjárskattur nánustu ættinga kominn
niður í 5%, matarskattur úr 25% í
7% og skattar á fyrirtæki með þeim
lægstu í heiminum.
Sagði hann þessar efnahagsum-
bætur ekki gerðar til að höggva til
þeirra sem minnst mega heldur
væri því öfugt farið. Velferðarkerfið
væri öflugra eins og sjálfstæðis-
menn vildu hafa það. Ekki væri ein-
ungis hugsað um hvernig skipta
ætti kökunni heldur hvernig ætti að
stækka hana. „Þetta er lifandi póli-
tísk hugsun,“ sagði forsætisráð-
herra.
Hann rifjaði upp að ríkisstjórnin
hefði veitt einum milljarði króna
meira til öryrkja en ráðgert var.
Samt hefði umræðan snúist um svik
ríkisstjórnarinnar. „Allir dönsuðu í
kringum þá vitleysu að það væru
svik,“ sagði Davíð og það væri með
ólíkindum hvernig umræðan snérist
öll á hinn verri veg. Bætur öryrkja
hefðu í rauninni tvöfaldast að raun-
virði sem væri einsdæmi.
Meirihluti næst í Reykjavík
Davíð sagði Reykjavíkurborg illa
stjórnað og borgarsjóð skuldum
vafinn frá hvirfli til ilja. Ekki væri
öll nótt úti ennþá um að Sjálfstæð-
isflokkurinn fengi hreinan meiri-
hluta í borgarstjórnarkosningum.
Hann yrði hissa ef það gerðist ekki í
næstu sveitarstjórnarkosningum
eftir framgöngu vinstri manna í
borginni en ekki ætti að útiloka
samstarf með öðrum.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór
frá völdum í borginni sagði Davíð
að nettóskuldir á núvirði hefðu
numið 2-3 milljörðum króna. Nú
væru skuldirnar 50 milljarðar.
„Hvað hefur gerst sem réttlætir
þetta?“ spurði hann fundarmenn.
„Ekki neitt,“ var svarið og meiri-
hlutanum hefði tekist að skemma
innviði borgarkerfisins. Bað hann
fundarmenn að ímynda sér hvað
hægt væri að gera á hverju ári í
borginni fyrir vextina af lánunum.
Sagði hann fólkið sem stjórnaði
Reykjavík ekki vont fólk. Þetta
væri hins vegar afleiðing þess þeg-
ar hjörðin væri eins sundurleit og
raun beri vitni.
Davíð var spurður um framtíð-
aráform sín þegar hann hverfur úr
stóli forsætisráðherra í haust.
Framtíðaráform óljós
„Ég hef ekki gert þetta allt sam-
an upp við mig – hvað sé best fyrir
flokkinn og aðra,“ sagði hann og
velti þessum málum fyrir sér frá
mörgum hliðum. Þó hann gegndi
ekki embætti forsætisráðherra yrði
hann áfram formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Enginn hefði verið jafn
lengi og hann formaður fyrir utan
Ólaf Thors, sem gegndi starfinu í 27
ár. „Ég lofa að sitja ekki svo lengi,“
sagði Davíð og taldi svo langa for-
mannssetu liðna tíð í Sjálfstæðis-
flokknum. Hann ætli að hugsa sitt
ráð og flokksmenn yrðu að sjá til.
„Ég er ekki að leyna neinu. Ég hef
bara ekki gert það upp við mig,“
sagði Davíð Oddsson og að hann
yrði að hitta flokkssystkin sín á öðr-
um morgunfundi þegar liði fram á
vorið.
Varnarmálin
erfið viðfangs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Oddsson spjallaði við flokksystkin sín á morgunfundi í Valhöll á laugardaginn.
Ekki gert framtíðaráform upp við sig
Davíð Oddsson á morgunfundi í Valhöll
NÝ ferðaskrifstofa, Langferðir
ehf., tekur til starfa næstkomandi
fimmtudag en hún mun sérhæfa sig
í sölu á ferðum svissnesku ferða-
skrifstofunnar Kuoni til fjarlægra
staða. Aðaleigandi og fram-
kvæmdastjóri er Tómas Þór Tóm-
asson, sem hefur m.a. starfað hjá
Samvinnuferðum Landsýn, Úrvali-
Útsýn og Ferðamálaráði.
„Við hyggjumst hér fara inn á
nýtt svið í ferðamálum og bjóða úr-
val langferða til fjarlægra staða ut-
an Evrópu,“ segir Tómas í samtali
við Morgunblaðið. Hann segir ferð-
irnar skipulagðar af dótturfyr-
irtæki Kuoni á Norðurlöndunum
sem Langferðir hafi einkasölu-
samning við. „Langferðir verður
þannig eingöngu söluskrifstofa fyr-
ir þennan öfluga ferðaskipuleggj-
anda, Kuoni, og með því að nýta
það þéttriðna þjónustunet þeirra
um heim allan, hagstæða samninga
þeirra og faglegt úrvinnslukerfi
Kuoni í Danmörku má segja að ís-
lenskum ferðalöngum séu allir veg-
ir færir,“ segir Tómas ennfremur
og segist hvergi banginn við að
stofna ferðaskrifstofu með þessum
nýju áherslum.
„Við ætlum okkur ekki að sigra
heiminn eða verða stærsta ferða-
skrifstofan en teljum okkur geta
mætt vaxandi eftirspurn eftir svona
ferðum hérlendis og bjóða Íslend-
ingum að ferðast til fjarlægra staða
á hagstæðu verði.“ Tómas segir að
Kuoni hafi fyrir áratug haslað sér
völl á Norðurlöndunum og stofnað
dótturfyrirtæki um þann rekstur.
Starfsmenn þess séu alls um 700 en
fyrirtækið á einnig leiguflugs-
ferðaskrifstofuna Apollo og leigu-
flugfélagið Novair. Segir hann um
700 þúsund manns ferðast árlega á
vegum Kuoni á Norðurlöndum.
Auk þess að selja langferðirnar
mun skrifstofan bjóða sólar-
landaferðir með Apollo en Tómas
segir fyrirtækið ekki síst hafa sér-
hæft sig í Grikklandsferðum og
fleiri áfangastöðum við austanvert
Miðjarðarhaf.
„Við verðum eingöngu í sam-
bandi við skrifstofuna í Danmörku.
Nú þegar Íslendingar geta komist
þangað tiltölulega ódýrt teljum við
þægilegast að hefja langferðir í
Kaupmannahöfn. Kastrup er þægi-
leg flugstöð og menn geta einnig
staldrað við í Kaupmannahöfn.
Langferðir eru til húsa við Holta-
smára 1 í Kópavogi og verður vefur
skrifstofunnar í fyrstunni
www.langferdir.is.
Langferðir taka til starfa á fimmtudag
Sérhæfir sig í sölu ferða
til fjarlægra staða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tómas Þór Tómasson er framkvæmdastjóri Langferða.